Alþýðublaðið - 05.07.1939, Blaðsíða 1
EITSTJÓRI: F. R. VAUDEMAIISSON
ÚVGEFAMH: AI&tMWmKEmmm
XX. Akganguk
MIÐVIKUDAG 5. JÚLÍ 1939
151. TÖLUBLAÐ
bbp
SildiD að boma.
an oo bitlzt vlð velði.
STORMINN, sem undanfariö
hefír geisað á Norðurlandi,
lægðl ! gær.
Eitt skip, Geir goði, kom til
Siglufjarðar I morgun með 400
mál, er það hafði veitt á Skaga-
firði.
Nokkur skip önnur höfðu einn-
ig fengið eitthvað af síld á Skaga
firði i nótt, og í morgun leit
par út fyrir veiði.
Oti við Grímsey var nokkur
sjór i morgun, en kyrt veður og
sjómenn farnir í báta af nokkr-
um skipum.
Einnig var sagt, að út af Sléttu
væm menn farnir að fara í báta
af nokkrum skipum.
Færeyingar voru
élteppnir.
E. B. vann pá með 5 gegn 1.
En mnnnrínn á Iiðunum var
pó ehki svo mikill.
MARKATALAN í leiknum í
gær gefur engan veginn
rétta hugmynd um styrkleika lið-
lanna. Leikurinn var á köflum
skemtilegur og vel leikinn. K. R,-
Ingar áttu töluvert meira í Ieikn-
um, sérstaklega var liðið heíl-
steyptara og samæfðara en Fær-
eyingamir.
Færeyingamir sýndu mikinn
dugnað, og voru péttir fyrir, pótt
peir lékju ekki hart. Þeir standa
að baki Islendingunum í knatt-
leikni og sami gallinn og hefir
háð okkur knattspyrnumönnum til
skamms tíma, háði peim: liðið
var ekki heild, heldur einstakling-
ar. K. R.-liðið var að ýmsu leyti
gott, pótt vond göt væm á pví.
Af Færeyingunum vom beztir
útframherjarnir Gunnar Petersen
(hægri) og Michel Honmann. Mið
framherjinn, Snebjöm Micklasen
var einnig góður og hægri bak-
vörðurinn, Volmar Joensen. Mark
Frh. á 4. siðu.
i Sænska
seint i
frysti-
Þakhæð og tvær næstn hæðtr norður*
endans f hiisinu brunnu tll kaldra kola
Stórkostlegt tjón varð á vorubirgðum.
Boðhlanp Ármanns
kringmn Reykjavik.
ViÐAVANGSBOÐHLAUP
það, sem Ármann gengst
fyrir, fer 'fram n.k. mánudag 10.
þ. m. Verður hlaupið af íþrótta-
vellinum og á hann aftur. Vega-
lengdirnar eru 14, allt frá 100
m. að 1500. Þetta er fyrsta
hlaup af slíku tagi, sem hér fer
fram, en þau eru mjög algeng
erlendis. íþróttamenn bíða eftir
því með eftirvæntingu, hver
vinnur, en K.R. og Ármann hafa
mestar líkur.
í sambandi við hlaupið fara
fram fimleikasýningar flokka
þeirra, sem fara til Svíþjóðar í
sumar.
Þannig lagði reykjarmökkinn úr Sænska frystihúsinu yfir borgina
í gærkveldi. Myndina tók Ólafur Magnússon séð frá Tjarnargötu.
I
GÆRKVELDI kom upp eldur í norðurenda Sænska
frystihússins, og brunnu tvær efri hæðir norðurálm-
unnar til kaldra kola, en neðri hæðirnar skemmdust mikið,
og það, sem í þeim var, af eldi, vatni og reyk.
Þykkur múrveggur varnaði
því, að eldurinn breiddist meira
um húsið, en sá hluti hússins,
sem brann, mun vera um fimmti
hluti þess. Var húsið allt vá-
tryggt hjá Sjóvátryggingafélagi
íslands fyrir 700 þús. kr.
Á þakhæð hússins, þar sem á-
litið er, að eldurinn hafi komið
upp, voru vörubirgðir Belgja-
gerðarinnar, en framkvæmdar-
stjóri hennar er Jón Guðmunds-
son, Hverfisgötu 64. Á næstu
hæð hafði Belgjagerðin skrif-
stofur o. fl. Brunnu allar birgðir
og framleiðsla Belgjagerðarinn-
ar til kaldra kola.
Á næstu hæð hafði Alþýðu-
brauðgerðin birgðageymslu, og
brunnu þær birgðir allar. Á
neðstu hæð voru skrifstofur
(Frh. á 4. síðu.)
