Helgarpósturinn - 24.03.1988, Blaðsíða 12
innar til mótmæla við musteri
Davíðs í Tjörninni. Aldrei hefur ver-
ið amast við slíkum listum áður. Nú
hefur æskulýðs- og íþróttaráð
kveðið upp sinn Salómonsdóm:
Sundstaðirnir eru vé borgaranna til
hvíldar og hressingar. Þar má ekki
raska ró þeirra og valda þeim geðs-
hræringum með því að flytja inn
fyrir véböndin umdeild mál. Bíða
menn nú með eftirvæntingu eftir
því, að þessu verði fylgt eftir með
skilti ofan við heita pottinn með
lista yfir leyfileg umræðuefni, sem
ekki verða talin leiða til hækkaðs
blóðþrýstings og líkamshita. Spurn-
ing númer eitt: Verður leyfilegt að
hæla Davíð?. . .
I
Í
síðustu blöðum höfum við
skýrt frá því, að Samtökin „Tjörnin
lifi“ hugðust koma fyrir. undir-
skriftalistum á sundstöðum borgar-
síðustu.viku var haldinn aðal-
fundur hjá arkitektafélaginu og
kjörin ný stjórn. Nýr formaður fé-
lagsins er Stefán Benediktsson,
fyrrverandi alþingismaður og nú-
verandi þjóðgarðsvörður í Skapta-
felli. Stefán starfar þrátt fyrir það
stóran hluta ársins í menntamála-
ráðuneytinu. Aðrir í stjórn eru
Stefán Örn Stefánsson ritari, Val-
gerður Guðmundsdóttir gjaldkeri
og fráfarandi formaður félagsins,
Guðlaugur Gauti Jónsson. Það
mun oft hafa verið betri aðkoma
fyrir nýja stjórn því félagið á í tölu-
verðum fjárhagsörðugleikum
sem stafa m.a. af því að það hefur
verið að gera upp hús sitt og halda
ýmiskonar sýningar . . .
Athugasemd
í síðasta HP var sagt frá því að
Valdimar Jóhannesson, fram-
kvæmdastjóri Alþýðublaðsins,
hefði sagt upp störfum. Ástæðan
var sögð sú að innan stjórnar Blaðs
hf. hefðu verið deildar meiningar
um frammistöðu Valdimars. Þetta er
ekki rétt. Valdimar tók við Alþýðu-
blaðinu í mikilli skuld og sneri
rekstrinum til hagnaðar svo sem
þekkt er og enginn ágreiningur um
árangursríkt starf hans við blaðið.
Þá er það og rangt sem sagt var í HP,
að samstarf við starfsfólk blaðsins
hefði verið stirt. Hlutaðeigandi eru
beðnir velvirðingar á því sem rangt
var í fréttinni. Ritstj.
DAGBÓKIN HENNAR DÚLLU
Kæra dagbók.
Ég hélt nú aldrei að ég myndi lifa
það að amma á Einimelnum færi að
hringja á dyrabjöllum hjá fullt af
ókunnugu fólki, en það getur greini-
lega allt gerst í þessum heimi. Hún
er að safna undirskriftum! Það fattar
í raun og veru enginn hvernig þetta
gat gerst. Ef einhver hefði spáð
þessu fyrir nokkrum vikum hefði
familían sko hlegið sig máttlausa.
Núna göngum við með hauspoka.
Þetta er samt eiginlega fyndið.
Amma hefur nefnilega haldið svo
rosa marga fyrirlestra í fjölskyldu-
boðum og við önnur tækifæri um
það hvernig maður eigi að haga sér.
Hún hefur alltaf lagt ferlega áherslu
á það, að fólk af Einimels-slektinni
sé enginn „alrnúgi". Þetta er aðal-
umræðuefnið, þegar hún er búin að
drekka svona þrjú serríglös, og þá
kemur undantekningarlaust hin
gullvæga lífsregla: „Við erum aristó-
kratar, Dúlla mín, með öllum þeim
kostum og göllum, sem því fylgja.
viu i rw
4
Frá því að Victor VPC kom á markaðinn hefur hún verið mest selda einmenningstölvan á ísl-
andi. Á tímabilinu frá ágúst 1986 til ágúst 1987 hafa hátt á þriðja þúsund Victor tölvur verið
teknar í notkun hér á landi. Það segir meira en flest orð um vinsældir, ágæti og fjölhæfni
Victor tölvanna.
VICTOR
Snaggaraleg einmennings-
töhra með afl hinna slóra
- nú fáanleg með byHingar-
kenndri nýjung!
