Alþýðublaðið - 14.06.1939, Blaðsíða 1
BmTJÓRI: F. £. VALDEMÁRSSON ÚTGEFANDl: ALÞÝBVFLOSKUBINlir
XX. ÁBOANGUR MIÐVIKUDAGINN 14. júní 1939. 133. TÖLUBLAÐ
Fundnr Byggingarfélagsins fi gærkvðldi
leptl ekki málið á viðunandi hátt.
'H. V. neitaði -hinum nýja for-
manni félagsins að taka við.
------<.------
BYGGINGARFÉLAG ALÞÝÐU hélt fund í gærkveldi.
Var í fundarauglýsingunni tilkynnt, að ræða ætti
um bráðabirgðalögin og breytingar á félagssamþykktum.
Tæpur heimingur félagsmanna var mættur á íundin-
um og var auðséð, að kommúnistar höfðu haft mikinn við-
búnað og smalað sínu liði á fundinn, enda hægur vandi hjá
þeim að láta flokksmenn sína vera skuldlausa, svo að þeir
gætu sótt fundinn.
Einkennileg fran-
koma Steinþórs Guð-
mmdssour í Mið-
bæjarskólannm.
Skélanefnd ep skélastjéri
¥ T NDANFARIÐ hefir einn
^ af kennurum Miðbæj-
arskólans, Steinþór Guð-
mundsson, verið að undir-
búa söngför barna úr skólan-
um ti! útlanda, án þess að láta
hvorki skólastjóra né skóla-
nefnd vita af þessu ráða-
bruggi sínu. Hefir hann og
fengið í lið með sér söng-
kennara skólans. Hefði þetta
ráðabrugg þeirra tekist, þá
hefðu mörg börn orðið af
ferðinni vegna fjárskorts og
margir af foreldrum barn-
anna, sem farið gætu, orðið
að leggja hart að sér með
fjárútlát vegna utanfarar
barnanna. Átti hvert barn að
greiða 150 krónur í farar-
kostnað.
Hefir Alþýðublaðið átt viðtal
Frh. á 4. síðu.
LONDON í gærkveldT. FÚ.
OSKVABLAÐIÐ „Pravda“
flyíur í dag ritstjörnar-
grein, þar sem mikil áherzla er
lögð á það, að Finnland, Eist-
land og Lettland fallist á að
þyggja tilboð Rússlands um á-
byrgð á Iandamærum þeirra og
sjálfstæði.
í gi-eininni segir, að fyrst
Tékkóslóvakía með miklu stærri
her heldur en þessi þrjú Eystra-
saltsríki gat ekki varðveitt sjálf-
stæði sitt, þá séu engar líkur til
að þau geti fremur séð sér
borgið.
I greininni er það einnig greini-
lega tekið fram, að það tákni á
engan hátt skerðingu á sjálfstæði
þessara ríkja, þó að þau þiggi
þessa ábyrgð, og það bæri þvert
á móti vott um, að þau gerðu
sér ekki grein fyrir því, hve al-
varlegt ástandið er nú, ef þau
h#Sn« tilboðin*.
Héðinn Valdimarsson hóf um-
ræðurnar og lýsti sig andvígan
bráðabirgðalögunum. Las hann
upp grein, sem kom í blaði
kommúnista í morgun og krafð-
ist að hún yrði samþykt. Voru
í henni mótmæli gegn bráða-
birgðalögunum.
Stefán Jóh. Stefánsson félags.
málaráðherra tók því næst til
máls. Hann rakti aðdragandann
að bráðabirgðalögunum, lýsti
nauðsyn þeirra, sem m. a. skap-
aði byggingarfélögum alþýðu
betri möguleika til áhrifa á rík-
isvaldið og betri aðstöðu til
lánsútvegana, enda væri það
aðalatriði, að hægt væri að
byggja á hverju ári, en ekki,
eins og verið hefir undanfarið,
á þriggja ára fresti. Þá gat
hann þess, að það hefði undan-
farið verið stefna alþingis að
Bonnet, utanríkismálaráðherra
Frakklands, skýr'ði frá því á
fundi í dag í franska ráðuneyt-
inu, að erindi Mr. Wiiliam Strang
til Moskva Hefði verið ákveðið
með samkomulagi milli stjórna
Bretlands og Frakklands, og
hefðu rækilegar viðræður farið
fram um þetta ,áður en hann fór
af stað.
Hann kvaðst enn fremur geta
skýrt ráðuneytinu frá því, að
Mr. Strang hefði meðferðis nýtt
uppkast að samningi milli Bret-
lands, Frakklands Qg Sovét-Rúss-
lands.
