Alþýðublaðið - 21.06.1939, Page 1

Alþýðublaðið - 21.06.1939, Page 1
MTSTJÖM: F. E. YMJÍEMAESSON útgsfanðk: XX. ÁEQANGÍJR MIÐVIKUDAGINN 21. júní 1939. 139. TÖLUBLAÐ Starfsfélkl itvarps ios sagt npp! RÁÐUNEYTI kenslu- málaráðherra, en und- ir það heyrir Ríkisútvarp- ið, hefir ritað öllu starfs- fólki Ríkisútvarpsins og sagt því upp starfi þess frá áramótum. Þá hefir at- vinnumálaráðuneytið sagt upp öllu starfsfólki við at- vinnudeild liáskólans. Alþýðublaðið hafði í dag tal af forsætisráðherra og spurði hann hvaða ástæður lægju til þessara upp- sagna. Forsætisráðherra sagði, að fjárveitinganefnd al- þingis og alþingi hefðu óskað eftir að hafa ó- bundnar hendur um breytingar á starfi við Rík- isútvarpið og ýmsar aðrar stofnanir, og uppsagnir starfsfólksins stöfuðu ein- göngu af þessum ástæðum. iefii Jéfi. StefáHS- soa á ferðaiapi norð- anlands. lír i aSrsQB stððHM. TEFÁN JÓH. STEFÁNSSON félagsmáiaráðherra er nú á ferðaiagi um Norðurland og heldur flokksfundi á ýmsum stöðum. 1 fyrrakvöld hélt hann fund með trúnaðarmönnum Al- þýðuflokksins á Blönduósi og í gærkveldi á Sauðárkróki. Mun hann halda siíka fundi á rnörg- um stöðum, en á sunnuda,g mætir hann á kynningarmóti Alþýðu- flokksféiaganna við Eyjafjörð og á Húsavík, sem haidið verður í Sigríðarstaðaskógi í Ljósavatns- skarði í Suður-Þingeyjarsýslu. — Aiþýðuflokksfélögin efndu í fyrsta s'inni til slíks móts í fyrra sumar, og sótti það mikill fjöldi manna. Er búist við góðri þátt- töltu, og er mikill undirbúningur meðai félagsmanna. Nýtt íslenzkt farþegaskip fyrir 4,5 imlljónir króna. miHi Iiisis mýja iarþegasidps Eim- sMpafélagsiiis var atráðin i gær< ir- valsilðið í kvðid. Orvalslið Reykvíkinga keppir í kvöld kl. 8V2 við Bretana. Verð- ur úrvalsliðið skipað eins og skýrt var frá í blaðinu í gær, nema hvað Guðmundur Jónsson úr K. R. keppir á kanti í stað Jóns Sigurðssonar úr Fram, sem er lasinn. Þrátt fyrir það, þó að Jón hafi verið einn af snjöllustu útframherjum okkar, er talið að liðið styrkist allmikið við þessa breytingu. Liði Bretanna verður nokkuð breytt í þessum leik. Hefir bak- varðalínan verið styrkt og sami markmaður keppir ekki og kepti á móti K. R. — Má úrvalsliðið sýna góðan leik, ef það á að standa sig betur en K. R. fj- ÍÐ NÝJA SKIP Eim- skipafélags íslands verð- ur hraðskreiðasta og full- komnasta farþegaskip í för- um milli íslands oog annara landa. Það verður smíðað í skipasmíðastöð . Burmeister & Wain í Kaupmannahöfn, mun kosta um 4,5 milljónir ísl. króna og á að vera til- húið í mars-apríl 1941. Skipið á að ganga 16—17 sjómílur á vöku, vera 3 sól- arhrixiga beina leið milli Kaupm.hafnar og Reykjavík- ur, 11 tíma milli Reykjavík- ur og ísafjarðar. Skipið á að íaka 224 farþega á þremur farþegarúmum. (Sjá viðtal við forstjóra Ferðaskrifstofunnar á 3. síðu). Frá stjórn Eimskipafélags ís- lands hefir Alþýðublaðinu bor izt eftirfarandi: í nóvember s.l. leitaði stjórn Eimskipafélags íslands tilboða erlendra skipasmíðastöðva um smíði farþega- og farmskips handa félaginu, sem skyldi vera miklu stærra og hraðskreiðara en þau skip, sem nú eru í för- um milli íslands og útlanda. Niðurstaða útboðsins var sú, að af 25 skipasmíðastöðvum í 8 löndum, sem leitað var tilboða hjá, fengust 8 tilboð frá 3 lönd- um (Stóra-Bretlandi, Hollandi og Danmörku). Lang hagkvæm- asta tilboðið var frá skipasmíða- stöð A/S. Burmeister & Wain og var það £: 168—400—0—0. Eftir að tilboðin voru komin, fór framkvæmdastjóri félagsins til útlanda í byrjun febrúar s.l. til nánari samningaumleitana og lánsútvegana. Dvaldi hann í þeim erindum nokkurn tíma í Englandi, Hollandi og Dan- mörku. Varð niðurstaðan af störfum hans í ferðinni, að hag- kvæmast væri að semja við A/S. Burmeister & Wain um smíði skipsins, bæði að því, er snerti verð og borgunarskil- mála. Eftir