Alþýðublaðið - 10.07.1939, Page 1

Alþýðublaðið - 10.07.1939, Page 1
ALÞtÐUBIAÐIÐ BETSraéBl: F. R. VALDEMARSSOM XX. ÁSSAMSOT MÁNUDAG 10. JÚLÍ 1939 155. TOLUBLAÐ Hátíðleg athðfn peg- ar fisja var skirð. Sklpi kemer i áoúst. OIÐ NÝJA SKIP Skipaút- geröar ríkisins var skírt Esja í skipasmíðastöðinni í Álaborg með mikilli viðhöfn á laugardag- inn. Ingiríður krónprinzessa fram- kvæmdi athöfnina að viðstöddu ýmsu stórmenni. öll blöð Kaup- mannahafnar skrifuðu á laugar- dagskvöld og í gærmorgun um athöfnina og lýsa henni. Segja þau, að hún hafi farið vel fram og að skipið sé hið glæsilegasta. Þegar krónprinzessan hafði skirt skipið, afhenti skipasmíðastöðin henni að gjöf brjóstnælu úr platínu, settri demöntum. — Al- þýðublaðið spurði forstjóra Skipaútgerðar ríkisins í morgun, hvenær skipið myndi leggja af stað heimleiðis, og sagði hann, að það myndi koma heim síð- ari hluta ágústmánaðar. Verður skipshöfnin sú sama og var á gömlu Esju, nema einúm vél- stjóra fleira. Svartur sjór af síld frá Skaga og austur að Langanesi. 4--- Landburður var af síld til Siglufjarð- ar og Mjalteyrar núna um belgina. ■■■■+■..— í dag er ekki gott veiðiveður vegna þoku S ÍLD er nú fyrir öllu Norðurlandi vestan frá Skagaströnd * og austur að Langanesi, sagði fréttamaður Alþýðublaðs- ins á Siglufirði í símtali í morgun. Virðist það vera ný ganga — síldin ekki eins feit og lítið eitt smærri. Stillilogn er á mið- unum, en nokkur þoka, og er því ekki sem bezt veiðiveður í dag. Þó eru öll skip að veiðum. Síldarafli er ekki orðinn nálægt því eins mikill og á sama tíma í fyrra, en þó hefir borizt meira á land síðast- liðna viku en sömu viku í fyrra. Núna um helgina má segja, áð hafi verið landburður af síld á Siglufirði og Hjalteyri. Klukkcin 7 á laugardagskvöld höfðu verksmiðjurnar tekið á móti þessum afla i bræðslu, mælt í málum: 7 km. boðhlaup um~ hverfis Rvík í kvðld. Keppt um fagurt horn, sem Alþýðublaðið hefir gefið. 4 "------ SvíþJóðarfararnSr sýna á und~ an fimleika á fpréttavellinum. ¥ KVÖLD fer fram í fyrsta skipti boðhlaups- keppni umhverfis Reykja- víkurbæ. Hefst boðhlaupið á íþróttavellinum og endar þar. Keppt verður um horn er Al- þýðublaðið hefir gefið, en Rík- arður Jónsson skorið út. Framan á hornið er grafið Ármannsmerkið og: „Boðhlaup Ármanns umhverfis Reykjavík. Gjöf frá Alþýðuhlaðinu,“ en hinum megin á hornið er grafin mynd af hlaupara með Ár- mannsmerki á brjóstinu. Tvær boðhlaupssveitir taka þátt í keppninni, Ármann og K.R., og um 15 menn í hvorri sveit. Vegalengdirnar, sem hver einstakur maður hleypur, verða þessar — og í þessari röð: 1675, 800, 400, 200 og 8 sinnum 150 metrar, svo 200, 800 og að lokum 1500 metrar, og hleypur síðasti maður lVz hring á í- þróttavellinum. Er því brautin öll, sem hlaupin er, 6975 metr- ar. Meðal keppenda í þessu fyrsta boðhlaupi umhverfis bæinn verða margir af okkar mestu lilaupagörpum, og keppa m. a. frá K. R. Sverrir Jóhannesson, IndriSi Jónsson, Sveinn Ing- varsson, Jóhann Bernhard og Gecrg L. Sveinsson, og í sveit Ármanns verða m. a. Sigurgeir Ársælsson, Ólafur Símonarson, Brandur Brynjólfsson, Gísli Kærnested og Baldur Möller. Áður en boðhlaupskeppnin hefst, fer fram á íþróttavellin- um kl, 8V2 fimleikasýning úr- Síldarverksmiðjur ríkis- ins á Siglufirði 11783 Grána Rauðka Raufarhöfn