Alþýðublaðið - 20.07.1939, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 20.07.1939, Qupperneq 3
ÞRIÐJUDAG 18. JÚLÍ 1939 ALÞÝÐUBLAÐIÐ ALÞÝÐUBLAÐIÐ RITSTJÓBI: F. R. VALÐEMARSSON. í fjarveru hana: STEFÁN PfiTURSSON. AFOREIÐSLA: ALÞÝÐUHÚSIN U (Inngangur frá Hverfisgötu). SÍMAR: 4900: Afgreiðsla, auglýsingar. 4901: Ritstjórn (innl. fréttir). 4902: Ritstjóri. 4903: V. S. Vilhjálms (heima). 4905: Alþýðuprentsmiðjan. 4906: Afgreiðsla. 5021: Stefén Pétursson (heima). ALÞÝÐUPRENTSMIÐJAN Ríkið á sviði UNDANFARNA DAGA hefir í sambandi við síldveiðarn- ar nokkuð verið um það rætt í flestum blöðum bæjarins, hvérn þátt ríkið hefir átt í hinum gíf- urlegu framförum á sviði síldar- útvegsins bæði með fjárhagslegu o,g skipula:gslegu framtaki sínu. En jafnvel þó að enginn muni treysta sér til þess að neita því, hverju Grettistaki ríkið hef ir lyft á þessu sviði atvinnulifs okkar, síðan byrjað var að byggja .og starfrækja ríkisverk- (smiðjur til síldarbræðslu, þá hef- ir það þó kornið greinilega fram í þessum blaðaumræðum, sem að vísu var vitað áður, að það eru ekki allir, sem líta þetta framtak ríkisins á sviði atvinnu- lífsins hýru auga. Pað hefir oft verið deilt um rikisrekstur og einkarekstur áður hér á landi, enda hefir hlutdeild uikisins í öllu afvrnnulífi þjóðar- irinar yfirleitt stöðugt verið að fara vaxandi hina síðustu ára- tugi. Það hefir ekki aðeins lagt vegi, byggt brýr, hafnir og keypt ekip bæði til siglinga meðfram ströndum landsins og til útiánda, heldur og tekið að sér banka- reksturinn, byggt verksmiðjur, stofnað og starfrækt einkasölur vg skipulagt að meira eða minna leytt öíl víðskíftí landsins við út- Iönd. Blöð stórkaupmanna og stór- útgerðarmanna, Morgunblaðið og Visir, hafa aldrei verið ánægð með þessa þróun. Þau hafa reynt að vekja andúð á henni með því að líkja öllu framtaki rjkisins á syiði atvinmireksturs og verzlun- ar við einokun dörisku kaup- mannanna hér á fyrri öldum, eða ógna mönnuni með þjóðnýting-. uhni, sósíalismanum eða ríkis- auðvaldinu, eins og þau nefna það nú upp á síðkastið, sem væri að halda innreið sína með þessari þróun. Þannig vár Morg- luriblaðið síðast í gær að tala um „þá hættu, sem vofir yfir okkar þjóðfélagi, ef áfranr verður hald- ið á þeirri braut, sem farin hefir verið undanfarið, að láta ríkiÖ sí og æ vera að teygja arrna sína inri á starissvið einstaklinganna pg gerast þannig keppinautur jþeirra, í stað þess að vera sam- starfandi ' þeim, styrkjandi og (leiðbeinandi.“ ÞaÖ er í sjálfu sér ekkert ó- skiljanlegt, þó að málgögn gróða- brallsstéttanna sjái nokkrum of- sjónum yfir þeim framtíðarmögu- leikum, sem tapast fyrir þær við hið vaxandi framtak ríkisins í at- vinnulífinu. En það verður á- reiðanlega ekki kveðið niður með neinum slagorðum um einokun, ríkisauðvald, þjóðnýtingu eða sósíalisma, því að það hefir ekki verið framkallað af neinum æs- ingamönnum eða óvildannönnum einkaframtaksins, heldur af knýj- andi nauðsyn