Alþýðublaðið - 21.06.1939, Blaðsíða 4
MIÐVIKUDAGINN 21. lúní 1939.
■ GAMLA Blð
María
Walewska.
Heimsfræg Metro Gold-
wyn-Mayer kvikmynd, er
gerist á árunum 18(?7—
1812 og segir frá ástum
pólsku greifafrúarinnnar
Maríu Walewesku og Napó-
leons keisara. Aðalhlut-
verkin leika tveir fræg-
ustu kvikmyndaleikarar
heimsins,
GRETA GARBO og
CHARLES BOYER.
NÝJA EIMSKIPAFÉLAGS-
SKIPÍÐ. (Frh. af 1. síðu.)
reynsluför er gengið út frá að með-
alsiglingahraði þess geti orðið rúm-
lega 16 mílur á vöku. Verður skip-
ið þá rúma 2 sólarhringa milli
Reykjavíkur og Leith, rúman 114
sólarhring milli Leith og Kaup-
mannahafnar, en beina leið milli
Reykjavíkur og Kupmannahafnar
rúmlega 3 sólarhringa. Ferð milli
Reykjavíkur og ísafjarðar mun
taka um 11 tíma, milli ísafjarðar
og Siglufjarðar um 8 tíma og milli
Siglufjarðar og Akureyrar rúml.
2% tíma.
Á 1. farrými verður pláss fyrir
114 farþega, á 2. farrými 62 og á
3 farrými 48, alls 224 farþega. Öll
farþegaherbergi verða við útveggi.
Útvarpshlustunartæki verða við öll
rúm á 1. farrými og firðtalsáhöld
í öllum eins manns herbergjum
farþega þar, en auk þess firðtals-
klefar á hverju þilfari, bæði á 1.
og 2. farrými.
Á efsta þilfari (A-þilfari) skips-
ins verður stjórnpallur með lokuðu
stýrishúsi. Þar verða hin fullkomn-
ustu tæki til skipstjórnar, svo sem
s j álfr itandi bergmálsdýptarmælir,
radio stefnumælir og gyro-áttaviti,
sem er óháður segulmagni og verð-
ur því eigi fyrir áhrifum af hinum
tíðu segulstraumshvörfum. í sam-
bandi við gyro-áttavitann verður
sjálfstýrisútbúnaður, sem ræður
því, að stýrt er þá stefnu, sem á-
kveðin er, án þess að mannshönd-
in komi til.
Aftan við stýrishúsið er skip-
stjórnarklefi, og er innangengt milli
hans og stýrishússins. Þar eru
einnig íbúðir skipstjóra, stýri-
manna og loftskeytamanna, svo
og loftskeytastöð með afgreiðslu-
herbergi og klefa handa farþegum
fyrir firðtöl. Á þessu þilfari er
skýli fyrir farþega og pláss fyrir
þá til göngu og leika.
Af sex björgunarbátum verða 3
með mótor.
Á næsta þilfari (B-þilfari, „Pro-
menadedekki") er allt framskipið
yfirbyggt. Fremst í húsi miðskipa
er reyksalur fyrsta farrýmis, og
nær hann út í borð báðum megin.
Þar eru sæti fyrir 60 manns. Á
afturvegg er opinn arinn. Fyrir aft-
an reyksalinn er bakborðsmeg-
in veitingastofa (,,bar“) með 12
sætum, en stjórnborðsmegin skrif-
stofa með 4 skrifborðum. Þá tekur
við stór forsalur. í honum er stigi
upp á A-þilfar og niður á næsta
þilfar fyrir neðan. Fyrir aftan for-
salinn eru við báða útveggi svefn-
herbergi og baðherbergi. Þar er
einnig sérstök íbúð með dagstofu,
svefnherbergi og baðherbergi. Aft-
ast í húsi þessu er samkvæmissal-
ur. Aftur á skipiiju er á þessu þil-
fari reyksalur fyrir 2. farrými, á-
samt opnu skýli fyrir farþega.