Húsavík Djúpavík * Hjalteyri 3000 3000 2167 516 1210 15000 Samtals 36676 ALÞÝÐUBLAÐSHORNIÐ valsflokka karla og kvenna — undir stjórn Jóns Þorsteinsson- ar fimleikakennara, en þessir flokkar sigla n. k. fimmtudag á- leiðis til Stokkhólms. til þess að taka þar þátt í alþjóðafimleika- sýningunni í Lingiaden. Verður skemmtilegt að sjá í í kvöld þá fimleika, sem þessir flokkar ætla að sýna á Lingiad- enmótinu. Meðan boðhlaupið stendur yf- ir, sýna úrvals glímumenn úr Ármanni íslenzka glímu. Einnig mun Lúðrasveitin Svanur skemmta fólki'. Verður áreiðanlega margt manna á íþróttavellinum í kvöld, því þar verður margt til skemmtunar, og mun margan fýsa að sjá, hvað Svíþjóðarfar- árnir hafa að sýna, og ekki verður síður skemmtilegt að sjá, hvernig boðhlaupskeppnin um- hverfis Reykjavík fer. Auk þess hafa verksmiðjurnar á Austfjörðum tekið á móti all- miklu af síld, og til Akraness hefir borizt töluverð síld. Til samanburðar má geta þess, að á sama tíma í fyrra höfðu borizt á land rúm 80 þúsund mál. Fjöldi síldveiðiskipa kom inn um helgina með afla. Frá kl. 7 á laugardagskvöld og þangað til í morgun hafa þessi skip komið til Ríkisverk- smiðjanna á SiglufirÖi: Valur með 200 mál, Freyja 100, Vestri 500, Jón Þorláksson 150 Garðar Vm. 200, Gautur 180, Valur 260, Geir 800, Skagfirðing- ur 700, Björgvin Vm. 550, Is- þjörn 550, Árni Árnason 450, Grótta 500, Kári 500, Höskuldur 600, Rifsnes 1000, Bjöminn og íslendingur 550, Gotta 200, Val- bjöm 500, Fylkir og Gyllir 500, Freyja, Súg., 250, Ólafur Bjarna- son 1000, Nanna 500, Veiga og Gísli Johnsen 700, Málmey 700, Brynjar og Anna 400. Snorri 400, Ásbjörn 600, Þór og Christí- ane 570, Vébjöm 500, Haraldur 480, Hermóður Akr. 550, Freyja 650, Bangsi 300, Heimir 700, Björgvin 450, Gunnbjörn 600, Sægný 200, Frigg og Lagarfoss 500, Nói 100, Auðbjörn 600, Þor- geir goði 550, Hrönn 500, Sæ- bjöm 300. Tíu af þessum skipum komu iinn í nótt með um 6 þúsund mál. Til Rauðku komu þessi skip: Freyja með 800 mál, og er á ieið inn aftur með *600 mál, og Pilot með 4—5 hundmð mál. Grána hefir fengið um 2000 mál síðan á laugardag. Til Djúpuvíkur komu um helg- ina: Þór með 910 mál. En kl. 9 í rnorgun hafði frétzt til Djúpu- víkur um að þessir togarar væru á leið inn: Kári með 900 mál, Rán 800, Baldur 300, Tryggvi gamli 1300 og Garðar 1200. Til Hjalteyrar höfðu komið um hádegi í dag frá því á laugar- dagsmorgun. Lanpr fnndnr hjá Molotov. En enginn árangnr seg- ir rússneska Iréttastofan LONDON í moigun. FÚ. SENDIHERRAR BRETA OG FRAKKA í Moskva ásamt William Strang, erindreka brezku stjórnarinnar, áttu enn viðræður við Molotov utanríkis málaráðherra Sovét-Rússlands í gærkveldi. Stóð fundur þessi í þrjár klukkustundir og er sá Iengsti, sem haldinn hefir ver- ið af þessum aðilum síðan þrí- veldasamningarnir hófust. Ekkert hefir verið látið uppi opinberlega um árangur þessa fundar af hálfu aðila sjálfra, en hin opinbera rússneska frétta- stofa skýrir svo frá, að enginn jákvæður árangur hafi náðst. Sendiherrar Bretlands og Frakklands hafa neitað að gefa aðrar upplýsingar en þær, að samningar hafi ekki enn verið undirritaðir en þeim verði hald- ið áfram. Japanskur hermaður á verði við rafmögnuðu gaddavírsgirðing- arnar umhverfis forréttindasvæði Breta í Tientsin. Æsingafundir baldnir gegn Bretum