þess, að ríkið hefð- ist handa um þær framkvæmdir sem einstaklingarnir höfðu annað fiVort gefist upp á eða fyrirfram vai’ augljósj að voru þeim um megn. Okkar land á enga langa auð- valdsþróun að baki sér, eins og svo mörg nágrannalönd okkar eiga, og þar af leiðandi enga auð uga borgárastétt, sem væri fær um að byggja upp atvinnulíf landsins, eins og; búið er að gera í þeim- LandiÖ hefir verið fátækt og enginn haft efni á því, að ráð- ast í stærri framkvæmdir öðru vísi en með lánsfé frá útlöndum, sem ekki hefir verið hægt að fá nema fyrir ríkið eða með trygg- ingu þess. Það er því alls engin tilviljun, að framtak ríkisins og hlutdeild þess í öllum stærstu framkvæmdum þjóðarinnar á sviði atvinnulífsins hefir orðið öll önnur og meiri hér hjá okkur en víða annars staðar. Það er þróun, sem var óumflýjanleg, ef þjóðin átti að geta tileinkað sér tækni og menningu nútímans. Hitt er svo annað mál, að ríkið myndi vissulegá aldrei hafa leyst þetta hlutverk af hendi eins og þörf var á, ef það hefði ekki staðið undir áhrifum sterkrar alþýðu- hreifingar bæði til sjávar og, sveita. Menn geta kallað þetta franúak þess hvort heldur ein- okun og ríkisauðvald, eða þjóð- nýtingu og sósíalisma, eins og borgaralegu blöðin hjá ökk- 'ur. En slík slagorð hafa ekk- ert gildi gagnvart þeirri stað- reynd að þessi þróun hefir skap- azt af knýjandi nauðsyn. Þess var getið áðan, að afstaða borgaralegu blaðanna til þessarar þróunar væri þrátt fyrir allt ekki óskiljanleg. Það er aftur á móti afstaða Þjóðviljans, sem þykist vera vcrkamannablað. Að sjá i því blaði framtaki hinnar skipu- lögðu þjóðarheildar, ríkisins, líkt við einokun dönsku kaupmann- anna hér á fyrri öldum, rétt eins og í íhaldsblöðunum, er ömur- legur vottur um skilning komm- únista eða öllu heldur skilnings- leysi á þeirri þ'róun, sem fram er að fara fyrir augum þ'eirra! Og einkennilegt má það virðast, ef lesendum Þjóðviljans kemur það ekkert kynlega fyrir sjónir að kommúnistar skuli nú lepja upp eftir málgögnum stórkaup- rnanna og stórútgerðarmanna slagorðin, sem þau hafa beitt fyr- ir sig í baráttunni gegn framtaki þjóðféíagsheildarinnar frá upp- hafi og fránr á þennan dag. Bókanir mfinar og bull Morgunblaðsins. Eftir Finn Jónsson. MORGUNBLAÐIÐ hefir und- anfarið verið. að reyna að sannfæra menn um þá bábilju, að ég hafi verið á móti því að reisa síldarverksmiðju á Raufarhöfn, og þó einkum því, að hún yrði 5000 mál að stærð. Þessu hefir blaðið haldið frani, eftir að það hafði birt leiðrétt- ingu frá Sveini Benediktssyni um hið gagnstæða, og reynir það að færa sönnur á sitt mál með því, 'að birta kafla úr nefndaráliti mínu og hr. Þ. Egilssonar er við sendum sjávarútvegsnefnd efri deildar alþingis 20. nóv. 1937. í áliti þessu leggjum við til, að reist verði þá þegar 2400 mála verksmiðja á Raufarhöfn, „sem mætti stækka, ef þörf krefði, í 5000 mála vinnslu“. Fulltrúi Fiamsóknar í verksmiðjustjórri, hr. Þorsteinn M. Jónsson, taldi sig þá