Alþýðublaðið - 23.06.1939, Page 1

Alþýðublaðið - 23.06.1939, Page 1
BlTSTJÓBl: F. E. VALDSMAllSSON ÚTGZFAJKDI: ALÞÝÐUFUffiXHBaOI ÁKGAHGUB FÖSTUDAGINN 23. JÚNÍ 1939 141. TÖLUBLAÐ Sovétstjór lagstilboðl hafnar samkomu- eta og Frakka! Ætlar innan skamms að hefja samninga við Þýzkaland um tfu ára viðskiftasáttmála og sextán milljðn krðna lán tll vðrukanpa par! Þriðji kappieiknrinn við Breíana. Valur hefir mikia mðguleika. ÞRIÐJI kappleikurinn við Bretana fer fram í kvöld og keppir nú Valur við þá. Er beðið eftir þessum kapp- leik með mikilli eftirvæntingu og telja flestir jafnmiklar líkur liðanna um sigur og þó hafi Valur heldur meiri möguleika. Ellert Sölvason, hinn snarpi kantmaður Vals, getur ekki leikið, og talið er vafasamt að Jóhannes Bergsteinsson geti leikið. — Næsti kappleikur fer fram á sunnudag og keppir Víkingur þá. Stærsti bðtur sem bjrggður befir verið bér á landi, var lát- inn ð flot í dag iVest mannaeyjum. ¥ MORGUN kl. 10 var settur fram í Vestmannaeyjum stærsti bátur, sem bygður hefir verið á íslandi. Báturinn, sem er 130 tonn að stærð, hefir ver- ið bygður undir verkstjórn yfir- smiðs Slippfélagsins, Gunnars M. Jónssonar. Hafði Gunnar hugsað sér áð fá að láni dráttarvélar Slippfé- lagsins við framsetninguna, en nú þegar til átti að taka, þá bannaði stjórn Slippsins að lána vélarnar. Leit því út fyrir um tíma, að ekki yrði hægt að setja bát- inn fram, og þar með skipshöfn. in orðið atvinnulaus yfir síld- veiðitímann fyrir það fyrsta, því dráttarvélar Slippsins eru þær einu í Vestmannaeyjum, sem eru nógu sterkar fyrir svo stóran bát, sem hér var um að ræða. Að vísu er til annar Slippur, eign Magnúsar Magnússonar, en hann er miklu minni, og hefir mjög litla dráttarvél, þó voru vélar Magnúsar lánaðar og skyldi reyna með þeim að setja bátinn fram. í gærkveldi flæddi undir bát- inn í flóði, og um kl. 10 í morg- un var búist við að hann væri kominn á flot. Hefir vinnan reynst mjög erfið, og hafa iðu- lega vírar slitnað og einu sinni Frh. á 4. síðu. Kreml í Moskva (til vinstri á myndinni), sem sovétstjóinm afhenti svar Brezkir pegnar svtvirttr af Japðnnm í Tientsln I gær. -----» .. Vegabréfi troðið upp í ©inn þeirra! LONDON í morgun. FÚ. ö REZKIR ÞEGNAR í Tientsin áttu enn í gær frekari ójöfnuði að sæta af hálfu Japana. Tveir menn, sem voru að fara gegn um hlið, inn á brezka yfirráða- svæðið, voru spurðir, hvort þeir væru Englendingar, og er þeir svöruðu játandi, var farið með þá inn í kofa nokk- urn og þeir afklæddir frammi fyrir f jölda Kínverja. Öðrum þeirra var þá skipað að opna munninn, og gerði hann það. Var honum þá skip að að opna hann betur, og þegar hann sagðist ekki geta það, var vegabréfi hans troð- ið upp í hann. Fimm brezkir verkamenn við eina af járnbrautunum í Ti- entsin voru stöðvaðir á alþjóða- brúnni svonefndu og afklæddir þar frammi fyrir nokkrum Kín- verjum og leitað í fötum þeirra. Franskir og belgiskir verka- menn, sem unnu með þeim, fengu að ganga leiðar sinnar óáreittir. Frh. á 4. síðu. Frá fréttaritara Alþýðublaðsins. LONDON í morgun. II jí OLOTOV, utanríkismálaráðherra sovétstjórnarinnar, boðaði Mr. William Strang, ásamt sendiherrum Breta og Frakka í Moskva, á fund í Kreml í gærkveldi, og afhenti þeim þar svar sovétstjórnarinnar við því, sem taldar voru úrslitatillögur Mr. Strangs til að ná samkomulagi um sam- eiginlegt varnarbandalag Englands, Frakklands og Rúss- iands. Svar sovétstjórnarinnar er á þá leið, að tillögur Breta og Frakka séu ekki nógu víðtækar og feli ekki í sér neina fullnægjandi ábyrgð á öryggi Eystrasaltslandanna, en Rúss- land haldi fast við það, að slík ábyrgð sé innifalin í samn- ingnum. Samtímis kemur frétt um það frá Berlín, að þar hafi verið tilkynt opinberlega í gærkveldi, að þýzkir stórat- vinnurekendur muni innan skamms senda nefnd manna til Moskva til þess að ræða við sovétstjórnina um nýjan viðskiftasáttmála og stóraukin viðskifti milli Þýzkalands og Rússlands. Er þess getið í tilkynningunni, að nefnd þessi muni bjóða sovétstjórninni tíu ára viðskiftasáttmála og lán til vörukaupa í Þýzkalandi, sem nemi 60 milljónum sterlings- punda, eða yfir 1600 milljónum króna. Sé búizt við, að Rúss- land kaupi iðnaðarvörur á Þýzkalandi, en það alls konar hráefni, þar á meðal olíu, af Rússlandi. Hikil vonbrigði í London. Þessar fréttir frá Moskva og Berlín hafa báðar vakið