VictorVPC III
er nýjasta einmenningstölvan í Victor
fjölskyldunni. Hún er AT samhæfð og
hentar því vel fyrirtækjum og stofnun-
um. VPC III er með byltingarkenndri
nýjung sem felur í sér möguleika á 30
mb færanlegum viðbótardiski,
svokölluðum ADD-PACK, sem smellt
er í tölvuna með einu handtaki. Sér-
lega hagkvæmt við afritatöku og þegar
færa þarf upplýsingar á milli tölva, s.s.
fyrir endurskoðendur o.þ.h. Einnig
fáanleg með 60 mb hörðum diski
(samtals 90 mb með ADD-PACK).
Victor tölvurnar eru nú í notkun í öll-
um greinum atvinnulífsins og reynast
einstaklega vel við erfiðar aðstæður.
Helstu ástæður vinsældanna eru án
efa afkastageta, stærra vinnslu- og
geymsluminni, falleg hönnun, hag-
stætt verð og síðast en ekki síst góð
þjónusta. Bilanatíðnin er einhver sú
lægsta sem þekkist, þrátt fyrir að
Victor hafi rutt brautinameð fjölmarg-
ar nýjungar. Og nú fylgir MS-Windows
Write & Paint forritið öllum Victor
tölvum sem eru með haróan disk.
Þrjár gerðir Victor einmenningstölva
eru nú fáanlegar: Victor VPC Ile, Victor
V 286 og Victor VPCIII.
Victor þjónar stofnunum og fyrirtækj-
um í iðnaði, sjávarútvegi, landbúnaði,
verslun, þjónustu sem og mennta-
stofnunum, námsmönnum og ein-
staklingum. Victor getur örugglega
orðið þér að liði líka. Athugaðu málið
og kynntu þér Victor örlítið betur - þú
verður ekki svikinn af því!
VICT* R
EinarJ. Skúlasonhf.
Grensásvegi 10, sími 68-69-33
Þess vegna verðum við að sýna gott
fordæmi." Þetta blessaða fordæmi
hefur tekið á sig alls konar myndir.
T.d. ætlaði sú gamla alveg að tryllast
í búð á Laugaveginum um daginn,
af því að hún tók eftir gatinu á dún-
úlpunni minni. Hún sagði, að fólk af
okkar tagi gengi ekki í götóttum
lörfum og var með svo mikið vesen
að öll búðin starði á okkur. Ég hef
aldrei á ævinni skammast mín jafn-
mikið og það gerði bara illt verra að
segja að mamma gleymdi alltaf að
sauma þetta fyrir mig. Þá kom
nefnilega ræða um hvað pabbi hefði
„tekið niður fyrir sig“ og að
Kvennalistakonur hefðu misskilið
hlutverk veikara kynsins í lífinu.
Sem betur fer fattaði amma fljótlega
að það var ekki neinn ofboðslegur
klassi yfir því að vekja svona mikið
„opsikt" (eins og hún kallar það).
Þess vegna dró hún mig bara út á
gangstétt (sem hún kallar „fortó"),
inn i einhverja ömurlega kellinga-
búð og bað afgreiðslukonu með
mellumálningu um „elegant" kápu
á „þessa ungu dömu“! Mæ
goooood.... Ég hefði sko frekar vilj-
að vera stödd á jólaballi fyrir börn!
En svo er þetta manneskjan, sem
er farin að ganga í ókunnug hús í
hverfinu með undirskriftalista.
Glætan!!! Hún hugsar ekki neitt út í
það hvað ég þarf að þjást út af
þessu. Það líður ekki sá dagur að
einhver í skólanum grínist ekki með
það að amma mín hafi verið að
ónáða fjölskyldur á matartíma, á
meðan Eurovision-keppnin stóð
sem hæst eða jafnvel eftir að allir
voru farnir að hátta. Þetta er algjör
bömmer fyrir mig. Ég vildi frekar
vera með fimm göt á úlpunni. Svei
mér þá... En kellingin er alveg á út-
opnuðu í því að stoppa ráðhúsið og
það getur enginn „sansað" hana.
Megna ekki meira. Það er ekkert
grín að láta geggjaða ömmu eyði-
leggja á manni mannorðið. Eða
þannig... Bless, Dúlla.
PS. Aldrei þessu vant er mamma al-
sæl með ömmu á Einimelnum, sem
hún hefur nú ekki mátt svo mikið
sem finna lyktina af hingað til.
Mamma segir að ég eigi að vera
hreykin af því að eiga svona kjarn-
orkukvendi fyrir ömmu. Hún sé
kona, sem berjist til síðasta blóð-
dropa fyrir sannfæringu sinni! Glæt-
an, maður. Mér er sko alveg sama
hvað amma gerir við sína blóð-
dropa, en það er verra, þegar hún er
farin að fórna mínu blóði. (Æ, þetta
er svona líkingamál. Það hljómar
svo flott...)
Krydd er
kjarni
fæöunnar
ihiuB'
SKIPHOLTI 1
SÍMAR 23737 OG 23738
12 HELGARPÓSTURINN