ekki geta fylgt þessurn tillögum urn að reisa verksmiðju á Raufarhöfn, en lagði til, að at- huguð yrðu skiiyrði til verk- smiðjubyggingar á Þórshöfn. Við, hr. Þórarinn Egilsson Teiddum í álitinu athygli að því, að tími væri nokkúð naumur til þess að koma upp fullkominni verksmiðju fyrir síldarvertíðina 1938, en við vorum þá bunir að Undirbúa og fá tilboð í vélar 'tií þess að bæta við 2400 mála vinnslu í SRN . verksmiðjunni á Siglufirði. Töldum við þá stækk- un framkvæmanlega fyrir vertíð- ina og óskuðum eftir að fá að gefa sjávarútvegsnefndinni upp- lýsingar um hana. Áðalflutningsmaður frumvarps- ins var hr. Jóh. Þ. Jósefsson. Þegar hann hafði athugað rnálið nánar, flutti hann, ásamt öðrurn meðnefndarmönnum sínum í sjávarútvegsnefnd efri deildár, tillögu Um að breyta frumvarpinu um Raufarhafnarverksmiðjuna í það horf, sém það var samþykkt i, og tók þar upp tillögu okkar Þ. E. um 2400 ■ máía- stækkun á Siglufirði. Hr. Jóh. Þ. Jösefsson lýsti ástæðunum fyrir . þessari breytingartillögu sinni í ræðu á alþingi, og ætti Morgunblaðið að Hraðferðlr B. S. A. Átlá daga nema mánudaga. um AJsranes og Borgarnes. -— M.s. Laxfoss annast sjó- leiðina. Afgreiðslan í Reykjavík á Bifreiðastöð ís- ] lands, sími 1540. Bifreiðastðð Ákureyrar. Hraðferðlr Stelndórs \ <■ -1. T...' • M'itt r ... .... , : ' .... til Akureyrar um Akranes eru: Frá Reykjavík: Alla mánud., miðvikud. og föstud. Frá Akureyri: Alla mánudaga, fimtud. og laugardaga. Afgrelðsla okkar á Akureyri er á bif^ relðastöð Oddeýrar, sími 260. M.s* Fagranes annasf sféleiðina. Nýjar upphitaðar bifreiðar með útvarpi. Blfrelðastðð Stelndðrs Símar: 1580, 1581, 1582, 1583, 1584. kynna sér hana. En eftir orð- bragði blaðsins að dæma við mig, myndi það segja, að þessi ágæti flokksmaður þess hefði ve.ið með „hrfnglandaskap" og „stangazt" víð sínar eigin skoðanir. Þetta er vitanlega alveg rangt, því að frumvarpið gerði einmitt ráð fyrir stækkun, eins og það var samþykt. Auk þess ætti Morguoblaðið að gæta þess, að þessi 2500 mála aukning á Siglufirði er þó eina aukningin, rem gerð hefir verið á ríkisverk- smiðjunum síðan SRN verk- smiðjan var reist, einnig eftir mínu frumkvæði. Báðar þessar verksmiðjur hafa komið að miklu gagni, og kernur því úr hörðustu átt, að blað, er telur sig „mál- svara“ útvegsins, skuli vera að kasta hlútum að þeim, er mest hafa unnið að því, að koma þeim áleiðjs. Ég er að vísu ýmsu van- ur af hálfu Morgunblaðsins og kann ekki við mig, nema ég fái þaðan smá orösendingar öðru hvoru; en óþarft ætti að vera fyrir blaðið að snoppunga sína eigin menn, til þess að gera mér þetta til geðs- Fyrir hönd útvegsmanna tel ég þá aukningu síldarverksmiðjanna, sém framkv.