Nýju verkamannabústaðirn
ir verða byggðir, hvaö sem
Héðinn eg klíka hans sejir.
....-----
Sá timi er nú brátt á enda, að komm-
únistar fái lengur að hindra fram-
gang pessa veiferðarmáls verkamanna.
INOKKRAR VIKUR hefir
klíka Héðins Valdimars-
sonar í Byggingarfélagi al-
þýðu hér í bænum getað
hindrað það með yfirgangi
sínum og lögleysum, að hægt
væri að hefjast handa um
byggingu nýrra verka-
mannabústaða, ems og xmd-
irbúið hafði verið af félags-
málaráðuneytinu og Bygg-
ingarsjóði verkamanna.
En sá tími mun nú brátt á
enda, að þessari klíku takist
lengur að standa í vegi fyrir
þessu velferðarmáli verka-
manna í hænum.
Það er ekki nema að vonum,
að nokkurt fát hafi komið á blað
kommúnista, Þjóðviljann, við
fréttina um það, að verið væri
að undirbúa stofnun nýs bygg-
ingarfélags verkamanna, sem
uppfyllti öll lögleg skilyrði til
Einræðfsstefnurnar eiga enga
sigurvon á Norðurlðndnm.
-,- M ,+..
Eftirtektarverð ræða Vennerströms landshöfð-
ingja í lokasamsæti Laugarvatnsmótsins um nor-
ræna samvinnu og norræna verkalýðshreyfingu.
„A
Rússar gera nýjan ágreining:
iretar eg Frakkar ábvrgj-
ast oú Eystrasaltsríkin.
-----^—---
En þá neita Rússar að taka í staðinn á-
bjrrgð á öryggi Hollands, Beigíu og Sviss
i
Frá fréttaritara Alþýðuhlaðsins.
LONDON í morgun.
GÆRKVELDI var það
altalað í London, að
raunverulega hefðu nú tek-
irt samningar um varnar-
bandalag milli Breta, Frakka
og Rússa eftir síðustu tillög-
ur Breta og Frakka og svar
sovétstjórnarinnar, sem af-
hént var í fyrradag, við
þeim.
En í morgun hefir það
komið í ljós, að þ«ssi frétt
hefir að minnsta kosti verið
ótímabær. Það er nú upplýst,
að Bretar og Frakkar hafa
með tillögum sínum uppfyllt
óskir Rússa um ábyrgð á ör-
yggi Eystrasaltsríkjanna, en
jafnframt gert það að skil-
yrði, að Rússar sýni þá einn-
ig vilja sinn til fullkomlega
gagnkvæms stuðnings með
því að taka ásamt Bret-
um og Frökkum ábyrgð
á öryggi Hollands, Belgíu og
Fth. & 4. *iðu.
LLIR Alþýðuflokkarn-
ir á Norðurlöndum
fylgja sömu stefnu í stjórn-
málum. Þeir bera uppi lýð-
ræði og frelsi — og einmitt
þetta skapar skilyrði fyrir
samúð meðal Norðurlanda-
þjóðanna og vaxandi sam-
vinnu þeirra á milli.“
Á þessa leið mælti IVAR
VENNERSTRÖM landshöfðingi
frá Svíþjóð í gær í samsæti, sem
Norræna félagið hélt þátttak-
endum í norræna Laugarvatns-
mótinu. Landshöfðinginn er ný-
kominn hingað ásamt frú sinni,
Lóu frá Nesi, og ætla þau að
dvelja hér um skeið.
Formaður Norræna félagsins,
Stefán Jóh. Stefánsson félags-
málaráðherra, bauð gestina vel-
komna með stuttri ræðu, en síð-
an gaf hann Vennerström orðið.
Landshöfðinginn rakti í
upphafi ræðu sinnar sögu nör-
rænnar samvinnu, eða öllu
heldur samvinnu milli Dan-
merkur, Noregs og Svíþjóðar.
Hann drap á stúdentaskandina-
vismann og baráttu ýmissa
menntamanna og skálda fyrir
samvinnu þessara ríkja, en þessi
barátta náði hvorki fylgi ríkis-
stjórna né almennings í lönd-
unum. Það var fyrst eftir mót,
sem haldið var í Lundi 1829,
að þessi hugsjón náði út til
fólksins. Stórt skref var stigið
í þá átt að «kapa samvinnu milli
Ivar Vennerström landshöfðingi heldur hina umtöluðu ræðu á
lokasamsæti Laugarvatnsmótsins. Næst ræðumanninum til vinstri
á myndinni: Frú Lára Rósinkranz, Stefán Jóh. Stefánsson félags-
málaráðherra og frú Lóa Vennerström. Á bak við ræðumanninn
sést aðalkonsúll Svía, Otto Johansson. Til hægri við dyrnar
Guðlaugur Rósinkranz, ritari norræna félagsins. (Myndin er tekin
af Vigfúsi Sigurgeirssyni.)