heimkomu framkvæmda- stjóra snéri félagsstjórnin sér á ný til atvinnumálaráðuneytis- ins um málið og hefir ráðuneyt- ið með bréfi, dags. í gær, heitið félaginu því, að styðja að því við Alþingi, að félagið fái styrk til reksturs skipsins, annað- hvort sem fjárstyrk á fjárlög- um sem svari rúmlega ríkis- sjóðsgjöldum af skipinu eða sem gjaldfrelsi fyrir skipið um greiðslur gjalda í ríkisstjóð. Tel- ur félagsstjórnin að ekki muni vera teljandi meiri reksturshalli á skipinu, en nemur áætluðum gjöldum til ríkissjóðs. — Auk þess hefir hafnarreglugjörð Reykjavíkur verið samkvæmt tilmælum félags vors breytt á þá leið, að hafnargjöld skipsins í Reykjavík lækka um hér um bil 20 þús. kr. á ári frá því, sem áætlað var. Greiðsluskilmálar A/S. Bur- meister & Wain eru þannig, að greiða skal 30% af skipsverðinu meðan á smíði stendur. Hefir framkvæmdastjóri í utanför sinni útvegað félaginu afborg- analaust reikningslán hjá Ham- brosbanka í London með 5% Teikning af hinu nýja skipi Eimskipafélags íslands ársvöxtum, að upphæð £: 50.000—0—0, sem varið verður til greiðslu téðra 30% af skips- verðinu. Eftirstöðvar kaupverðs- ins, 70%, skal greiða A/S. Bur- meister & Wain á tíu árum talið frá afhendingu skipsins, sem gjört er ráð fyrir að verði í marz-apríl 1941. Skal fyrstu 4 árin afborga árlega 5% af skipsverðinu, 5. og 6. árið 6%, 7. árið 8% og síðustu 3 árin 10%. Ársvextir skulu vera 5%. Á þeim grundvelli, sem nú hef- ir verið lýst, hefir félagsstjórn- in samþykkt að taka tilboði A/S Burmeister & Wain um smíði skipsins og falið framkvæmda- stjóra félagsins að undirrita hér að lútandi samning. Lýsiiifl ð skiplai. Stærð skipsins á að verða: Lengd 342 fet á þilfari, en lengd í dýpstu sjólínu (b. p. p.) 320 fet, breidd 46 V2 fet, dýpt 27 fet og djúprista þess 16 fet og 10 þuml. Til sam- anburðar má geta þess, að „Gull- foss“ og ,,Goðafoss“ eru 230 fet á lengd, — en „Brúarfoss" og „Dettifoss“ 237 fet. Skipið verður mótorskip með einni vél, 12 cylindra, með 5800 hestöflum. Hraði skipsíns í reynsluför með fullfermi af stykkjavöru (% dw) á að verða 1714 míla á vöku. Með þessari stærð skipsins og hraða í Frh. á 4. síðu. Tvö brezk skip á leiAimt til Tientsin með matvæli. ------------ Japanir færa sig nú upp á skaftið í Suð~ ur-Kína og setja her á land hjá Swatow. ------»..... LONDON í morgun. FÚ. I tekið ey eina milli Koo-lang-su 'T' VÖ BREZK GUFUSKIP fóru frá Shanghai í gærkv. með matvæli handa brezka og franska forrétt- indahverfinu í Tientsin. í morgun lögðu 100 kon- ur og börn af stað frá forrétt- indahverfinu brezka áleiðis til sumardvalarstaðar þar í nánd, án þess að þau yrðu fyrir nokkrum óþægindum af Japönum. Enda þótt brezkt skip gæti í gær sett á land nokkuð af mat- vælum í hinu einangraða hverfi, eru matvælavandræðin enn all- alvarleg, og Japanir hafa nú til dæmis stöðvað að fullu aðflutn- inga mjólkur. Eitt af aðalblöð- um Japana segir, að Japanir hafi hafnað þeirri málaleitun Breta, að þeir linuðu nokkuð á samgöngubanninu við forrétt- indasvæðið, og hafi Arita utan- ríkismálaráðherra í gær tilkynt þetta sendiherra Breta í Tokio, Sir Robert Craigie. í Suður-Kína tóku Japanir í dag að færa sig upp á skaftið, með því að þeir settu hersveitir á land á þrem stöðum í nánd við Swatow, hér um hil 270 km. norðaustur af Hongkong, og eins er frá því skýrt, að þeir hafi Mr. Strang gerir úrslitatilraun til ad komast að samkomulagi mm liandalagvið sovétstjórnina ---—--— Bretar óttast að Hitler hefjist handa í Danzig, ef frekari dráttur verður á samningunum. Frá fréttaritara Alþýðublaðsins. LONDON í morgun. iyr R. WILLIAM STRANG, sendimaður Chamberlains til Moskva, gerir nú ýtrustu tilraunir til þess að leiða samkomulagsumleitanir Breta og Rússa til lykta með form- legu varnarbandalagi hið allra fyrsta. Líta