Alþýðublaðið - 28.06.1939, Síða 1

Alþýðublaðið - 28.06.1939, Síða 1
BlTSTJéBI: F. R. VALDBMARSSON ÚTGBFAMXPl: ALÞÝÐUFLOBXXJBINH XX. ÁRGANGUB MIÐVIKUDAGINN 28. júni 1939. 145. TÖLUBLAÐ WSðnrstiiia teemplagsBaegndars Framfærslukostnaður 1 Reykja vík hefur ekkl hækkað nema rúm 2% vfð gengisbreytlnguna r —---♦ -- Manp^lald heM pess vegna ébreytt 1. |úll og aUt til 1. Janúar 1940. KAUPLAGSNEFND, sem skipuð var samkvæmt lögun- um um gengisskráningu og ráðstafanir í því sambandi, til þess að gera yfirlit um breytingar á framfærslukostnaði frá áramótum 1939, hefir nú tilkynnt ríkisstjórninni fyrsíu niðurstöðurnar af störfum sínum. Samkvæmt lögunum um gengisskráningu átti kaup- giald ófaglærðra verkamanna og sjómanna og fjölskyldu- manna með minna en 3600 króna árstekjum í Reykjavík og tilsvarandi lægra annarsstaðar, að hækka frá 1. júlí, svo framarlega sem hækkun framfærslukostnaðarins hér í Seykjavík næmi 5% eða meiru mánuðina apríl, maí og júní, í samanburði við mánuðina janúar, febrúar og marz. Niðurstaða kauplagsnefndar hefir orðið sú, að hækk- un framfærslukostnaðarins hafi ekki numið nema rúmlega 2%, og helzt því kaupgjaldið óbreytt 1. júlí og alt til 1. janúar 1940. I kauplagsnefnd eiga sæti Björn E. Árnason lögfræðingur, formaður, skipaður af hæstarétti, Jón Blöndal hagfræðingur, til- nefndur af Alþýðusambandi íslands, og Eggert Claessen hæsta- réttarmálaflutningsmaður, tilnefndur af Vinnuveitendafélagi íslands. Mikil rauðáta. AÐ má heita, að ekki verði slldarvart ennþá fyrir Norðurlandi. Þó fengu tvö skip, sem leggja upp á Siglufirði, ofurlítinn slatta í nótt á Skagafirði, og flug- vélin T.F. Örn sá síld út af Horni í gær. í dag er bezta veður fyrir öllu Norðurlandi og er ágætis veiðiveður á Grímseyjarsundi. Til Djúpuvíkur hefir engin síld komið ennþá. í gær var rannsökuð síld, er veiðst hafði á Grímseyjarsundi, og reyndist vera mikil rauðáta i henni, eða að meðaltali 18,5 rúm- centimetrar í maga. I gær var mælt fitumagn í Grímseyjarsíld, og reyndist það 18,3 af hundraði. Síldin er jafnstór, meðallengd 35 cm. og meðalþyngd 375 grömm. Á Seyðisfirði hafa eftirtöld skip lagt afla sinn á land: Garð- ar 404 mál, Fylkir og Gylfi 172 mál, Reynir og Víðir 137 mál og Gandur 64 mál. Síldin veiddist í Mjóafirði. Varðskipið Þór kom í gær til Hafnarfjarðar. Hefir ríkisstjórnin leigt hann til síldveiða í sumar, Sjálfsagt kemur ýmsum það á óvart, að framfærslukostnaður- inn skuli ekki hafa hækkað meira vegna gengislækkunar- innar, eftir allar þær fullyrðing- ar, sem einkum kommúnistar höfðu komið með um þá gífur- legu verðhækkun, sem hlyti að fylgja í kjölfar gengislækkun- arinnar. En þess ber að gæta, að þeg- ar fyrir gengislækkunina var allveruleg verðhækkun orðin á erlendum vörum vegna inn- flutningshaftanna, — hinnar ó- hóflegu álagningar heildsal- anna í skjóli þeirra og brasks með innflutningsleyfin, sem sýndi að gengi krónunnar var raunverulega þegar fallið, áður en það var viðurkent með lög- unum um hina nýju gengis- skráningu. ðflugar ráðstafanir hafa taaldið verðiuu nlðrl. En að sjálfsögðu má þakka það hlnum öflugu ráðstöfunum, sem gerðar voru í sambandi við gengisbreytinguna til þess að koma í veg fyrir verðhækkun, að framfærslukostnaðurinn hefir ekki hækkað meira en rúm 2% síðan gengislækkunin varð. í fyrsta lagi lögðu lögin um gengislækkunina bann við allri hækkun á húsaleigu, sem er mjög þýðingarmikill liður fram- færsíukostnaðarins, og hefir síðan verið starfandi húsaleigu- nefnd til þess að vaka yfir því að það hann væri ekki brotið. Þá var og ákveðið, að hvorki mjólk né kjöt mætti hækka, nema því aðeins að kaupgjald hækkaði, Verður því ekki heldur nein verðhækkun á þessum vörutegundum fram til næstu áramóta. Loks liefir ákvæðunum um verðlagseftirlit verið beitt á- kveðnar en áður til þess að halda niðri verðinu og hámarks- verð verið ákveðið á vefnaðar- vöru, búsáhöldum og á fleiri vörum; á þessum varningi hefir áður verið óhæfileg álagning. Alt eru þetta þýðingarmiklir liðir framfærslukostnaðarins, og þegar þess er gætt að inn- Frh. á A. síðu. Vlnnan vlð hltaveit- nna hefst í september ------—... .. Samningarnir við Hojgaard & Schultz að mestu samhljóða tiiboði firmaus. - ' »■—■—■— Skýrsla bor^arstjóra á - bæj~ arráðsfnndl í fgær* ......