gífur- lega athygli úti um allan heim og mikil vonbrigði í London. — Brezkir stjórnmálamenn höfðu eftir síðustu tillögur Breta og Frakka, sem Mr, William Strang afhenti sovétstjórninni í þeirri trú, að þar með væri komið til móts við allar kröfur hennar, gert sér sterkar vonir það, að varnarbandalagið um gegn yfirgangi Þýzkalands yrði nú loksins að veruleika. Segir fréttastofa Reuters, að menn hafi að vísu aldrei gert ráð fyrir, að sanmingarnir myndu ganga greiðlega, en ekki heldur að svo örðugt myndi reynast að ná samkomulagi og raun væri á orðin, Mr. Strang ð ffirum frá Moskva. í fréttum frá Moskva er skýrt frá því, að þar sé af flest- um litið svo á, að erindi Mr. Strang sé lokið með þessu svari sovétstjórnarinnar við síðustu Frh. á 4. siðu. Eyjaf|ðrður kolmórauð ur af framburðl ánna. Vakað í nótt við varnargarð Glerár, svo að hún flæddi ekki ínn í Akureyrarbæ. SVO MIKILL VÖXTUR er nú i ölium ám í Eyjafirði, að fjörðurinn er allur kolmórauður. Eru það aðallega Eyjafjarðará, Hörgá og Glerá, sem vöxturinn er í. Eins og kunnugt er, rennur Glerá til sjávar rétt fyrir norðan Akureyri, eða milli Glerárþorps og Akureyrar. Rennur hún um eyrar norðan við Oddeyrartang- ann, og hefir verið hlaðinn varn- argarður með ánni, svo að hún flæði ekki inn i þæibn í vorvöxt- um. Tvær brýr eru á ánni, stór brú við aÖalveginn, en lítil tré- brú neðar. I gær, nótt og dag hefir verið svo mikill vöxtur í Glerá, að neðri brúin fór af, og hefir verið vörður við ána í nótt og dag til þess að sjá um, að áin flæddi ekki inn 1 bæinn. Hefir áin brotiö skörð í varn- argarðinn, og hafa þau verið fylt jafnóðum. Geysilegur hiti var á Akureyri i gær, en í dag er norðan gola og ekki eins mikill hiti. Gerði norðan storm í gær, og er hann að ganga niður í dag. Þoka er í Eyjafjarðarfjöllum, en þó sólskin. Dregnr úr hitannm im land alt. Bjart veður er nú um alt land, og víðast hvar hæg norð- anátt. Þó er á Austurlandi strekkings norðanátt. Kólnað hefir töluvert á Norð- ur- og Austurlandi. Var i morg- un ekki nema um 11 stiga hiti á Akureyri og í útsveitum 7— 10 stig. Á Austurlandi var hit- inn 9—10 stig, og virðist að nú sé heldur að draga úr þeim hit- um, sem verið hafa undanfarna daga víðast hvar á landinu, en þó er einna heitast í Reykjavík nú, eða um 20 stig. Swatow stendnr i björtn bðli. Kinverjar taldir hafa kveikt 1 borginni. LONDON í morgun. FÚ. ISWATOW geisuðu óg- urlegir eldar í nótt og í morgun, og brennur fjöldi vöruhúsa og verzlana til kaldra kola, án þess að við því verði gert. Hafa Kínverjar sjálfir staðið að þessum íkveikj- um, til þess að gera Japön- um setuna í borginni sem torveldasta. Með Farfuglum m ð Hengil. EF ungir Reykvíkingar vilja fá sér reglulega góða, gagnlega skemtiför um helgina, þá eiga þeir að slást í hópinn með Farfuglum, sem ganga á Hengil! 1 Farfuglarnir leggja af stað kl. 3 e. h. á morgun frá íþrótta- húsi Jóns Þorsteinssonar, og verður ekið í bifreiðum upp í Svínahraun og þaðan gengið í Marardal. Um nóttina verður gist á Kolviðarhóli, en þaðan verður gengið á sunnudaginn yfir Hengilinn, milli hrauns og hlíða, niður í Grafning, um Nesjavelli, að Heiðarbæ og það- an heim á sunnudaginn. Allir, sem vilja vera með í þessari för, verða að tilkynna þátttöku sína í síma 2165. Eimskip. Gullfoss er væntanlegur hingað kl. 6 í fyrramálið, Goðafoss er i Hamborg, Brúarfoss kemur til Grimsby í kvöld, Lagarfoss er á leið til Kaupmannahafnar, Sel- foss er á leið til Antwerpen. Hátlðahöld að Hvanneyri á morgna og á sunnudag. ----«---- Bændaskélinn par er Vimtugnr. A MORGUN og á sunnu- daginn fara fram mikil hátíðahöld að Hvanneyri af tilefni hálfrar aldar afmælis bændaskólans þar. Verður við það tækifæri afhjúpað minnismerki um brautryðjanda bændaskól- ans, Halldór Vilhjálmsson skólastjóra. Vorið 1889 var stofnaður á Hvanneyri í Borgarfirði bún- aðarskóli. Fyrstur varð þar skóla- stjóri Sveinn Sveinsson búfræð- ingur. Hjörtur Snorrason, siðar alþingismaður, var um alllangt skeið skólastjóri á Hvanneyri, en 1907 tók Halldór Vilhjálmsson við skólastjórn og búskap á Hvann- eyri, og var hann þar samfleytt 29 ár eða þar til hann andaðist, 12. maí 1936. Byggingar voru ekki miklar á Hvanneyri, þegar Halldór Vil- hjálmsson tók þar við, samanbor- ið við það, sem nú er, og Hvann- Frh. á 4. siðu.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.