Alþýðublaðið - 27.07.1939, Page 1

Alþýðublaðið - 27.07.1939, Page 1
ALÞÝÐUBLAÐIÐ imnte: F. R. VAJLÖKMARSSON xx. Amamrs FIMMTUDAG 27. JÚLÍ 1939 170. TÖLUBLAÐ Söngrstjórinn Martin Lidstam. Frægur sænskur karlakór kentur nlngað 4. ágúst. EARLAKÓR K. F. U. M. irá Stokkhólmi kemur hingað föstud. 4. ágúst með skemmti- ferðaskipimi Drottningholm, sem kórínn hefir leigt í fer'ðina. Fer kórinn fyrst til Skotlands og heldur þar söngskemmtanir og syngur í útvarp, kemur síðan hingað til Reykjavíkur, heldur hér einn samsöng og fer síðan til Bergen, þar sem kórinn hefir einnig samsönjg. Með skipinu verður um 600 manns frá Svíþjóð. Kemur það hingað um morguninn kl. 8. Ætla gestirnir til Þingvalia og aðrir til Gullfoss og Geysis. Um kvöldið verður samsöngur í Gamla Bíó kl. 19,30, 'og á eftir verða meðlimir kórs- ins ásamt konuin þeirra í boði, sem Norræna félagið gengst fyr- ir að Hótel Borg. Um kvöldið kl. 24 fer svo skipið af stað. Karlakór K. F. U. M. hefir sungið allmikið opinberlega í Svíþjóð og fengið mjög- góða dóma. I kórnum eru 70' manns. Einn af ágætustu fiðluleikurum Svíþjóðar, Sven Kaper, er með Frh. á 4. siðu. FnllMafundnr Alpjðnflokkanna og AI- pýðnsambandanna hðf stðrf sln I gær. -----*--- Fulltrilar Alþýðuflokksiras og Alkýðusamkaradslns hér eru Stefán Jéh* Stefánsson, MaraMur Ouð* raiundsson, Jén A. Pétursson og Sigurfén Ólafsson. C AMVINNUNEFND Al- ^ þýðuflokkanna og Al- þýðusambandanna á Norður- löndum hélt fund allan fyrrihluta dagsins í gær í skrifstofu Alþýðusambands- ins í Alþýðuhúsinu. Síðdegis í gær voru engir fundir, enda sátu fulltrúarnir veizlu ríkisstjórnarinnar, og hún stóð til kl. 5. í gærkveldi hafði Stauning forsætisráð- herra boð fyrir Alþýðu- flokksmenn í danska sendi- herrabústaðnum. Á fundi samvinnunefndar- innar í gærmorgun var lagður grundvöllur að starfi fulltrúa- fundarins. Fulltrúarnir gáfu skýrslur um sameiginleg áhuga- mál — og töluðu fyrir hönd íslenzku fulltrúanna, Stefán Jóh. Stefánsson og Haraldur Guðmundsson, en hinir ís- lenzku fulltrúar eru auk þeirra, Sigurjón Á. Ólafsson formaður S j ómannaf élags Reykj avíkur * og Jón Axel Pétursson formað- ur Stýrimannafélags íslands. Ritari fulltrúafundarins er Ingimár Jónsson. í dag er eng- inn fundur í nefndinni, vegna þess, að hinir erlendu fulltrúar fara úr bænum, en fundur verð- ur hins vegar allan daginn á morgun. Á þessum fundum samvinnu- nefndar Alþýðuflokkanna og Al- þýðusambandanna á Norður- löndum, sem nú eru í fyrsta Fyrsti leikur íslandsmétsins: K. R. tann Fram með 5:2. I kv$M keppa Valur og Víkingur. FYRSTI leikur Islandsmótsins fór fram í gærkveldi í á- gætis veðri og að fjölda áhorf- enda viðstöddum. Leikurinn var skemmtilegiur og vel leikinn framan af, en versnaði, er á leið. Markatalan var 5:2, en 3:2 í fyrri hálfleik. Voru sóknir K. R.- inga hættulegri og mark Fram 'oftar í hættu, enda þótt Framar- ar ættu töluvert í leiknum, sér- staklega fyrri hluta seinni hálf- leiks. Bæði liðin léku ágætlega, og kemur nú þjálfun þeirra Brad- tmrys og Lindemanns í ljós. I liði Framara voru þeir Högni og Jörgensen beztir, þótt margir væru góðir, og áttu þeir' sinn þátt í því, að niörg ágætlega skipulögð upphlaúp voru geóð á K. R. markið, enda þótt flest þeirra brotnuðu á vörn K. R - inga, þar sem Schram lét að vanda mikið til sín taka. I lok fyrri hálfleiks varð markvörður Framará, Gunnlaugur, að fara út af vegna smávegis meiðsla, og kom Magnús Kristjánsson ’inn í stað hans. Breytingin á K. R.