Alþýðublaðið - 03.07.1939, Qupperneq 1
ESTSTJÓRI: P. R. VALDKMARSSON
ÖTGEPANIH: ALÞÝÐUHO^OieiM
xx. Abganguk
MÁNUDAGINN 3. JÚLÍ 1939
149. TÖLUBLAÐ
Vestwr4sleaidfKgadagiiFlMii:
Hesti manntjðldi, sem séztlhefir á Mnp-
vöilum síðanfá alpinoishátiðinni 1930.
■4------—
Tilkomuíiiesta stund hátíðarinnar var þegar Fjallkonan og
fylgdarmeyjar hennar,Miss Ameríka ogMissKanada,sýndu sig
H ÁTT á fjórða þúsund
.1 manns voru saman-
komnir á Vestur-íslendinga-
degiíium á Þingvöllum í gær,
og er þaS mesti mannfjöldi,
sem þar hefir sézt síðan á al-
þingishátíðinni 1930.
Fóru öll hátíðahöldin fram
nyrzt í Almannagjá, og var
síaðurinn sæmilega valinn, þó
að margir hefðu óskað þess að
hann hefði verið nær Valhöll.
Mun öllum koma saman um,
að áhrifaríkasta stund hátíða-
haidanna hafi verið, þegar
Fjallkonan og fylgdarmeyjar
hennar, Miss Ameríka og Miss
Kanada, gengu fram og tóku sér
sæti í viðhafnarstúkunni
frammi fyrir mannfjöldanum.
Hátíðahöldin hófust með því
að Sigfús Halldórs frá Höfnum
bauð gestina velkomna til þessa
fyrsta Vestmannadags, sem hér
hefir verið haldinn, og óskaði
hann þess, að dagurinn mætti
verða til þess að tengja enn bet-
ur en áður bræðraböndin á milli
íslendinga beggja megin hafs-
ins.
Að setningu hátíðahaldanna
lokinni fór fram guðsþjónusta
og messaði Sigurgeir Sigurðsson
biskup. Mæltist honum mjög
skörulega, og talaði hann um þá
þjóðlegu einingu, sem vakin
hfefði verið með þessari hátíð
milli íslendinga, bæði austan
hafs og vestan. Við guðsþjón-
ustuna aðstoðuðu Lúðrasveit
Reykjavíkur og Karlakór
Reykjavíkur.
Fjallkoiu, Miss Kaaada
og Mtss Amerika.
Þá komu fram Fjallkonan
(frú Vigdís Steingrímsdóttir),
Miss Kanada (ungfrú Gerður
Jónasdóttir) og Miss Ameríka
(ungfrú Kristjana Pétursdóttir).
Þrátt fyrir það þótt þessi sér-
kennilegi siður sé alger nýlunda
hér á landi, vakti koma þeirra
mikla hrifningu allra, og var
mjög hátíðlegt að sjá, þegar
hinar táknrænu myndir íslend-
inga í Kanada og Bandaríkjun-
um tóku sér sæti sinn til hvorr-
ar handar Fjallkönunnar, hinn-
Fjallkonan og fylgdarmeyjar hennar: Frá vinstri: Miss Kanada
(ungfrú Gerður Jónasdóttir), Fjallkonan (frú Vigdís Steingríms-
dóttir) og Miss Ameríka (ungfrú Kristjana Pétursdóttir).
Bretar og Frakkar gera eina
íilraniina enn í Moskia.
...-. ------
Mr. Strang afhenti nýjar tillögur í gær
LONDON í gærkveldi. FÚ.
STALIN OG MOLOTOV
ræddust við langa stund
í gær, áður en Molotov veitti
Mr. Strang áheyrn og sendi-
herrum Bretlands og Frakk-
lands, en þeir lögðu fyrir rússn-
esku stjórnina nýjar tillögur, og
var búizt við svari við þeim
bráðlega, ef til vill í dag.
Franskir stjórnmálamenn eru
vonbetri en áður um það, að
samkomulag náist. Franski
ráðuneytisfundurinn í gær stóð
í fullar tvær klukkustundir. í
ræðu sinni um horfumar í álf-
unni sagði Daladier, að þær
væru mjög ískyggilegar, vegna
þess, sem væri að gerast í Dan-
zig. Stjórnin samþykti allar
ráðstafanir, sem teknar hafa
verið, en ekki er skýrt frá þeim
nánar.
