Alþýðublaðið - 15.06.1939, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 15.06.1939, Blaðsíða 1
17. júni ALÞÝÐUBLAÐIÐ kemur út árdegis laugardaginn 17. júní. SUTSTJéBl: F. K. VALDKMARSSON ÚTGEFAMRl: AUÝBfWUMOECIHSðSf FIMTUDAG 15. JÚNÍ 1939 134. TÖLUBLAÐ Auglýsingar sem koma eiga í blaðinu 17. júní þurfa að koma til afgreiðslunnar fyrir kl. 7 annað kvöld, föstudag. Alþýðan í Reykjavík bfiður ef tir byggingu iiinna ný|n bústaða. ■ ■ ■ ■■ ■ ♦--— Pað er ekki hœgt að bfiða lengur eftir því að framkvæmdir hefjist. » EINS og að líkindum lætur, birtir blað kommúnista í dag tómar blekkingar og rangfærslur um afstöðu Byggingarfélags alþýðu til bráðabirgðalaganna. Eftir fund íélagsins í fyrrakvöld standa málin þannig, að félagið hefir breytt samþykktum sínum að nokkru leyti til samræmis við bráðabirgðalögin, en látið fylgja því skilyrði, sem að sjálf- sögðu ekki kemur til mála að hafi gildi. Þá er stjórnarkosning su, sem Héðinn Valdimarsson lét fram fara í félaginu, hrein og bein markleysa. Það mun reyna á það næstu daga, hvort sú klíka innan fé- lagsins. sem Héðinn Valdimars- son hindrar það með ofbeldi að félagið fái þau réttindi, sem það þarf að hafa til þess að vera löglegt og geta byggt verkamannabústaði. Allar líkur benda til þess, að Héðinn Valdimarsson láti skap sitt og hégómagirnd ráða meira hér um en hagsmuni Bygging- arfélags alþýðu. En hvað sem hann gerir, mun honum ekki takast að hindra það, að hafist verði handa um byggingu verkamannabústaða í Reykjavík á þessu ári. Engin lögmæt stjórn er nú í Byggingarfélagi alþýðu, nema hin stjórnskipaði formaður þess, sem Héðinn Valdimarsson neit- aði á fundinum í fyrrakvöld um að taka við starfi sínu. Það væri illt, ef Byggingar- félag alþýðu hætti að geta bygt Prh. á 4. slðu. ðafmagn kækkar frá áflúst-aflestri Bæjarstjórnar- FUNDUR verður haldinn í dag kl. 5 í Kaup- þingssalnum, Aðalmálið á dagskrá fundarins eru tillögur um um hækkun rafmagns- gjalda í bænum um allt að 10%. Er þessi hækkun talin nauðsynleg vegna hækk- andi afborgana og vaxta af láninu til Sogsvirkjun- ariunar og annars erlends láns, sem Rafmangsveitan hefir. Talið er víst, að bæj- arstjórn Reykjavíkur sam- þykki þessa hækkun — og að hún komi til fram- kvæmda við aflestur I ág- ústmánuði. Um leið verða samrýmdir taxtar og hækka þeir ekki allir jafn- mikið. Sklpstjórar úr Reykjavik eg Hafnarfirði í reynsln- för neð Hýja botnvörpu. • ■ ' '■».. Venus trá HafnarHrði leggnr át f kvðld kl. 7. -...... ■» ......... FLESTIR skipstjórar úr Reykjavík og Hafnarfirði reyna nýja botnvörpu í nótt á togaranum Venusi, sem legg- ur út frá Hafnarfirði um kl. 7 í kvöld. Þessi nýja botn- varpa e>: franskt patent á vegum V. D. Ldt. í London, en sérfræðingur firmans Mr. Hymus Jones kom hingað með hina nýju botnvörpu með Lyru síðast. Alþýðublaðið hefir áður skýrt frá þessari nýju botnvörpu, en hún er hingað komin að til- hlutun Fiskimálanefndar og Félags íslenzkra botnvörpu- skipaeigenda. Varpan hefir verið reynd og notuð á frönskum og enskum togurum síðasta ár og þykir hafa gefist mjög vel. Ýmsir hafa haldið því fram, að botnvarpa sú, sem hér hefir verið notuð, sé ekki sem heppi- legust og að af því stafi meðal annars hinn litli afli tog- aranna. Má vera, að með hinni nýju