Alþýðublaðið - 02.06.1939, Síða 1

Alþýðublaðið - 02.06.1939, Síða 1
BtjkJavitau heícSur skemtifuud á lauflardagsfepöld RITSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON 0TC1FABUM: M^ÝMJFLÖMMSSSM SX. ÁEGANGUB FÖSTUDAGINN 2. JÚNÍ 1939 134. TÖLUBLAÐ Skemtifundur Alþýðuflokks félaganna. Alþýðuflokksfé- LÖGIN hér í bæn- um gangast fyrir skemti- fundi í Alþýðuhúsi Reykja- víkur annað kvöld. Verður þetta síðasta skemtikvöld félaganna á þessu starfsári. Fjölda margt verður til skemtunar. — Guðbrandur Jónsson flytur erindi, Sig- urður Maríasson verka- maður segir skémtisögur. Kjartan Ólafsson les upp óprentuð kvæði eftir Örn Arnarson, en auk þessa verður ýmislegt annað til skemtunar. Þá verða boðnir upp bögglar og seldir hæstbjóð- anda. Skorað er á flokks- fólk að fjölmenna á þessa ódýru og góðu skemtun. i ítalirnlr á Spáni lobs- ins ð heimleið. Vopiin skilln eftlr. LONDON í gærkveldi. FÚ. ITÖLSKU „SJÁLFBOÐALIÐ- ARNIR“ á Spáni lögðu af stað frá Cadiz í morgun á átta herilutnlngaskipum. Með þeim fara 3000 spánskir fótgönguliðs- menn. t gærkvöldi fór fram úthlutun heiöursmerkja af hálfu Franoos, Dg var hermönnunum þökkuð að- stoðin. Flugmenn ttala eru enn á Spáni, en munu leggja af stað heimleiðis í næstu viku. Fall- byssur og ýms önnur hergögn og mikið af flugvélum skilja Italir eftir á Spáni. Drottningin er væntanleg til Kaupmanna- hafnar á morgun. Fé ótvegað til bvggii NaaiabÉstaða í sumar i Rejtkja vil ---♦---- Rikisstjórnin skrifaði í gær stjórn Bygging- arsjóðs verkamanna og tilkynnti henni það. H UNDRUÐ MANNA bíða með óþreyju eftir því, að sjá* hvort Verkamannabústaðir verða byggðir á þessu sumri. Það eru nú 2 ár liðin síðan flutt var inn í nýjustu bústaðina og 3 ár síðan byrjað var á því að byggja þá. Hefir mörgum þótt lítið verið gert að því að knýja fram nýjar byggingar síðan og hefir formaður Byggingarfélags- ins sætt harðri gagnrýni fyrir sofandahátt í þeim málum, en hann hefir haft annir sér til afsökunar. Með samningum Alþýðuflokksins í vor við stjórnmálaflokkana Framsókn og Sjálfstæðisflokkinn var það trygt að lagt verður til verka- mannabústaða 1 Reykjavík hálf milljón króna á þessu ári. Var það eingöngu fyrir atbeina Alþýðuflokksins að þetta fókst fram. Sir Stafford Cripps fær ekbi ipptbki fyrst nm sinn. í gær skrifaði félagsmálaráð- herra stjórn Byggingarsjóðs verkamanna og tilkynti henni að ríkisstjórnin hefði þegar út- vegað lán til sjóðsins að upp- hæð 300 þúsund krónur til bygginga verkamannabústaða í Reykjavík. Voru 150 þúsundir króna útvegaðar hjá Brunabóta- félagi íslands og 150 þúsundir hjá Tryggingastofnun ríkisins. Jafnframt tilkynti félagsmála- ráðherra stjórn sjóðsins að rík- isstjórnin væri tilbúin að greiða öll sín lögboðnu gjöld til sjóðs- ins (2 kr. af hverjum íbúa í Reykjavík og ágóðann af Tó- bakseinkasölunni) og vonandi greiddi Reykjavíkurbær einnig öll sín lögboðnu gjöld. Enn fremur var það tekið fram í bréfinu, að það félag eitt, sem starfaði samkvæmt lögunum um verkamannabú- staði og þeim breytingum, sem gerðar hafa verið á þeim með bráðabirgðalögunum, hefði rétt á láni úr sjóðnum. Loks var það tekið fram, að ríkisstjórnin myndi fljótlega tilnefna for- mann Byggingafélagsins. Með þessu á að vera orðið ör- ugt að nýir verkamannabústað- ir verði bygðir í sumar, en ekki er hægt að segja með neinni vissu hve margar íbúðir er hægt að byggja. Verður vonandi hafist handa hið fyrsta í þessu máli svo að íbúðirnar geti verið tilbúnar næsta vor og að íbúðareigendur geti