Alþýðublaðið - 27.04.1939, Blaðsíða 1
KITSTJÓRI: F. B. VALDKMABSSON
ÚTGEFANM: ALÞÝE>UFLÖKKUltINM
XX. ÁBGANGUR
FIMTUDAGINN 27. apríl 1939.
95. TÖLUBLAÐ.
UalMfuw, sem fram voro bornar
í fyrstu krðfugðngnnni, hafa unnist.
--------------«--------------
V!nnlð gegn snndrung alþýðusaratak*
anna ogifyrir verndun lýðréttindanna.
Fylkið ykkur um alþýðusamtðkin 1. maí.
UUNDIRBÚNINGI1. maí nefnda Fulltrúaráðs verkalýðs-
félaganna að hátíðahöldunum 1. maí er nú að verða
lokið. Verður hátíðahöldunum hag'að að mestu leyti eins og
urfdanfarin ár.
Úm kl. 2 safnast fólk sam-
an við Alþýðuhús Reykja-
víkur, þar leikur hljómsveit
og ein ræða verður flutt.
Verður síðan farið í stutta
kröfugöngu, en að henni lok-
inni verður staðnæmst að
A'rnarhóli og þar fara fram
ræðuhöld.
í 17 ár — fyrst 1923 — hafa
alþýðufélögin gengist fyrir há-
tíðáhöldum þennan dag — og
meðan samtökin voru óklofin,
ríkti fullkomin eining meðal al-
þýðunnar 1. maí, eftir að kom-
múnistar klufu alþýðusamtökin
hafa verkamenn verið í tveimur
fylkingum — og nú eftir að
lléðinn Valdimrsson sveik Al-
þýðuf lokkinn og sameinaðist
kommúnistum — verða fylk-
ingarnar þrjár. Alþýðuflokkur-
inn hvetur alla félaga sína að
fylkja sér um flokkinn þennan
dág og taka þátt í hátíðahöld-
unum, látið ekkert hindra ykk-
ur í því. Stefna Alþýðuflokks-
ihs er föst og ákveðin, að vera
alt af á verði um hagsmuni
fólksins, sporna fast á móti
hverri réttindasviftingu, taka
þátt í öllum störfum, sem miða
að lausn á erfiðleikum og gæta
ált af í því sambandi hagsmuna
alþýðunnar.
Við lausn þeirra mála, sem
hýléga hefir verið ráðið til
lykta, hefir enginn flokkur eins
og Alþýðuflokkurinn gætt
hagsmuna umbjóðenda sinna.
Hefði hann ekki tekið þá af-
stöðu, sem hann tók, þá hefði
vérkalýðurinn staðið algerlega
várnarlaus gagnvart fleiðingum
géhgislækkunarinnar.
Kommúnistar tóku aðra af-
stöðu. Verkamenn geta nú eftir
að alþingi hefir verið frestað
spurt þá um árangurinn af
þeirra starfi.
Alþýðuflokknum er þð fylli-
lega ljóst, að alt veltur á því
fyrir íslenzkan verkalýð að
halda þeim lýðréttindum, sem
hann hefir. 1923, þegar flokk-
uririn fyrsta sinni hafði hátíða-
höld 1. maí, voru aðalkröfur
hans: 21 árs kosningarréttur,
jafn og almennur, afnám rétt-
indasvifíingar vegna sveitar-
hjáipar, breyting á kjördæma-
skipuninni í Iýðræðislegri átt og
lóks 8 stunda hvíld á togurun-
um.
Þetta voru aðalkröfur alþýðu-
samtakanna þá — og-þær hafa
allar unni.it.
Þá skilcli alþýðan í landinu
hve þýðingarmikið það væri að
fáþessum kröfum framgengt.
Þ«*r voru pkilyrði fyrir því að
verkalýðurinri gæti sótt fram í
þjóðfélaginu.
.Ef þessi réttindi verða afnum-
in er voði fyrir dyrum hjá al-
þýðunni. Og aðalhættan á því
stafar af komúnistaflokknum.
Hann skapar ofbeldisástandið,
hann sáir einræðisfræjunúm.
Sú hefir afleiðingin orðið af
hinni siðlausu starfsemi þessa
flokks alls staðar þar sem hann
hefir orðið öflugur. Hér stefnir
í sömu átt. Það hljóta allir að
sjá, sem opin hafa augun. Al-
þýðuflokkurinn miðar því starf
sitt og baráttu gegn ofbeldinu
og fyrir lýðræðinu, auknum
lýðréttindum til handa alþýð-
unni, aukinni atvinnu og meiri
menningu.
