Helgarpósturinn - 24.03.1988, Qupperneq 8
1A ■*{•*«*>:
^adaifundi Sameinaöra verktaku og Dverghamra myndaöist bidröc
þegar 24 rnilljónum króna var útdeilt — aö mestu til aöila af höfuö
borgarsvœöinu. HP upplýsir lesendur um gang mála og skiptingu
arösins — þrátt fyrir þykkan leyndarhjúp.
Frá aðalfundi Sameinaðra verktaka og Dverghamra.
Til málamynda var farið í gegnum venjuleg aöalfundarstörf, allt samþykkt og stjórn endurkjörin. Síðan myndaðist biðröðin eftir arðinum.
GIILLKISTA HINNA 1
Á sameiginlegum adalfundi hlutafélagsins Samein-
aðra verktaka og sameignarfélagsins Dverghamra á
Hótel Sögu sl. föstudag var 24 milljónum króna útdeilt í
arbgreibslur. Sameinabir verktakar (SV) eru sem kunn-
ugt er eigendur íslenskra adalverktaka (ÍA) ab hálfu og
Dverghamrar eru e.k. ,,byggingardeild‘‘ Sameinabra
verktaka og eru í undirverktöku hjá íslenskum abalverk-
tökum. Pótt starfsemi þessara félaga tengist Varnarliðinu
á Keflavíkurflugvelli nœr eingöngu renna milljónirnar
áburnefndu ab 96% hluta til einstaklinga og félaga á
höfubborgarsvœbinu.
EFTIR FRIÐRIK ÞÓR GUÐMUNDSSON MYND JIM SMART
Þegar HP reyndi að afla upplýs-
inga um aðalfundinn, hag fyrirtæk-
isins og önnur málefni þess hjá
stjórnarmönnum og einstökum
hluthöfum var undantekningarlaust
vísað á Thor Ó. Thors, fram-
kvæmdastjóra ÍA og SV og stjórnar-
mann í báðum fyrirtækjum. Thor,
sem nýlega lýsti því yfir í dagbiaði,
að engin leynd hvíldi yfir starfsemi
ÍA, þverneitaði hins vegar að ræða
við Helgarpóstinn og bar fyrir sig
óánægju með fyrri skrif blaðsins,
nánar tiltekið 8—9 ára gamla frétt
HP um fjárhagsleg tengsl ÍA og SV
við stjórnmálaflokka. Ekki náðist í
Halldór H. Jónsson, stjórnarfor-
mann þessara fyrirtækja.
REGINN ER STÆRSTUR
Engu að síður liggur fyrir að á
8 HELGARPÓSTURINN
aðalfundi SV var greiddur 18 millj-
óna króna arður til hluthafa í sam-
ræmi við eignarhlutfall þeirra. Mið-
að við 10% arð hljóðar hlutafé fyrir-
tækisins þá upp á 180 milljónir
króna. Hins vegar greina aðrar
heimildir frá því að hlutaféð sé 90
milljónir og hefur greiddur arður þá
verið 20%. Dverghamrar eru sam-
eignarfélag sömu aðila og eiga um
77% í SV og fengu því 3 af hverjum
4 hluthöfum í SV tvær ávísanir. Af
Dverghömrum voru greiddar 6
milljónir króna. Hjá firmaskrá sýslu-
mannsins syðra var engar upplýs-
ingar að finna um heildarframlag
aðila sameignarfélagsins Dverg-
hamra.
Hluthafar í Sameinuðum verktök-
um eru rúmlega 140 einstaklingar
og fyrirtæki. Þar af er Reginn hf.
stærsti einstaki eignaraðilinn með
7,46% hlut, en þetta er sem kunnugt
er athafnalaust eignarfélag SÍS. Fyr-
ir hönd Regins situr í stjórn SV Axel
Gtslason. Næststærsti hluthafinn er
Félag uatnsvirkja hf., með 7% hlut,
en hluthafar þar eru alls 24, þeirra á
meðal Bergur Haraldsson, stjórnar-
maður í SV.
BYGGINGARFÉLÖG í
DÁSVEFNI
Því næst koma þrjú afar forvitni-
leg byggingarfélög með 4,48% hlut
hvert. Brú hf. er fyrirtæki Þorbjörns
Jóhannessonar kaupmanns í kjöt-
búðinni Borg. Þetta fyrirtæki var
stofnað 1943. Stjórnarkjör fór þar
síðast fram 1965, enda var það úr-
skurðað gjaldþrota 20. september
1967. Þrotabúið hefur hins vegar
enn ekki verið gert upp nú, tveimur
áratugum síðar! f krafti eignaraðild-
ar þessa gjaldþrota fyrirtækis situr
Þorbjörn í stjórn SV. Aðspurður
hafði hann enga skýringu á reiðum
höndum um hvers vegna fyrirtækið
Brú hf. hefði ekki verið gert upp.