hagað sumratvinnuáætlun- um sínum samkvæmt þessu, en að sjálfsögðu verður íbúðareig- endum, eða réttara sagt íbúðar- kaupendum, gefinn kostur á að vinna sjálfir við byggingu bú- staðanna. H LONDON í morgun. FÚ. INN nýi forseti fram- kvæmdastjórnar brezka Alþýðuflokksins hefir ákveðið að fresta ákvörðun um endur- upptökubeiðni Sir Stafford Cripps og félaga hans. Á þingi enska Alþýðuflokks- ins í Southport var feld með meira en tveggja milljóna at- kvæða meirihluta ályktun við- víkjandi samfylkingu jafnaðar- manna við samvinnumenn, — frjálslynda og kommúnista, og var hún á þá leið, að jafnaðar- menn skyldu um stundarsakir vinna með þeim í utanríkismál- um. Vikingir vam Frai. -----♦.--- Úrslitakappleikurinn er annað kvöld milli K. R. og Vals. 'lwJrEÐUR var óhagstætt í gær- " kvöldi til knattspyrnu- keppni, sunnan stormur og rigning öðru hvoru. Leikurinn byrjaði alveg stundvíslega, eins og vera ber. Dómari var Mr. Divine, var hann strangur á smámunina, en svo slepti hann aftur oft ,,flugstökkunum“ eins og t. d. hægri bakvörður Víkings var allt of gjarn á. Því að á þann hátt er það oft, sem mesti háski myndast. Víkingar léku undan, en þrátt fyrir það hófu Framarar strax sókn og héldu henni nær óslitið í fyrstu 15 mínúturnar. Á þeim tíma fengu þeir sín beztu tækifæri á að skora, sem gafst í leiknum, og ef skotmenn- irnir Jón S. og Þórhallur hefðu hugsað um að læða knettinum í netið, hefði Fram átt að hafa 2:0. En þeir vildu láta hvína í því — og einmitt á því, hefir svo mörgum framherjanum mis- tekist hér á sínu stærsta augna- bliki. Ef til vill var það af því, að ekkert mark var gert, en þau hressa jafnt upp á leikmenn sem á áhorfendur, að manni finst þetta vera einhver leiðinlegasti hálfleikur mótsins, því hvorugt liðið náði nokkrum samleik, sem heitið gæti, og leikmenn virtust blátt áfram oft og einatt latir. Þó hafði Fram heldur yf- irhöndina og lék betur og átti yngri kynslóðin sinn góða þátt í því. 2. hálfleikur. Nú léku Fram- Frh. á 4. síðu. Stðrfenglep hálíðahöld sjá- manna á snnmdaglnn. Mjog merkileg sjómennskiisýii* ing verður opnuð um morguninn. Q JÓMANNADAGURINN ^ verður á sunnudaginn kemur og verður þá mikil viðhöfn. Dagskráin er mjög fjölbreytt, einnig verður merkjasala, Sjómannablaðið selt á götunum og fánar dregnir að hún á skipunum, en það, sem sennilega mun vekja mesta athygli, er sjó- mannasýningin í Markaðs- skálanum. Um allan undirbúning Sjó- mannadagsins sér sérstakt sjó- mannaráð, sem í eru fulltrúar frá öllum starfsgreinum sjó- mannastéttarinnar. f fyrra var sjómannadagurinn 6. júní, og var þá fyrsti sjómannadagur, sem hér hefir verið haldinn há- tíðlegur. Klukkan tíu á sunnudagsmorg- uninn verður sjómannasýningin •opnuð í Markaðsskálanum. Verð- ur hún hin fjölbreyttasta og sýnir í- stórum dráttum þróunina á sviði sjómenskunnar hér við land frá upphafi til þessa dags. Verður sýningin í fimm deild- um, vélstjóradeild, loftskeyta- deild, matsveinadeild, skipstjóra- og stýrimannadeild og deild al- mennrar sjóvinnu. I vélstjóradeildinni verða sýnd- ar alls konar vélar, mótorar og gufuvélar, og verða hafðar í gangi fyrir sýmngargesti. Lloyd George við eina af umræðum neðri málstofunnar í enska þinginu um samningana við Rússa. Slðasta tUboð Breta og Frakka til Rússa er um gagnkvæmt bandalag. -----»■. Brezkir sí,jénamálameBiii ekki von lausir enn, að samningar takizt. t loftskeytadeildinni verða ýmis konar loftskeytatæki, m. a. fyrsta loftskeytatæki, sem notað var hér á landi, og fyrsta