William Seeds, sendiherra
Breta í Moskva, hefir sent
brezku stjórninni skýrslu um
viðræðurnar við Molotov og
Potemkin á laugardag, og er
búist við, að utanríkismála-
nefnd taki hana til meðferðar í
dag.
Samningar Breta og
Japana hefjast á
miðvikudag.
LONDON í gærkveldi. FÚ.
"O REZKI aðalræðismaðurinn
í Tientsin kom til Yoko-
hama í Japan í dag á enska
tundurspiílinum „Decoy.“ Ók
hann þegar á fund sendiherra
Breta. Til Tokio kom í dag ræð-
Frh. á 4. síðu.
Mr. Strang, sendimaður Cham-
berlains í Moskva.
ar táknrænu myndar fóstur- ♦
jarðarinnar.
Fjallkonan var klædd skaut-
búningi, en Miss Kanada og
Miss Ameríka voru klæddar
hvítum silkikyrtlum og með
gullspengur um enni. í gull-
spöng Miss Kanada var grafið
mösurlauf, en mösurlaufið er
í skjaldarmerki Kanada. Gull-
spöng Miss Ameríku var sett
stjörnum eins og eru í fána
Bandaríkjanna. í beltum beggja
voru litir þjóðfánanna, brezka
alríkisfánans 1 belti Miss Kana-
da, en Bandaríkjafánans í belti
Miss Ameríku og stjörnurnar í
bláum borða. Einnig höfðu báð-
ar bláa flauelshálfmöttla yfir
herðunum, og kom það sér vel
fyrir þær í næðingnum þarna í
hásætunum.
Á meðan þær gengu fram og
tóku sér sæti í hásætunum í við-
hafnarstúkunni, Fjallkonan í
miðið, Miss Ameríka hægra
megin við hana og Miss Kanada
til vinstri, lék lúðrasveitin
göngulag eftir Sigurð Baldvins-
son póstmeistara.
Ræðuhðldin.
Að því loknu hófust ræðu-
höldin og kveðjurnar. Ávarp
ríkisstjórnarinnar flutti Ólafur
Thors atvinnumálaráðherra, á-
varp Alþingis Haraldur Guð-
mundsson forseti sameinaðs Al-
þingis og Fjállkonan ávarp til
Frh. á 4. síðu.
STBÍÐSUMPIBBÚNIWGUB í PAWZIC:
Koraið slegið óþroskað omhverfis borgina
og gaddavirsgirðingar settar npp ð ðkram.
....—----
Það er vitað að vopn voru flutt þangað frá Þýzkalandi i gær.
LONDON í morgun. FÚ.
EKKERT hefir gerst í Danzig um helgina, sem veru-
legum tíðindum sæti, og er þar alt tiltölulega rólegt.
Þó halda Þjóðverjar áfram uppteknum hætti um alls kon-
ar hernaðarlega starfsemi. Er hún aðallega fólgin í heræf-
ingum, og æfa þýzkir foringjar sjálfboðaflokka Danzigbúa.
Enn fremur er kunnugt um, að hergögn hafa verið flutt
til borgarinnar frá Þýzkalandi um helgina.
Þá vekur það og athygli, að í nágrenni borgarinnar er
nú unnvörpum verið að slá kornið, þó að það sé ekki orðið
þroskað, og gaddavírstorfærum hefir verið komið fyrir á
ökrunum jafnharðan og kornið er flutt burt.
Foringi nazista í Danzig flutti ræðu í gær og lýsti yfir því,
að Þjóðverjar í Danzig væru ákveðnir í því að sameina borgina
þýzka ríkinu, hvaða fórnir, sem það kynni að kosta.
Kiafa Pólverja: Bnrt með
Mannfjöldinn í Almannagjá í gær.
Einn af pólsku ráöherrunum
flutti ræðu í Varsjá í gær og
kvaÖst vilja lýsa yfir því, svo
gð það tæki af allan vafa, að
Pólland myndi aldrei verða lífs-
svigrúm (,,Lebensraum“) fyrir
nokkra framandi þjóð.