Dýraverndunarfélag fslands
heldur fund í kvöld kl. 81/2 í
húsi K. F. U. M. við Amtmanns-
stíg.
Súðin
var á Siglufirði í g»r.
auka áhrif sín og aðhald í þeim
stofnunum, sem að meira eða
minna leyti nytu styrks og að-
stoðar hins opinbera. Væri þetta
og til hagsbóta fyrir viðkom-
andi stofnanir.
St. J. St., H. V. og nokkrir
aðrir félagsmenn ræddu nokkra
stund um þessi mál.
Að þessum umræðum loknum
bar H. V. upp til samþyktar
greinina í blaði kommúnista, og
var hún samþykt. Mun slík sam-
þykt sem þessi vera algert eins-
dæmi í sögu samvinnufélaga hér
á landi, en aftur á móti eru þær
þekt fyrirbæri í ýmsum þeim
félögum, sem Héðinn Valdi-
marsson hefir haft ráð á — og
daglegt brauð í Dagsbrún. Slík
samþykt sem þessi hefir ekki
minstu áhrif á Alþýðuflokks-
menn eða stefnu félagsmálaráð.
herra í þessum málum, eins og
hann lýsti yfir á fundinum.
Samþyktin er til skammar fyr-
ir Byggingarfélag alþýðu — og
þó sérstaklega þann mann, sem
knúði hana fram í skjóli til-
hæfulausra ósanninda og blekk-
inga, sem hann og leiguþý hans
höfðu fylt fólkið með áður en
það kom á fundinn.
Að þessu loknu lagði Héðinn
Valdimarsson fram breytingar-
tillögur stjórnarinnar við fé-
lagssamþyktirnar. Samkvæmt
þeim breytir^gartillögum var
lagt til, að samþyktunum yrði
breytt í samræmi við bráða-
birgðalögin, en sett fram ýms
skilyrði! Það nær auðvitað ekki
nokkurri átt að ríkisvaldið líti
við nokkurn skilyrðum fyrir
því að lögum sé hlýtt, enda
dettur engum í hug að setja slík
skilyrði nema ofbeldismönnum
og fautum.
Skilyrðin voru þau meðal
annars:
1. að félagið yrði að lögunum
breyttum viðurkent og fengi
lán.
Er slíkt skilyrði hlægilegur
barnaskapur, þar sem fyrir
liggur bréf frá stjórn bygging-
arsjóðs til félagsins þess efnis,
að því standi til boða nú þegar
650 þús. kr. að láni, ef það
breyti lögum sínum samkvæmt
bráðabirgðalögunum.
2. að hin gamla stjórn og for-
maður hennar í félaginu skuli
Prh. i 4. síðu.
lússar vilja neyða Fims-
land ð| Eystrasaltsrikin tll
að pMa rðssneska vernd.
---------------»
Bretar og Frakkar hafa nú lagt nýtt
sammngsuppkast fyrir sovétstjórnina.
-----—»---
wmmm,
lltfeii
i:
11111
r
Brezka flugvélamóðurskipið „Eagíe“ úti fyrir Shanghai í Kína.
Japanir láta tll skarar skríða
gep Bretum og Frokkumí Kína
-----».—.
Alþjóðahverfinu i Tientsin lokað i morgui.
LONDON í morgun. FÚ. ♦
HERSTJÓRN Japana í Tientsin boðaði í gær að forrétt-
indasvæðum Frakka og Breta þar í borginni yrði lok-
að kl. 6 í morgun, og myndi hinni svonefndu alþjóðabrú
verða lokað frá kl. 6 að morgni til miðnættis, en vegum
öllum frá kl. 6 að morgni til ki. 10 að kvöldi. Fótgöngu-
menn og hjólreiðamenn, sem óskuðu að fara inn í alþjóða-
hverfið eða út úr því, yrðu að sætta sig við að gerð yrði
leit á þeim, og skip, sem vildu leggja að, yrðu einnig að
undirgangast það, að japanskir herforingjar rannsökuðu
þau.
Þessar ráðstafanir komu til framkvæmda í morgun. Áður
en eftirlit Japana hófst í morgun, var allmargt kvenna og harna
flutt úr forréttindasvæðunum. Matvælaskortur er þó ekki tal-
inn þar yfirvofandi. þar sem unnið hefir verið að því, að undan-
förnu að birgja þau upp að matvælum og öðrum nauðsynjum.
