Alþýðublaðið - 29.07.1939, Qupperneq 1
EITSTJéBI: P. B. VAJLDEMARSSÖN
ímmWiÆWh ALÞÝmJFLOEKCBENN
XX. áSÖAMCim
LAUGARDAG 29. JÚLI 1939
172 TOLUBLAÐ
Sildarútvegsnefnd búin að
selja 100 pús. tunnur af sild.
---4—i-
Sðlumðgulelkarnir eru betri en í
lyrra og verðið heidur hserra en þá
Msar verða aýp
]
staðirnir reistir?
Bœjarráðið hefir enn ekki
tekið ákvorðnn.
FYRIR bæjarráðsfundi
— sem haldinn var
síðdegis í gær, lá fyrir
beiðni frá Byggingarfé-
lagi verkamanna um stað
undir nýja verkamannabú-
staði. Hafði félagið farið
fram á, að fá stað undir
um 100 íbúðir á Melunum,
við Hringbraut, milli
kirkj ugarðsins og íþrótta-
vallarins. Og til vara sótti
félagið um stað í Sunnu-
hlíðarholtinu.
Því miður gat bæjarráð
ekki afgreitt málið, en vís-
aði því til bæjarverkfræð-
ings til athugunar.
Enn er því alls ekki vit-
að, hvar hinir nýju verka-
mannabústaðir verða reist-
ir, og því miður er ekki 1;
hægt að byrja á teikning-
um bústaðanna, fyrr en
staðurinn hefir verið á-
kveðinn.
Þetta seinlæti er mjög
bagalegt, því að menn bíða
eftir atvinnunni við bygg-
ingarnar og fjöldi manna
bíður með óþreyju eftir
því, að byrjað verði á bygg-
ingunum, svo að íbúðirnar
verði tilbúnar næsta vor.
En stjórn Byggingarfélags
verkamanna hefir gert allt,
sem í hennar valdi hefir
staðið, til að hraða fram-
kvæmdum, og meira er
ekki hægt að krefjast af
henni.
Viðtal við Finn Jónsson for-
mann Sf ldartitvegsnef ndar
A LÞÝÐUBLAÐIÐ snéri
sér í morgun til Finns
Jónssonar alþingismanns,
formanns Síldarútvegsnefnd
ar, og spurði hann um sölu á
síldarafurðum og útliti fyrir
sölu, en erindrekar Síldarút-
vegsnefndar, þar á meðal Er-
lendur Þorsteinsson alþing-
ismaður, eru nýkomnir heim
úr söluferð erlendis.
— Hvernig hefir salan til
Bandaríkjanna tekizt?
„Vilhjálmur Þór bankastjóri,“
sagði Finnur Jónsson, ,,hefir
eins og kunnugt er, dvalið all-
lengi í New York undanfarið.
Hann hefir undanfarin þrjú ár
séð um síldarsamninga fyrir
Síldarútvegsnefnd í Ameríku, og
hefir hann nú einnig gert
samninga um sölu á síld þang-
að. Stóðu samningaumleitanir
nokkuð lengi, en 7. þessa mán-
aðar voru undirritaðir samning-
ingar milli Vilhjálms Þórs ann-
ars vegar fyrir hönd Síldarút-
vegsnefndar og „Vita food
Company“ hins vegar, sem er
stærsta síldarsölufirmað í New
York, um kaup á 30 þúsund
tunnum af síld, hér af 22500
tunnur matjessíld og 7500 tn.
Faxasíld.“
— Eru samningarnir hag-
kvæmir?
„Verðið er svipað 1 dollurum
og síðastliðið ár, og yfirleitt er
hægt að segja, að samningarn-
ir séu hagkvæmir fyrir okkur.“
— Og salan til Póllands og
Þýzkalands?
„Alþingismennirnir Erlendur
Þorsteinsson og Jóhann Þ. Jós-
efsson hafa undanfarið verið á
ferð í söluerindum fyrir Síldar
útvegsnefnd. Gerðu þeir samn-
inga um sölu á matjessíld til
Þýzkalands, 37500 tunnur, til
Póllands 30 þúsund tunnur, og
til annarra landa 2000 tunnur.