æmd er, meira virði en stórar heimildir, sem ekki eru riotaðar. Ég álít, að á Raufar- höfn eigi að reisá stóra síldar- verksmiðju, og þess vegna flutti ég á vorþingi 1937, ásamt hr. Gísla Guðmundssyni, þingsálykt- unartillögu um að rannsaka möguleika fyrir dýpkun hafnar- inri'ar á Raufarhöfn, einmiít með það fyrir augum, að þar yrði reist gtór síldarverksmiðja. Síðar, 1 þegar fyrir lá,. aö auð.velt og ó- dýrt er að dýpka þar höfnina, útyegaði,,ég. milli þinga yfirlýs- ingu frá þingflokki Alþýðuflokks- ins um að hækka heimi.ld.ina. sem hr. Jöh. Jósefsson hafði breytt aftur upp í 5000 mál. Og ég held, að hr. Jóh. Jósefsson hafi gert það sama í sínuni fiokki. Ennfremur flutti ég þá með hr. Gísla Guðmundssyni frumvarp til hafqarlaga á Rauf- arhöfn, enn með stóra síldar- verksmiðju fyrir auguin. Síðan hefi ég gert allt, sem í inínu valdi hefir staðið til þess, að fá ríkisstjórnina til að nota heimildira til verksmiðjubyggirig- byggingar á Raufarhöfn. Þegar þetta er athugaö, vérður að teljast mesta furða, ef Morg- unblaðið heldur að það geti talið heilvita niönnum trú um, að ég hafi verið á móti verksmiðju- byggingu á Raufarhöfn, eftir allt það, er ég hefi gert til þess að reyna aö koma málinu í fram- kvæmd og undirbúa það, m. a. með þv íað leggja tiþ-'að skilyrði til hafnarbóta á. Raufarhöfn yrðu rannsökuð’ og með flutningi hafnarlaga. ■En þetta er rpunar ekki nema eitt af ótal undrum Morgunblaðs- ins. >. Finnur Jónsson. Fýrirspurn frá verkamanni við höfnina. MÉR hefir komið til hugar að bera fram í Alþýðu- blaðinu fyrirspurn urn skilning á p. gr, í samningi, er gildir milli Verkaniannafélagsins Dagsbrún- ar og Vinnuveitendafélags íslands. Greinin hljóðar svo: „Kaffitím- ar séu kl. 9—9,30 fyrir hádegi og kl. 3—3,30 e. h., og sé unnin eftirvinna: kl. 6—6,30 e. h. Kaffitímar, sem faíla inn I vinnu- tímabil, reiknast sem vinnutímar, tog sé unnið í þeim, reiknast til- svarandi lengri tími sem unninn. Nú vinnur maður aðeins vinnu- tímabil, sem feilur utan kaffi- tíma, og skal honum þá greitt ,tímakaup með 10°/o álagi á kaup- taxta þann, er greinir í næstu grein. Matarttmi skai vera frá kl. 12 á hádegi til kl. 1 e. h., og reiknast hann ekki með vinnu- tímanum." Skilningur á framkvæmd þess- arar greinar mun vera með ýms- um hætti. Hér skulu tekin dæmi: Vinna hefst kl. 9,30 og unnið óslitið til kl. 18, að frá dregnum miðdags- tíma, Vinnutímar samtals 71/2 klst.; í því er kaffitími kl. 3 —3,30, Eða: Vinna hefst kl. 7 og unnið óslitið til kl. 15. Samtals 7 klst., að frádregnum miðdagstíma. 1 þéim tíma er kaffitími kl. 9—9,30. Hvemig ber þá að reikna kaup verkamannsins? Allmargir atvinnurekendur reikna í báðum tilfellum alla tímana á kr. 1,45. En aðrir !reikna í fyrra dæminu tímana frá kl. 9,30—12 á kr, 1,6Ó,’þar sem enginn kaffitími var veittur, og í hihu dæminu timana kl. 13—15 sama verði. Hér- er um 15 aura á tíma að ræða, sem mér skilst að verka- maður missi af hinum umræddu tímum hjá þeim atvinnurekend- um, sem reikna alla tíma jafna. Við höfnina við fermingu og affermingu skipa vill oft svo til, að vinna hefst kl. 9,30, og mjög oft er henni lokið kl. 15. Við byggingavinnu og aðra hlaupa- vinnu utan hafnarinnar getur þetta einnig átt sér