Þessar ráðstafanir hafa verið
gerðar vegna þess, að brezk yf-
irvöld hafa neitað að framselja
Japönum fjóra Kínverja, sem
japönsk yfirvöld telja að séu
sekir um undirróður gegn Japan
og hermdarverk, en brezk yfir-
völd halda því fram, að Japanir
verði að leggja fram einhverjar
sannanir fyrir sök þessara
manna áður en þeir geta orðið
framseldir.
Tilpnpr Japana er að
bejrsia Breta i Kina.
Yfii’völd Japana hafa þó lýst
því yfir, að þessi ágreiningur sé
víðtækari en sem varðar fram-
sal hinna fjögra Kínverja og að
þessari stefnu muni verða hald-
ið áfram þangað til Bretland hafi
breytt um afstöðu sína gegn
Japan.
Síðdegis í gær kom fregn
um það, að japönsk yfirvöld
í Tientsin hafi handtekið brezk-
an liðsforingja og saki hann um
það, að hafa tekið ljósmyndir
af svæðum, þar sem slíkt er
bannað.
Það er talið. að brezka stiórnin
hafi lagt til, að þriggja manna
nefnd verði skipuð til þess að
ræða ágreiningsatriði Breta og
Japana. Stungu Bretar upp á, að
nefndin væri þannig skipuð, að í
henni ættu sœti #inn brezkur full-
trúi og einn japanskur, en hinn
þriðji væri frá hlutlausu ríki.
Japanir hafa neitað að fallast
á þessa uppástungu sökum þess,
að undirbúningi einangrunar for-
réttindasvæðanna sé nú lokið, og
engu verði breytt með svo stutt-
Um fyrirvara.
Atburðir þessir vekja mikla at-
hygli í Bandaríkjunum, og Cor-
dell Hull uíanríkismálaráðherra
pg aðrir starfsmenn utanríkis-
málaráðuneytisins fylgjast ná-
kvæmlega með öllu ,sem gerist í
Tientsin.
Ræðismanni Bandaríkjanna í
Tientsin hefir verið tilkynt um
ráðstafanir Japana með tilmæl-
um um, að amerískir kaupsýslu-
menn, sem þarna eiga viðskifti,
íái fullar upplýsingar um, hversu
þar sé nú ástatt .
Etnverjarair sinppu eftir
að bafa verið pindír tl
að jðta.
Þessi mál komu til umræðu í
brezka þinginu í dag. Mr. Butler
aðstoðarutanríkismálaráðherra
skýrði neðri málstofu þingsins
frá því, að brezka stjórnin áliti
ástandið í Tientsin mjög alvar-
legt, en að um þetta væri verið
að semja, og að hann vonaði enn
að viðunandi lausn fengist án
frekari ráðstafana.
Mr. Butler, aðstoðarutanrík-
Stokkhólmur byygir
tvð neðanlai ðar byrgi
yegi loftárásnm.
KHÖFN x gærkveldi. FÚ.
ÆJARSTJÓRN Stokkhólms-
borgar hefir ákveðið að
byggja I miðjum Stokkhólmi tvö
skot- og sprengjuheld neðanjarð-
arbyrgi fyrir almeimtng.
Er áætlað, að þau kosti hálfa
aðra milljón króna.
400 sœnsklr R. F. II. M.
meðlimir heimsœkja
ísland í snmar.
MEÐ sænska farþegaskip-
inu „Drottningholm“
koma hingað þ. 4. ágúst um
400 meðlimir K.F.U.M. í Sví-
Svíþjóð.
Með í förinni er 70 manna
karlakór og fiðlusnillingurinn
Sven Karpe, sem nú er talinn
vera einn af efnilegustu fiðlu-
leikurum Svía.
Dvöl Svíanna verður örstutt,
aðeins einn dagur; en þó munu
þeir ferðast eitthvað um nágrenni
Reykjavíkur og fara til Gulifoss
og Geysis.
ismálaráðherra skýrði það einn-
ig fyrir þinginu, hversvegna
hinir fjórir Kínverjar hefðu
ekki verið framseldir Japönum.
Hann sagði, að þessir fjórir
menn hefðu sagt brezkum yfir-
völdum, að þeir hefðu gert
játningar sínar um afbrot gegn
Japönum undir yfirheyrslu, —
sem fólgin var í grimmilegum
pintingum, og Mr. Butler sagð
ist álíta, að úr því þessum
mönnum hefði tekist að sleppa,
þá væru brezk yfirvöld ekki sið-
íerðilega skyldug til þess að
framselja þá, ef til vill til nýrra
pintinga.