Alþýðublaðið - 27.05.1939, Blaðsíða 1
/
AIÞÝÐUBIAÐIÐ
EITSTJÓRI: F. R. VALÐEMARSSOK
ÓTGEFANDI: ALÞÝDUFLOKKURINN'
XX. ÁRGANGUB
LAUGÁRDAG 27. MAÍ 1939
120. TÖLUBLAÐ
Vorosjilov liermálaráðherra Rússa (í miðjunni) við hersýningu
á rauða torginu í Moskva. Til hægri: Tukatsjevski marskálk-
ur. sem Stalin lét skjóta fyrir réttum tveimur árum.
Sameiginlegar tillðgar
Breta og Frakka lagðar
fran I Moskva i gær.
♦ —
M er beðið eftir svari sovétstjörnarinnar.
LONDON í gærkveldi. FÚ.
SEEDS, sendiherra Breta
í Moskva, fékk í morg-
un skeyti frá brezku stjórn-
inni, innihaldandi tillögur
þær í fullnaðarformi, sem
um hefir verið getið í fyrri
fregnum.
Áranguvinn af talsímavið-
raeðum milli ríkisstjórna Frakk-
lands og Bretlands síðdegis í
gær og í gærkveldi varð sá, að
ákveðið var að hraða því að
ganga frá tillögunum og senda
þær til Moskva sem sameigin-
legar tilliígur Frakklands og
Bretlands um þríveldabandalag
milli Frakklands, Bretlands og
Sovét-Rússlands.
Efni lillagnanna er ekki
kunnugt á þessu stigi málsins,
en þaS er gert ráð fyrir, að um
gagnkvæma aðstoð sé að ræða,
ef til árásar kemur á nokkurt
þríveldanna, auk ákvæða varð-
andi árásir á önnur ríki, til
dæmis Pólland og Rúmeníu.
Chamberlain verður í Yorks-
hire um hvítasunnuna, en er þó
undir það taúinn að hverfa þeg-
ar í stað til London, er Maisky
hefir fengið svar sovétstjórnar-
innar við tillögunum.
Þýzku bl/iðin eru mjög gröm
yfir hinum áformuðu samtökum
Breta, Frakka og Rússa, og
mörg þeirra birta viðvörunar-
Ágætiseinkunn í lögfræði.
Ölafur D. Jóhannesson frá
Stórholti í Fljótum hefir nýlok-
íð prófi í lögum. Hlaut hann á-
gætiseinkun 155 stig. Er þetta
Janghæsta próí í þeirri grein, sem
nokkur lögfræðingur hefir tekið
hér viö háskóiann og eina prófið,
að ágætiseinkun hefir verið gefin.
Úlafur hefir stundað nám aðeins
4 ár og tekið drjúgan þátt í fé-
lagslífi stúdenta. Hann hefir m.
a. verið forrn. félags róttækra
stúdenta og áít sæti í stúdentá-
iáði. Ennffemur hefir hann stund-
að kenslu jafnframt náminu.
greinar, þar sem Pólverjum eru
gefnar ýmsar ráðleggingar.
Japanir virðast einkum hafa
áhyggjur af því, hvort þessi
samtök muni eiga að ná til
Austur-Asíu.
Vorosjilov boðið til
LONDON í gærkveldi. FÚ.
Vorosjilov yfirhershöfðingja
Sovét-Rússlands hefir verið
boðið af Hore-Belisha hermála-
ráðherra Breta að vera við-
staddur heræfingar þær, sem
fram fara á Englandi á þessu
ári.
Viðstaddir heræfingar þessar
verða einnig ýmsir æðstu her-
foringjar nokkurra annara
landa,
ijryðDissamninanr milli
Frafefea og Tyrkja i aðsigi.
LONDON í rnorgun F.O.
I París var tilkynt í gær, að
í næstu viku myndi nást sam-
komulag milli Tyrkja og Frakka
á svipuðum grundvelli og brezk-
tyrkneska samkomulagið.
Urír menn dæmdir
íyrir smygl.
T GÆR voru þrír menn dæmd-
ir I Icgreglurétti fyrir smygl.
Höfðu þelr reynt að smygla inn
áfengi, vindlingum og fataefni.
Síðast þegar Gullfoss var hér,
fundust smyglvörtir í skipinu. Hjá
búrmanni fundust 6 flöskur af
sterkum vínum og ennfremur
nokkuð af vindlingum. Fékk búr-
maðurinn 400 króna sekt.
Þá fundust fataefni og silkiklút
ar hjá tveimur hásetum. Fengu
þeir 100 króna sekt hvor.
Verkamannaf élagið HHf
f Haf narflrðl er þrfkloflð
---+---
Tilraun Sjálfstæðisflokksverkamanna til
að koma viti fyrir kommánista mlstðkst.