i Kebe i Japan. ------4,-:--- Samningar Breta og Japana eiga að byrja í Tokio seint í þessari viku. 1 LONDON í morgun. FÚ. KOBE í JAPAN hefir verið efnt til mikillar hópgöngu og fundarhalds til þess að láta í Ijósi andúð á Bretum. Tóku 60 000 manns þátt í þessum fundum. Að fundunum loknum var ályktun óvinsamleg Bretum símuð til þeirra Chamberlains forsætisráðherra, Lord Halifax og Sir Archihald Clark Kerr, brezka sendiherrans í Kína. Brezknr fréttaritari skoð- ar „Ieikvelli“ nazista ð Biskupahæðinni í Danzig. Leikföngin, sem hann sá, voru loftvarna byssur, herflutningavagnar og gaddavír Umræðurnar milli Breta og Japana um deiluna í Tientsin hefjast að öllum líkindum næst- komandi fimmtudag eða föstu- ðag með undirbúningsviðræðum milli brezka sendiherrans í To- kio, Sir Robert Craigie, og jap- anska utanríkismálaráðherrans, Arita. Færeyingar kveðja í kvöld. Glæsileg kveðinhátið i gærkveldi. K LONDON í gærkveldi. FÚ. U RÉTTARITARI Reuters í Danzig fór í dag inn á hið forboðna svæði á Biskupahæð- inni, þar sem Pólverjar segja, að Þjóðverjar séu að koma sér upp víggirðingum. En eins og fyrr hefir verið frá skýrt, fullyrða nazistar í Danzig, að sú starf- semi, sem þarna fer fram, sé ekki önnur en lagning barna- leikvalla. Fréttaritari þessi skýrir svo frá, að svæðið sé allt undir strangri gæzlu hersveita og af- markað gaddavírsgirðingum og Skallagrímur með 2000 mál, Ar- inbjöm 850, Gulltoppur 850, Belgaum 1650, Skutull, Isaf., 1800, Fróði 14Q|^ Ámiann, Rvk., 1550, Jökull 00^1 alls lagt upp 1650 mál. sé þar aragrúi herflutninga- vagna og loftvarnabyssa. Þegar liann var spurður þess, hvað hann væri að gera á þess- um stað, svaraði hann, að hann væri bara kominn til þess að skoða barnaleikvellina, og vakti svarið hlátur liðsforingja þeirra, er spurt höfðu. Albert Förster, foringi flokks- deildar þýzkra nazista í Danzig, sagði í dag í ræðu, sem hann hélt, að íbúar Danzigborgar hefðu margendurtekið vilja sinn til að sameinast þýzka rík- inu. Á meðan á ræðu hans stóð, mátti heyra raddir úr áheyr- endafjöldanum, sem hrópuðu: „Pólverjar verða að hverfa burt úr Danzig“. SS-maður einn réðist að frétta- ritara Reuters, sem staddur var í áheyrendahópnum, og lét í ljósi við hann reiði sína gagn- vart hinum ensku dagblöðum. NATTSPYRNUMENN- IRNIR frá Færeyjum kveðja landið í kvöld. Þeir fara heimleiðis með Dronn- ing Alexandrine. Síðasti leik- ur þeirra var í gærkvöldi, og fór hann fram í ausandi rigningu. Úrslit urðu þau, að K.R. setti 8 mörk, en Fær- eyingar 1. Kl. 8 í gærkvöldi hófst eiginlega kveðjuhátíð- in fyrir gestina. Hún hófst með því, að þeir sýndu fjóra færeyska dansa, sem vöktu feikna fögnuð meðal áhorf- enda, en þeir munu hafa ver- ið um 3000. Að því loknu hófst fimleikasýning K.R.- stúlknanna, sem fóru til Danmerkur, undir stjórn Benedikts Jakobssonar. — Tókst sýningin mjög vel og vakti óskipta athygli, enda eru stúlkurnar framúrskar- andi leiknar. Þá hófst kappleikurinn. Keppti nú við Færeyinga 1. fl, K.R., að viðbættum nokkrum meistaraflokksmönnum. Leik- urinn stóð aðeins í klukkutíma, og settu K.R.-ingar 3 mörk i fyrri hálfleik og 5 í seinni hálf- leik. Færeyingar settu aðeins 1 mark í fyrri hálfleik. Veður var vont meðan kapp- Frh. á 4. síðu. ,

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.