Helgarpósturinn - 24.03.1988, Side 38
ÍÞRÖTTIR
Handknattleiksvertíöinni aö Ijúka
HVERJIR
VERÐA
MEISTARAR?
— Vinnur sirkuslid FH eöa heföbundnara
Hlíöarendaliö?
— Vinnur Héöinn á 6-0-vörninni
eöa skipta hornamenn Vals sköpum?
Um miðja næstu viku lýkur
spennandi Isl&ndsmóti í handknatt-
leik með viðureign Vals og FH í
íþróttahúsi Vals við Hlíðarenda.
Þegar þetta er skrifað eiga bæði lið-
in eftir að leika einn leik auk þessa
innbyrðis leiks sem að öllum líkind-
um verður hreinn úrslitaleikur
mótsins. Valsmenn spila við Stjörn-
una og FH við Víking á miðviku-
dagskvöldið (í gær). Urslit þessara
leikja geta skipt sköpum fyrir úrslit-
in í mótinu en að fenginni reynslu á
þessu Islandsmóti má búast við að
bæði Valur og FH beri sigur úr být-
um í þessum viðureignum. Þannig
verður viðureign liðanna í næstu
viku trúlegast úrslitaleikur og beðið
er eftir henni með mikill eftirvænt-
ingu. Fyrri leik liðanna, sem var með
afbrigðum skemmtilegur, lauk með
jafntefli fyrir troðfullu húsi í Hafnar-
firði, en þar sluppu Valsmenn með
skrekkinn þrátt fyrir að hafa byrjað
leikinn mun betur. Hvað verður upp
á teningnum í Valsheimilinu er ekki
gott að segja, en víst er að spennan
verður veruieg.
SKEMMTILEGT
ÍSLANDSMÓT
Áður en að ég sný mér að því að
gera smáúttekt á liðum FH og Vals
er rétt að líta yfir það íslandsmót
sem nú er að Ijúka. Það verður ekki
skafið af því að þetta mót er búið að
vera með allra skemmtilegustu mót-
um í handknattleik um langan tíma.
Margt kemur þar til. T.d. má nefna
að þrír af okkar skæðustu hand-
knattleiksmönnum sneru heim frá
atvinnumennsku erlendis (Atli, Sig-
urður Gunn og Einar Þorvarðar) og
margir mjög efnilegir handknatt-
leiksmenn komu fram á sjónarsviðið
svo um munar á þessum vetri (t.d.
Héðinn, Hrafn, Konráð, Einar o.fl.,
o.fl.). Mótið var þar að auki spilað
mjög þétt í tveimur ,,hollum“, sem
virkilega hjálpaði því frá smástopp-
unum veturinn áður. Þá er það sem
auðvitað mestu máli skiptir, að
handknattleikurinn í vetur hefur
verið vel spilaður og dómgæsla í
ágætu lagi þrátt fyrir misjafnar
undirtektir sumra. Áð lokum má
ekki gleyma þeim þætti sem veru-
lega hjálpar upp á skemmtilegan
handknattleik og mót, en það er
þáttur áhorfenda. Þeir létu sig ekki
vanta og þá sérstaklega ekki á fyrri
hluta mótsins, en troðfullt hús hefur
verið á mörgum leikjum og áhang-
endur verið iðnir við að láta í sér
heyra og hvetja sína menn. Einn
þáttur sem einnig hefur hjálpað
handknattleiknum er gífurleg um-
fjöllun í fjölmiðlum, hvort sem það
er sjónvarp, útvarp eða blöð. Vel-
gengni landsliðsins á þarna hlut að
máli svo og frekar lítill áhugi á öðr-
um inniíþróttum, svo sem blaki og
körfuknattleik. Handboltinn er
númer 1,2, og 3 á íslandi yfir vetrar-
tímann og víst er að á næsta ári má
búast við ekki síðra móti vegna
heimkomu nokkurra af okkar allra
sterkustu handknattleiksmönnum
og vegna þess að landsliðið verður
sennilega ekki eins á milli varana á
fólki nema um stórkostlega frammi-
stöðu á ÓL í Seoul verði að ræða.
