Haukur - 01.07.1914, Side 12
HAUKUR.
notaðar, og tvö eða þrjú einvígi í lofti hafa átt sjer stað. Þegar
sjezt hefir til njósnarflugvjela óvinanna, hafa flugmenn flogið
upp og rennt sjer beint á þær. Einn, er slíkt gerði, komst
lífs af; annars hafa sltk „áflog" orðið beggja bani. Myndin
sýnir frakkneska flugvjel með lítilli hraðskotafallbyssu (að
eins nokkuð af skrokknum og nokkuð af öðrum vængnum
sjest á myndinni). Flugmaðurinn situr niðri í skrokknum, og
hefir þar gott afdrep. Skotmaðurinn er í meiri hættu staddur,
en bótin er, að flugvjelar eru svo litlar og ferðmiklar, að illt
er að hitta þær. Loftförin eru ólíkt betri skotspónn.
Flugnaýallbyssur. Iðnfræðingar hafa lengi brotið heil-
ann um það, hvernig verjast ætti árásum flugmanna, og ár-
angurinn af því er fallbyssa sú, sem hjer er sýnd. Fallbyssan
er þannig gerð, að skjóta má úr henni beint í loft upp, og
er hún höfð á brynvarðri bifreið, svo að veita má flugmönn-
um eftirför. I styrjöldinni hefir þegar tekizt að skjóta niður
nokkrar flugvjelar og loftför með fallbyssum af þessari gerð.
Norðurlönd og ófriðurinn. Norðurlönd lýstu þeg-
ar í byrjun ófriðarins yfir því, að þau væru hlutlaus. En auð-
vitað vfgbjuggu þau sig eftir föngum, til þess að vera við-
búin ef á þau yrði ráðizt. Danir juku her sinn mjög. Hjer
Pius X. páfi.
hafði valið sjer að leiðtoga ( öllum utanríkismálum, og bar
fullt traust til. í augum flestra kaþólskra manna var PíuS
páfi næstum því heilagur maður. Hann var ekki kirkjufurst-
inn, heldur kirkjufaðirinn. Úr sáttum milli hans og hins ver-
aldlega valds á ftalíu varð aldrei neitt. Hann lifði og
sem „fanginn í páfahöllinni".
Hinn 31. ágúst kom kardfnálasamkundan saman ti
þess að velja hinn nýja páfa. Mættu þar um 70 kardínálar
úr ýmsum kaþólskum löndum. Eru þeir lokaðir inni ( kjor-
þingissalnum, sem er kapellusalur einn ( páfahöllinni, og hafa
þeir þar sinn smáklefann hver við hlið salsins, og sinn her-
bergisþjóninn hver, er færir þeim vistir o. s. frv. Þarna verða
þeir að vera unz kosningu er lokið, og tekur það oft marga
daga. Engin mök mega þeir eiga við aðra menn, og ekkert
má trufla þá, meðan þingið stendur yfir. Fundi halda Þeir
kvölds og morgna í kjörþingissalnum. Tvo þriðju atkvæða
þarf til þess að kosning sje gild. Hinn 3. september höiðu
kardinálarnir komið sjer saman um páfavalið, og varð Jacob
della Chiesa kardfnáli fyrir valinu. Hann er ítalskur, tæple8®
sextugur að aldri, og hafði verið kardínáli í að eins þrjá
mánuði. Hann tók sjer nafnið Benedikt XV. Vjer setjum
hjer myndir af Píusi X. og Benedikt XV., og enn fremuí
mynd af kjörþingissalnum. Meðfram veggjum salsins erU
Benedikt XV. páfi.
er mynd frá Danmörku, danskir hermenn á leið frá Kaup-
mannahöfn út til varnarvirkjanna.
Páfaskifti. Hinn 20. ágúst síðastl. andaðist Ptus X.
páfi, 79 ára að aldri. Hann hafði lengi verið heilsulítill, og
stundum talinn af, en nú er sagt, að harmurinn yfir Norður-
álfustyrjöldinni muni hafa flýtt fyrir dauða hans, því að hann
tók sjer fregnirnar um hana mjög nærri. Síðasta verk hans
áður en hann lagðist banaleguna var það, að rita Vilhjálmi
Þýzkalandskeisara, og ávíta hann hatðlega fyrir að hafa hafið
þessa voða styrjöld. Og mælt er að hann hafi, nokkru fyrir
andlát sitt. sagt við einhverja vini sína: „Fyrrum hefði páfinn
getað stöðvað þessa mannaslátrun með einu orði. En nú er
jeg svo vanmáttugur, að jeg fæ engu ráðið". Hann varð páfi
4. apríl 1913. Aður var hann yfirbyskup í Feneyjum, og
hjet rjettu nafni Giuseppe Sarto. Hann var kominn af fátæk-
um foreldrum, og var alla æfi lftillátur maður og blátt áfram,
guðhræddur og góðviljaður öllum. En hann var enginn
stjórnmálamaður, eins og Leó páfi, fyrirrennari hans, hafði
verið, og ætla margir, að það hafi gert páfavaldinu tjón
mikið. Það var sem sje á hans páfadögum, að Frakkar
sögðu slitið öllu stjórnmálasambandi við páfahöllina og sögðu
upp kirkjumálasáttmálanum. En mest mun það hafa verið
að kenna ólagni Merry del Val kardínála, sem píus páfi
stólar, og hásætishimin yfir hverjum stól, tjaldaður fjólubláu
hálfsilki. Fyrir framan hvern stól er lítið borð, og á því kerti 0?
skrifíæri. A miðju gólfi eru nokkur borð, og á einu þeirra
stendur kaleikur, sem atkvæðaseðlunum er safnað f. í
sýn er matborð, og á því svaladrykkir og kökur hand
kardínálunum.
cTbeistar.
Sönn mikilmenni hafa þrek og áræði til að játa Þa^
hreinskilnislega, að þeir hafi gert glappaskot, vegna þesS a
þeir hafa ætfð vilja og oftast mátt til þess að bæta úr þv1.
Sá, sem ætíð er hræddur um það, að hann geri °nseP-
þar sem hann kemur sem gestur, gerir hjer um bil ætíð ón®
Margir dæma helzt um það, sem þeir bera minnst skyu
Ritstjóri: STEFÁN RUNÓLFSSON, Rcijkjavik.
Prentsmiðjan Gutenberg. — 1914.
— 143 —
_ j 44 _