Helgarpósturinn - 24.03.1988, Page 21
'múlnÍDft
’mtilmm
tiMlníliff
hættur að blanda það ofan í sjálfan
mig og tel mig vera búinn með minn
skammt. Ég lifi áfengislausu lífi.
Slíkt er að sjálfsögðu mál hvers og
eins. Astæður þess að ég tók sjálfur
upp á að fara í áfengismeðferð fyrir
nær sjö árum voru þær sömu og all-
ir þekkja sem þurft hafa á þessari
hjálp að halda. Ég get sagt það
hreinskilnislega að ég hef lifað mjög
ánægjulegu lífi síðan. Reyndar svo,
að ég vildi því síst breyta. Talandi
um þá hluti vil ég gjarnan koma því
að, að íslendingar hafa unnið mjög
merkilegt verk í að aðstoða áfengis-
sjúklinga og vinna að áfengisvand-
anum hér í þessu landi. Reyndar er
það skoðun mín, að ef við athuguð-
um þau mál vel væri margt sem við
gætum miðlað öðrum og það er svo
sannarlega ekki að ástæðulausu að
íslendingar hafa tekið til við að reka
meðferðarstofnanir erlendis. Ég hef
áhuga á að leggja þessum málum
allt það lið sem ég get á alþjóða-
vettvangi."
En er ekki erfitt ad gegna stödu
sendiherra og bragda ekki áfengi, ef
tekid er tillit til allra þeirra sam-
kvœma sem stödu þinni óhjá-
kvœmilega fylgja?
„Nei, ég hef stundum verið spurð-
ur að því hvort það sé ekki óttaleg
plága að vera diplómat og drekka
vatn. Það er það alls ekki og það
skiptir sér enginn af því. Ég man
varla eftir því að fólk hafi verið með
spurningar vegna þess að ég læt
hella gosdrykk eða vatni í mitt glas.“
SAMKVÆMIN ERU HEFÐ
— HVORT SEM FÓLKI
LÍKAR BETUR EÐA VERR
/ framhaldi af því: Veislur í sendi-
rádum. Eru þœr naudsynlegur hluti
af starfinu?
„Já ég vil taka fyrir allan misskiln-
ing um að þessar veislur í sambandi
við alla alþjóðastarfsemi, sem teng-
ist utanríkisþjónustunni, séu haldn-
ar í þeim tilgangi einum að gera vin-
um glaðan dag, eins og tíðkast
meðal fólks á heimilum. Það er alls
ekki svo. Flestir þeirra gesta sem
koma til okkar eru fólk sem við
þekkjum ekki mikið. Hvort sem
manni líkar betur eða verr er sú
hefð í kringum sendiráð að þar er
töluvert af samkvæmum, sem hald-
in eru beinlínis í þeim tilgangi að
skapa tengsl milli fólks, og sendi-
herrar gera mikið af því að ræða
starfsskyld mál í hádegis- og kvöld-
verðum. í Brussel höfum við ekki
gert mikið af því að vera með
„kokkteilboð" og ég sæki reyndar
slíkar veislur eins og er fremur lítið.
Bæði er að ég hef ekki mikinn tíma
til þess og að auki finnst mér ég
starfslega séð ekki hafa mikið upp
úr þeim. Þó þarf svo alls ekki að
vera, og ég minnist þess til dæmis
frá Genf að þar þótti með öllu nauð-
synlegt að sækja slíkar móttökur til
að hitta menn, spyrja frétta og koma
sjónarmiðum áleiðis, þannig að ég
dreg ekki úr þýðingu þeirra."
MEÐ FEGURÐARDÍSUM I
ÍSLENSKUM FATNAÐI
V'/ð vendum okkar kvœdi í kross.
Einar Benediktsson sendiherra hef-
ur oftar en einu sinni og oftar en
tvisvar prýtt síður dagblaða, um-
kringdur íslenskum fegurðardísum.
Varla er þetta ástœðan fyrir dugn-
aði Einars í útflutningsmálum?
„Nei, ekki alveg!" segir hann og
skellihlær. „Ég, eins og allir aðrir í
utanríkisþjónustunni, hef starfað
mjög mikið að útflutningsmálum og
því sem tengist okkar útflutningi.
Það er eðlilegt starf á sendiráðum.
Þegar ég var sendiherra í Bretlandi
hófst þar mikið og ánægjulegt sam-
starf íslensku fyrirtækjanna í Bret-
landi og sendiráðs íslands þar. Við
vorum með íslandskynningar í
Englandi og Skotlandi, sem voru
ánægjulegar og, að ég held, mjög
gagnlegar. Það kom til dæmis fram
í því að við fengum oft mikla fjöl-
miðlun, sem hefði verið dýrt að
kaupa. Varðandi íslensku sýningar-
stúlkurnar, sem margar hafa verið
fegurðardrottningar, er það að segja
að óneitanlega beindist athyglin að
þeim og íslenska fatnaðinum, enda
þykir kvenfólkið okkar afar glæsi-
legt. Af því sem áorkað var á fs-
landskynningum í Bretlandi vil ég
koma því á framfæri að þau mál
gengu okkur svo sannarlega miklu
betur en verið hefði ef ekki hefði
notið við mikillar hjálpar þess
ágæta manns, Magnúsar Magnús-
sonar. Hans framlag í fjölmiðlun fyr-
ir ísland í Bretlandi er ómetanlegt."
