Alþýðublaðið - 11.07.1939, Page 1
Síldaraflinn hefir tvöf aidazt
á síðastliðnum sólarhring.
—--«-- í
Sflanw er nil þegar orðinn meiri heldur
en hann var á sama tfma f fyrrasumar.
-- ■ ■ ..
Löndunarstöðvun á Raufarhöfn og Húsavik
og yfirvofandi á Siglufirði, ef sama veiði helzt.
SÍLDARAFLINN er nú orðinn meiri en á sama tíma í
fyrra, og hefir hann tvöfaldazt á síðastliðnum sólar-
hring. Er síld um allan sjó vestan frá Húnaflóa og austur að
Langanesi.
Ríkisverksmiðjurnar í Siglufirði voru í dag, um kl. 10,
búnar að taka á móti um 70 þúsund málum, og tóku þær við
um 25 þúsund málum frá því í gærkveldi og þar til í morgun
-- frá 48 skipum. Biðu þó 12 skip við bryggju í morgun,
er Alþýðublaðið hafði símtal við fréttaritara sinn og höfðu
þau allmikinn afla.
Smyglaðar vðrur
austan fjalls.
SMYGLAÐAR vörur fann
Björn Bl. Jónsson löggæzlu-
maður nú um helgina, er hann
var staddur á Þjórsármótinu í
eftirlitsferð.
Hafði Björn Blöndal gert leit
í bíl, er þarna var, eign Bjarna
Guðmundssonar bílstjóra frá
Túr4 í (Hraungerði^hreppi og
fundið töluvert af smygluðum
sigarettum.
Varð þessi fundur til þess að
Björn Blöndal ásamt sýslu-
manninum í Árnessýslu gerði
leit heima hjá Bjarna, og fundu
þar mikið af sígarettum
og nokkuð af fatnaði. Hafði
Bjarni fengið þennan- varning
hjá Gísla Þorleifssyni kyndara
á Gullfossi.
"O YRSTA víðavangsboð-
hlaup, sem hér hefir
fram farið, var háð í gær-
kveldi. Unnu Ármenningar
hlaupið eftir mjög harða
keppni við K.R., og áttu 1500
metra hlaupararnir mestan
þátt x því.
Keppt var um Alþýðublaðs-
hornið, sem vinna verður þrisv-
ar sinnurn í röð, eða fimm sinn-
um alls til eignar. Var sigurveg-
urunum afhent hornið af Erl-
útgi Pálssyni, varaforseta Í.S.f.
Síldarverksmiðjurnar á
Húsavík og í Raufarhöfn
tilkynntu flotanum í gær-
kvöldi, að þær væru fullar
pg gætu því ekki tekið á
móti neinu fyrst um sinn. Er
þetta ákaflega bagalegt, því
að það hefir í för með sér,
að skipin verða að sigla til
Siglufjarðar, en það er 14—
16 tíma stím. Þá verða síldar-
verksmiðjurnar á Siglufirði
að hætta að taka á móti eftir
1—2 daga, ef sama veiði
helzt, sem allt útlit er fyrir.
Þátt tóku í boðhlaupunum
30 hlauparar, 15 frá hvoru fé-
lagi, og voru þeir eftirtaldir —
og hlupu í þeirri röð og þær
vegalengdir, sem hér segir:
1675 m.: Sigurgeir Ársæls-
son (Á.), Sverrir Jóhannesson
(K.R.). 800 m.: Gísli Kærnested
(Á.), Einar S. Guðmundsson
K.R.). 200 m.: Konráð Kristins-
son (Á)., Jóhann Bernhard (K.
R.). 150 m.: Einar Bjarnason
(Á), Sigurður Finnson (K.R.).
Frh. á 4. síðu.
Atli skipanna trð pvi i
gærmorgun.