Hann hvað það firn mikil og
ósvífni, að ríki, sem hefir 20°/o
af iandamærum sínum liggjandi
að sjó og útbúið prýðilegum
höfnum, skuli krefjast þess af
Póllandi, að það láti af hendi
aðra af tveim höfnum sínum.
„Við slíku hefir Pólland ekkert
annað að segja en: „Burt með
ránshendumar“. Pólland lætur al-
drei neitt af hendi, sem það hef-
ir og þvi ber með réttu“, sagði
íáðh»rr*nn.
Chamberlam endnrteknr
aðvðrnn Lord Balifax.
LONDON í morgun. FÚ.
Chamberlain forsætisráð-
herra Breta hélt útvarpsræðu í
gærkvöldi um landvarnir Breta
og endurtók þá með mjög á-
kveðnum orðum þá yfirlýsingu
Lord Halifax á fimtudagskvöld
ið, að Bretland myndi snúast
gegn öllum ofbeldistilraunum og
standa við skuldbindingar sínar
við önnur ríki.
Hann sagði, að menn lifðu nú
á varhugaverðum og hættuleg-
um tímum, en þó að brezka
þjóðin væri friðsöm, skyldi
ekkert erlent ríki leyfa sér
þann hættulega misskilning að
halda, að hún myndi ekki beita
Öllu afli sínu til þess að snúast
gegn árásum, hvort heldur væri
á Bretland eða þau lönd, sem
það hefði tekið að sér að verja.
Færejskn knattspyrnu-
mennirnir komu í
morgnn.
TJ1 ÆREYSKU knattspyrnu-
mennirnir, „Tværoy Bolt-
félag“, komu hingað í morgun
með Dronning Alexandrine í
boði K.R.
Eru knattspyrnumennirnir 16
°g rajög vel æfðir. Hafa þeir
haft danskan þjálfara undan-
farið og æft af kappi.
Keppa þeir hér þrjá kapp-
leiki, viö K.R. annað kvöld, Val
á fimtudagskvöld og 1. flokk
K.R. á sunnudag.
Verbakonurttarfeap
sól og snmar að
langarratni.
0m 40 tökFpátt í fEr-
inni pangað í gsr.
CJKEMTIFÖR verka-
kvenna héðan úr
Reykjavík austur að Laugar-
vatni í gær tókst ágætlega.
Voru verkakonumar og gest-
ir þeirra, sem þátt tóku í för-
inni, samtals 40.
Farið var af stað frá Alþýðu-
húsinu klukkan hálf níu í gcer-
morgun og fyrst stanzað í
Hveragerði og Grýta skoðuð,
sem því miður gaus þó ekki á
meðan. Þaðan var haldið austur
að Sogsfossum. Fengu verka-
konurnar þar ágætar viðtökur
og var sýnd virkjunin bæði úti
og inni.
Frá Sogsfossunum var svo
farið viðstöðulaust austur í
Laugardal, inn í hlíðarnar
austur af Laugarvatni, þar sem
skjól var og sólskin og mesta
veðurblíða í ilmandi skóginum,
þrátt fyrir storminn, sem víða
var annars staðar. Var boröað
þarna inni í hlíðunum um
klukkan eitt og síðan gengið um
skóginn til að njóta veðurblíð
unnar og náttúrufegurðarinnar.
Frh. á 4. síðu.
Mizt við sfldinni, pegar veð
ur iægir tjrir Norðirlandi.
Mlkil ranðáta á Skagafirði, Grf nss
eyjarsundi og viðar.
C JÓMENN á Norður-
landi búast nú við, að
síldin komi, þegar veður
lægir, en undanfarna sólar-
hringa hefir verið hvass og
kalt fyrir norðan og slæmt
veiðiveður.
Skoðun sína byggja þeir á
því, að mikil áta er í sjónum,
einkum á Skagafirði og i Gríms-
eyjarsundi, Er það mest rauð-
átu.
I dag er stormur á Siglu-
firði, 3—4 vindstig, dimt yfir
og nokkur kuldi. Er bví slæmt
veiðiveður í dag, en þó er storm
inn að lægja. Snjór er niður í
miðjar hlíðar á Siglufirði.
Nokkur skip hafa komið inn
til Siglufjarðar með slatta af
síld, sem þau hafa veitt á
Skagafirði.
Ríkisverksmiðjurnar á Siglu-
Frh. á 4. síðu,