Alþýðublaðið - 29.07.1939, Side 1

Alþýðublaðið - 29.07.1939, Side 1
EITSTJéBI: P. B. VAJLDEMARSSÖN ímmWiÆWh ALÞÝmJFLOEKCBENN XX. áSÖAMCim LAUGARDAG 29. JÚLI 1939 172 TOLUBLAÐ Sildarútvegsnefnd búin að selja 100 pús. tunnur af sild. ---4—i- Sðlumðgulelkarnir eru betri en í lyrra og verðið heidur hserra en þá Msar verða aýp ] staðirnir reistir? Bœjarráðið hefir enn ekki tekið ákvorðnn. FYRIR bæjarráðsfundi — sem haldinn var síðdegis í gær, lá fyrir beiðni frá Byggingarfé- lagi verkamanna um stað undir nýja verkamannabú- staði. Hafði félagið farið fram á, að fá stað undir um 100 íbúðir á Melunum, við Hringbraut, milli kirkj ugarðsins og íþrótta- vallarins. Og til vara sótti félagið um stað í Sunnu- hlíðarholtinu. Því miður gat bæjarráð ekki afgreitt málið, en vís- aði því til bæjarverkfræð- ings til athugunar. Enn er því alls ekki vit- að, hvar hinir nýju verka- mannabústaðir verða reist- ir, og því miður er ekki 1; hægt að byrja á teikning- um bústaðanna, fyrr en staðurinn hefir verið á- kveðinn. Þetta seinlæti er mjög bagalegt, því að menn bíða eftir atvinnunni við bygg- ingarnar og fjöldi manna bíður með óþreyju eftir því, að byrjað verði á bygg- ingunum, svo að íbúðirnar verði tilbúnar næsta vor. En stjórn Byggingarfélags verkamanna hefir gert allt, sem í hennar valdi hefir staðið, til að hraða fram- kvæmdum, og meira er ekki hægt að krefjast af henni. Viðtal við Finn Jónsson for- mann Sf ldartitvegsnef ndar A LÞÝÐUBLAÐIÐ snéri sér í morgun til Finns Jónssonar alþingismanns, formanns Síldarútvegsnefnd ar, og spurði hann um sölu á síldarafurðum og útliti fyrir sölu, en erindrekar Síldarút- vegsnefndar, þar á meðal Er- lendur Þorsteinsson alþing- ismaður, eru nýkomnir heim úr söluferð erlendis. — Hvernig hefir salan til Bandaríkjanna tekizt? „Vilhjálmur Þór bankastjóri,“ sagði Finnur Jónsson, ,,hefir eins og kunnugt er, dvalið all- lengi í New York undanfarið. Hann hefir undanfarin þrjú ár séð um síldarsamninga fyrir Síldarútvegsnefnd í Ameríku, og hefir hann nú einnig gert samninga um sölu á síld þang- að. Stóðu samningaumleitanir nokkuð lengi, en 7. þessa mán- aðar voru undirritaðir samning- ingar milli Vilhjálms Þórs ann- ars vegar fyrir hönd Síldarút- vegsnefndar og „Vita food Company“ hins vegar, sem er stærsta síldarsölufirmað í New York, um kaup á 30 þúsund tunnum af síld, hér af 22500 tunnur matjessíld og 7500 tn. Faxasíld.“ — Eru samningarnir hag- kvæmir? „Verðið er svipað 1 dollurum og síðastliðið ár, og yfirleitt er hægt að segja, að samningarn- ir séu hagkvæmir fyrir okkur.“ — Og salan til Póllands og Þýzkalands? „Alþingismennirnir Erlendur Þorsteinsson og Jóhann Þ. Jós- efsson hafa undanfarið verið á ferð í söluerindum fyrir Síldar útvegsnefnd. Gerðu þeir samn- inga um sölu á matjessíld til Þýzkalands, 37500 tunnur, til Póllands 30 þúsund tunnur, og til annarra landa 2000 tunnur. Alls þefir Síldarútvegsnefnd þannig selt fyrirfram um 100 þúsund tunnur af síld. Verðið til allra þessara landa er nokkru hærra en síðastliðið ár, miðað við sterlingspund.