Helgarpósturinn - 24.03.1988, Blaðsíða 39
FRjTTAPÖSTUR
SKOÐAN AKÖNNUN
Þau tímamót urðu nú um helgina í skoðanakönn-
un DV um fylgi stjórnmálaflokkanna að Kvenna-
listinn fékk mest fylgi allra flokka. 29,7% þeirra er
afstöðu tóku kváðust styðja Kvennalistann. Þetta
er í fyrsta skipti í sögu lýðveldisins sem Sjálfstæð-
isflokkurinn mælist ekki stærsti flokkur á land-
inu, en hann hlaut 28,4% fylgi í könnuninni. Nið-
urstöðurnar að öðru leyti urðu þær að Alþýðu-
flokkur hlaut 9,3% fylgi þeirra sem afstöðu tóku,
Framsóknarflokkur 17,6%, Alþýðubandalag
7,8%, Flokkur mannsins og Stefán Valgeirsson
0,8% hvor, Borgaraflokkur 4,7% og Þjóðarflokkur
1,6% fylgi.
STEINGRÍMUR OG PLO
Steingrímur Hermannsson utanríkisráðherra
sagði á útvarpsstöðinni Eót á sunnudaginn að
hann væri reiðubúinn til þess að hitta að máli hátt-
setta menn innan PLO og að til greina kæmi að
bjóða Yasser Arafat, leiðtoga samtakanna, til ís-
lands. Viðræðurnar gætu orðið liður í því að draga
úr tortryggni milli þjóða. Við þetta tækifæri sagði
Elías Davíðsson, ritari félagsins Ísland-Palestína,
að hann vissi til þess að háttsettir menn innan PLO
hefðu áhuga á því að ræða við Steingrím. Þorsteinn
Pálsson forsætisráðherra hefur lýst því yfir að slík-
ar viðræður komi ekki til greina af hálfu ríkis-
stjórnarinnar, íslendingar hafi víst við nóg vanda-
mál að stríða, þó þeir fari ekki að blanda sér í deil-
urnar fyrir botni Miðjarðarhafs.
SAMNINGAMÁL
Landssamband iðnverkafólks og Landssamband
verslunarmanna undirrituðu nýjan kjarasamning
við vinnuveitendur á mánudagsmorgun. í honum
felst að lægstu laun munu hækka um 15,55% á
samningstímabilinu en laun yfir 40.000 kr. á mán-
uði hækka um 14,3%. Þau verkalýðsfélög innan
Verkamannasambandsins sem enn eiga ósamið og
fulltrúar Vinnuveitendasambandsins sitja þessa
dagana á fundum á Akureyri. Samningum miðar
hægt og enn er vart farið að ræða launaliði væntan-
legra samninga. Menn eru hóflega bjartsýnir á að
samningar náist fyrir páska.
FRÉTTAPUNKTAR
• Félagar í Kennarasambandi íslands hafa sam-
þykkt að veita stjórn félagsins heimild til verkfalls-
boðunar. Mikil þátttaka var í atkvæðagreiðslunni
og rúm 60% þeirra, sem þátt tóku, greiddu heim-
ildinni atkvæði. Ef verkfall verður boðað gæti það
hafist 11. april.
• Sverrir Stormsker sigraði í söngvakeppni Sjón-
varpsins á mánudagskvöldið. Lag hans og ljóð, ,,Þú
og þeir“, sigraði með yfirburðum, hlaut fullt hús
stiga. Hvorki Skerið né söngvari lagsins, Stefán
Hilmarsson, kváðu úrslitin hafa komið sér á óvart.
Sverrir sagðist eftir keppnina vera öruggur um að
ná minnst 10. sæti í úrslitakeppninni i Dyflinni.
• Fyrsta islenska glasabarnið fæddist á fæðingar-
deild Landspítalans sl. fimmtudag, en frjóvgunin
fór fram í Englandi. Reyndist barnið vera 12 marka
drengur. Bæði móður og barni heilsast vel. Fleiri
islensk glasabörn munu vera á leiðinni.
