Helgarpósturinn - 24.03.1988, Qupperneq 20
STERK OG SPARNEYTIN
M.A.N. - D.E.M.R
LJÓSAVÉLAR
LJÓSAVÉLASAMSTÆÐUR
TIL AFHENDINGAR AF LAGER EÐA MEÐ STUTTUM FYRIRVARA
STÆRÐIR:
35KVA - 440 KVA
Vdemp
MAN-B&HÍ dísilvélar sf.______________________
BARÓNSSTlG 5 - SIMI 11280-11281 - 121 REYKJAVÍK
PROPU LSION SYSTEMS
STERKAR RÆTUR Á
ÍSLANDI
Frá þeim tíma hafa þau hjónin
verið alveg búsett erlendis, í Genf
fram til ársins 1976, í París frá
’76—^82, London frá '82—^86 og frá
þeim tíma í Brussel. Einar segir þó
að þeim hjónum og börnunum hafi
alltaf tekist að „vera svolítil íslend-
inganýlenda. Við erum stór fjöl-
skylda og ég held að það hafi vissu-
lega verið okkur ölium, börnum og
foreldrum, til gæfu og gagns. Börnin
gátu notið félagsskapar hvert ann-
ars en vegna þess hversu mikið við
höfum dvalið erlendis hafa þau ekki
haft mikið barnaskólanám á Islandi,
en þó öll eitthvert. Eldri dóttir okk-
ar, Sigríður, hefur lokið námi frá
Myndlista- og handíðaskóla íslands
og elsti sonurinn, Kristján, er út-
skrifaður úr Tækniskólanum, en
þau höfðu bæði skólast í Sviss og
Frakklandi. Yngri dóttirin, Katrín,
sem hefur franskt stúdentspróf, er
nú við nám í Háskóla Islands. Einar
Már, næstelsti sonurinn, sem sömu-
leiðis er franskur stúdent, hefur lok-
ið háskólanámi í tölvufræði frá Bret-
landi og starfar nú við sömu stofnun
og ég gerði í gamla daga, OECD í
París. Kristján, nú orðinn vélaverk-
fræðingur, er í framhaldsnámi í
þeirri grein í Bretlandi og yngsti
sonurinn, Pétur, lauk s.k. alþjóða-
stúdentsprófi í London og er nú að
verða búinn með BA-gráðu við há-
skólann þar. Þau hafa öll, eftir því
sem ég best get séð og dæmt, samt
sem áður sterkar rætur á íslandi.
Vafalaust eiga þau ekki þann hóp
vina sem við Elsa áttum þegar við
vorum ung og ólumst upp hér í
Reykjavík. Það eru væntanlega þeir
vinir einir, sem maður eignast til alls
lífsins og bestir verða, þegar krakk-
ar tengjast vinaböndum. En okkar
börn eiga að sjálfsögðu vini annars
staðar líka og ég held, þegar öllu er
á botninn hvolft, að þeirra hlutskipti
sé mætagott þótt þau séu alin upp í
fleiri en einu landi og hafi sótt skóla
í fjórum löndum. Þau eru á heima-
vettvangi í franskri menningu og
menningarheimi annarra landa, að
því marki sem ég eða aðrir sem alist
hafa upp hér heima getum senni-
lega aldrei orðið. Krakkarnir okkar
tala oft saman á frönsku — þótt þau
tali að sjálfsögðu meira saman á ís-
lensku — og mér finnst oft að þau
séu töluverðir Frakkar í sér. En það
er bara gott“, bætir hann við og
brosir.
HLUTVERK KONUNNAR
ER HETJUHLUTVERKIÐ
Einar segir hlutverk eiginkonu
sendiherra oft á tíðum ekki nægi-
lega metið. „Það er á engan hátt létt
verk fyrir eiginkonu að stofna til nýs
heimilis á fjögurra, fimm ára fresti,
eins og verður með þær konur sem
giftast mönnum í utanríkisþjónust-
unni. Það verður að segjast eins og
er að hlutur konunnar í utanríkis-
þjónustunni er mjög mikill og merk-
ur, þótt minna beri á. Það eru ekki
bara þær blessaðar, sem velt hafa
því fyrir sér hvernig bæta megi hag
þeirra og stöðu, og vissulega þarf að
hugsa fyrir því. Störf íslenskra
kvenna við hlið manna sinna í gegn-
um árin á íslensku sendiráðunum
eru vissulega mikil og merkileg.
Það mætti kalla þeirra hlutverk
„hetjuhlutverkið”. Við sem fjöl-
skylda eigum því láni að fagna að
hafa haldið hópinn vel og haldið
innbyrðis vinfengi og skilningi, en
grundvöllur þess hefur verið heim-
ilið. Fyrir það er ég sannarlega
þakklátari en þá vissu velgengni í
starfi sem ég hef átt að fagna. Sú
velgengni er líka einkum verk
góðra starfsfélaga í utanríkisþjón-
ustunni, sem ég hef unnið með, því
góð útkoma á litlu sendiráði fæst
einungis með samstilltu átaki allra.”
Hann segist ekki geta séð fyrir sér
það líf, sem hann hefur lifað, án
eiginkonu og fjölskyldu: „Satt að
segja hef ég ekki hugleitt það svo
mjög. í íslensku utanríkisþjónust-
unni og utanríkisþjónustu annarra
landa eru auðvitað bæði menn og
konur sem ekki hafa kvænst, og
virðist ganga það vel. Þó held ég
ekki að slíkt líf hefði átt við mig.
Fjölskyldan er mikilvæg í mínu lífi
og eftir því sem árin líða verður sá
þáttur lífsins miklu þýðingarmeiri
en annað.”
DIPLÓMAT OG
DREKKUR VATN
Pú sagdist hafa starfad sem bar-
þjónn í Bandaríkjunum og lœrt að
btanda kokkteila. Nú hefurðu snúið
blaðinu við og hefur tekið nýja
stefnu í áfengismálum, ekki rétt?
„Jú, það er svo með vínið að ég er
GÆÐI = HAGNAÐUR
Plastkörin, vörupallarnir og aðrar umbúðir frá
Borgarplasti stuðla að auknum gæðum.
★ Fisskör, 310 - 1000 lítra.
★ Vörupallar, þrjár stærðir.
★ Línubalar, tvær stærðir.
★ Humartunnur.
★ Lýsistankar.
★ Fiskeldisvörur.
★ Fjölmörg önnur ílát.
í allar okkar vörur eru notuð efni viður-
kennd af U.S. F.D.A. undir matvæli.
Vesturv5r27 200 Kópavogur, island Slmi4ö9€6 Tele*3000SimtexlSSímnefni:Borgarp!8St
Linubalar Fiskikar 1000 litrar
20 HELGARPÓSTURINN