Annað byggingarfélag er Stoð hf.,
sem stofnað var 30. nóvember 1948.
Síðan hefur akkúrat engin tilkynn-
ing borist hlutafélagaskrá um hreyf-
ingu á stjórn, hlutafé eða tilgangi
fyrirtækisins, en stjórnarformaður
er enn Haraldur B. Bjarnason bygg-
ingarmeistari og fyrirtækið skráð á
heimili hans. Þriðja byggingarfélag-
ið er Gobi hf., þar sem engin hreyf-
ing hefur verið skráð frá því 1978 og
var þá stjórnarformaður Óskar Eyj-
ólfsson. Ekki ber á öðru en að þessi
merkilegu fyrirtæki séu aðeins til að
nafninu til og kannski einmitt í þeim
tilgangi einum að halda við eignar-
hiut í SV.
PAPPÍRSFYRIRTÆKI
HALLDÓRS
Þetta virðist reyndar gilda um
fleiri fyrirtæki í SV. Fyrirtækið Ibn-
samtök hf. er skráð fyrir 2,98%
hlutabréfa í SV. Það var stofnað
1953 og stjórnarformaður kjörinn
Jón Gubjónsson. 1972 er tilkynnt
um útgáfu jöfnunarbréfa í fyrirtæk-
inu, en ekkert hefur borist hlutafé-
lagaskrá síðan. Fyrirtækið Múr hf.
er 1983 skráð fyrir 0,9% hlut í SV, en
fyrirtækið var afskráð 1986 eftir
langan svefn. Þá er að nefna til sög-
unnar Trésmibju Borgarfjarbar hf.,
til heimilis í Reykjavík, með 0,44%
hlut í SV. Síðast barst tilkynning frá
fyrirtæki þessu 1972, en stjórnarfor-
maður er áðurnefndur Halldór H.
Jónsson, margfrægur „stjórnakóng-
ur“.
Halldór situr reyndar í stjórn SV
og er fulltrúi Byggingamibstöbvar-
innar sf, sem er skráð fyrir 2,98%
hlut í SV, og eiga því þessi tvö fyrir-
tæki Halldórs alls 3,42%. Ekki er
þessi byggingamiðstöð það mikið á
lífi að Halldór hafi fyrir því að skrá
hana í símaskrána, en til heimilis er
hún á sama stað og fyrirtæki Hall-
dórs Garbar Gíslason hf., sem að
sönnu virðist í rekstri!
SÉRDEILDIR í
UNDIRVERKTÖKU
Þrjú fyrirtæki innan SV kallast
„sérdeildir" og hafa starfað sem
sjálfstæð félög í undirverktöku hjá
íslenskum aðalverktökum. Þetta
eru Félag vatnsvirkja hf„ sem áður
var getið, Rafvirkjadeildin hf. (alls
19 hluthafar með 3,6% hlut í SV) og
Verktakafélag málarameistara sf.
(alls 16 eigendur með 1,62% hlut í
SV). Þessar „sérdeildir" og einstakl-
ingar innan þeirra eiga samtals
12,22% hlut í SV. Sjálfir eiga Sam-
einaðir verktakar að minnsta kosti
2,28% hlut í fyrirtækinu, en hiutur-
inn hækkaði þegar Landssmibjan
var seld og nýir eigendur þar á bæ
seldu 1,08% hlut sinn í SV. Fyrir
hönd SV sjálfra situr í stjórn þess
Thor Ó. Thors, en persónulega á
hann 0,9% hlut í SV.
Fjöldi einstaklinga á síðan hlut í SV,
frá 3% og niður úr. Áberandi í þess-
um hópi eru iðnaðarmenn, ekkjur
og dánarbú. Meðal þessara einstakl-
inga eru t.d. Þorkelt Ingibergsson
byggingarmeistari, Jón Bergsteins-
son múrarameistari, Jón G. Hall-
dórsson viðskiptafræðingur, Gissur
Símonarson forstjóri, Gubmundur
Einarsson verkfræðingur, Hrafnkell
Ásgeirsson lögfræðingur, Ingólfur
Finnbogason húsasmíðameistari,
Karvel Ögmundsson útgerðarmað-
ur og Snorri Tómasson hagfræð-
ingur.