Alþýðublaðið - 18.04.1939, Síða 1

Alþýðublaðið - 18.04.1939, Síða 1
ALÞTÐUBL&SIÐ RITSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON XX. ÁBGANGUB ÞRIÐJUDAG 18. APRÍL 1939 ÚTGEFANDl: ALÞÝÐUFLOKKURINN 88. TÖLUBLAÐ Alpýðuflokkurinn telur rétt að reyna að sameina lýðræðis öflin í landinu á hættu tímum. .. ♦ .— Ræða Stefáns Jóh. Stefánssonar á alþingi i dag. HERMANN JÓNASSON FORSÆTISRÁÐHERRA til- kynnti hina nýju ríkisstjórn í sameinuðu alþingi í dag klukkan 1.30. Hann kvaddi sér hljóðs utan dagskrár, las upp tilkynn- ingu konungs og flutti síðan ræðu um stefnu hinnar nýju ríkisstjórnar og lýsti aðdragandanum að myndun hennar. Að ræðu hans lokinni fluttu þeir Stefán Jóh. Stefáns- son og Ólafur Thiors ræður og fer ræða Stefáns Jóh. Stefáns- sonar hér á eftir: Ræða Stefáas Jéhaias Stefánssonar. „Alþýðuflokkurinn taldi æskilegt og eðlilegt eins og nú standa sakir, að samvinna gæti tekist milli hinna lýðræðissinn- uðu flokka í landinu, um ráð- stafanir til þess að yernda og efla lýðræðið og tryggja sjálf- stæði og hlutleysi þjóðarinnar. Jafnframt er honum að sjálf- sögðu ljóst, hverjir erfiðleikar og hættur geta steðjað að ís- lenzku þjóðinni vegna stjórn- málaástandsins í álfunni og ó- friðarhættunnar, sem yfir vof- ir, og nauðsyn þess að höfuð- stjórnmálaflokkarnir hafi sam- vinnu um ráðstafonir til þess að mæta slíkum atburðum. Með þetta fyrir augum hefir Alþýðuflokkurinn ekki talið rétt að skorast undan því að taka um skeið þátt í samsteypu- stjórn með Framsóknar- og Sjálfstæðisflokknum í því skyni að mæta þessum örðugu við- fangsefnum. Alþýðuflokknum er ljóst á- stand sjávarútvegsins, sem stafar af aflaleysi og markaðs- örðugleikum undanfarinna ára og nauðsyn þess að ráðstafanir væru gerðar til þess að bæta afkomuskilyrði hans og koma rekstri hans á heilbrigðan grundvöll. Þegar sýnt þótti að gengis- lækkunin væri eina þingræðis- lega leiðin, sem hægt yrði að i'ara til þess að gera tilraun til viðreisnar sjávarútveginum. stóð meirihluti af þingflokki Alþýðuflokksins að þessari lausn málsins. En um leið var flokknum fyllilega ljóst, að það væri með öllu ógerlegt að sú verðhækkun, sem leiddi af gengislækkun, lenti óbætt og með fullum þunga á þeim stétt- um, sem verst eru settar í þjóð- félaginu og erfiðleikar sjávar- útvégsins á undanförnum árum hafa mætt mest á. Það var alt af afstaða Al- þýðuflokksins í jsambandi við gengislækkunina, að ef að þeirri leið væri horfið, þyrfti að TRYGGJA aukna atvinnu í landinu, svo að atvinnuaukn- ingin bætti upp þá verðhækk. un, sem yrði vegna gengislækk- unarinnar. En þar sem ekki virðist unt að setja neina á kveðna tryggingu fyrir atvínnu aukningu, er leiddi af gengis- lækkun, einbeindi Alþýðuflokk- urinn áhrifum síniun í þá átt, að jafnframt gengislækkuninni væru gerðar ráðstafanir til þess að tryggja það, að afkoma ál- þýðunnar í landinu yrði ekki hlutfallslega verri eftir að sú tilraun væri gerð en hún er nú. All verulegum atriðum fékkst framgengt í þessu efni. Þar seem Alþýðuflokkurinn lét nokkuð til sín taka afgreiðslu þeirrar löggjafar sem sett var í sambandi við gengislækkunina, er honum ljóst að framkvæmd þessarar löggjafar og mála í sambandi við hana sé næsta mikils virði og þessvegna sé það rétt og cðliiegt að áhrifa Al- þýðuflokksins gæti þar einnig. Alþýðuflokkurinn telur það mjög nauðsynlegt að gerðár verði öflugar ráðstafanir til þess að draga úr þeirri dýrtíð sem gengislækkunin hlýtur að hafa í för með sér, og að þess- vegna verði að beita verðlags- eftirliti og húsaleigulögum í þessu skyni með öruggri fram- kvæmd. Vegna hins mikla at- vinnuleysis, sem ríkir í landinu telur