“ — Er salan til Ameríku meiri eða minni en í fyrra? „Gerðir voru samningar um meiri sölu þangað í fyrra, en Frh. á 4. síðu. Entfin sííd tii Sigln- fjarðar siðasta sól- arhring. "K' KKERT skip hefir komið tii Sigluf jarðar síðastliðinn sól- arhring. f gær og nótt voru salt- aðar á Siglufirði 200 tunnur af reknetasíld. I fyrra um þetta leyti var búið að salta é landinu alls 56 299 tunnur. Á Djúpuvík voru saltaðar í nótt 331 tunna og er þá alls bú- ið að salta þar 636 tunnur. En kafþoka er yfir vesturmiðunum. Til Djúpuvíkur komu í gær og nótt Jón Ölafsson með 162 tunnur, Þór með 88, Surprise 19, Hafsteinn 46 og Kári með 16 tunnur. Sðpðu Bandarikii upp við- skiptasamningnui við Jap- an að nndlrlagi Bretlands? Líknr taldar til, að England gripi tll sömn ráðstafana, ef pörf gerist LONDON í gærkveldi. FÚ. ILONDON er litið svo á, að það hafi ekki komið brezku stjórninni algerlega á ó- vænt, að Bandaríkjastjórn tók þá ákvörðun að segja upp við- skiptasamningunum við Japan. Hins vegar mun brezka stjórnin ekki hafa búizt við uppsögn samninganna nú þegar. Upp- sögn þessara samninga er talin frekri sönnun fyrir því, að Bretar og Bandaríkjamenn hafi samræmt sjónarmið sín að því er tekur til Austur-Asíu og leiðir beggja liggi að sama marki. I London er talsvert um það rætt, hvort Bretar muni grípa til svipaðra ráðstafana og Banda ríkjamenn til verndar réttind- um sínum og hagsmunum í Kína. Athygli er leidd að því, að Bretland hafi einnig gert við- skiptasamninga við Japan. En þótt TÍkisstjórnin sé fráhverf því að gera nokkuð, sem spillt gæti samkomujagsumleitunum í Tokio, hafa þær skoðanir kom- ið fram í London, að til svip- aðra ráðstafana myndi verða gripið, ef nauðsynlegt reyndist. Japauir (á nokkrar sára- bætur I Berlín. LONDON í morgun. FÚ. Nýr viðskiptasamningur milli Þýzkalands og Japans var í gær undirritaður í Berlín, að undangengnum 1 8 mánaða samkomulagsumleitunum, Samkvæmt hinum nýja samningi munu Japanir auka innflutning sinn frá Þýzkalandi um 6 milljónir sterlingspunda, og er hér um að ræða innflutn- ing, sem bæði gengur til þess að fullnægja venjulegum þörfum og eins hernaðarþörfum. Frh. á 4. síðu. Fyrstu nýliðarnir, sem kallaðir voru til herþjónustu á Englandi á dögunum samkvæmt her- skyldulögunum. Mary ekkjudrottning heimsótti þá í herbúðunum í Shorncliffe í Kent — en ekkj udrottningin er heiðursfori ngi þeirrar herdeildar, sem þeir tilheyra. sknoa negn skarar ýðveldisherBBm Hundrað mönnum, sem grunaðir eru um að vera í þjónustu hans, verður visað úr landi í dag. Frá fréttaritara Alþýðublaðsins. LONDON 1 morgun. Leynilögreglan, Scotland Yard, tók í gærkveldi alla menn fasta í London, sem grunaðir eru um það að hafa átt þátt í sprengingunum og hermdar- verkunum bæði í höfuðborg- inni og víðs vegar úti um England undanfarið. Þeir eru einnig grunaðir um það að standa í mjög nánu sambandi við hinn ólöglega írska lýð- veldisher, sem ekki aðeins