Á næsta þilfari (C-þilfari, Awn-
ing-þilfari) eru fremst í skipinu í-
búðir háseta í tveggja manna her-
bergjum, ásamt matstofu og bað-
herbergi fyrir þá. Einnig verða
þar herbergi fyrir þjóna. Næst tek-
ur við 3. farrými. Þar fyrir aftan
eru svefnherbergi fyrir 1. farrými.
Síðan er forsalur þessa þilfars á 1.
farrými. Þar er aðalskrifstofa fyrir
alla afgreiðslu, er snertir farþega.
Úr þeim forsal eru stigar bæði upp
á B-þilfar og niður á næsta þilfar.
Fyrir aftan forsalinn eru svefnher-
bergi fyrir farþega 2. farrýmis og
íbúðir vélamanna. Á næsta þilfari
(D-þilfari) er fremst lestarrúm. —
Miðskipa er borðsalur fyrir 1. far-
rými, sem nær yfir þvert skipið.
Geta þar verið 116 menn í sætum.
Allir farþegar á 1. farrými geta því
borðað samtímis. Fyrir aftan borð*
salinn er stjórnborðsmegin fram-
reiðsluherbergi, og bak við það
eldhús fyrir 1. farrými og íbúð
matreiðslumanna og þjóna og mat-
salur þeirra. Bakborðsmegin eru
herbergi bryta og þjónustufólks.
Þá eru tvö stór herbergi, sem ætluð
eru til þess að vera sjúkraherbergi,
og hjá þeim herbergi fyrir lækni.
Er svo fyrirskipað í alþjóðareglum
— að fari skip, sem flytur yfir 100
farþega, lengra en 200 sjómílur frá
landi, svo sem nauðsynlegt yrði í
Ámeríkuferðum, þá skuli vera slík-
ir spítalar ásamt lækni í skipinu.
En annars má nota þetta pláss fyrir
farþega. Fyrir aftan spítalann er í-
búð vélamanna og þjónustufólks,
matsalur yfirmanna og baðher-
bergi. Miðskipa er forsalur í borð-
sal 1. farrýmis og stigar þar upp á
C þilfar og niður á næsta þilfar.
Þar íyrir aftan tekur við vélarrúm
og síðan eldhús fyrir 2. farrými og
sérstök brauðgerð með rafmagns-
ofni. Aftast á þessu þilfari er
stjórnborðsmegin borðsalur fyrir 2.
farrými. Tekur hann um 60 manns
í sæti, eða alla farþega 2. farrým-
is samtímis. Báðir borðsalir og
eldhúsin eru þannig á sama þil-
fari. Bakborðsmgin eru svefnher-
bergi á 2. farrými og þar fyrir aft-
an baðherbergi og íbúð þjónustu-
fólks.
Á neðsta þilfari (E-þilfari) eru
miðskipa svefnherbergi fyrir 20
farþega á 1. farrými. Á sama þil-
fari er geymsla fyrir matvæli. á-
samt kæli- og frystirúmi fyrir þau.
í lestum skipsins verða frysti-
rúm að stærð samtals um 43000
teningsfet, þar sem koma má fyrir
hérumbil 750 smálestum af flökuð-
um fiski eða 26000 skrokkum af
dilkakjöti, Skipið verður ca. 33000
bruttó-smálestir að stærð.
Skipið verður mjög sterklega
byggt. Á það að fullnægja kröfum
„British LIoyd“ og að sumu leyti
jafnvel sterkara en svo. Sérstak-
lega verður það ís-styrkt að fram-
an, þannig að styrkleiki þess verð-
ur aukinn að mun frá stefni aftur
fyrir miðju fram yfir það, sem
venjulegt er.
Vorveríi Akranes-
báta.
FRÁ AKRANESI hefir Al-
þýðubla'ðinu verið ritað eft-
irfarandi:
Nokkrir Akranesbátar hafa
stundað reknetaveiðar í Jökul-
djúpi í vor. Veiði hefir verið
fremur góð. Síldin hefir verið
ísuð í togara og seld til Þýzka-
lands. Hafa sjómenn á bátum
þeim, er hófu reknetaveiðar strax
að aflokinni vetrarvertíð, þegar
fengið góðan afla.l gærdag var
veiði sérstaklega góð, alt upp í
130 tunnur á bát. Togarinn „Óli
Garða“ frá Hafnarfirði fór í gær
áleiðis til Þýzkalands, fullfermd-
ur síld; og togarinn „Venus“
byrjaði að lesta í gærkveldi. 10
herpinótaskip verða gerð út frá
Akranesi í sumar til síldveiða
fyrir Norðurlandi. Flest skipin
eru farin norður, en nokkur fara
næstu daga.