Þessi skip löigðu upp afla frá
því í gær og þar til í morgun í
verksmiðjurnar á Siglufirði:
Grótta 450 mál, Vébjörn (tvisv-
ar) samtals 1000 mál, Vestri 400,
Valur 250, Unnur 400, Arthur &
Fanney 400, Gautur 200, Síldin
700, Bára 300, Ólafur Bjarnason
700, Sjöfn 400, Dagný 1600, Sæ-
finnur 1200, Sigríður 1200, Bjarki
1200, Hringur 800, Gloría 500,
Venus 850, Kári 300, Þórir 200,
Olivette 200, Jón Þorláksson 300,
Gyllir og Fylkir 120, Marz 300,
Bjamarey 1100, Erlingur I. og II.
700, Hannes Ióðs 350, Gyllir 500,
Freyja (með öðrum bát) 300,
Ámi Ámason 500, Veiga 200,
Snorri 450, Haraldur 500, Örninn
250, Sæbjörn 630, Stuðlafoss 250,
Björninn 600; Ágústa 300, Rifs-
nes 500, Björgvin 500, Ófeigur
650.
Til Rauðku hafa kornið: Pilot
,með 400 mál, Víkingur 280,
Freyja (áður Víkingur) 1000 mál.
Þá hefir og komið nokkuð í
Gránu.
I Djúpuvíkurverksmiðjuna lönd-
uðu í gær: Rán 1370 mál,
Tryggvi gamli 1800 mál og Kári
1600 mál. Fékkst þessi afli á
Þistilfirði. Þá hefir frétzt af eftir-
töldum togurum, sem ekki voru
komnir inn um hádegi í dag:
Baldur 1000 mál, Jón Ólafsson
1400, Garðar um 1400, Sirprise
1200 og Hilmir 11—1200.
Til Hjalteyrar hafa komið i
jnorgun þessi skip: Skallagrímur
1000 mál (var að landa), Þor-
íinnur og Gyllir samtals um
3000 mál, Gulltoppur 863, Hjalt-
eyrin 620, Fjölnir 805, Huginn
I. 577, Huginn II. 658, Huginn
III. 518, Jón Stefánsson 302, Jök-
ull 808, Minnie 540, Pétursey 639
og Sæhrímnir 775.
Alls hafði verksmiðjan tekið á
móti í morgun um 26 þúsund
málum, en á sama tíma í fyrra
21—22 þús. málum.
Verksmfðjan á Akranesi
byrjar sildarbræðslu.
Síldarverksmiðjan á Akranesi
byrjaði bræðslu síldar í dag kl.
Frh. á 4. síðu.
Frh. á 4. siðu.
Armann vann boðhlanpið
eftir harða keppni við H. R.
..---- -
Fimleikasýningarnar tókust prýðilega.
Sigurvegararnir í boðhlaupinu umhverfis Reykjavík í gærkvöldi,
frá vinstri til hægri: Brandur Brynjólfsson, Baldur Möller, Gísli
Kærnested, Konráð Kristinsson, Ólafur Símonarson, Sigurgeir
Ársælsson, Sigurður Halldórsson, Sigurður Nordahl, Guðmundur
Sigurjónsson, Þórhallur Einarsson, Hjörleifur Baldvinsson, Matt-
hías Guðmundsson, Bjarni Guðbjörnsson og Einar Bjarnason.
Á myndina vantar Gísla Sigurðsson.
Heræfingar við Aldershot á Englandi: Hermennirnir á bak við fallbyssu, sem er sérstaklega
til þess gerð að verjast skriðdrekum. Skriðdrekinn er á næstu grösum, eins og myndin sýnir.
Chamberlain tekur af allan
efa um afstöðu Englands.
—-.—.. ♦
Ylirmaður þýzka hersins og utanríkis"
ráðherrann I Berlfn sendlr i snmarfrf.
Undanhald í Danzigdeilunni eða herbragð eins
og þegar Göring fór til Ítalín í marz í vetur?
Frá fréttaritara Alþýðublaðsins. London í morgun.
'VTFIRLÝSING CHAMBERLAINS í enska þinginu í gær
um afstöðu Englands til deilunnar um Danzig, hefir
vakið gífurlegan fögnuð á Póllandi og almenna ánægju úti
um heim annars staðar en á Þýzkalandi, þar sem mikillar
gremju verður vart út af hinum skorinorðu ummælum brezka
forsætisráðherrans.
