Helgarpósturinn - 24.03.1988, Síða 37
Sambönd Súpermanns viö konur hafa hingað tii veriö endaslepp.
'MWP 500«, UHOER THH ÖBfi, WE KiSSEO-AND THERE N£V£R WA&, CR
éV'ER WIIL 6E,SUCM A S7(?ANÖE KIS& ASAi.N--TM£ PAREWgll
SETvveHN A Sl/PéBMMAW A MSRMAIO.n— ^ :1p
: A
Daniels Ortega þar. Því hefur Súp-
ermann í reynd sterka pólitíska
afstöðu ekki síður en siðferðis-
lega. Þetta tvennt er þó alls ekki
það sama. Það má heldur ekki
gleymast aö Clark Kent hefur
bandarískan ríkisborgararétt, þó
Súpermann sjálfur sé úr lögum
við samfélagslegt skráningarkerfi
og borgi ekki skatta.
Súpermann birtist ætíð sem
varðmaður samfélagsins, vörður
laga og reglu og einnig vörður ríkj-
andi skipulags. Þau öfl sem ógna
jafnvægi samfélagsins fá á sig
ómennskublæ, persónugervingar
hins illa eru annaðhvort geðsjúkl-
ingar, menn með rándýrseðli eða
ómenni annars heims. Náttúran er
líka ógnvaldur samfélagsins,
Súpermann þarf líka að kljást við
flóðbylgjur, jarðskjálfta og eldgos.
Viðfangsefni Súpermanns er allt
sem ógnar samfélagi manna og
jafnvægi þess. Það hefur hins veg-
ar vakið athygli fræðinga, sem
rannsakað hafa Súpermann,
hversu lesendur hans sætta sig
við einfaldar lausnir. Hann þarf
ekki annað en að afhenda lögregl-
unni tröllvaxinn beljaka (útsend-
ara myrkraaflanna) sem rétt á
undan hafði brotið og bramlað
heilu skrifstofuhverfin, til þess að
vandinn sé úr sögunni. Þetta,
segja margir, ýtir undir þá hug-
mynd að samfélagið sem Súper-
mann verndarstandi mjög höllum
fæti og geti brotnað við minnsta
mótlæti.
Lesendur Súpermanns voru
upphaflega börn og unglingar. Nú
hefur aldurinn færst ofar og helstu
aðdáendur hans eru á aldrinum 20
til 35. Vegna þessa hefur þurft að
gera ákveðnar breytingar á lífs-
venjum þeirra Clarks og Súper-
manns. Meðal fræðinga er gjarna
talað um að breytingarnar þýði að
Súpermann hafi breyst úrSUPER-
manni í súperMANN, þ.e. í stað
þess að vera yfirnáttúrulegur með
George Reeves lék Súpermann í
sjónvarpi í sjö ár en glataði sjálfum
sér vegna frægöarinnar og framdi
sjálfsmorö.
mannlega eiginleika, hefur hann
þróast yfir í það að vera mannleg-
ur með yfirnáttúrulega eiginleika.
Súpermann og Clark hafa upp á
síðkastið oft orðið ástfangnir upp
fyrir haus, án þess að þeir geri
nokkuð í málum, og nú sést
Súpermann fara á klósettið, nokk-
uð sem hann var áður laus við.
Eftir afrek sín fer Súpermann nú í
sturtu, og sést þá að mestu nakinn
og líkamlega stæltur með tilheyr-
andi kynferðisskírskotunum, en
áður fór hann beint á skrifstofuna
sem Clark Kent angandi af svita-
lykt. Önnur nýjung er sú að Súper-
mann þreytist og þarf að sofa. Og
nú fer hann úr bláa búningnum
eins og hverjum öðrum jogging-
galla sem áður var samgróinn
ofurmennislíkama hans og ekki
jarðneskur að neinu leyti. Maður
sér nú fyrir sér klæðaskáp fullan af
Súpermannsgalla til skiptanna og
rauöar skikkjur í klemmum á
snúru. Allt þetta gerirSúpermann
mannlegri en ella. Að auki er Clark
Kent ekki eins mikil lumma og
fyrst, hann er meira að segja orð-
inn eftirsóttur hjá kvenþjóðinni og
næmi hans, góðmennska og við-
kvæmni, sem áður voru galli á
karlmennsku hans, teljast nú kost-
ir. Þeir færast því enn nær hvor
öðrum Clark og Súpermann.
ÓDAU0LE6IR
Súpermann hefur þannig
breyst töluvert í gegnum tíðina og
haft þann nauðsynlega hæfileika
að geta lagað sig að breyttum tím-
um. Hann er orðinn fimmtugur,
flughraði hans eykst með aldrin-
um og infrarauða sjónin og geisl-
arnir vinna betur en nokkru sinni.
Hannerjafn unglegurog bláhærð-
ur sem fyrr og vaxtarræktarlegur
líkaminn ætlar ekki að láta á sjá.
Hann hefur því alla burði til að
verða eilífur á meðal okkar, burt-
séð frá því hvort hann er í nærbux-
unum utanyfir eða ekki.
Christopher Reeve er þekktasti Súp-
ermann bíómyndanna.
CANON = GÆÐI
TÝLI = ÞJÓNUSTA
ÚTSÖLUSTAÐIR
FÓKUS, Lækjargötu
JAPIS, Kringlunni
KASK, Hornafirði
LEO-LITMYNpiR, ísafirði
VÖRUHÚS K.Á, Selfossi
NÝJA FILMUHÚSIÐ, Akureyri
TÝLI, Austurstræti
LÍTT'INN HJÁ ÓLA — Keflavík
Einkaumboð á íslandi
<•>
Austurstræti 6
Sími10966
lylí
H
R»Ý*M»I»N»G»A»R
S*A*L®A
VIÐ RÝMUM FYRIR NÝJUM BIRGÐUM
í ÁRMÚLANUM og að LYNGHÁLSI
BOCH |
SALERNI T
Á KR. 6.900.- (ÁN SETU) f
20% |
STAÐG REIÐSLUAFSLÁTTU R |
áöðrum HREINLÆTIS og |
BLÖNDUNARTÆKJUM j
RÝMINGARSALAN stendur meðan
BIRGÐIR ENDAST
TILVALIÐ í
SUMARBÚSTAÐINN
OPIÐ í DAG
LAUGARDAG
TIL KL 16.00
V VATNSVIRKINN HF.
ÁRMÚLA 21 SÍMAR 686455 — 685966
ÉÉÉI LYNGHÁLSI 3 SÍMAR 673415 — 673416
HELGARPÓSTURINN 37