Mannskaði af ?61d-
nm eldinga í Dan-
mðrkn og Svfgjóð.
Fárviðri befir gelsað und-
anfarið nmðUNorðnrlðnd
KAUPM.HÖFN í gærkv. FÚ.
FVIÐRI hefir geisaö á Norð-
urlöndum undanfarið, svo
mikið, að annað eins hefir ekki
orðið í manna minnum. Fylgdu
því eldingar svo miklar, að menn
hafa farist af völdum þeirra,
bæði í Svíþjöð og Danmörku.
Á öllum Norðurlöndum hefir
eldingum slegið niður í hús, og
hafa margir brunar orðið af þeim
ósköpum.
Svo mikið fárviðri varð í Oslo,
að tré reif upp með rótum á Karl
Johans götu. Þakið fauk af land-
búnaðarmálaráðuneytinu og veru-
íegar aðrar skemdir urðu á hús-
um.
Kennarapingið.
TUÍ IKILL ÁHUGI er meðal
kennarastéttarinnar fyrir
þeim málum, sem ná eru rædd á
f ulltrúaþingi kennai asambands-
ins.
Aðalmál þingsins að þessu
sinni eru um mentun kennara,
og hafði i því máli Sigurður
Thorlacius framsöguræðu í gær,
og launamál kennarastéttarinnar.
Hafði Bjami M. Jónsson kennari
í Hafnarfirði framsögu þess máls.
Að loknum umræðunum var mál-
unum vísað til nefnda, en þær
munu að öllum líkindum skila á-
litum sínum á þingfundum á
föstudaginn.
Á morgun verður fulltrúum
þingsins boðið af bæjarstjórninni
til Sogsfossanna, og verður því
lítið um þingfundi þá, en ætlun-
in er að slíta þinginu á föstu-
daginn, því þann dag hefst Upp-
eldismálaþingið.
Forsetar þingsins eru: Gísli
Jðnasson yfirkennari Austurbæj-
arbarnaskólans, Svava Þorlelfs-
dóttir, skólastjóri á Akranesi, og
Sveinn Halldórsson, skólastjóri í
Bolungavík.
Stefán Guðmundsson
syngur í síðasta sinn i Gamla
Bíó kl. 7,15 í kvöld. Ámi Krist-
jánsson leikur undir eins og á
fyrri konsertunum.
Póstferðir
fimtud. 22. júlí. Frá Reykjavík:
Mo sf el ls sveitar-, K jalarness-,
Kjósar,- Ölfuss- og Flóapóstur,
Þingveiiir, Þrastalundur, Hafnar-
fjörður, Þykkvabæjarpóstur,
Akranes, Borgarnes, Norðanpóst-
ur, Dettifoss norður. — Til
Reykjavíkur: Kjalarness-, Kjósar-,
Reykjaness-, Öifuss- og Fióa-
póstur, Þingveliir, Laugarvatn,
Þrastaiundur, Hafnarfjörður,
Austanpóstur, Borgarnes, Akra-
nes, Norðanpóstur, Barðastrand-
arpóstur, Snæfellsnespóstur,
Stykkishólmspóstur.
f DAG
Næturlæknir er Alfred Gísla-
son, Brávallagötu 22, sími 3894.
Næturvörður er í Laugavegs-
og Ingólfsapóteki.
ÚTVARPIÐ:
19,45 Fréttir.
20.20 Hljómpl.: Sænsk sönglög-
20,30 Útvarpssagan.
21,00 Útvarpskórinn syngur.
21.20 Hljómplötur: Ensk lög
(Berners og Taylor).
22,00 Fréttaágrip.
Umsóknum
fyrir börn á VorboÖann sé skil-
að í dag kl. 3—5 í Þingholts-
stræti 18.