• Thor Vilhjálmsson, rithöfundur og bókmennta-
verðlaunahafi Norðurlandaráðs, fer þann 25. mars
í klaustur í Frakklandi. Thor dregur sig á þennan
hátt út úr skarkala heimsins til þess að fá næði við
ritstörf. Ekki er ákveðið hve lengi hann dvelur í
klaustrinu.
• Mælingar í Noregi hafa leitt í ljós þynningu óson-
lags um 6—7% á síðustu 18 árum. Mælingar á
ósonlagi yfir íslandi hafa verið gerðar frá því árið
1952, en lítið sem ekkert unnið úr þeim. Kenningar
hafa verið settar fram um ,,gat“ í ósonlagið yfir
norðurheimskautinu.
• Sturlungasaga hefur verið gefin út í heild með
nútímastafsetningu í fyrsta sinn. Sturlunga, sem
rituð er á 13. öld, greinir frá valdabaráttu og ófriði
á íslandi sem átti sinn þátt i hruni íslenska þjóð-
veldisins.
• Um helgina var hafin sala á ferðum islenskra
verkalýðsfélaga til Kölnar í V-Þýskalandi með flug-
félaginu Lion Air. Félögin höfðu um 2.000 miða til
ráðstöfunar og á mánudagsmorguninn voru 500
enn óseldir. Einungis BSRB hafði selt alla sína
miða og jafnvel fólk komið á biðlista hjá þeim. Hin
félögin halda áfram að selja ferðir sinar út þessa
viku en þá verður hugsanlegum afgangi ráðstafað
til BSRB.
• Arnór Benónýsson hefur verið ráðinn leikhús-
stjóri Leikfélags Akureyrar. Hann hefur verið leik-
ari við Þjóðleikhúsið undanfarið en er ekki ókunn-
ugur Leikfélagi Akureyrar, lék þar fyrr á ferli sin-
um.
• Fræðsluvarp Ríkissjónvarpsins tók formlega til
starfa á laugardaginn. Hlutverk þess er nýta sjón-
varpið sem kennslutæki. Dr. Sigrún Stefánsdóttir
veitir Fræðsluvarpinu forstöðu.
• Jóhann Hjartarson var einn í efsta sæti á alþjóð-
lega skákmótinu sem haldið var á Akureyri. Hann
hlaut 8 vinninga af 11 mögulegum. í öðru sæti var
Sovétmaðurinn Polugajevskí með 7,5 vinninga og
Margeir Pétursson í þriðja sæti með 7 vinninga.
Heildarverðlaun á mótinu námu 400 þúsund krón-
um og af þeim fékk Jóhann 120 þúsund fyrir sigur-
inn.
• íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur hefur
bannað samtökunum „Tjörnin lifi“ að láta undir-
skriftalista gegn væntanlegri byggingu ráðhúss i
Tjörninni liggja frammi á sundstöðum borgarinn-
ar. Forsendur þessarar ákvörðunar meirihluta
ráðsins eru þær að undirskriftasöfnunin sé af póli-
tískum toga.
• Álafoss hefur samið um sölu á treflum og peys-
um til Sovétrikjanna fyrir um 80 milljónir króna.
Að mati Álafossmanna er samningum ekki lokið,
því ætlunin mun vera að semja um mun meiri sölu
en þegar er orðin.
\V
mmmm
Hámarksþœgindi fyrir lagmarksverð. Hann er loksins
kominn stóllinn sem sameinar þessa tvo kosti.
Pessi stóll styður vel við bakið og gœtir þess að þú
siljir rétt. Hann er með léttri hœðastillingu, veltanlegu
baki og fimm arma öryggisfœti.
^vpetto er gœðastóll ó góðu veiði.
s ~\yy'
.VjVv
Þetta er góð fermingargjöf.
C23nn
Hallarmúla 2 Sími 83211
HVAÐ
MEÐ ÞIG
HELGARPÓSTURINN 39