vörpu batni tæki hinna ís- lenzku togara til fiskveiða, sem geri aflann drýgri og meiri. — Með Mr. Jones er enskur togara- skipstjóri, sem verður með í reynsluför Venusar í kvöld og er þess að vænta, að förin takist hið bezta. Hvernig sem tilraunin tekst, eiga þær stofnanir, sem hafa gengist fyrir henni þakkir skyldar fyrir að hafa hafið þessa tilraun. Því að fyrsta skil- B®h. i 4. sNta. Brezkir hermenn á verði í brynvörðum bifreiðum KORT AF KÍNA OG JAPAN. Ofarlega á myndinni til vinstri sést milljónaborgin Tientsin, sem nú er svo mikið umtöluð. Tékkar fiýja Dnnvðrpnm yf- ir landamæri Péllands. ---——♦----- FlugmennirHÍr flýja í flugvélum sínum til að þurfa ekki að afhenda þær Þjöðverjum --- ». , — LONDON í morgun. FÚ. -------- LONDON í morgun. FÚ. JAPÖNSK yfirvöld í Tien- tsin hafa lýst fljótið undan borginni í hernaðará- stand, og gera leit í öllum skipum, sem um það fara. Hefir því ræðismaður Breta >ar í borginni ráðlagt brezk- um skipum að halda sig ut- an þessa svæðis. Japanir hafa dregið að sér mikið lið og eru allir her- mannaskálar þeirra í nánd við alþjóðahverfið fullir af hermönnum. Brezkir hermenn eru á verði í alþjóðahverfinu og fara um í brynvörðum bif- reiðum. Fjöldi fólks bíður við alþjóðahverfið fullir af Einn Breti látinn ians, annar handtekinn. Law, brezki yfirforinginn, sem Japanir handtóku í gær fyrir ó- leyfilega ljósmyndatöku, hefir nú verið látinn laus, en annar brezk- ur maður, sem tekur fréttamynd- ir, hefir verið handtekinn. Hann heitir Eric Mail og var á amer- íska fallbyssubátnum „Panay", sem Japanir söktu. UtanríkismálaráÖherra Kína jsagði í gær í ræðu, að hin raun- vemlega stefna Japana í Kína væri sú að bola öðmm erlendum ríkjum frá viðskiftum og öllum áhrifum í Kína. Cordell Hull, utanríkismálaráð- herra Bandaríkjanna, hefir lýst yfir því, að hann muni gera alt, sém auðið er, til þess að liðka málið, og sendiherra Bandaríkj- anna í Tokio stendur í stöðugu sambandi við hann og Roosevelt forseta vegna þessa máls. Kéttarhðld ðt at morð- inn i Sinslair. Réttarhöld em hafin út af frá- falli biezka verkstjórans Sincla- irs ,sem sætti hroðalegri meðferð af japönskum sjöliðum; en hann lézt í sjúkrahúsi í Shanghai, án þess að brezkir sendisveitarstarfs menn fengju leyfi til að tala við hann. Japanir réttlættu meðferð- ina með því, að hann hefði skotið á sjóliðana. Eitt vitni hefir borið, að Sin- clair hafi skotið í jörðina fyrir framan fætur sér, sjóliðunum til viðvömnar. Reykjaborg ð salt- fiskveiðar. Togarinn Reykjaborg er að búa sig á saltfiskveiðar og fer að öll- Um líkindum í kvöld. Skipið ætl- ar að vinna úr karfanUm um borð, en það hefir eins og kunn- ugt er fiskimjölsvélar. IFREGNUM frá Varsjá í gærkveldi er skýrt frá því, að 100 flóttamenn frá Bæheimi og Mæri hafi komið til Póllands í gær, og því er bætt við, að tala flóttamannanna þar fari vaxandi með hverjum degi. Enn fremur er skýrt frá því, að þýzk yfirvöld hafi látið alla tékkneska lögreglumenn hætta gæzlustörfum við landamærin vegna þess. að þeir hafi verið flóttamönnunum hjálplegir við að komast yfir landamærin. Flóttamenn frá Slóvakíu koma einnig í stórum hópum til Póllands. Flugmennirnir þrír frá Slóva- kíu, sem lentu í Póllandi fyrir nokkrum dögum, segjast hafa flogið