Alþýðuflokkurinn að halda beri uppi opinberum verklegum framkvæmdum og atvinnubótum, eins og verið hefir undanfarin ár, um leið og reynt er að láta opinberu fram- kvæmdimar og atvinnúbæturn- ar stuðla að aukinni framleiðslu í landinu. Végna afkomu al- mennings telur Alþýðuflokkur- inn og nauðsynlegt að tollar á nauðsynjum verði ekki auknir en gerðar ráðstafanir til þess að ná sköttum af vaxtafé. Alþýðuflokkurinn mun að sjálfsögðu leggja áherzlu á það, að félagsmálalöggjöf sú, sem sett hefir verið hin síðustu ár, og flokkurinn hefir staðið að, verði uppi haldið og framkvæmd eftir því sem efni og ástæður leyfa. Eins og hæstvirtur forsætis- ráðherra hefir lýst yfir, hlýtur það að vera eitt af aðalhlut- verkum ríkisstjórnarinnar og stuðningsflokka hennar, að gera allt sem unt er til þess að örva framleiðslustarfsemina og efla atvinnulífið í landinu. f því skyni þarf að stefna að því, að allur hæfur fiskiskipastóll landsins verði tekinn til útgerð ar og greitt fyrir einstaklingum og félögum í því skyni. Um leið þarf að tryggja fé og gjaldeyri til nauðsynlegrar endurnýj- unar og aukningar á skipaflot- anum, og að veita styrki og lán á svipaðan hátt eins og gert hefir verið á síðustu tímum. Til þess að halda uppi hag- nýtri byggingaratvinnu og koma á aðkallandi aukningu húsnæðis, þarf að tryggja, að lögð verði fram Vi millj. kr. 1939 og Vi millj. kr. 1940, sem lán og styrkir til byggingar verkamannabústaða í Reykja- vík og samsvarandi upphæð miðað við íbúatölu og þar sem skilyrði eru fyrir hendi í öðr- um bæjum og stærri kauptún um, sem lagt geta fé á móti svo sem lög áskilja. Alþýðuflokknum er það vel ljóst. að samstarf það, sem nú er að hefjast um stjórn lands- ins er nokkuð með nýjum hætti. En þeir tímar, sem nú standa yfir eru vissulega ó- venjulegir. Inn á við ótal örðug- leikar í atvinnuháttum og út á við blika ófriðar og óvissu. Lýð- ræðið á í vök að verjast. Ein- ræðisöflin hafa skotið upp koll- inum hér á landi eins.og ann- arsstaðar. Alþýðuflokknum þykir því rétt eiiis og á stendur, að gera tilraun til þess að sameina lýð- ræðisöflin í landinu til sam- eiginlegra átaka á hættutímum. Hvernig sú tilraun gefst, mun reynslan Ieiða í Ijós. Alþýðu. flokkurinn gengur til þessa samstarfs í trausti á lýðræðið, þjóðfélagslegar umbætur og réttlæti í félagsmálefnum. Á meðan stjórnarsamstarfið get- Frh. á 4. síðu. Heildaraflinn fjórð- ingi meiri en i fyrra Goðar gæftir i siðnstn vika ea tregur afli. H1 Hítler í fylgd með yfirmönnum þýzka hersins og flotans, Keitel hershöfðingja (til vinstri) og Raeder sjóliðsforingja (til hægri). EILDARAFLINN á öllu land- inu var, samkvæmt heimild- um Fiskifélags Islands, 20 972 sxnálestir laugardagskvöldið 15. þ. m. Um sama leyti í fyrra var heildaraflinn 15 265 smál. Hvort- tveggja er miðað við fullverkað- an fisk. Aflinn það sem af er þessu ári er því 5707 smálest- um eða fjórðungi meiri en á sama tíma síðast liðið ár. í vikunni sem leið voru góðar gæftir í flestum verstöðvum landsins, en víðast hvar er afli talinn tregur. Or einstökum ver- stöðvum er þetta helzt: Grindavík: Þaðan var róið 5 daga í síðustu viku. Afli var Frh. á 4. síðu. Hltler kallar pýzka rík- ispingið saman 28 aprfl ---4--- Segist munu svara Roosevelt þar. H IskyggUegir herflutn- ingar ítala á Spáni. Tvær ifalskar hersveitir suður við Gibraltar, aðrar tvær norð- ur við frðnsku landamærin. Frá fréttaritara Alþýðublaðsins. KHÖFN í morgun. UTANRÍKISMÁLARIT- STJÓRI Lundúna- blaðsins „Évening Stan- dard‘‘ skýrir í blaði sínu frá ískyggilegum herflutningum ítala á Spáni undanfama daga. Segist hann hafa áreiðan- legar heimildir fyrir því, áð tvær hersveitir