-liðinu gafst vel, því að Óli B. og Hafliði léku vel, sérstaklega Óli, en Hafliði er ekki kominn yel inn í liðið enn þá. Skúli er bersýnilega ekki í æfingu, og Birgir lék ágætlega, en hann þarf að temja skap sitt betur, því að honum hættir við að verða of æstur. Anton er góður í mark- inu, en óviss á, hvenær hann á að hlaupa út úr því. GuÖjón Einarsson dæmdi í stað J. Divines. Vísaði hann Sæmundi út af fyrir að mótmæla gerðum dómarans. Er það á valdi Knatt- spyrnuráðsins, hve lengi hann er úr (hvort það er aðeins þennan leik eða mótið allt), að því er Guðjón sagði. Síðast í leiknum meiddist Jörgensen allilla við höfuðhögg. Var hann fluttur í Landsspítalann. Leið honum sæmilega síðast, þegar til frétt- ist. Fyrsta markið setti Fram á fyrstu mínútu leiksins. Setti Jör- Frh. á 4. síðu. Ræðan er birt á 3. síðu blaðsins í dag. Norræna félagið ákveðnr ankna samvinnu við fsland Norrænt blaðamannamót hér næsta ár Sampykktir fulltrúafundarins* sinni haldnir hér á íslandi, eru rædd ýms sameiginleg áhuga- mál þessara samtaka. Öllum er kunnugt um það, að Alþýðu- flokkarnir eru allir í Alþjóða- sambandi jafnaðarmanns og að alþjóðleg samvinna er eitt aðal- merki jafnaðarstefnunnar. — Þetta kemur og fram í' sam- vinnu Alþýðuflokkanna á Norð- urlöndum. Þeir hafa og einmitt nú, þegar Evrópa er eins og flakandi sár, mikla sérstöðu, því að alls staðar á Norðurlöndum eru þeir við völd eða þeir hafa mikil áhrif á opinbera stjóm- málastefnu þeirra. Þó að sam- tökin í hverju landi fyrir sig séu algerlega sjálfstæð um öll sín mál og Alþjóðasamband jafnaðarmanna hafi aldrei geíið flokkum sínum neinar fyrir- skipanir um innanlpndsmál, þá hafa flokkamir fjölda mál sameiginleg og þá ekki sízt flokkarnir á Norðurlöndum, — sem allir fylgja sömu stjórn- málastefnu, byggja að öllu á sama grunni og beita sömu að- ferðum í baráttu sinni fyrir j afnaðarstefnunni. Öll þessi sameiginlegu mál eru rædd á samvinnunefndar- fundinum hér, og það gleður okkur íslendinga auðvitað, að samstarf okkar flokks er orðið svo náið við þessa bræðra- flokka, að fundir nefndarinnar eru haldnir hér að þessu sinni. Komraúnistar verða sér enn á ný til skammar. Kommúnistum er bersýnilega ekki nóg að vera búnir að verða sér til skammar í sam- bandi viö heimsókn hinna dönsku, norsku og sænsku Al- þýðuflokksfulltrúa, með því að drótta því að Stauning og Hed- toft-Hansen, að koma þeirra stæði í einhverju sambandi við þýzku kafbátana og ætti að styðja einhverjar fyrirætlanir þýzku nazistastjómarinnar hér. Nú hefir sú sakargift að vísu verið látin niður falla, en í stað Frh. á 4. síðu. "O RÁ Norræna félaginu hér hefir Alþýðublað- inu borizt eftirfarandi skýrsla um störf fulltrúa- fundarins og niðurstöður. Skýrslan er nokkuð stytt. Stefán Jóhann Stefánsson var kosinn fundarstjóri. Fyrir fund- inum lágu 10 mál, sem öll höfðu verið vandlega *undirbúin i stjórn hvers félags og framsögu- ræðurnar sendar fulltrúunum löngu fyrir fundinn, svo að þeim gæfist tóm til að athuga málin og taka afstöðu til þeirra í samráði við stjórnir félaganna. Fyrsta mál á dagskrá var um kennaraskipti á Norðurlöndum, og hafði Guðlaugur Rósinkranz framsögu. Næst var tekin til umræðu útgáfa félagsblaðs í hverju landi, og hafði Chr. H. Olesen framkvæmdastjóri framsögu í því máli. Norska félagið hefir þegar hafið útgáfu slíks blaðs, og taldi fundurinn æskilegt’ að hin félögin færu að dæmi þess. Hið sameiginlega ársrit félag- anna, „Nordens Kalender“, skyldi þó gefið út sem áður. Þá hóf Harald Grieg fram- kvæmdastjóri máls á, að félögin efndu til umferðalistasýningar, sem væri endurtekin með á- kveðnu millibil og færi um öll löndin á einu ári. Hann benti á Hý sprenging i London varð einnm manni að bana i gær. írski lýðveldisheriim enn að verki. E LONDON í morgun. FÚ. INN maður er látinn af völdum sprengingar, er varð í farangursgeymslu King’s Crossjárnbrautarstöðvarinnar í London í gær. Er þetta annað mannslátið af völdum þeirra hermdarverka, sem írski lýð- veldisherinn hefir framið á Eng- landi, Fyrir nokkrum mánuðum beið maður bana af völdum sprengingar í Manchester. En