Það var á þessum tíma sem um-
ræða vaknaði um að betra væri að
hafa að bakhjarli útflutningsráð,
eins og tíðkast í öðrum löndum,
þegar starfsemi af þessu tagi átti í
hlut. „Vísir þess var til í Utflutn-
ingsmiðstöð iðnaðarins," segir
Einar. „Ég var því þakklátur þegar
ráðherrar gáfu mér tækifæri til að
taka þátt í umræðum um stofnun
Útflutningsráðs íslands og setu í
stjórn þess í tvö ár, sem nú er ný-
lokið.“
GET AÐ MINNSTA KOSTI
LEIKIÐ GOLF VIÐ AÐRA!
Hlutskipti Einars í lífinu hefur ver-
ið að búa erlendis og starfs síns
vegna hefur hann verið á ferð og
flugi um allan heim. En hvernig
skyldi hann slappa af? Yrkir hann
kannski ljóð eins og afi hans?
„Nei, ljóð hef ég aldrei samið,"
segir hann. „Aðaláhugamál mitt er
bóklestur, þótt ég geri minna af því
núna en oft áður að taka mér bók í
hönd. Það stafar af því að ég hef haft
það mikinn þunga á mér af öðru
lestrarefni. Annað áhugamál mitt er
golf, sem ég tók upp á að læra þegar
við fluttumst til Bretlands. Þó árang-
urinn sé ekki ýkja merkilegur get ég
fylgst með á vellinum og leikið við
aðra, mér til mestu ánægju. í fram-
haldi af því vil ég segja það að ég
held að golfið eigi mikla framtíð fyr-
ir sér hér á landi og tengist því að
þróa hingað ferðamannastraum. í
veðurfari eins og hefur verið hér tvö
undanfarin sumur eru golfvellirnir í
ágætu ásigkomulagi og vissulega
samkeppnisfærir við það sem mað-
ur á að venjast í grannlöndunum.
Annars hef ég miðað áhugamál mín
við þá staði þar sem við höfum búið
hverju sinni. í London gerðum við
mikið af að fara í leikhús og á hljóm-
leika, jafnframt því að sækja mál-
verkasýningar og heimsækja söfn.
Ég hef reynt að fylgjast nokkuð með
í menningarlegu tilliti á dvalarstöð-
unum og verð að segja að ég hef
reynt að halda mig svolítið frá sjón-
varpi, nema frétta- og stjórnmála-
Þvotthefdni og styrkfeiki
í hámarki
í fjórum gljástigum
• Kópaí Innlmáíntngln fæst nú í fjórum gljástlgum.
* Nú velur pú þann gljáa sem hentar þér best og
málnlngln er tilbúln belnt úr dóslnnl,
• Nú heyrir það fortíðlnnl tll að þurfa aö blanda
málnlnguna með herðl og óðrum gljáefnum.
VELDU KÓPAL í FJÓRUM GLJÁSTIGUM:
■ Æi: m
WMm
P P wsqmS.
3* V n *■
1500
Þegar hugað er að bílakaupum.vakna margar spurningar, m.a.
hver er tilgangur bílsins, hverjar eru aðstæðurnar o.s.frv. Hér
að neðan gefur að líta nokkrar staðreyndir um Lada Samara.
Sem dæmi má nefna framúrskarandi fjöðrun, hátt undir lægsta
punkt, kraftmikill og sparneytinn. Sé einhverjum spurningum
ósvarað, ræddu þá við sölumenn okkar, sem gefa nánari upplýs-
ingar um Lada Samara og ath. að verðið er engin spurning.
Stærri vél, 1500
Tannstangarstýri
Léttur i stýri.
Stórír hliðarspeglar
báðum megin.
Hliðariistar.
farangursrými
NýttgrW.
r*'
Bnstok pðrun.
Hjólkoppar.
Opið á laugardögum frá kl. 10—16.
Beinn sími í söludeild: 31236.
Framdrifsbíllá u¥ ajq aaa
algjöru undraverði: 01 Ö.UvUj'
BIFREIÐAR & LANDBÚNABARVÉLAR
Suðurlandsbraut 14. Sími 681200.
Umbodsaðilar:
Bílás, Akranesi. S. 93-12622.
Jóhannes Kristjánsson, Akureyri. S. 96-23630.
Bilaleiga Húsavíkur. S. 96-41888.
HELGARPÓSTURINN 21