Alþýðublaðið - 19.04.1939, Síða 1

Alþýðublaðið - 19.04.1939, Síða 1
I Hafnarfirði. Munið skemtun félagunna í kvðlð í bæjarðingssalnum alhMbuðib kemur út í fyrramálið en ekki á föstud. XX. ÁRGANGUB MIÐVIKUDAGINN 19. apríl 1939 89. TÖLUBLAÐ ÚTGEFANÐI: ALÞÝÐUFLOKKUBINN RXTSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON Sðlisambandið vill taka i sinar henðnr inukaup i vðrnm til ntgerðariniar. -----4>--- Fnndnrlnn skoraOI á rfkissfjórnina að gera allt til að halda dýrtíðinni niðri. ' Ósamkomulag um kosn- ingu á stfðrn sambandsins Pólskur her á leið til þýzku landamæranna. Hitler og Mussolini byrjað~ ir að draga saman seglin ? ------» Skyndlleg árás á Danzig þó ekki átilokuð ------»------ Frá fréttaritara Alþýðublaðsins. London í morgun. P IMMTÍU ÁRA AFMÆLI HITLERS verður haldið hátíðlegt um allt Þýzkaland á morgun. I sambandi við afmælisdaginn gengur orðrómur um það meðal stjórnmálamanna um alla Evrópui að þýzka stjórnin hafi í hyggju að koma heiminum enn einu sinni á óvart með einni af sínum skyndiárásum, að þessu sinni annað hvort á Danzig eða á Júgóslavíu. Leikur sérstak- lega mikill grunur á því, að Hitler vilji fá Danzig sem einskonar afmælisgjöf. Yfirleitt hallast menn þó fremur að þeirri skoðun, að Hitler og Mussolini muni á næstunni hika við nýjar árásir og neyðast til þess að hafa hægara um sig en undan- farið með tilliti til þeirra öflugu samtaka til verndar friðin- um, sem þeir sjá nú í uppsiglingu undir forystu Englands og Frakklands. Þepar nýja stjým- in tólt við vöidum: Magnlans harma grátur fléðins. ðísii Sveinsson gef- ur yfiriýsingu. SJALDAN mun nýrri ríkis- stjórn hafa á Alþingi verið tekið jafn kyrlátlega og stjórninni, sem tilkynt var í gær. Um verulega andstöðu var alls ekki að ræða — bjuggust þó flestir við, að kommúnistaþing- mennirnir myndu, eftir öll, geypiyrðin undanfarnar vikur, a. m. k. ekki vanda henni kveðj- urnar. En þetta fór öðruvísi. — Þeir sátu þögulir og' stiltir und- ir ræðum ráðherranna, að þeim loknum stóð H. V. upp svona rétt til máiamynda og sagði nokkur orð. Var ræða hans á- kaflega dauf og bragðlaus. í raun og veru skyldist mönnum að hann væri aðeins að klaga það, að honum skyldi ekki einn- ig vera boðið sæti í stjórninni. Þá mælti hann og nokkur orð um það, að það væri lítilsvirði að fá aukin framlög til verka- mannabústaða, en það hefir ráðherra Alþýðuflokksins trygt. Jainframt mælti H. V. fyrir því, að lögunum um verka- mannabústaði væri breytt. Með- Frh. á 4. síðu. RAMHALD aðalfundar Sölusambands ísl. fiskframleiðenda stóð yfir meirihluta dags í gær og var lokið kl. 11 í gærkveldi. í fundarbyrjun gaf formað- ur sambandsins, Magnús Sigurðsson bankastjórh skýrslu um störfin undan- farið, aflabrögð og söluhorf- ur. Hann gaf og skýrslu um störf niðursuðuverksmiðj- unnar. Richard Thors flutti skýrslu fyrir hönd nefndar þeirrar, sem á fundinum í vetur var kosin til þess að fylgjast með hagsmunamál- um útgerðarinnar. Umræður hófust síðan um ýms mál, en snérust þó mest um hvort rétt hefði verið að breyta gengi krónunnar, og virtist sú skoðun eiga að mestu óskift fylgi á fundinum. Margar tillögur voru bornar fram af ýmsum fundarmönnum og fer hér á eftir ályktun, er bor- in var fram af Sveinbirni Árna- syni og samþykt var mótatkvæða laust ásamt viðbótartillögu frá Finni Jónssyni alþingismanni: „Framhaldsaðalfundur S. í. F. haldinn í Reykjavík 17. 