maður sá, sem látinn er af völd- um sprengingarinnar í London, var frá Edinburgh og var að koma til Lundúnaborgar í sum- arleyfi ásamt konu sinni. Hún liggur nú í sjúkrahúsi vegna meiðsla, sem hún hlaut af völd- um þessarar sprengingar. Við sprenginguna á King’s Crossjárnbrautarstöðinni í gær lék öll stöðvarbyggingin á reiði- skjálfi, og fólk, sem var á ferli þarna nálægt, varð fyrir meiðsl- um af rúðubrotum og spýtna- rusli, Sagt er, að klæði hafi nærri því svipzt af tveim kon- um og einum karlmanni, sem stödd voru í nánd við staðinn, þæ: sem sprengingin varð. Menn ætla, að sprengja í tengslum við vekjaraklukku hafi verið látin í handtösku og henni komið fyrir til geymslu í farangursgeymslunni. Jenny Kammersgaard. Gáfiist allar npp nema Jenny. Sally Bauer var homin mjog nálægt marki. Kaupm.höfn í gærkveldi. FÚ. g EX AF HINUM sjö sund- konum, sem lögðu af stað yfir Eystrasalt á suncli, — hafa nú gefizt upp, og ér þá Jenny Kammersgaard ein eftir. Sænska sundkonan Sally Bauer gafst upp síðust, og var þá komin mjög nálægt marki. ágætan árangur af slíkum sýn- ingum í Oslo, Stockholm og Kaupmannahöfn og taldi þær mikilsverða kynningarstarf- semi. Fulltrúarnir voru allir hlynntir þessu máli og sam- þykktu tillögu í því. Þá var og rætt um umferða- sýningar á list í skólum, og hafði Harald Grieg einnig fram- sögu í því máli. Við umræðurn- ar kom í ljós, að á öllum Norð- urlöndum nema íslandi höfðu verið gerðar tilraunir með þess háttar sýningar. Fundurinn samþykkti einnig tillögu í því máli. Samvinna íslands og hinna N orðurlandanna. Næst var tekin til .umræðu samvinna íslands og hinna Norðurlandanna. Hafði, fyrrv. forsætisráðh. Noregs, Mowinc- kel, framsögu í því máli. Hann vakti athýgli á sérstöðu íslands um legu og mál og taldi æski- legt að hinar þjóðirnar fylgdust betur með því, er gerðist á ís- landi. Nauðsynlegt væri að koma á fót kennslu í íslenzkri tungu og bókmenntum við nor- ræna háskóla. Meira þyrfti að gera til að kynna ísland í hin- um löndunum, því að nú væri t. d. ómögulegt að fá upplýsing- ar um ísland í norskum bóka- búðum eða ferðamannaskrif- stofum; það væri engin bók eða ritlingur til um það efni á nor- rænum málum, og þó gæti ís- land án efa keppt við Noreg sem ferðamannaland. Mowinc- kel gat síðan um ýmsa sjóði, er leita mætti til um styrk til þess- arar starfsemi, og fór síðan nokkrum orðum um samvinnu Norðurlanda yfirleitt. Hann lagði áherzlu á það, að norrænu félögin tækju ekki upp mál, sem væru stjórnmálalegs eðlis og valdið gætu sundurþykki. Guðlaugur Rósinkranz flutti síðan framsöguræðu um dvöl erlendra námsmanna, þeirra, er stunda nám í norrænu við há- skóla íslands, og Stefán Jóh. Stefánsson flutti erindi um gagnkvæman rétt til emhætta við háskóla og vísindalegar stofnanir. Bramsnæs bai'kastjóri benti á, að samvinna í háskólamálum væri meiri með Dönum og ís- lendingum en annars staðar á Norðurlöndum, og hefði Dan- mörk gert mikið í þessu skyni. Hann kvað dönsku fulltrúana fúsa að styrkja alla viðleitni til aukinnar samvinnu við ísland. Fulltrúar Svíþjóðar og Finn- lands tóku í sama streng og minntust meðal annars á nauð- syn á útgáfu orðabóka og kennslubóka í íslenzku. Antell skrifstofustjóri skýrði frá því, að norræna félagið 1 Finnlandi væri mjög hlynnt því, að veittir yrðu styrkir finnskum náms- mönnum til dvalar á íslandi og jafnvel að styrktir yrðu menn til að kynna sér sérstaklega ís- lenzk samvinnufélög. Dr. phil. Kaper benti á nauðsyn þess að gæta vel hins sameiginlega meriningararfs norrænu þjóð- anna, er íslendingar hefðu geymt, einkum nú, er erlendar þjóðir, sem að lífsskoðun stæðu fjarri norrænu þjóðunum, væru farnar að eigna sér hann. Eftir langar umrsfeður sam- Frh. á 4. síðu.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.