Alls þefir Síldarútvegsnefnd
þannig selt fyrirfram um 100
þúsund tunnur af síld. Verðið til
allra þessara landa er nokkru
hærra en síðastliðið ár, miðað
við sterlingspund.“
— Er salan til Ameríku
meiri eða minni en í fyrra?
„Gerðir voru samningar um
meiri sölu þangað í fyrra, en
Frh. á 4. síðu.
Entfin sííd tii Sigln-
fjarðar siðasta sól-
arhring.
"K' KKERT skip hefir komið tii
Sigluf jarðar síðastliðinn sól-
arhring. f gær og nótt voru salt-
aðar á Siglufirði 200 tunnur af
reknetasíld.
I fyrra um þetta leyti var búið
að salta é landinu alls 56 299
tunnur.
Á Djúpuvík voru saltaðar í
nótt 331 tunna og er þá alls bú-
ið að salta þar 636 tunnur. En
kafþoka er yfir vesturmiðunum.
Til Djúpuvíkur komu í gær
og nótt Jón Ölafsson með 162
tunnur, Þór með 88, Surprise 19,
Hafsteinn 46 og Kári með 16
tunnur.
Sðpðu Bandarikii upp við-
skiptasamningnui við Jap-
an að nndlrlagi Bretlands?
Líknr taldar til, að England gripi
tll sömn ráðstafana, ef pörf gerist
LONDON í gærkveldi. FÚ.
ILONDON er litið svo á,
að það hafi ekki komið
brezku stjórninni algerlega á ó-
vænt, að Bandaríkjastjórn tók
þá ákvörðun að segja upp við-
skiptasamningunum við Japan.
Hins vegar mun brezka stjórnin
ekki hafa búizt við uppsögn
samninganna nú þegar. Upp-
sögn þessara samninga er talin
frekri sönnun fyrir því, að
Bretar og Bandaríkjamenn hafi
samræmt sjónarmið sín að því
er tekur til Austur-Asíu og
leiðir beggja liggi að sama
marki.
I London er talsvert um það
rætt, hvort Bretar muni grípa
til svipaðra ráðstafana og Banda
ríkjamenn til verndar réttind-
um sínum og hagsmunum í
Kína. Athygli er leidd að því, að
Bretland hafi einnig gert við-
skiptasamninga við Japan. En
þótt TÍkisstjórnin sé fráhverf
því að gera nokkuð, sem spillt
gæti samkomujagsumleitunum
í Tokio, hafa þær skoðanir kom-
ið fram í London, að til svip-
aðra ráðstafana myndi verða
gripið, ef nauðsynlegt reyndist.
Japauir (á nokkrar sára-
bætur I Berlín.
LONDON í morgun. FÚ.
Nýr viðskiptasamningur milli
Þýzkalands og Japans var í
gær undirritaður í Berlín, að
undangengnum 1 8 mánaða
samkomulagsumleitunum,
Samkvæmt hinum nýja
samningi munu Japanir auka
innflutning sinn frá Þýzkalandi
um 6 milljónir sterlingspunda,
og er hér um að ræða innflutn-
ing, sem bæði gengur til þess að
fullnægja venjulegum þörfum
og eins hernaðarþörfum.
Frh. á 4. síðu.
Fyrstu nýliðarnir, sem kallaðir voru til herþjónustu á Englandi á dögunum samkvæmt her-
skyldulögunum. Mary ekkjudrottning heimsótti þá í herbúðunum í Shorncliffe í Kent — en
ekkj udrottningin er heiðursfori ngi þeirrar herdeildar, sem þeir tilheyra.
sknoa negn
skarar
ýðveldisherBBm
Hundrað mönnum, sem grunaðir eru um að
vera í þjónustu hans, verður visað úr landi í dag.
Frá fréttaritara Alþýðublaðsins.
LONDON 1 morgun.
Leynilögreglan,
Scotland Yard, tók í
gærkveldi alla menn fasta í
London, sem grunaðir eru
um það að hafa átt þátt í
sprengingunum og hermdar-
verkunum bæði í höfuðborg-
inni og víðs vegar úti um
England undanfarið. Þeir eru
einnig grunaðir um það að
standa í mjög nánu sambandi
við hinn ólöglega írska lýð-
veldisher, sem ekki aðeins á
Englandi, heldur og á írlandi
er almennt fordæmdur fyrir
ofbeldisverk sín.