á Englandi, heldur og á írlandi er almennt fordæmdur fyrir ofbeldisverk sín. Enska þingið afgreiddi seinni- partinn í gær sem lög frumvarp það, er miðar að því að koma í veg fyrir hermdarverkin, og veitti Sir Samuel Hoare innan- ríkismálaráðherra aukið vald til þess að vísa úr landi til írlands mönnum, sem lögreglan álítur grunsamlega, og banna lands- vist grunsamlegum mönnum. sem koma frá írlandi. Átta menn voru handteknir í gærkveldi, grunaðir um þátt- töku í hermdarverkunum, og var þeim vísað úr landi 1 dag. Búizt er við því, að allt að því hundrað öðrum mönnum, sem nú eru 1 London og úti um land, verði einnig vísað úr landi í dag í viðbót við þessa átta. Ótti við nýjar sprengjo- árásir. ingarnar og ,brýrnar yfir Tha- 1' mes verið settar undir sterkan lögregluvörð. Þinghúsinu í London, sem venjulega er opið til skoðunar fyrir ferðamenn og aðra, þegar fundir eru ekki haldnir, hefir verið lokað. MacBride. (Daily Herald.) Flugsýningarnar á morgun. BÚAST má við miklum mannfjölda á Sandskeið- inu á morgun, og er því bezt fyrir fólk að fara sem fyrst upp eftir, til þes£ að það lendi ekki í fólksþvögu og þurfi að bíða lengi eftir ferð uppeftir, eins og átti sér stað í fyrra. Flugsýningarnar hefjast kl. 4 e. h. Eins og getið var um í blað- inu í gær, þá verður í sambandi við flugsýningarnar póstflug með svifflugu frá Sandskeiðinu til Reykjavíkur. En þar sem bú- ast má við, að mjög margir vilji senda og fá póst leiðina, þá verður eingöngu flogið með kort, en engin bréf tekin. Sala kortanna byrjar á pósthúsinu í dag kl. 4, en setja verður kortin í póstkassann á Sandskeiðinu. Menn óttast mjög nýjar sprengjuárásir í London eða úti um land í hefndarskyni fyrir þessar nýju lögregluráðstafan- ir. Af þeirri ástæðu hafa opin- berar byggingar, stjórnarbygg- Dingkosninpm frestað í tvð ár á Frakklandi! LONDON í morgun. FÚ. RANSKA stjórnin var 4 klukkustundir á fundi í gær og hafði til meðferðar 50 nýjar tilskipanir. Verða þær lagðar fyrir ráðherrafund og Lebrun forseta í dag, I einni tilskipuninni er á- kveðið að fresta almenmun þing kosningum um tvö ár, en sam- kvæmt annarri verða allar út- varpsstöðvar lagðar undir effir- lit ráðuneýtis forsætisráðherra. Knattspyrnan nm helgina. Á morgun kl. 7 keppa ísfirð- ingar við K.R. í fyrsta flokki. Kl. 8,45 fer svo fram leikur milli Vals og Fram í meistara- flokki, Verða leikirnir án efa Irh. i 4. dfcu. Ný ógnarðld í að- sigi i Moskva? 78 háttstandandi menn sviptir beiönrsmerkjnm. LONDON í morgun'. FÚ. MOSKVA hafa 78 menn verið sviptir heiðurs- merkjum sínum, þar sem fram- koma þeirra hafi verið ósam- boðin mönnum, sem bera slík heiðursmerki. 1 Moskva er því haldið fram,. að þar með sé ekki sagt, að þeim hafi verið vikið frá störf- um, heldur hafi þeir verið van- heiðraðir, og verði ekki látnir gegna opinberum störfum fram- vegis. Það er talið, að sumir þessara manna hafi gegnt mikil- vægum embættium í Austur-Asíy. L

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.