Alt veltur á því fyrir alþýð-
una, að hún skilji þetta og starfi
samkvæmt því.
Fylkið ykkur undir merki
alþýðusamtakanna 1. maí.
Varist blekkingar andstæð-
inganna. Standið einhuga og
öflug með Alþýðuflokknum.
Rfissnesknrftaflmað-
nr wæntanlegur hino-
að f dao eða á morgan
Hann flýgnr til New York
af tilefni heimssýningarinnar.
JAFNVEL í dag er von á rúss
neska flugmanninum Kok-
niaki, sem ætlar að fljúga í ein-
um áfanga frá Moskva til New
York. Fer flttg þetta fram í sam-
bandi við opnun heimssýningar
innar.
I- Með Kokniaki er maður, sem
heitir Gordienko, en flugvélin
heitir Moskva. Ætla þeir að
fljúga yfir Svíþjóð, Noreg, ís-
land og Grænland, og hafa út-
varpsstöðina hér sem miðunar-
stöð.
Ætlaði „Moskva" að leggja
af stað á þriðjudagskvöld, en
gat það ekki vegna veðurs. Flug
vflin er landflugvél og mun
ekki lenda hér, nema í nauðir
reki, því að ætlunin er að fljúga
alla vegalengdina í einum á-
fanga.
Hðjgaard og Sehultz
gera tilboð f hitaveituna
Vafasamf að tilboðið geti
orðið nógu hagkvœmt ?
Jk LÞÝÐUBLAÐINU barst
¦*^" í gærkveldi svolátandi
tilkynning frá skrifstofu
borgarstjóra:
„Svo sem kunnugt er -leiddu
tilraunir þær, sem á fyrra ári
voru gerðar til útvegunar láns-
fé erlendis til Hitaveitu Reykja-
víkur að þeirri niðurstöðu í bili,
að ekki væru þá hagkvæmir
tímar til útboðs á láni til fram-
kvæmdanna.
Þau atriði. sem þá voru láns-
útboði til fyrirstöðu, hafa að
ýmsu leyti reynst óbreytt til
þessa, og verður ekki með vissu
séð, hve lengi svo kann að
verða.
Hins vegar hefir jafnframt
verið athugað hvort hef ja mætti
framkvæmdir í málinu nú í vor
eða sumaf án undangengins
lánsf j árútboðs.
Forystu fyrir tilrauhum til
að koma málinu fram með þess-
um hætti hefir Knud Höjgaard'
verkfræðingur í Kaupmanna-
höfn haft og er nú vissa fengin
um að tilboð muni koma um
framkvæmd verksins á þessum
grundvelli frá verkfræðinga-
Bretar hafa 2 millj. manna undir
vopnum, eftir að fyrsta ákvðrðunin
um herskyldu hefir verið framkv.
m.................i . i <» ¦¦-.
% . -
Verkalýðssamtökin veitast gego frumvarpinu.
Brezka herskipið „Resolution", sem myndín er af, er eitt af
stærstu herskipunum I flotanuin
Knud Höjgaard
verkfræðingur.
firmanu Höjgaard & Schultz A.
S., er bygði rafmagnsstöðina við
Ljósafoss í ákvæðisvinnu."
Alþýðublaðið skýrði fyrir
nokkrum dögum fra þeim
samningaumleitunum, sem
iPétur Ottesen
lýsir Garðari
Diflomenn hlepa á
sprett tmtíir lokin.
SIGLUFJÖRÐUR og
Ólafsfjörður voru
mikið til umræðu í alþingi
í gærkveldi. Var rætt um
fasteignagjald ríkisverk-
smiðjanna til Siglufjarðar
og ábyrgð á láni til raf-
veitu fyrir Ólafsfjörð.
Sköpuðu deilurnar um
:| þessi mál nýja flokkaskift-
ingu í þinginu.
Urðu þingmenn ákaflega
reiðir hver öðrum og fuku
óþvegin orð. Sagði Pétur
Öttesen t. d. um Garðar
Þorsteinsson, að það væri
til háborinnar skammar
fyrir alþingi, að slíkum
manni og G. Þ. skyldi hafa
skolað inn í þingsalinn. En
Garðar svaraði með álíka
orðbragði um bóndann.