Enska þingið afgreiddi seinni-
partinn í gær sem lög frumvarp
það, er miðar að því að koma í
veg fyrir hermdarverkin, og
veitti Sir Samuel Hoare innan-
ríkismálaráðherra aukið vald til
þess að vísa úr landi til írlands
mönnum, sem lögreglan álítur
grunsamlega, og banna lands-
vist grunsamlegum mönnum.
sem koma frá írlandi.
Átta menn voru handteknir í
gærkveldi, grunaðir um þátt-
töku í hermdarverkunum, og
var þeim vísað úr landi 1 dag.
Búizt er við því, að allt að því
hundrað öðrum mönnum, sem
nú eru 1 London og úti um land,
verði einnig vísað úr landi í
dag í viðbót við þessa átta.
Ótti við nýjar sprengjo-
árásir.
ingarnar og ,brýrnar yfir Tha- 1'
mes verið settar undir sterkan
lögregluvörð.
Þinghúsinu í London, sem
venjulega er opið til skoðunar
fyrir ferðamenn og aðra, þegar
fundir eru ekki haldnir, hefir
verið lokað.
MacBride. (Daily Herald.)
Flugsýningarnar á
morgun.
BÚAST má við miklum
mannfjölda á Sandskeið-
inu á morgun, og er því bezt
fyrir fólk að fara sem fyrst upp
eftir, til þes£ að það lendi ekki
í fólksþvögu og þurfi að bíða
lengi eftir ferð uppeftir, eins og
átti sér stað í fyrra.
Flugsýningarnar hefjast kl.
4 e. h.
Eins og getið var um í blað-
inu í gær, þá verður í sambandi
við flugsýningarnar póstflug
með svifflugu frá Sandskeiðinu
til Reykjavíkur. En þar sem bú-
ast má við, að mjög margir vilji
senda og fá póst leiðina, þá
verður eingöngu flogið með
kort, en engin bréf tekin. Sala
kortanna byrjar á pósthúsinu í
dag kl. 4, en setja verður kortin
í póstkassann á Sandskeiðinu.
Menn óttast mjög nýjar
sprengjuárásir í London eða úti
um land í hefndarskyni fyrir
þessar nýju lögregluráðstafan-
ir. Af þeirri ástæðu hafa opin-
berar byggingar, stjórnarbygg-
Dingkosninpm
frestað í tvð ár
á Frakklandi!
LONDON í morgun. FÚ.
RANSKA stjórnin var 4
klukkustundir á fundi í
gær og hafði til meðferðar 50
nýjar tilskipanir. Verða þær
lagðar fyrir ráðherrafund og
Lebrun forseta í dag,
I einni tilskipuninni er á-
kveðið að fresta almenmun þing
kosningum um tvö ár, en sam-
kvæmt annarri verða allar út-
varpsstöðvar lagðar undir effir-
lit ráðuneýtis forsætisráðherra.
Knattspyrnan nm
helgina.
Á morgun kl. 7 keppa ísfirð-
ingar við K.R. í fyrsta flokki.
Kl. 8,45 fer svo fram leikur
milli Vals og Fram í meistara-
flokki, Verða leikirnir án efa
Irh. i 4. dfcu.
Ný ógnarðld í að-
sigi i Moskva?
78 háttstandandi menn
sviptir beiönrsmerkjnm.
LONDON í morgun'. FÚ.
MOSKVA hafa 78 menn
verið sviptir heiðurs-
merkjum sínum, þar sem fram-
koma þeirra hafi verið ósam-
boðin mönnum, sem bera slík
heiðursmerki.
1 Moskva er því haldið fram,.
að þar með sé ekki sagt, að
þeim hafi verið vikið frá störf-
um, heldur hafi þeir verið van-
heiðraðir, og verði ekki látnir
gegna opinberum störfum fram-
vegis. Það er talið, að sumir
þessara manna hafi gegnt mikil-
vægum embættium í Austur-Asíy.
L