Helgarpósturinn - 24.03.1988, Síða 30
blæstri og hreinni þörf, en hafi enga
eirð í sér til að móta efnið frekar og
verkin fóru beint úr ritvélinni í æf-
ingu“. Þetta segir Shepard sjálfur.
Ekki veit ég hvort leikstjórinn las
þessi orð en það eru til mörg fræg
dæmi í sögu bókmenntanna þar
sem rithöfundurinn skrifar verk á
mjög skömmum tíma af ótrúlegri
nákvæmni og snilld. Vill einhver
skýra fyrir mér hvernig innblástur
leikskálds tengist hraða sýningar?
Ég sé engin rök fyrir þessum
hraða í leikritinu sjálfu og það var
augljóst að sumir leikararnir höfðu
enga stjórn á honum. Mikið var um
mismæli og stam og sumu sleppt
þegar reynt var að anda milli orða.
Það er erfitt að lýsa nákvæmlega
því sem Shepard gerir, en eitt er víst
— aðalhæfileiki hans er að búa til
galdur úr raunveruleikanum og
breyta hversdagslegum hlutum í
drauma eða martraðir, einmitt með
því að teygja veruleikann og sveigja.
Þannig verður augnablikið enda-
laust.
Það sem sárvantar í þessa sýningu
er að áhorfandanum sé gefinn tími
til að íhuga; ef hann nær því ekki á
sýningunni getur hann það tæpast
þegar hann er kominn heim. Ég
vitna aftur í Bonnie Marranca úr
leikskránni: „Leikhúsreynslan lifir í
rýminu á milli þess sem er á leik-
sviðinu og þess sem ekki er þar.
Krafturinn í leikritum Shepards er
fólginn í því sem er utan við atburð-
arásina, í því svigrúmi sem hann
gefur hugarflugi áhorfenda til að
leika sér í."
Þetta finnst mér mjög góð iýsing á
því sem Shepard gerir í verkum sín-
um og mig grunar að það að hann er
sjálfur ekki hrifinn af leikhúsinu
(það hefur hann sjálfur sagt) sé
vegna þess að þetta svigrúm er oft-
ast ekki til staðar. Krafturinn í flest-
um sýningum um þessar mundir
hverfur einmitt vegna þess að leik-
stjórar sjá ekkert nema orð og
persónur og reyna að miða allt við
raunveruleikann. Sú stefna mun
alltaf framkalla realisma, jafnvel þó
það sé ekki hugmynd höfundar. Það
sem vantar á þessari sýningu, og má
einnig segja að vanti í margar aðrar
sem hafa verið sýndar undanfarna
mánuði, er „leikhúsgaldur". Áhorf-
endur fá ekki að taka þátt í sýning-
unni, því þetta svigrúm er ekki til
staðar. Þeir fá ekki að gefa hugar-
fluginu lausan taum heldur er ailt
rígneglt niður af leikstjórum.
Handhseg >4 eo.f 1
tommu litasjónvorp
tyrir ungiingana.
Viíð26^970.
meö innbyggðu
[Verð 20.880.
Jo MIÐAST V® STAPGRBÐSLU/
.kr|NOLUNNI,S:691540
,5:691515
ÓSamtág**'
PHlUPS
stflUr
■ teHningarSjj?1
Mörgum þótti Gísli Halldórsson
og Sigríður Þorvaldsdóttir-'serlé'ga
góð sem gömlu hjónin. Erfitt er að
neita því að þessum tveimur tókst
að skemmta okkur vel og það var
mikill húmor í þeim, en það mætti
einnig bæta við að að þessar tvær
persónur á ekki að taka út úr. Leik-
ritið í heild skiptir meira máli en
stundum breytist það í léttan farsa
og einmitt þar sem efnið er hvað
viðkvæmast. Þar sem Shepard not-
ar farsa er hann eldsnöggur að bíta
frá sér og breyta honum í martröð.
Það er synd að segja frá því að
sýningin er enn á æfingastigi. Það
er neikvætt að því leyti að hún ætti
að vera tilbúin. Hins vegar kannski
jákvætt að því leyti að hún gæti
batnað með tímanum. Eins og mörg
önnur leikrit eftir Shepard á síðustu
árum er Hugarburður tragísk ástar-
saga, saga um ást sem er drepin
með ástríðum. Síðasta línan í leikrit-
inu: „Það er eldur í snjónum, getur
það verið?" er tákn fyrir þennan
undarlega atburð. En líkt og Shep-
ard, sem sér allt í tviræðu ljósi, lýsir
þessa lína einnig ást gömlu hjón-
anna sem lifnar við þegar hennar er
hvergi von. Hvort sem áhorfandinn
velur björtu hliðina eða þá dökku
verður hann að vera snortinn þegar
hann yfirgefur leikhúsið. Þessi sýn-
ing bauð ekki upp á þann mögu-
leika. Martin Regal
Athugasemd
Til ritstjóra Helgarpóstsins.
í Helgarpóstinum í dag er sagt frá
því, að gert hafi verið ráð fyrir, að
sendiherra Islands í Osló, Niels P.
Sigurðsson, tæki á móti verðlauna-
hafanum Thor Vilhjálmssyni við
komuna til Osló, en sendiherrann
hafi „klúðrað því".
Síðan er sagt, að Thor hafi „kvitt-
að fyrir sig“ með því að mæta ekki
í móttöku í sendiherrabústaðnum.
Vegna þessarar fréttar vil ég upp-
lýsa, að ekki var gert ráð fyrir, að
sendiherra íslands tæki á móti
bekkjarbróður sínum, Thor Vil-
hjálmssyni, við komuna til Osló.
Varðandi fjarveru Thors í mót-
tökunni í sendiherrabústaðnum er
það að segja, að Thor hafði fyrir-
fram ráðstafað þeim tíma í annað.
Vinsamlegast,
með bestu kveðju.
Niels P. Sigurðsson.
Helgarpósturinn stendur við
fyrri frétt sína um afskipti sendi-
herra af verðlaunahafanum í
bókmenntum í Osló. Furðu sæt-
ir, að sendiherra skuli ekki hafa
tekið á móti Thor Vilhjálmssyni
með viðhöfn, sérstaklega þar
sem um gamlan skólabróður er
að ræða, nema sendiherra hafi
„fyrirfram ráðstafað tíma sínum
í annað“. Ritstj.
BÍLALEIGA
Útibú í kríngum landið
REYKJAVÍK:.91-31815/686915
AKUREYRI:...96-21715/23515
BORGARNES:.........93-7618
•BLÖNDUÓS:.....95-4350/4568
SAUÐÁRKRÓKUR:.95-5913/5969
SIGLUFJÖRÐUR: ....96-71489
HÚSAVÍK:....96-41940/41594
EGILSSTAfMR:.......97-1550
VOPNAFJÖRÐUR:.97-3145/3121
FÁSKRÚDSFJÖRÐUR: . 97-5366/5166
HÖFN HORNAFIRÐI: ..97-8303
interRent
Fiyst |yjg|gra2nmctí
FEFSKT OG LJÚFFENGT!
30 HELGARPÓSTURINN