ítalskra Alpa hermanna hafi verið fluttar til Cadiz á suðurströnd Spánar í næsta nágrenni ensku herskipahafnarinnar Gibraltar og aðrar tvær norður að frönsku landa- mærunum í Pyreneafjöllum. „Evening Standard“ gefur einnig í skyn, að það sé kunn ugt, að sex þýzkar herdeild- ir hafi undanfarnar vikur verið fluttar suður til Ítalíu og Libyu, og komi mönnum eðlilega slíkir herflutningar grunsamlega fyrir sjónir. Þessar fréttir þykja styrkj- ast mjög við það, að kunnugt er, áð br-ezkir hermenn hafa unnið að því nótt og dag undan- farið að grafa skotgrafir yfir eiðið, sem tengir Gibraltar við meginland Spánar. Þykir það ó- tvírætt benda til þess, að Bret- ar séu við því búnir, að árás kunni að verða gerð á Gibraltar frá meginlandinu fyrr en varir. Frá fréttaritara Alþýðublaðsins. K.höfn í morgun. ITLER hefir nú kallað þýzka ríkisþingið saman á fund þ. 28. apríl og er því lýst yfir, að hann muni frammi fyrir því svara áskorun Roosevelts Bandaríkjaforseta, sem svo mikið umtal hefir vakið síðustu daga. Bæði þessi aðferð Hitlers til þess að svara áskorun for- setans svo og hinar hatrömmu þýzku blaðaárásir í tilefni af málaleitun hans, þykja ekki benda í þá átt, að svar hins þýzka einræðisherra verði til þess fallið að draga úr ófrið- arhættunni í heiminum. Þvert á móti. Menn óttast, að Hitl- er svari með árásum með mótkröfum einum og að viðsjárnar inuni vaxa um allan helming við ræðu hans. Mörgum er jafnvel ekki grunlaust um það, að alvar- legir og örlagaríkir viðburðir geti gerzt í Evrópu áður en ríkisþingið kemur saman og minna í því sambandi á það, að Hitler hafi hingað til að jafnaði þótt vissara að geta boð- ið ríkisþinginu upp á^eitthvað annað en orðin tóm. Hverjn svarar litler? LONDON, í morgun. FÚ. Búist er við, að Hitler muni í svari sínu 28. þ. m. leggja fyrir Roosevelt gagntillögur, með því að ólíklegt þykir, að hann færi að kalla saman ríkisþingið til þess að láta það hlusta á ræðu elngöngu. I Berlín ætla menn, að Hitler muni meðal annars svara því, að Þýzkaland geti aldrei setið við sama samningaborð og Rússland, að hann krefjist þess, að ný- lendumálin verði leyst og Þýzka- landi gefnar frjálsar hendur í viðskiftamálum á þeim svæðum Evrópu, sem það telur sín hags- munasvæði. Göring fór frá Róm í gær á- leiðis til Berlínar. Engar opin- berar tilkynningar hafa verið gefnar út um viðræður hans og Mussolinis um áskorun Roose- velts. fibkert svar frá Ítalíu ? Talið er, að um sfeeið hafi ver- Ið um það mtt, að Þýzkalanú og ] Rðmenia vill ekki ráss LONDON í morgun. FÚ. UMRÆÐUM heldur á- fram milli Bretlands, Frakklands og Sovét.Rúss- lands, og fer sendiherra Rússa í London heim til Moskva í dag, til þess að gefa stjórn sinni skýrslti. Frá París kemur fregn um það, að samningum miði vel áfram um aðstoð þá, er veita skuli Póllandi og Rúmeníu, ef á þau verð- ur ráðist. f Rúmeníu er því þó neitað opinberlega, að rússneskum her muni nokkru sinni verða veitt frjáls för um landið. IfWWWWWWWWWW—J ítalía svöruðu sameiginlega, en nú hefir verið hætt við það. Því er nú haldið fram fullum fetum, að Italia muni hafa áskor- un Roosevelts að engu og ekki leggja fram neinar gagntillögur. FasistablöðíB halda áfram að ráðast á Roosevelt. Þýzk blöð halda áfram árásum sínum á Roosevelt, og í sama streng taka nú ítölsk blöð, sem í fyrstu höfðu fá orð um boðskap forsetans. . Signor Gayda sagði í gær, að boðskapur Roosevelts væri nýr þáttur í baráttunni fyrir því að einangra Þýzkaland og ítalíu. Hann kvartár yfir því, að boð- skapurinn skyldi vera borinn fram fyrir opnum tjöldum, í Frh. á 4. síðu. /

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.