BESTU LIÐIN
Þrátt fyrir afar skemmtilegt mót
fer ekki á milli mála að Valur og FH
hafa verið með bestu liðin í vetur.
Þau hafa skipst á að hafa forystu í
mótinu og ekkert lið hefur getað
ógnað þeim að neinu ráði. En hvers
vegna? Fyrir mótið var talið líklegt
að lið eins og Víkingur, Stjarnan og
Blikar ásamt Fram myndu veita
þessum liðum harða keppni, en
raunin varð önnur. Á meðan önnur
iið hafa reytt stig hvert af öðru hafa
Valur og FH farið í gegnum mótið
nánast án taps og ekkert hefur get-
að staðið í vegi fyrir Vals-vörninni
og FH-sókninni, en það er að
minnsta kosti almenna skýringin.
Til að bera þessi lið saman er
sennilega best að fara nokkuð kerf-
isbundið yfir leikmenn liðanna, þ.e.
byrjunarliðin, og líta síðan á aðra
þætti sem koma þessum saman-
burði við. Það er síðan ykkar, les-
endur góðir, að bæta við þær skýr-
ingar sem ég dreg fram og reyna
þannig að móta ykkur skoðun fyrir
leikinn mikilvæga næstkomandi
miðvikudag.
Við byrjum að sjálfsögðu á mark-
vörðunum, enda var ég sjálfur
markvörður á mínum yngri árum
og fæ enn mikið „kikk" út úr því að
sjá boltann smella í markverði. Mín-
ir nánustu vinir eiga reyndar erfitt
með að trúa því að ég hafi verið
markvörður og benda í því sam-
bandi á vaxtarlag mitt sem er með
því „penna" sem gerist í mark-
varða,,bisnessnum“. En markvörð-
ur var ég og þokkalegur þó ég segi
sjálfur frá. Það er sennilega ekki
deilt mikið um það að Valsmenn
hafa á að skipa betri markverði, þar
sem er Einar Þorvarðarson, en önn-
ur lið á landinu. Hann er jafnvel tal-
inn vera með bestu markvörðum í
heimi í dag. Bergsveinn, markvörð-
ur FH, er virkilega góður leikmaður
en hann á enn nokkuð í land með að
ná þeim „klassa" sem Einar hefur.
Hér er staðan nokkuð örugglega
1—0 fyrir Val.
Um línumennina verður heldur
ekki mikið deilt. Þorgils Óttar hefur
vinninginn gegn Geir Sveinssyni og
þá fyrst og fremst fyrir sóknarleik
sinn og útsjónarsemi gegn varnar-
hæfileikum Geirs. Þorgils er okkar
fremsti iínumaður í dag, með af-
burðatækni í sókninni, gífurlegan
styrkleika í hraðaupphiaupum og
ágætan varnarleik. Geir er fyrst og
fremst varnarleikmaður, en hefur
vaxið verulega í vetur í sóknarleik
sínum. Hann er einn okkar fremsti
varnarleikmaður, en það dugar ekki
og FH hefur jafnað 1—1.
Þá eru það hornamennirnir og
þar hafa Valsmenn töluvert fram yf-
ir FH-inga. Valdimar og Jakob eru
báðir landsiiðsmenn og mjög góð-
ir í sínum stöðum. Þeir búa þar að
auki yfir mjög miklum hraða sem
nýtist Valsliðinu verulega vel í
hraðaupphlaupum, sérstaklega er
Valdimar skæður er hann nær sér á
strik. Hornamenn FH, þeir Gunnar
Beinteinsson og Pétur Petersen, eru
mjög ungir að árum og eiga vissu-
lega framtíðina fyrir sér en eiga
nokkuð í land með að ná Valda og
Kobba. Það sem háir Vals-burunum
helst er varnarleikurinn, sem er
gloppóttur en samt betri en hjá FH-
burunum. Staðan er skyndilega
3—1 fyrir Val og það mætti segja
mér að þessir leikmenn skiptu sköp-
um í viðureign liðanna — sjáum til.