þangað af því, að þeir vildu ekki afhenda flugvélar sínar Þjóðverjum. Tuttugu slóvakiskir flugmenn komu til Marseille í Frakklandi í gær. Þeim var veitt viðtaka af yfirmönnum frönsku útlendinga- herdeildarinnar, og líklegt er, að þessir flugmenn verði innritaðir í einhverja flugsveit franska flug- hersins. Stefán Guðmundsson óperusöngvari syngur í Gamla Bíó í kvöld kl. 7,15. Seldust allir aðgöngumiðar upp I gær eins og að fyrri söngskemtun hans. Slys á mótorhjóli í gærkveldi. T GÆRKVELDI veldi það slys A til á Holtaveginum, að mó- torhjól með 3 unglingum á datt í tvent á fullri ferð. Slösuðust allir, og liggur ökumaðurinn enn meðvitundarlaus í Lantísspít- alanum. Hann hefir að öllum líkindum fengið heilahristing. Um þetta leyti árs taka mótor- hjólaeigendurnir venjulega út hjólin og fara að þjóta um göt- urnar. Er akstur þeirra oft mjög ógætilegur, og er ekki ótítt að siá tvo eða fleiri í kappakstri í m'iðjum bænum. Er slíkur akstur vitanlega mjög hættulegur bæði þeim sem aka og öðrum sem um göturnar fara. Eru ökumennirnir allflestir unglingar og lítt vanir öfium akstri, og ber því lögregl- unni að vera vel á verði um að þeir aki ekki ógætilega. Kappleikur verður í kvöld háður á milli meistaraliða K .R. og Víkings. Buchloh, annar frægasti mark- maður Þjóðverja, verður mark- maður Víkings á kappleiknum. Mun eflaust mörgum leika for- vitni á að sjá þennan fræga markmann í kvöld. f Síldarsala til Þýzka lands og ámerlfeu Verðið ei heldur hærra eo i (yrra. ENDIMENN Síldarút- vegsnefndar, alþingis- mennirnir Erlendur Þor- steinsson og Jóhann Þ. Jósefsson hafa nýlega und- irritað samninga í Þýzka- landi um sölu á 37.400 tunnum matjessíldar og 500 tunnum Faxasíldar. Verðið er svipað og í fyrra á síld til Þýzkalands og þó lítið eitt hærra. Þá er Vilhjálmur Þór banka- stjóri að ganga frá samn- ingum í New York á sölu á 22.500 tunnum matjes- síldar til Ameríku, en það er sama síldarmagn og selt var til Ameríku í fyrra, og auk þess á 7500 tunnur af Faxasíld. Verðið er svipað og í fyrra. Yfirleitt gengur nú vel um síldarsölu fyrfcp- fram. Engin síldveiði er fyrir norðan enn sem kom ið er. ðýzbi ræðismaðntlitR I Liverpool oppvis að njðSBBffl. Brezka stjórnln heimtar LONDON í gærkveldí. FÚ. 12 REZKA stjórnin hefir farið *■“* fram á það við þý*ku stjórnina, að hún kalli heim ræðismann sinn í Liverpooi. Hefir maður að nafni Kelly ver- ið sekur fundinn um að selja Þjóðverjum hernaðarleg leynd- armál, og hafði hann komist í kynni við þá, er kaupin gerðu, fyrir milligöngu ræðismannsins. Chamberlain sag&i í neðri mál- stofunni í dag, að stjómin hefði komist að þeirri niðurstöðu, að ræðismaöurinn hefði verið við málið riðinn, og því óskað eflir, að hann væri kvaddur heim. --------- 5 5000 fflaflBs hafa sótt sjðmeflflska- sýniflflnna. Vaxandf aðsðkn. PIMM ÞÚSUNDIR manna hafa nú sótt sjómenskusýninguna í Markaðsskálanum og er aðsókn- in að sýningunni stöðugt vax- andi. Nú fer að verða hver síð- astur að sjá þessa stórmerkilegu sýningu, því að innan fárra daga verður henni lokað. Allir, sem hafa séð þessa sýn- ingu, hafa lokið á hana miklu lofsorði, — enda er þetta ein- hver glæsilegasta og fróðlegasta sýning, sem hér hefir verið haldin.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.