Chamberlain sagði, að tilraun af hálfu Þýzkalands til
að innlima Danzig, fæli í sér hættu fyrir sjálfstæði og til-
veru Póllands. „Og við erum ákveðnir í því“, sagði hann,
„að standa við skuldbindingar okkar og koma Póllandi til
hiálpar, ef sjálfstæði þess er ógnað“.
Það er nú álit margra stjórnmálamanna úti um heim, að þessi
yfirlýsing Chamherlains rnuni verða til þess, að Þjóðverjar sjái
sér þann kost vænstan að hverfa frá öllum ofbeldisfyrirætlunum
í Danzig fyrst um sinn. Sumir telja einnig, að yfirlýsingar, sem
gefnar voru út í Berlín um það í gærkveldi, að bæði Brauchitsch,
yfirmaður þýzka hersins, og Ribbentrop utanríkismálaráðherra
Hitlers, séu í þann veginn að fara í marga vikna sumarfrí, bendi
í sömu átt. En því er ekki treyst í London. Þar er á það minnt, að
Göring var látinn vera í fríi suður á Ítalíu, þegar Þýzkaland réð-
ist inn í Tékkóslóvakíu í marz síðastl. vetur og innlimaði landið.
Og hvað sem því líðúr, mun ekkert framar stöðva hinn gífur
lega vígbúnað sem nú fer fram nótt og dag á Englandi, Því að
England treystir engu öðru en honum til þess að halda árásarríkj-
unum í Evrópu í skefjum.
Fús til sátta eins og áð-
ur á samningsgrnndvelli
Þrátt fyrir hina skorinorðu yf-
irlýsingu sína var Chamberlain
eins og æfinlega áður hófsamur
í orðum og kvað fullkominn
möguleika vera á því, að taka til
endurskoðunar núverandi réttar-
stöðu Danzigborgar í friðsam-
legra andrúmslofti en nú væri
ríkjandi í Evrópu.
Forsætisráðherrann lýsti því þó
yfir sem áliti sínu, að réttarstaða
Danzig gæti eins og hún væri í
dag, hvorki talizt óréttlát né ó-
eðli'.eg, þótt vera kynni, að hægt
væri að gera einhverjar breyting-
ar á henni til bóta, Hann benti
á þaÖ, að þótt íbúar borgarinnar
væru flestir þýzkir, þá byggöist
fjárhagsleg afkoma hennar hér
Frh. á 4. síðu.
LONDON í morgun. FÚ
LU GMÁL ARÁÐUNE YTI
Bretlands og Frakklands
hafa gert með sér samning, sem
heimilar brezkum árásarflug-
vélum að gera langflugsæfingar
yfir Frakklandi. Æfingar þessar
Besteiro dæmdnr
í Madrid í gær í
30 ára jangelsi!
LONDON í morgun. FÚ.
CJ PÁNSKI jafnaðar-
mannaforinginn Best-
eiro, sem er 69 ára að aldri,
var í gær dæmdur af her-
rétti í Madrid í 30 ára fang-
elsi.
Hann var forseti varnarráðs
Madridborgar, hins síðasta, áð-
ur en borgin gafst upp.
Sakargiftir á hendur honum
voru þær, að hann hefði gegnt
embætti í þjónustu spönsku
lýðveldisstjórnarinnar og pré-
dikað kenningar jafnaðarmanna
í mörg ár.
Mál þetta er álitið nokkurs
konar tilraunamál um það,
hversu farið skuli með sakar-
giftir á hendur spönskum lýð-
veldissinnum.
hefjast í dag eða næstu daga, —
og verða alls sendar 200 stórar
árásarflugvélar til ýmissa staða
á Suður-Frakklandi, fullskipað-
ar mönnum og með farm, sem
samsvarar venjulegum sprengju
árásarbirgðum í flugvól.
Brezkar árásarflngvélareru
látnar æfa sig á Frakklandl.
—.-..<»..