Eimsbip.
Gullfoss fór frá Leith í gær
áleiðis hingað, Goðafoss er í
Hamborg, Brúarfoss er á leið tii
Grimsby, Dettifoss fer vestur og
jnorður í kvöld kl. 10, Lagarfoss
er á leið til Kaupmannahafnar,
Selfoss er á leið til Antwerpen.
Drottningin
er á leið til Kaupmannahafnar;
væntanieg þangað á laugardags-
morgun.
Matreiðslukona
óskast á barnaheimilið Vorboð-
ann í Árnessýslu. Umsóknum
með kaupkröfu sé skiláð í skrif-
stofu Verkakvennafélagsins kl.
4—6 e. m. fyrir sunnudag.
íslenzku knattspyrnufélögin
hafa gefið danska Rnattspyrnu-
sambandinu stóra mynd af Geysi
að gjöf. FÚ.
Christmas Möller
fólksþingsmaður, sá er nýlega
sagði af sér formensku íhalds-
flokksins danska, hefir ákveðið
að eyða sumarfríi sínu á Færeyj-
Um og á íslandi, og leggur hann
af stað í næstu viku. (Sendi-
herrafrétt.)
Gamla Bíó:
Maria Waiewska
og Napoieon.
TMT YNDIN, sem Gamia Bíó
sýnir núna, Maria Wa-
lewska og Napoleon, er merkileg
bæði að efni og formi. Uppistaða
myndarinnar er sannsöguleg, ást-
ir Napoleons og pólsku greifafrú-
arinnar Mariu Walewska.
Um þetta efni hefir verið rituð
bók, byggð á öllum þeim skjöl-
um, sem hægt hefir verið að
finna um þetta mál. Hefir bókin
verið þýdd á íslenzku, neðan-
rnáis í Aiþýðublaðinu.
Myndin bregður mjög lítið út
frá sögunni, en þó verður þess
vart á stöku stað.
Má búast við geysilegri aðsókn
að þessari mynd, því að aðal-
hlutverkin eru ieikin af tveimur
vinsælustu kvikmyndaleikurum
heimsins, Gretu Garbo og franska
leikaranum Charies Boyer.
Útbreiðið AlþýSublaðið!
NVM Bl® SP
fflilli tveggja elda.
Viðburðarík og spennandi
amerísk njósnaramynd, er
geristí frelsisstríði Banda-
ríkjanna. — Aðalhlutverk-
ið leikur liinn karlmann-
I. O. G. T.
MÍNERVA nr. 172. Fundur i
kvöld kl. 8V2. Kaffisamsæti fyr-
ir cand. theol. Ragnar Bene-
diktsson eftir fund. Mætið! Æt.
Útbreiðið Alþýðublaðið!
legi og djarfi DICK FO-
RAN, ásamt Paula Stone
og Gordon Elliot.
Aukamyndir;
Talmyndafréttir og her- 1]
væðing stórþjóðanna.
H Börn fá ekki aðgang.
- a
Mferðir Steindðrs:
Allar okkar hraðferðir til Akureyrar eru um Akranes.
Frá Reykjavík: Alla mánud., miðvikud. og föstud.
Frá Akureyri: Alla mánudaga, fimtud. og laugardaga.
Ms. Fagranes annast sjóleiðina. Nýjar upphitaðar bifreiðar
með ú t v a r p i .
Steindér,
Símar: 1580, 1581, 1582, 1583, 1584.
fíl að feæía fll yfifsfeaffanefnd"
ar úf af úrsfeurðum skaffsffóra
og niðurjðfnunafiiefudar á
skaff* og úfsvarsfe®er um# renn^
ur úf þann 4, júli n, fe* Kser^
ur skulu komnar i feréfafeassa
skaffsfofunnar á Alþýðuftús^
ínu fyrír feL 24 þann dag.
Yfírsfeaffanefnd Reyfejavífeur.
fyrir krónuna,
með því að
nota
þvotta-
duftið
Islíngton Corinthians—íslenzkt
keppa í kvold klukkan 8,30 stundvfslega.
Geta landarnir sigrað ? — Alllr standa á ðndinnl!