stað. Við verkarhenn, ýirisir, höfum orðið þessa varir, að mikils ó- samræmis gætir í þessum efnum. Hins vegar verðum við að játa, að menn eru tregir til stórræð- anna, að kvárta. Því að nokkur ótti rikir hjá mörgum, að á þeim kunni að bitna slík kvörtun, og þeirverði settir hjá við. vinnu. Hins vegar verður að ætlast til þess, að hinir mörgu launuðu trúnaðar- menn hjá Dagsbrún ættu fyrir löngu að vera búnir að segja til um, hvaða reglu atvinnurek- endum ber að fýlgja. Þar sem ég lít svo á, að samn- ingana beri að skilja á þann veg, að greiða skuli kf. 1,60 fyrir þá tíma, sem fálla inn á vinnutíma- bilið með hálftíma kaffi, þegar kaffitími er ekki veittur; þá mun- ar það okkur verkamennina miklu, sem alla jafna eigum að búa við fáar vinnustundir. 'Fyrirsþurn mín beinist að því, hvort minn skilningur sé réttur eða rangur. Verkamaður við höfnina. JON GUÐMUNDSSON. son frá Gufuda 50 ára idag. T. ÓN GUÐMUNÐSSON aðal- Á' endurskoðandi ríkisins, sem nú gegnir skrifstofustjóraembætt- inu ; í viðskiptamálaráðuneytinu, ier fimmtugur L dag. Jón Guðmundsson er tvímgela- laust kunnasti endörskoðandi á landinu, Hann tók gagnfræðaprpf frá Akureyri .1911, Næstu árin á eftir lagði hann stund á kennslu á Húsavik, en síðan .gerðist hann starfsmaður við skrifstofu Kaup- félags Þingeyinga. 1918, rétt eftur að Samband íslenzkra samvinnu- félaga setti upp skrifstofur sinar, réðist hann til þéss 'sem endur- skoðandi og eftirlitsmaður kaup- félaganna- Fór hann tvisvar sinn- um utan, til Danmerkur, til að fullnuma sig í starfi sínu og, kynna sér nýjuftgar i' endurskoö- un og bókfærslu. Þá- hefir hann Ög í. mörg ár verið’ bókfærslu- , kennari við Sanrvinnuskólann. 1931 var hann ráðinp aðalendur- skoðandi ríkisins, o.g féll það í hans verkahring, að framkvæma hTð nýja reikningsfyrirkomulag rikisins, eftir að því var breytt. — í vor tók hann við starfi, sem skrifstofustjóri í- viðskiptamála- ráðuneytinu. Jón Guðmundsson er elzti son- ur hinna landskunnu hjóna, séra Guðmundar í Gufudal og Re- bekku Jónsdóttur. ,Hann er bróð- ir Haralds , Guðmundssonar og (þeirra systkina, en þau eru mörg. Jón er kvæntur Ásgerði Guðmundsdóttur, og eiga þau tvö börn. Þ.au búa á Smára- götu 9. Alþýðublaðið öskar Jóni til hamingju á fimmtugsafmælinu í dag. arsund í gær. Haukur Einarsson synti vega- léngdina á 1,47 klukkustund. IIAUKUR EINARSSON synti i gær frá Sund- helli í suðvesturtanga Viðeyj ar að Steinbryggjunni. Vega- lengdina, sem er 4,5 km. löng, synti Haukur á 1.47 klukkustund, og er það bezti tími, sem náðst hefir á bringu sundi á þessari vegalengd, en metið á Pétur Eiríksson, 1.30 klukkustund. Það, sem einna eftirtektarverð- ast er við þetta langsund Hauks er, að hann synti algerlega smurningslaus, en það hefir eng- inn gert á undan honum og hefir aldrei verið álitið fært, því þetta sund hans með tilliti til þess. teljast mjög frækilegt, Frh. á 4. síðu.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.