FH-ingar klóra verulega í bakk-
ann þegar leikstjórnendur liðanna
eru bornir saman. Guðjón Árnason
og reyndar Óskar Ármannsson líka
hafa að mínu mati — og við skulum
ekki gleyma því að þetta er mitt mat
— nokkuð framyfir Jón Kristjáns-
son. Fyrir það fyrsta er Jón að spila
í stöðu sem er honum kannski ekki
eiginleg eins og hún er Guðjóni og
Óskari. Jón er sennilega sterkari
varnarmaður er Guðjón og Óskar,
en í sókninni eru fáir sóknarstjórar
sem geta spilað eins vel og kumpán-
arnir hjá FH. Þeir eru sérstaklega
lunknir skotmenn og óhræddir við
að reyna að brjótast í gegn við hin
ýmsu tækifæri. Þeir hafa þó þann
galla að fá svokallaða skotræpu við
og við og það getur komið sér illa
fyrir liðið ef hún gengur illa. Þrátt
fyrir þetta er Valur enn yfir, nú 3—2.
Þá er komið að skyttunum tveim-
ur. Annars vegar Héðni gegn Júlíusi
og hins vegar Óskari gegn Einari
(eða Þórði). í slag þeirra Héðins og
Júlíusar verð ég að segja að þeir
skilja sennilega jafnir. Héðinn hefur
sýnt stórkostlegan leik við og við í
vetur en dottið niður þess á milli.
Hann er á góðum degi mun öflugri
sóknarmaður en Júlli, en vörnin er á
Júlla hlið. Það sem sennilega gerir
þó gæfumuninn, ef einblínt er á við-
ureign þessara liða í næstu viku, er
að Héðinn fær mjög gott tækifæri
gegn 6—0-vörn Valsmanna sem
hann gæti nýtt sér vel eins og hann
gerði í fyrri íeiknum. Júlíus verður í
meiri vandræðum í sókninni vegna
„indíánavarnar" FH, en hann bætir
það upp með góðum varnarleik. Ég
slæ þó á jafntefli milli þessara
manna en gef Héðni + þar sem
sóknin á eftir að reynast honum vel.
Á hinum vængnum eru veikustu
hlekkir beggja liða og þar er um
nokkuð öruggt jafntefli að ræða.
Óskar Helgason byrjaði vel i haust
en hann hefur dalað og þeir Einar
og Þórður eiga nokkuð í land með
að teljast hörkuskyttur. Staðan eftir
þessa upptalningu er því: Valur 4 en
FH 3+. Jafnara getur það varla ver-
ið.
Skoðum nú aðra þætti sem geta
skipt sköpum í viðureign þessara
liða. Til að byrja með hefur það sýnt
sig að FH-ingar hafa eitthvert mesta
úthald af öllum liðum í deildinni.
Liðið hefur æft gríðarlega vel undir
strangri stjórn Viggós Sigurðssonar
og komið mörgum liðum í opna
skjöldu með því að stinga hreinlega
af í seinni hluta leikja. Valsliðið er
jafnara lið með mikið úthald en ekki
eins mikinn sprengikraft og FH.
Þarna kemur jafnframt til baráttu-
gleði leikmanna eins óg Þorgils Ótt-
ars, fyrirliða FH, sem dregur sína
menn eins langt og hægt er. Nú, FH-
liðið hefur yfir að ráða vopni
sem það getur gripið til á árangurs-
ríkan hátt en það eru aukaköstin
sem vippað er til Héðins. Þau hafa
gefið liðinu mörg mörkin. Valsmenn
hafa líka sitthvað í pokahorninu en
yfir höfuð er liðið hefðbundnara en
FH-liðið og ekki eins mikill sirkus í
gangi hjá þeim. Valsmenn stilla
gjarnan vandlega upp en eru siðan
þolinmóðir og leita að færum á
meðan FH-liðið er, eins og ég sagði
áðan, sprengikraftslið. Hvort slíkt
dugar þeim gegn Valsvélinni er ekki
gott að segja, en víst er að allir
handknattleiksáhugamenn munu
fylgjast með viðureign þessara liða
af miklum áhuga á miðvikudaginn
kemur og spá mín er sú að heima-
völlurinn verði stærsta vopnið er
upp er staðið og Valsmenn vinni
tveggja marka sigur og hreppi þar
með meistaratitilinn eftirsótta.
38 HELGARPÓSTURINN
IEFTIR ÞÓRMUND BERGSSON