---♦---
Verkamenn Alþýðnflokksins og SjáSf-
stæðisflokksins verða ná að taka taðiad"
um saman til að gera enda á ðstjórninni.
í T T AF ÞEIM dæmalausu brottrekstrum, sem átt hafa
^ sér stað í Hafnarfirði, er kommúnistastjórnin þar á 50
manna fundi lét samþykkja að reka á annað hundrað verka-
menn úr Hlíf og svifta þá vinnuréttindum, áttu þeir verka-
menn í Hafnarfirði, sem telja sig til Sjálfstæðisflokksins
þar, fund með sér í málfundafélaginu Þór og ræddu þetta
hneykslismál.
Á þeim fundi var samþykt,
samkvæmt upplýsingum, er
birzt hafa i Morgunblaðinu,
að bera fram á fundi í Hlíf
eftirfarandi tillögur:
„1. Verkamannafélagið Hlíf
samþykkir að afturkalla sam-
þykt þá, sem gerð var á fundi '
um brottvikningu meðlima
Verkamannafél. Hafnarfjarðar,
þeirra, sem eru verkamenn að
atvinnu, enda hætti félagið að
starfa sem verkamannafélag ög
starfi eingöngu sem málfunda-
félag framvegis, á sama grund-
velli og málfundafélagið Þór.
2. Með hliðsjón af því, að
fram hafa komið í Verkamanna.
félaginu Hlíf nú að undanförnu
tillögur og verið gerðar sam-
þyktir um mikilsvarðandi mál á
fámennum fundum, án þess að
nokkrum öðrum hafi verið
kunnugt um en félagsstjórn-
inni, að þessi mál ætti að tak-
ast fyrir, þá ályktar fundurinn
að kjósa 6 manna nefnd og 2 til
vara, til þess að fylgjast með
öllum tillögum. sem fram
kunna að koma og hafa eftirlit
með stjórnarframkvæmdum.
Nú óskar félagsmaður eða fé-
lagsstjórn að bera fram tillögu á
félagsfundi til samþyktar og
skal hann eða hún þá í síðasta
lagi tveim dögum fyrir fund
leggja tillöguna fyrir félags-
stjórn og samtímis fyrir for-
menn málfundafélaganna, sem
eru sjálfkjörnir í 6 manna
nefndina.
Nú telur stjórn Hlífar nauð-
syn bera til að kalla saman
skyndifund og skal hún þá þeg-
ar tilkynna formönnum mál-
fundafélaganna það og fundar-
efnið. Sé út af þessu brugðið,
annaðhvort af einstökum fé-
lagsmönnum eða félagsstjórn,
þá er tillagan eða fundarsam-
þyktin því aðeins bindandi, að
hún hafi verið samþykt á 2
fundum í röð og líði a. m. k.
tveir dagar milli funda.
3. Engum utanfélagsmanni er
heimil fundarseta, nema það
sé samþykt með meirihluta at-
kvæða á fundinum.
4. Verkamannafélagið Hlíf
samþykkir að ganga nú þegar
úr Varnarbandalaginu.“
Eins og þessar tillögur bera
með sér er hér gerð virðingar-
verð tilraun af Sjálfstæðis-
mönnum í Hafnarfirði til þess
að ráða bót á því öngþveiti, sem
verkalýðsmálin þar eru nú
komin í. Stjórn Hlífar hefir
brotið svo af sér, að hún getur
undir engum kringumstæðum
talist hæf til að stjórna verka-
mannafélagi áfram, og er gott
að Sjálfstæðismenn í Hafnar-
firði skuli sjá þetta nú og vilja
reyna að bæta úr því.
Næsta sporið virðist nú að
öllu óbreyttu munu verða það,
að Sjálfstæðismennirnir hverfi
úr Hlíf og þar verði ekki eftir
aðrir en kommúnistar einir —
30—40 að tölu. Er þá Hlíf farin
sama veginn og öll önnur verka.
mannafélög, sem kommúnistar
hafa náð yfirráðum í.
Fundur í Verkamannafélagi
Hafnarfjarðar.
Á sama tíma og fundurinn
var í Hlíf var fundur í Verka-
Frh. á 4. síðu.
Hitaveitan i bæj-
arstjórn i dag.
ILI ITAVEITAN verður
AA til 2. umræðu á hæj-
arstjórnarfundi í dag.
Undanfarna daga hefir
málið verið rætt og athug-
að í bankaráði Landsbank-
ans, af ríkisstjórn og í hæj-
arráði.
Verða að líkindum born-
ar fram og samþykktar á
fundinnm í dag tillögur
mn að taka tilboði Höj-
gaards og Schultz og aðrar
tillögur er snerta málið.