-4----- ABÆJARRÁÐSFUNDI, sem haldinn var í gær, lagði horgarstjóri fram samning, sem hann gerði í Kaup- mannahöfn hinn 15. þ. m. við A./S. Höjgaard & Schultz um, að firmað leggi hitaveitu frá Reykjum í Mosfellssveit til Reykjavíkur og leggi fram fé til fyrirtækisins. Er samningurinn að mestu samhljóða tilboði firmans, dags. 28. apríl síðastl., aðalhreytingarnar eru fólgnar í því, að ótvíræðra eru tryggð umráð bæjarins yfir fyrirtækinu í sam- bandi við veðsetningu þess til lánveitanda, og að skuldbind- ing um yfirfærslu vaxta og afborgana lánsfjár er gerð hlið- stæð skuldbindingum um samskonar yfirfærslur annara op- inberra lána, t. d. Sogslánsins. Nú þegar er unnið að því, að gera útboð á öllu efni til hitaveitunnar og verður kaupum á því hraðað eftir föngum. Er gert ráð fyrir, að öll aðaltilboð um efni verði komin í sept- ember n.k. og að um það leyti muni komast fullur skriður á framkvæmdir hér. Ráðgert er, að verkinu verði lokið á saina tíma, sem í tilboðinu var sagt, um áramót 1940—1941. ‘ * j Mynd af Tientsin, tekin úr loftinu. Á myndinni sést Hai-Ho-fljótið og „alþjóðabrúin“ yfir það, sem lokað hefir verið af Japönum. Til vinstri á myndinni sést franska forréttindasvæð- ið og leiðin inn í það enska. Japanír eru nú byrjaðir að slaka til í deilunni í Tientsin - ........ ■»—-——- Þeir óttast viðskiftalegar gagnráðstafanir Eng- lands eða jafnvel algert innflutningsbann. Frá fréttaritara Alþýðublaðsins. London í morgun. "O ULLYRT er nú, að samningar muni hef jast milli Breta og Japana í Tokio innan fárra daga um lausn deilunnar í Tientsin, og þykir sú frétt benda til þess, að Japanir sjái sér þann kost vænstan, að slaka eitthvað til, að minnsta kosti í bili. Er ástæðan til þess talin sú, að Japanir óttist við- skiftalegar gagnráðstafanir af hálfu Englands eða jafn- vel algert bann á innflutningi japanskra afurða þangað, sem myndi verða mjög alvarlegur hnekkir ifyrir utan- ríkisverzlun þeirra, þar eð japanski innflutningurinn til Englands nemur nú árlega um 9 milljónum sterlings- punda eða um 250 milljónum króna. Það er sett í samband við þessa frétt, að yfirhershöfðingi Japana í Tientsin, Homa, hefir þegar látið bann út ganga við því, að brezkir þegnar séu flettir klæðum, í því slcyni að leita á þeim, eins og gert hefir verið undanfarið, þegar þeir hafa farið út af brezka forréttindasvæðinu eða inn í það. Ástandið í Tientsin er nú iíka talið hafa störlega batnað síð- asta sólarhringinn, enda fékk stór matvælasending að fara inn á forréttindsvæði Breta í borginni í gær í friði fyrir Jap- önum. Það er búist við því, að samn- ingarnir í Tokio, sem munu verða boðaðir samtímis bæði þar og í London áður en þeir hefjist, leiði til þess, að vöru- flutningabanninu inn á forrétt- indasvæði Breta í Tientsin verði algerlega afiétt. Mac Bride. (Daily Herald.) Dýzk hernaðarflng- lél skotln niður jrfir Póllandi. LONDON í morgun. FÚ. ÝZK hernaðarflugvél hefir verið skotin niður í Pól- landi fyrir það, að fljúga yfir pólska grund. Var skotið að- vörunarskoti, sem flugmenn- irnir skeyttu ekkert um, og litlu síðar var flugvélin skotin niður. Féll hún niður á sjó, og var áhöfninni bjargað af skipi. LONÐON í morgun. FÚ. ¥ GÆRKVELDI varð mesti eldsvoði í London, sem þar hefir orðið síðan 1879, og horfðu mörg þúsund manna á hamfarir eldsins. Eldurinn kom upp í fimm hæða háu vöruhúsi í austan- verðri borginni og greip svo ákaft um sig, að á svipstundu stóðu þrjú vöruhús í ijósum loga frá kjallara upp í þak. Eldurinn breiddist einnig yfir götuna, og kviknaði þar Hundruð Gyðinga frá Þýzka- landi hafa verið fluttir inn yfir pólsku landamærin, segir í skeyti frá fréttastofu Gyðinga í Varsjá. í Berlín er borið á móti þessu. FelagsdóBii i Hafnar- fjatðardeílnnni beflr enn lerið frestnð. FÉLAGSDÓMUR kom sam- an síðdegis í gær til þess að taka fyrir kæruna á hendur Hlíf í Hafnarfirði út af brott- rekstrunum úr félaginu. Málinu var enn frestað ura óákveðinn tíma, sökum veikinda Péturs Magnússonar hæstarétt- armálaflutningsmanns, sem hefir tekið að sér að verja mál- ið fyrir Hlíf. í fjórða stóra vöruhusinu. í öllu húsinu var mikið af eld- fimum efnum, og var eldur- inn mjög geystur. Tjónið er metið á eina milijón sterlingspunda. 400 slökkviliðsmenn með öll- um tegundum af slökkviútbún- aði, sem til er í borginni, börð- ust við að hindra útbreiðslu elds ins. 4 menn meiddust svo, að flytja varð þá á sjúkrahú* Fpgtir vörnhús i Londoi brenna til kaldra kola. -----♦_---— Tjónið metið 1 milljón sterlingspunda.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.