4. ’39, samþykkir eftirfarandi ályktun: 1. Þar sem löggjafarvald þjóðar- innar hefir nu sýnt sjávarút- veginum þá sanngirni að leið- rétta gamalt ranglæti í garð framleiðslustéttanna til lands og sjávar, með því að færa skráningu ísl. krónu í það horf, sem útvegsmenn mega vel við una, þá lítur fundurinn svo á, að nú sé komið til kasta út- vegsmanna sjálfra um það að gera ráðstafanir til þess að tryggja það að sínu leyti, að þær hagsbætur, sem fengnar eru með þessu, komi útvegs- mönnum að sem fylstum notum. 2. Þar sem nú er vitað mál, að að- keyptar erlendar vörur hljóta að stíga í verði við gengis- breytinguna, og þé engu síður nauðsynjavörur til útgerðar að óbreyttum verzlunarháttum þeim, er útvegsmenn eiga við að búa, og þar sem af þessu hlýtur að leiða það, að aukinn tilkostnaður gleypir að veru- légu leyti þann hagnað, sem vænst er áð útvegsmenn gætu annars haft af réttlátari gengis- skráningu, telur fundurinn sjálfsagt að athuga beri alla möguleika til þess að koma í veg fyrir það að hækkandi verð á nauðsynjavörum útveg- inum til handa geri þessa ráð- stöfun löggjafans þýðingar- lausa fyrir afkomu útvegsins. 3. Að öllu þessu athuguðu telur fundurinn rétt, að þar sem sjávarútvegurinn hefir nú þeg- ar stofnun, sem annast sölu saltfiskjar fyrir félagsmenn, með óumdeilanlegum árangri til hagsbóta fyrir þá, miðað við annað hugsanlegt fyrirkomu- lag, að athugaðir verði allir möguleikar á því, að starfsemi þessa félagsskapar sem þegar er fyrir hendi, verði útvíkkuð svo, að hún taki einnig til sölu fleiri sjávarafurðir, og einnig til innkaupa á nauðsynjavör- um útvegsins fyrir félagsmenn. 4. Ályktar fundurinn því að skipa 5 manna nefnd útvegsmanna til þess að rannsaka það, hversu því yrði við komið, og skila áliti sínu og tillögum fyrir næsta aðalfund. 5. Ennfremur ályktar fundurinn, að skora á alþingi og ríkisstjórn að gera allt, sem í þeirra valdi stendur. til þess að halda í skef jum almennri dýrtíð í land- inu með öflugu verðlagseftir- liti.“ Stjórnarkosningin. Það kom í ljós, er ganga skyldi til stjórnar- kosningar, að ekki mundi nú fást sú eining um stjórnarkosninguna, sem áður hefir náðst á aðalfund- um .S. I. F. Gerði Finnbogi Guðmundsson fyrir sina hönd og allmargra ann- ara fundarmanna kröfu til þess, að Sigurður Kristjánsson y'rði ekki endurkosinn, en í hans stað fengist fulltrúi úr verstöðvunum hér við Faxaflóa. Ekki gat náðst samkomulag um þetta, og var þá viðhöfð hlut- fallskosning í stjómina, en það er heimilt samkv. lögum S. I. F. Komu fram 4 listar og komu þeir allir mönnum að. Kosningu hlutu: Magnús Sigurðsson bankastjóri, Jón Árnason framkvæmdarstjóri, Frh. á 4. síðu. Hazistaforinsiarnir á ráðsíefnu i Berlín. Hitler kom alveg óvænt til Berlín aftur í gærkveldi úr eft- irlitsför, sem hann hefir verið á í Austurríki undanfarna daga, og er það einum sólar- hring fyrr, en áætlað hafði ver- ið. Það er talið, að hann ætli sér að nota daginn í dag til þess að ráðgast við aðra helztu for- ingja nazistaflokksins um á- standið í álfunni, þar á meðal við Göring, sem einnig kom til Berlín í gær úr Ítalíuför sinni. Þá er einnig talið víst, að Hitler muni ræða við Gafencu, utanríkismálaráðherra Búmen. íu, sem kom til Berlín í gær, og heimta nákvæmar upplýsingar af hdnum um þátttöku Rúmen- íu í varnarsamtökum Englands og Frakklands. En aðalerindi rúmenska utanríkisráðherrans til Berlín mun vera það að ræða við þýzk stjórnarvöld um fram- kvæmd hins víðtæka viðskifta- samnings milli Rúmeníu og Þýzkalands, sem undirritaður var í Búkarest á dögunum. Var liann mestan hluta dagsins í gær á ráðstefnum með Ribben- trop, utanríkismálaráðherra Hitlers, um