Helgarpósturinn - 24.03.1988, Síða 5
Aöalfundur Eimskips í dag
Gríöarlegur hagnaöur
Níu manna stjórn fer meö 30% atkvœöa
Hluthafar eru um 13 þúsund
Aðalfundur Eimskipafélags íslands verður haldinn í
dag á Hótel Sögu. Verður þar skýrt frá góðri afkomu fé-
lagsins — hagnaður á síðasta ári nam 272 milljónum —
sem og að félagið hyggst kaupa tvö ný skip, sem afhend-
ast eiga í haust, annað 9 þúsund tonna og hitt fimm. Á
móti selur félagið tvö skip til útlanda. Er talið að staða fé-
lagsins hafi sjaldan verið sterkari en nú innan íslensks
fjármálalífs og teygir það anga sína víða. Stjórnarmenn
Eimskips sitja í mörgum af öðrum helstu fyrirtækjum
landsins, auk þess sem Eimskip á beinan eignarhlut í
ófáum fyrirtækjum. Núverandi stjórnendur Eimskips hafa
þar á ofan mjög sterka stöðu innan fyrirtækisins, ekki að-
eins í krafti stöðu sinnar sem stjórnendur heldur ekki síð-
ur sem allstórir hluthafar í „óskabarni þjóðarinnar“. Hinir
níu stjórnarmenn munu fara með a.m.k. 30% af at-
kvæðamagni á komandi aðalfundi. Hluthafar í Eimskip
eru hins vegar tæplega 13 þúsund að tölu.
EFTIR PÁL HANNESSON
Velta Eimskipafélagsins var á síð-
asta ári 4.533 m.kr. og eigið fé er
metið 1.857 milljónir króna. Til
samanburðar má nefna að eigið fé
Flugleiða í árslok var 1.184 milljónir,
jafnvel þó það fyrirtæki velti tals-
vert meiri fjármunum en Eimskip.
Hagnaður Eimskips metinn sem
hlutfall af eiginfé er um 20% og hlýt-
ur að teljast góð útkoma. „Við telj-
um að þessi niðurstaða sé viðun-
andi," sagði Hörbur Sigurgestsson,
forstjóri Eimskipafélagsins, í samtali
við HP. Lagði hann áherslu á að hag-
ur félagsins væri spegilmynd þess
sem gerðist í þjóðarbúinu og að
flutningar til landsins og frá sveifl-
uðust í takt við stöðu þjóðarbúsins á
hverjum tíma. Af síðustu tíu árum
hefði verið tap í sex ár, en hagnaður
í fjögur.
Þegar Eimskipafélag fslands var
stofnað 1914 var það kallað óska-
barn þjóðarinnar og átti að verða
einn af hornsteinum sjálfstæðis
hennar. Landsmenn voru hvattir til
þess að gerast hluthafar og tóku
margir vel í það kall. f dag ber félag-
ið enn merki þessa áhuga þjóðar-
innar á því og eru hluthafar tæplega
þrettán þúsund talsins. Hins vegar
eru þeir færri sem eru á einhvern
hátt virkir sem hluthafar og hefur
reyndin verið sú á undanförnum ár-
um að eigendur og fulltrúar um
50% hlutafjár hafa mætt á aðalfundi
félagsins. Það er aðalfundur sem
kýs stjórnendur og endurspeglar sú
kosning auðvitað hverjir hafa tögl
og hagldir í félaginu á hverjum tíma.
Talað er um „Eimskipafélagsklík-
uná' sem sérstaka valda- og fjár-
magnseiningu í íslensku þjóðfélagi
og vilja margir meina að í dag sé
hún sú valdamesta í íslensku fjár-
málalífi. Áhrif þessara manna ná
langt út fyrir Eimskipafélagið, en
ýmsir vilja meina að Eimskip sé í
dag „hornsteinninn" í íslenskum
kapítalisma.
STJÓRNARMEN N RÁÐA
30% ATKVÆÐA
í dag sitja í stjórn Eimskipafélags-
ins þeir HatldórH. Jónsson stjórnar-
formaður, Pétur Sigurdsson, fyrrum
forstjóri Landhelgisgæslunnar, Jón
Ingvarsson og Jón H. Bergs. Auk
þeirra eru í stjórn og koma nú til
endurkjörs Indridi Ftílsson, Hjalti
Geir Kristjánsson, Benedikt Sveins-
son, ThorR. Thors og Gunriar Ragn-
ars. Forstjóri er Hörbur Sigurgests-
son. Persónulega eiga þessir stjórn-
armenn a.m.k. 18,5 milljónir króna
í hlutabréfum, auk þess sem telja
verður líklegt að þeir fari með um-
boð fyrir aðra hluthafa sem þeir
tengjast. Þannig keypti tryggingafé-
lagið Sjóvá hlut ríkisins á sínum
tíma og á um 22 milljónir í hluta-
bréfum Eimskips, Benedikt Sveins-
son, stjórnarmaður í Eimskip, er for-
maður stjórnar Sjóvár. Sameinaðir
verktakar eiga 5 milljónir í hlutafé
og má telja líklegt að Halldór H.