Var eins og þingmönnum
þætti gaman að hleypa á
sprett svona undir lokin.
fram hafa farið í Kaupmanna-
höfn undanfarið um fram-
kvæmdir á hitaveitunni. Svar
Frh. á 4. siöu.
Ðanir búa sig undir ófrið.
Einkaskeyti til Alþýðublaðsins.
KHÖFN í morgun.
FJÖGUR ÞÚSUND Kaup-
marmahafnarbúar hafa
verið kallaðir til starfs við loft-
varnir í borginni. Hefja þessir
menn nám sitt innan fárra
daga. Fer námið fram á kvöld-
um og helgidögum.
Einkaskeyti til AlþýðublaSsins.
KHÖFN í morgun.
pHAMBERLAIN tilkynti
^ í neðri málstofu brezka
þingsins í gær ákvörðun
brezku stjórnarinnar um að
innleiða herskyldu í Bret-
landi. Tilkynti hann jafn-
framt að frumvarp um þetta
efni yrði lagt fyrir þingið í
næstu viku.
Er ákveðið að kalla alla
menn á aldrinum 20—^21 árs
til herþjónustu í 6 mánuði
og að þeir myndu að æf inga-
tímanum afloknum fá tæki-
færi til að ganga í heima-
herinn og vera í honum íZVz
ár. Söfnun sjálfboðaliða í
herinn heldur áfram.
Þá tilkynti Chamberlain að
stjórnin hefði ákveðið að gera
víðtækar ráðstafanir til að tak-
marka gróðabrall í sambandi
við endurhervæðinguna.- Ef ó-
friður brýzt út verða sett á
lög, sem ákveða refsingu fyrir
stríðsgróðabrall, sem takmarka
einkagróða og sem gæta hags-
muna ríkisins. Það er talið að
þessi ákvæði um herskyldu
verði til þess, að herstyrkur
Englands verði um 2 milljónir
manna.
EinræðiSTikin vilja etfei
sbflja afstiin Breta.
LONDON í gærkv. F.Ú. '
Um leið og Cnamberlain gaf
þessa yhrlýsingu, sagði hann, að
prátt fyrir hina miklu barátte
brezku stjórnarinnar sýndist ekk-
ert geta komið einræöisríkjumito
í skilning um, að brezka stjórh-
in væri alráðin í þvi að sætta
sig ekki viö fleiri árásir eða alls-
herjaryfirdrotnun einstaks rikís,
og fyrir því hefði orðið að gripa
til þessa ráðs.
Frh. á 4. síðn.
Aðrar fréttirs
Mikilvæpr stjórnniálaviðræðnr.
----------,---------4--------------------
Milljónir til flugvéla í Bandaribjunnm.
Gafencu utanríkismálatáð-
herra Rúmem'u kom til Parísar
í gær til viðræðu við franska
stjórnmálamenn. Bonnet utan-
ríkismálaráðherra Frakka og
sendiherra Rúmeníu í París og
margt annara þektra manna tók
á móti honum á járnbrautar-
stöðinni.
Brezka viðskiftamálasendi-
nefndin í Búkarest átti mjög
annríkt í gær og hélt langa
fundi með rúmenskum stjórn-
málamönnum og fésýslumönn-
um. Það var látið uppi opinber-
lega í gærkveldi, að góðar horf-
ur væru á um samninga og að
eitt af málum þeim, sem rætt
hefði verið um, væri ráðstöfun
á olíuframleiðslu Rúmeníu.
f Sofia er opinberlega tilkynt,
að Potemkin, aðstoðarutanrík-
ismálafulltrúi Sovét Rússlands,
hafi í gær átt mjög mikilvæga
viðræðu við forsætisráðherra
Búlgaríu.
Potemkin er nú á leið til
Tyrklands og mun dveljast þar
í sex daga, en á leiðinni heim
tiL Moskva mun hann aftur
koma við í Sofia og Búkarest.
f Ðanzig vildi það til í gær,
að allmargir lögreglumenn fóru
inn í pólskan barnaskóla og
höfðu þaðan á brott 18 börn og
fóru með þau í þýzkan skóla.
Fulltrúi Pólverja í Danzig hefir
lagt fram mótmæli gegn þessu
við yfirstjórn borgarinnar.
Frh. á 4. 8»u.