K. R. vann Fram
með ágætum leik.
-------4,------_
Skemtilegasti leikur, sem sést hefir
um langan tíma.
T/" APPLEIKURINN í gærkveldi milli K. R. og Fram var
bráðskemtilegur frá upphafi til enda. Báðum félög-
unum hefir farið mjög mikið fram frá því í fyrra og ekki
síður K. R en Fram.
í liði K. R. eru að koma fram
menn, sem sýna ágæt afrek, og
má þar fyrsta telja Birgir,
Skúla og Ólaf Skúlason — einn-
ig Harald, en hinir eldri eru
bragðdaufari. Þó sýndu hinir
eldri Steini, Schram og Gísli á-
gæta boltameðferð á köflum, en
markmaðurinn Anton virðist nú
vera að verða bezti markvörður
okkar.
Fram hefir einnig ágætum
mönnum á að skipa, Jónunum
báðum og t. d. Karli Torfasyni.
Leikurinn var mjúkur frá
upphafi og aldrei ljótur. Fyrri
hálfleikinn hafði markmaður K.
R. sólina í augun, en boltinn
kom sjaldan til hans svo að það
kom ekki að sök, falleg upp-
hlaup skiftust á lengi vel og
voru menn farnir að halda að
hálfleiknum myndi lúka, án
þess að nokkurt mark yrði sett,
en loks þegar rúmar 2 mínútur
voru eftir tekur Birgir horn-
spyrnu á Fram og Guðmundur
Jónsson skallaði knöttinn inn.
í þessum hálfleik meiddist Óli
B. Jónsson, en Skúli kom inn í
staðinn. Eitt atvik kom fyrir.
sem vakti sérstaka athygli. Eft-
ir ágætt upphlaup Fram lá
BIRGIR GUÐJÓNSSON
nýja ,,stjarnan“ í K. R.
knötturinn svo að segja inni í
marki K. R.. en á síðustu stundu
bjargaði Haraldur með skalla.
Síðari hálfleikurinn var enn
skemtilegri en sá fyrri. Lá
knötturinn þó oftast á vallar-
helmingi Fram og eftir 7 mín-
útur skoraði K. R. mark og eft-
ir 10 mínútur kemur 3. markið.
Gekk nú á harðri hríð um stund
og eftir 9 mínútur skoraði Fram
2. mark sitt, og eftir augnablik
skoraði K. R. 4. mark sitt.
Frh. á 4. síðu.
Arthur Greiser
forseti senatsins í Danzig.
Nazistar neita
allri máiamiðl-
uo i Danzig.
Fulltrúi Þjóðabandalags
ins á leitinní pangað.
LONDON 1 morgun. FÚ.
\ ÐALBLAÐ nazista í Dan-
zig mintist í gær á þann
orðróm, að Burckhardt, fulltrúi
Þjóðabandalagsins í Danzig,
ætlaði að miðla málum í deil-
unni um borgina.
Blaðið segir, að engin mála-
miðlun komi til greina.
Þjóðabandalagið fól Burck-
hardt nýlega að hverfa aftur til
Danzig og gefa skýrslu um á-
standið þar.
Hæstar éttai dómnr
T GÆRMORGUN var kveÖinn
A upp dómur í hæstarétti í
skuldamálinu Isleifur Jónsson
gegn Tómasi Sigurþórssyni.
Hin umdeilda skuld var 2250,00
og hafði myndast í sambandi vi'ð
húsbyggingu.
Hélt stefnandi því fram, að
stefndur hefði lofað því að taka
að sér að greiða skuídina og
leiddi vitni að því. Hinsvegar
þótti stefndur hafa fært svo mikl-
ar líkur fyrir staðhæfingu sinni
að rétt þótti að láta úrslit velta
á eiði stefnds.
Faríuglar.
Um hvítasunnuna fara farfugl-
ar í tvö ferðalög. Á hvítasunnu-
dag verður farið í gönguferð í
nágrenni Reykjavíkur. Lagt upp
frá Mentaskólanum kl. 9 f. h. og
ekið suður að Vífilsstöðum og
þaðan gengið á Búrfell og um
Kaldársel og Stórhöfða niður í
Hafnarfjörð. Hin ferðin verður
farin í BorgarfjörÖ. Lagt verður
af stað með Fagranesinu á laug-
ardag til Akraness og farið á
reiðhjólum að Hvanneyri um
kvöldið og gist þar. Á hvítasunnu
dag hjólað að Hreðavatni og
verið þar, þangað til farið verð-
ur heimleiðis um Akranes á ann-
an. Væntanlegir þátttakendur til-
kynni þátttöku sína á skrifstofu
farfuglanna í Mentaskólanum í
kvöld kl. 9—10.