Jónsson fari með þau atkvæði á að-
alfundinum, þar sem hann er stjórn-
arformaður Sameinaðra verktaka.
Séu ekki önnur tengsl rakin stýra
stjórnarmeðlimir því hlutabréfum
að virði rúmlega 46 milljóna. Sé
gert ráð fyrir að eigendur um 56%
af heildarhlutafé Eimskip mæti, sem
talið er að fari mjög nærri lagi, hefur
stjórnin um 30% atkvæðamagns á
aðalfundi í sínum höndum. Það er
því óhætt að segja að miðað við
fjölda hluthafa hafi töluverð eigna-
og valdasamþjöppun átt sér stað
innan félagsins.
ÍTÖK STJÓRNARMANNA
f ÖÐRUM FYRIRTÆKJUM
Flestir eiga stjórnarmenn Eim-
skips stjórnunarleg ítök í öðrum fyr-
irtækjum. Halldór H. Jónsson á sæti
í stjórn fjölda fyrirtækja, t.d. Flug-
leiba, Sameinabra verktaka, Is-
lenskra abalverktaka, íslenska ál-
félagsins, Garbars Gíslasonar og
Skeljungs. Indribi Ftílsson er for-
stjóri Skeljungs og nýr fulltrúi Eim-
skips í stjórn Flugleiba. Jón Ingvars-
son er einn svokallaðra Isbjarnar-
brœbra og situr í stjórn Sölumib-
stöbvar hrabfrystihúsanna, Arteks
og Tryggingamibstöbvarinnar. Jón
H. Bergs er forstjóri Sláturfélags
Suburlands. Hjalti Geir Kristjánsson
situr í stjórn SPRON, K. Siggeirssonar
og hjá Almennum tryggingum.
Áhrif og tengsl stjórnarmanna í
Eimskip í fyrirtækjum og samtökum
vinnuveitenda eru þó engan veginn
fulltalin hér, en þetta verður þó
látið duga svo nokkur hugmynd
um þessi ítök fáist.
EIGNARHLUTUR
EIMSKIPS í ÖÐRUM
FYRIRTÆKJUM
Eimskip hefur á undanförnum ár-
um fjárfest með hlutafjárkaupum í
mörgum fyrirtækjum og nemur
eignarhlutur félagsins samtals um
225 milljónum króna og er þá um að
ræða bókfært verð en ekki nafn-
verð. Á síðasta ári námu fjárfesting-
ar Eimskips 337 milijónum króna,
þar af 61 milljón sem fór til kaupa
hlutabréfa. Eignarhlutdeild Eim-
skips í öðrum fyrirtækjum er sem
hér segir í árslok 1987: Það átti
23,6% hlutabréfa í Flugleiðum, þá
samtals að virði 87,6 milljónir
króna. Síðan hefur félagið keypt að
auki um 4% hlutabréfa og á því um
27% hlutabréfa í Flugleiðum. Það á
5,9% hlut í Iðnaðarbanka að virði
31,8 m.kr. 5,8% í Verslunarbanka að
virði 16,9 m.kr og á 10,4% hlutafjár
í Fjárfestingafélaginu. Það á 20% í
Ferðaskrifstofunni Úrvali, 22% í
DNG og 16,4% í Árlaxi. Hlutur þess
í Pólstækni er 35,6%, 33,3% í Tækni-
þróun og 1,4% í Þróunarfélagi ís-
lands. Það á 2,6% hlutafjár í Skelj-
ungi, 2,4% í Slippstöðinni og 22,2%
í Tollvörugeymslunni, þar sem
Hörður Sigurgestsson situr í stjórn.
Félagið á hlut í nokkrum smærri fyr-
irtækjum til viðbótar og í einum
þremur fyrirtækjum erlendis.
Eimskipafélagið er með 17 skip í
föstum rekstri og á sjálft 9 þeirra.
Sem fyrr segir hyggst félagið kaupa
tvö ný skip og eru þau væntanleg til
félagsins í haust.
HELGARPÓSTURINN 5