þessi mál. Samningaumleitunum Breta og Frakka um varnarbandalag gegn öllum f'rekari yfirgangi Þýzkalands og ítalíu miðar nú að því er talið er mjög vel á- fram, og vænta menn þess, að Rússland muni nú innan skamms skuldbinda sig til þátt- töku í þeim. Átti sendiherra Englands í Moskva, Wiliiam Seeds, enn tal við Litvinov í gær, það þriðja síðan á laugardaginn, og fær viðleitni Englands og Frakk- lands til verndar friðinum í álf- LONDON í gærkveldi. FO. PÁNSKI HERINN, sem í jgær var sendur til Sevilla til þess að taka þátt i hersýningu, er nú kominn aftur til La Linea í nánd við Gibraitar. 13 frönsk herskip, þar á meðal 2 orustuskip og 2 beitiskip, liggja nú undan Gibraltar, en Bretar vinna af kappi að því að gera variiir sínar í Gibraltar sem ör- uggastar. I dag lagði þýzki fiotinn, sem ákveðtð er að haldí æfingar sínar undan •tröndnm Sp&nav, ai stað unni nú mikla viðurkenningu i blöðum sovétstjórnarinnar. MacBride (Daily Herald). Jafnaðarmemi gaaga úr stjórn í Belgín. Kapiski fiokknrinn og frjáisijrndi flokknrinn mpda nýja stjórn. LONDON í gærkveldi. FO. Ý STJÖRN var mynduð f Belgíu í dag, og tókst M. Pierlo að mynda sambandsstjörn kaþólskra manna og frjálslyndra. Hafði áður verið þriggja flokka stjórn með stuðningi jafnaöar- manna, en þeir greiddu atkvæði í gær á móti ýmsum ráðstöfun- um, sem kaþóiski flokkurinn og frjálslyndi flokkurinn töldu nauð- synlegar, og þar með var þeirri stjórnarsamvinnu slitið, en ka- þólski fiokkurinn og frjálslyndi flokkurinn hafa nú fengið nægi- legan stuðning annara flokka til þess, að ný stjórn yrði mynduð. frá Þýzkalandi. 2000 ítalskir hermenn, sem ver- ið hafa á Spáni, komu í dag til ítalíu, og var þeim tekið af mikl- um fögnuði. Spönsk yfirvöld hafa fullvissai yfirvöldin í Tanger um það, að enginn fótur sé fyrir þeim fregn- um, að Spánverjar hafi í hyggju að leggja undir sig Tanger. Spánskir fulltrúar komu í dag til Frönsku Marokkó, og er erindi þeirra að ræða við yfirvöldin þar um framtíðarsamkomulag ttiSlli Spánar og Frönsku Marokbe. Brezkir togari sírandar i iðtt vlð Laadeyjasand. Hll skipshðVmin bjargaöist DREZKUR togari, „Mohican“ frá Hull strandaði kl. 4Vá í nótt á Landeyjasandi á svonefndri Krossfjöru fram- undan Hallgeirseyjarbæjunum. Er þarna ægissandur. Menn björguðust allir í land á skipsbátnum. Veður var hvasst á út- sunnan, þoka og myrkur. Klukkan 4 í nótt heyrðist mikill skipsblástur á Hallgeirs- eyjarbæjunum 1 Landeyjum og var þegar brugðið við og farið niður á sand, þar sem víst var talið, að skip væri í nauðum statt. Þegar menn komu á sandinn hittu þeir fyrir enska sjómenn og sáu skip liggja þvert fyrir, alllangt úti, strandað og veltast í brimi. Skipsbáturinn var þá á leiðinni i land og skýrðu sjóniennirnir. sem í land voru komnir svo frá, að togarinn hefði strandað kl. rúmlega 4, að tekist hefði við illan leik að koma skipsbátnum strax í land með tveimur mönnum, en síðan línu skotið í land af skipinu, hún bundin við bátinn og hann dreginn síðan út og þannig björguðust mennirnir allir án þess nokkur meiddist. Skipverjum var þegar komið á bæina, en í dag var farið á strandstaðinn og var sýslumaður Rangæinga kominn þangað í dag, er Alþýðublaðið átti tal við Hallgeirsey. Litlar líkur eru taldar til þess að hægt sé að bjarga skip- inu, en ekki óhugsandi aö hægt sé að bjarga einhverju úr því um fjöru. Þrettán frðnsk hersklp komin tll Gibraltar. Þýzkur floti einnig á leið til Spán~ ar, í orði kveðnu tii að æfa sig.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.