Helgarpósturinn - 17.03.1988, Blaðsíða 33
eins af sínum herlegu skemmti-
kvöldum og er það að þessu sinni
haldið til heiðurs hinum nýlátna
skemmtikrafti Divine og á ekki
ómerkari stað en Hótel fslandi.
Þar koma m.a. fram hinir margróm-
uðu lygalaupar Sykurmolamir
svo og hljómsveitin Sogblettir og
að auki verður sérstakt skemmtiat-
riði til heiðurs Divine og hefur það
hlotið nafnið Dragt. Þetta verður
líklega í eina skiptið á þessu ári sem
Sykurmolarnir leika hér á landi, því
þeir eru þegar orðnir fullbókaðir út
árið. Þeir eru að fara í hljómleika-
ferðir um Bretland, verða sömuleið-
is í Bandaríkjunum og Japan í sum-
ar, taka þátt í Pink Pöp-hátíðinni í
Hollandi og munu einnig spila á
Hróarskelduhátíðinni í Dan-
mörku 2. júlí. LP-plata þeirra, Life’s
too good, er væntanleg í maí og
nýtt smáskífulag í apríl. Þegar um
fer að hægjast með haustinu ætla
Sykurmolar í hljóðver að hljóðrita
nýtt efni til að eiga í handraðanum.
Enn hefur ekki fengist uppgefið við
hvaða hljómplötufyrirtæki er verið
að semja, en samkvæmt heimildum
HP hafa Sykurmolarnir náð flestu
því fram sem þeir vildu hafa í samn-
ingum og allt gengur þetta hægt en
samt vel. Garðar Hólm víðsfjarri.
Þess má og geta að Sykurmolarnir
voru á forsíðu nýjasta heftis breska
tónlistartímaritsins Sound og einn-
ig hefur frést að erlendir blaðamenn
hafi verið þaulsætnir hér á landi að
undanförnu til að fylgjast með
hvunndagslífinu hjá Molunum.. .
Tíminn er takmörkud auðlind. Flugið sparar
tíma og þar með peninga.
Flugleiðir og samstarfsaðilar í lofti og á láði
tengja yfir 40 þéttbýliskjarna innbyrðis
og við Reykjavík.
Með þaulskipulagðri og nákvæmri áætlun
leggjum við okkur fram um að farþegum okkar
nýtist tíminn vel.
Þannig tekur ferð landshorna á milli
aðeins stutta stund efþú hugsar hátt.
Nf SENDING
NY SENDING AF
LEÐURSÓFASETTUM
OG HORNSÓFUM
Verð mjög hagstætt
HreyfiIshúsinu á horni Grensásvegar og Miklubrautar. Sími 686070
Mikið úrval af kökum og öðru góðgæti
Borgarholtsbraut 19
Hrísateigi 47
Verið velkontin!
HELGARPOSTURINN 33