loftskeyta- tæki, sem notað var í skipi hér við land, auk þess sjónvarp. í matsveinadeildinni verða ýmis konar áhöld viðkomandi starfi matsveinanna. í deild skipstjóra og stýri- manna verður stjórnpallur með tilheyrandi skipstjórnartækjum, en framan við stjórnpallinn hefir verið settur upp stór viti. í deild almennrar sjóvinnu verða t. d. ýmis konar veiðarfæri og sjó- fatnaður og margt fleira. Á sýningunni verða enn fremur líkön af alls konar tegundum skipa, alt frá víkingaskipum til þeirra skipa, sem notuð eru á vorum dögum, og er tilgangurinn með sýningunni, eins og áður er sagt, að sýna þróun sjómensk- unnar frá elztu tímum til vorra daga. Sýningin, sem verður í alla staði hin myndarlegasta og fróð- lþgasta, verður opin í hálfan mánuð, og má búast við því, að hún verði mjög fjölsótt. Dagskrá sjómannadagsins verð- ur sem hér segir: Kl. 8: Fánar dregnir að hún á skipum. Merkjasala og sala Sjó- mannadagsblaðsins hefst. Kl. 10: Frh. á .4. síðu. LONDON 1 morgun. FÚ. ENDA ÞÓTT hinar sameig- inlegu uppástungur Breta og Frakka, sem sendar voru Rússum, hafi ekki verið birtar, er talið, að í þeim sé gengið út frá gagnkvæmri aðstoð, ef 1) nokkurt þeirra þriggja ríkja. sem að þríveldasamtök- unum standa, verður fyrir árás í Evrópu, 2) nokkurt þríveldanna lend- ir í styrjöld vegna skuldbind- inga sinna um samtökin gegn á- gengni, 3) nokkur aðili bandalagsins fer til aðstoðar ríki, sem orðið hefir að, grípa til vopna gegn innrás. Brezkir stjórnmálamenn líta svo á, að Molotov, forsætis- og utanríkismálaráðherra Sovét- Rússlands, hafi ekki í ræðu sinni í gær vkið máls á neeinu triði, sem þurfi að spilla því, að íullnaðarsamkomulag náist milli Breta, Frakka og Rússa. Er á það bent, að gagnrýni Molotovs lúti frekar að forms- og fyrirkomulagsatriðum, en grundvallaratriðum. Vilja Bret- ar líta svo á, að í sínum upp- runalegu tillögum hafi Pólland og Rúmenía sérstaklega verið tilnefnd, vegna þess, að þeim var helzt ógnað, er málinu var hreyft við Rússa. Stjórnir Bretlands og Frakk- lands bíða nú eftir hinu opin- bera svari sovétstjórnarinnar. EjstrasaltslSndio enginn ásteitin yar steinr. Ummæli Molotovs um Eystrasaltsríkin hafa vakið talsverða athygli í London, með því að talið er, að brezka stjórnin hafi fyrir nokkru byrj- að viðræður við ríkisstjórnir þessara landa, lútandi að þess- um málum. Meðal stjórnmála- manna í London, sem fylgja ríkisstjórninni, kemur fram sú skoðun, að til ágreinings muni ekki koma milli Breta og Rússa veegna þeirra ríkja, sem nefnd hafa verið í smkomulagsumleit- unum, með því að makrmiðið með þessum sáttmála sé það, að koma í veg fyrir ágeengni, hvar sem hún komi fram. „RAssar láta ekki sviða á sér fingurna tjrir aöra 44 í ræðu sinni lagði Molotov á- herzlu á, að bandalagið yrði ein- göngu varnarbandalag, að öryggi allra nágrannaríkja Rússlands væri ábyrgst og að gengið væri Frh. á 4. síðu. Leitað að kafbát ðti fyr- ir Lijerpool í aHa nðtt. — ♦------- Hann kafaði þar í gær og kom ekki fram aftur fyrr en í morgun. i LONDON í rnorgun. FO. EINN af nýjustu kafbátum Bretlands, „Thetis“ með að minsta kosti 78 manns inn- anborðs, kafaði í gær í Liver- pool Bay á æfingum. Var þetta nokkru eftir hádegi. Kafbátur- inn kom ekki upp aftur, og er menn vóru farnir að óttast, að eitthvert óhapp hefði komið fyr- ir, var gripið til víðtækra ráð- stafana um það, að leita kafbáts- ins og bjarga honum, ef mef þyrfti. Fjölmörg herskip voru tekin ti Frh. á 4. síðu.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.