stjórnmálamenn í London svo á, að alvarleg hætta sé á því, að Hitler hefjist handa um innlimun Danzig í Þýzkaland nú þegar, ef ekki tekst að ná samkomulagi við Rússa, og sé því engum tíma að spilla. í gærkveldi voru brezku gegn árás af hálfu Þýzkalands, voru stjórnmáiamennirnir óvenju- lega vongóðir um það, að þessar síðustu samkomulagstilraunir Mr. Strang myndu bera árang- ur, og væntu þess jafnvel, að búið yrði að ganga frá samn- ingum fyrir lok þessarar viku. Ennþá hefir þó ekkert feng- ist látið uppi um það opinber- lega, hvort tekist hafi að jafna þann ágreining, sem verið hefir milli Breta og Rússa um það, hvaða ákvæði bandalagssátt- máli milli þeirra skyldi hafa inni að halda um vernd fyrir Eystrasaltsríkin og Finnland en eins og kunnugt er hafa þessi lönd öll neitað því að þiggja nokkra slíka vernd og talið hana ósamrýmanlega hlutleysi sínu, en Rússar hinsvegar látið í veðri vaka, að án þess að varn arbandalagið næði einnig til, þeirra, gætu þeir enga samninga gert við Breta. Mr. Strang átti í gær lang ar viðræður bæði við sendi- herra Breta og sendiherra Frakka í Moskva, og er talið, að þeir muni hafa gengið frá úr. slitatillögum, sem lagðar verði fyrir Molotov, utanríkismála- ráðherra sovétstjórnarinnar dag eða á morgun. Mac Bride (Daily Herald) Engar umræðnr í Moskva um Ausíur-Asiumálin. í sambandi við fregnir, sem birzt háfa í London um það, að viðræðurnar um öryggissáttmála milli Bretlands, Frakklands og Sovét-Rússlands séu nú einnig farnar að snúast um Austur- Asíumálin, er lýst yfir því á hæstu stöðum i London í dag, að þessar viðræður og samninga- umleitanir snúist eingöngu um málefni Evrópu, og að ekkert þeirra þriggja ríkja, er hlut eiga að máli, hafi einu sinni stungið upp á því, að samningaumleitanir eða væntanlegir samningar yrðu einnig látnir taka til Austur-Asíu- inálanna. FO. Lúðrasveit Reykjavíkur leikur í kvöld kl. 9 í Skemti- garðinum við Lækjargötu. og meginlandsins. Sum ítölsku blöðin í gær gera gys að brezku stjórninni fyrir skort á hugrekki til að grípa til gagnráðstafana í Tientsinmál- inu. „Giornale d Italia“ tekur 3Ó aðra afstöðu, og í gær flutti aetta blað grein með fyrirsögn- inni: „London breytir skynsam. lega og sáttfúslega.“ Héðinn neit- ar enn. Guðmundur í. Guð- mundsson hæstaréttar- málaflutningsmaður skrif- aði fyrir nokkru hinni svo- kölluðu stjórn Byggingar- félags alþýðu bréf, þar sem hann fór fram á það að honum væru afhent skjöl og skilríki félagsins svo að hann gæti tekið við formannstörfum í félaginu og látið fara fram löglega stjórnarkosningu. í gær svaraði hin gamla stjórn félagsins bréfi Guðmundar og neitaði að afhenda um- beðin plögg. Neitun Héðins og félaga hans er bygð á því, að ríkisstjórnin hafi ekki staðfest breytingarn- ar, sem samþyktar voru á lögum félagsins, og á nieð- an hafi hvorki félagið rétt til lánveitingarinnar, né Guðmundur rétt til for- mensku í félaginu, sérstak- lega er því yfirlýst í bréf- inu, að stjórnarkosning, sem Guðmundur léti fram fara, yrði talin marklysa af hálfu H. V. ^*###########^########^»^^^#^^^^#o TF-Örn hóf sfldar- lití PLUGVÉLIN TF.-ÖRN hefir verið leigð til sildarleitar í sumar fyrir Norðurlandi. Þeir aðilar, sem hafa leigt flugvélina, eru ríkisstjömin, síldarútvegs- nefnd og einkaverksmiðjutnar allar. Verður flugvélin fyrir norðan í tvo mánuði eða til 20 ágúst, og hefir aðalbækistöð sína á Akur- eyri og Ölafsfirði. Flýgur hún daglega, þegar veður leyfir, og flýgur um 3 klukkutíma á dag. Flaug hún fyrsta leitarflugið í gær, en fann enga síld. Öm Johnson flugmaður verður með flugvélina. Nýr hæstaréttarmálaflutnings- maður. Guðmundur I. Guðmundssor hefir nýlega lokið prófi, serr veitir honum réttindi til þess a? flytja og verja mál fyrir hæsta- rétti.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.