þjóðanna, er sænska skáldið
Tegnér kynnti danska skáldið
Oehlenschlager sem skáldkon-
ung Norðurlanda. En aftur
hjaðnaði þessi hreyfing og
lagðist niður, er Svíar brugðust
Dönum í ófriði þeirra við Þjóð
verja 1848 — og legsteinn nor-
rænnar samvinnu þessara tíma
stendur við Dybböl.
Næst rakti svo landshöfðing-
inn sögu norrænnar samvinnu
hin síðari ár, sem alltaf fer vax-
andi. Norðurlöndin eru nú eins
og óasi í Evrópu. Þau bera uppi
hið fullkomnasta lýðræði og
frelsi, sem enn hefir þekkzt, og
alla menn, sem dreymir um
frelsi og bræðralag, hverfa til
Norðurlanda sem fyrirmyndar.
Þetta er því athyglisverðara,
þar sem Evrópa er nú umsetin
af einræði og ofbeldi og heilar
þjóðir hafa verið hnepptar í
fjötra. Við Norðurlandabúar
Frh. á 4. sibu.
þess að geta fengíð lán úr Bygg-
ingarsjóði verkamanna og síðan
hafizt handa um byggingu hinna
fyrirhuguðu nýju verkamanna-
bústaða. Blaðið veit, sem er, að
þar með muni uppreisnartilraun
Héðins og kommúnistakliku
hans í Byggingarfélagi alþýðu
innan skamms vera að engu
gerð og öllum verða ljóst, hverj*.
ir sökina hafa átt á því, að ekkí
hefir verið hægt að byrja á
byggingu hinna nýju verka-
mannabústaða ennþá.
Það mun vera leitun á einu
sönnu orði í ummælum Þjóð-
viljans um þetta mál í morgun.
í leiðara sínum heldur hann því
fram, að loforð hafi þegar verið
fengið fyrir láni hjá Bygging-
arsjóði verkamanna og hanii bú-
inn að tryggja sér fé hjá Ai-
þýðutryggingunum og Bruna-
bótafélagi íslands, þegar Stefán
Jóh. Stefánsson hefði tekið sæti
í ríkisstjórn sem félagsmálaráð-
herra. En í þessum staðhæfing-
um er virkilega ekki svo mikið
sem einn stafur sannur.
Engin trygging var fyrir því,
áður en Alþýðuflokkurinn
gekk í stjórnarsamvinmma, og
ekki einu sinni Iíkur fyrir því,
að hægt yrði að hefja byggingu
nýrra verkamannabústaða á
þessu ári. Það var ekki fyrr en
Stefán Jóh, Stefánsson hafði
tekið sæti í stjórninni sem fé-
lagsmálaráðherra, að málinu
var hrundið af stað og þá ein-
mitt af því, að hann lét það
vera sitt fyrsta verk að beita
sér fyrir þvi. Hann útvegaði
Byggingarsjóði verkamanna
lánið hjá Alþýðutryggingunum
og Brunabótafélagi íslands, og
hann fékk bæjarstjómina til að
tryggja það, að lagt yrði fram af
bænum það fé til verkamanna-
hústaðanna, sem honutn her.
Það eru aðrir, sem siðan hafa
staðið í vegi fyrir því, að hægt
væri eftir þetta að taka lánið
og hefja byggingu verkamanna-
bústaðanna. Þann þátt málsins
annaðist Héðinn Valdimarsson
og kommúnistaklíka hans í
By ggingarf élagi alþýðu, með
því að neita að uppfylla lögleg
skilyrði fyrir lántökunni. Þar
með sýndu kommúnistar, hve
mikið áhugamál þeim er það að
flýta byggingu verkamannabú-
étaðanna og skapa nýja atvinnu
í bænum.
En eins og sjá má á auglýs-
ingu annars staðar í hlaðinu í
dag, þar sem boðað er til stefn-
fundar nýs byggingarfélags hér
í bænum, mun þess nú skanunt
að bíða, að hafizt verði handa
um byggingu hinna fyrirhug-
uðu nýju verkamannabústaða,
hvað sem Héðinn og kommún-
istaklíka hans segir.
Frh. á 4. alðu.