Alþýðublaðið - 02.08.1939, Qupperneq 1

Alþýðublaðið - 02.08.1939, Qupperneq 1
RITSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN XX. ÁRGANGUR MIÐVIKUDAGINN 2. ágúst 1939 175. TÖLUBLAÐ leroaiog verzinnarmanna ridegi peirra um helgina Farið verður íil Vestm.eyja, í Þjórsárdal, að Gullfossi og Geysi og í Borgarfjörð. \T ERZLUNARMENN ® gangast nú, eins og að undanförnu, fyrir hátíðahöld- um og skemmtiferðum á frí- degi verzlunarmanna um næstkomandi helgi. En að þessu sinni eru þau fjöl- breyttari en nokkru sinni áð- ur. Verða farnar skemmti- ferðir til Vestmannaeyja, Þjórsárdals, Gullfoss og Geysis, og í Borgarfjörð, en að Eiði verða skemmtanir á sunnudag og mánudag. Til Vestmannaeyja verður far- ið með Gullfossi áföstudagskvöld o;g svo til baka annaðhvort með Lyra á mánudag eða Brúarfossi á þriðjudag. Sé farið með skip- um Eimskipafélagsins báðar leið- ir er fargjaldið 14 kr., en ann- ars 17 krónur fyrir báðar ferð- irnar. Hefir fjöldi manns pegar til- kynnt pátttöku sína, og búast má. við, að margir eigi pað eftir, því að marga mun fýsla að koma til Vestmannaeyja og kynnast hinum frægu þjóðhátíðardögum þeirra, sem fram eiga að fara þar um helgina. I Þjórsárdals-, Gullfoss- og Geysis-ferðina verður farið héð- an eftir hádegi á laugardag og ekið alla leið til Þjórsárdals, en á sunnudag verður farið til Gull- 'fóss og Geysis, og í heimleið- i*mi á mánudag verður ekið um Grafning og Þingvöll. Borgarfjarðarförm. Á laugar- dag klukkan 3 e. h. fer Lax- foss til Borgarness, og verður þá um kvöldið dansskemtun í Ung- matmafélagshúsinu í Borgarnesi. Á sunnudag verður skemmtun við hina frægu Þverárrétt. Skemmtunin að Eiði. Enn hef- ir ekki fullkomlega verið ráðið með skemmtiatriði þar, en það mun verða tilkynnt síðar í vik- unni. Þetta er í fyrsta skipti, sem verzlunarmenn hafa svo fjöl- breytt og skemmtileg hátíðahöld á frídegi verzlunarmanna, og má búast við að margir rnunu taka þátt í þessum skemmtiferðum, því að jafnframt því, að farið er til einhverra fegurstu staða hér sunnanlands, þá eru ferðirnar einnig mjög ódýrar. Þjórsárdals- förin kostar 22 krónur, Borgar- fjarðarferðin 11 krónur og eins og áður segir 14 og 17 krónur fargjaldið til Vestmannaeyja, eft- ir því, hvort farið er með Lyra eða Brúarfossi. Þeir vilja fá frjálsar hendur til þess að flytja vopn til borgarinnar frá Austur-Prússlandi. -------«------- LONDON i moigun F.Ú. SEINASTA KRAFA nazistaií Danzig er sú, að allir pólskir íollverðir á landamærum fríríkisins og Aust- ur-Prússlands verði kallaðir þaðan á brott. Krafa þessi er hirt í blöðum nazista. Fyrstu fangabúðirnar hafa nú verið opnaðar í Danzig. Um 100 Gyðingar, sem þar eru, hafa verið teknir til að vinna að því að koma þar upp hermannaskálum. Tilkynnt er í Varsjá, að 100 menn hafi verið handteknir í sókn, sem lögreglan í Austur- Galizíu hefir hafið til þess að hnekkja starfsemi úkranskra þjóðernissinna þar. Hinir hand- teknu eru sakaðir um imdirróð- ur, sem hættulegur sé einingu og sjálfstæði pólska ríkisins. isflrðingar Sara ésigr~ aðir heim til ísafjarðar. ----*--- Fyrsta skipti í sögunni vinna uÞ anbæjarmenn knattspyrnnmét. r SFIRÐINGAR hafa unnið 1. flokks mótið. Þeir taka heim með sér til ísafjarðar Vík- ingsbikarinn, sem keppt er um á þessu móti. Þetta er fyrsta sinni, sem utanbæjarmenn vinna knattspyrnumót hér og skilja Reykvíkinga eftir í smán — enda rigndi smáninni yfir þá í gærkveldi í lok leiksins. Það var raunverulega úrslita- leikur 1. flokks mótsins, sem fór fram í gærkveldi milli ísfirð- inga og Vals, og ísfirðingar unnu með 2 mörkum gegn 1, og þetta eina mark Vals var úr víta- spyrnu. Veður var mjög gott, þar til allra síðast. ísfirðingar léku gegn sól í fyrri hálfleik og lá knötturinn oftast á þeim, en vörn þeirra er afarsterk, enda er a. m. k. miðframvörðurinn, Ágúst Leós, tvímælalaust meist- araflokksmaður. Hann var alls staðar nálægur, og öll upphlaup strönduðu á honum. Þá sýndu þeir Jónas Magnússon (kallaður „Mósokki11 á vellinum vegna sokkanna, sem. hann var í) og Högni Helgason ágætan leik — og þó sérstaklega Jónas. Ekkert mark var sett í f.yrri hálfleik. I síðari hálfleik voru Frh. á 4. síSu. Konungshjónin frá Albaníu á flótta sínum um Evrópu. Myndin er tekin í Stokkhólmi, þégar þau komu þangað á dögunum. Til hægri við Zogu konung er Geraldine, drottning hans. En báðum megin við þau eru systur konungsins þrjár, sem vöktu mikla eftirtekt í Kaupmannahöfn fyrir tveimur eða þremur árum, þegar þær voru þar á skemmtiferðalagi. Ifýjar viðtækar heimild- iidtr fyrír pólskn stjórn- ina. LONDON í gærkveldi. FÚ. Forsætisráðherra Póllands gaf í dag út eftirfarandi tilskipan- ir- 1) Heimilt er að láta herrétt taka til meðferðar öll þau mál, sem varða á einhvern hátt ör- yggi ríkisins, jafnt á friðar- tímum sem ófriðar. 2) Heimilt er að taka til notkunar handa hernum hvers konar ökutæki og hesta, eftir því sem þörf gerist. 3) Allir Pólverjar, karlar. og konur, verða að láta skrá sig til þjóðvarnarstarfa, ef til ófriðar kemur. Pfzku blaöaáráslruar á Pðlverja byrja á aý. LONDON 1 gærkveldi. FÚ. Þýzku blöðin hafa á ný tekið upp árásir á Pólland, og eru nú þær sakir bornar á Pólverja, að þeír hafi rofið pólsk-þýzka verzlunarsamninginn. Enn fremur eru margir Pól- verjar sakaðir um njósnarstarf- semi. Loks eru Pólverjar taldir fara illa með Þjóðverja, sem bú- settir eru í Póllandi. Skærnr á laadamærnm Dngverjalands »g Rám- enin. LONDON í morgun F.Ú. Árekstrar hafa að undanförnu verið tíðir á landamærum Rúm- eniu og Ungverjalands. Ungverjaland hefir nú stungið upp á því, að skipuð verði ung- versk- r úmen sk herfo ringj anef n d til þess að leiða deiluna til lykta og koma aftur á kyrrð við landa- n'lærin. 1400 ána gamalt vxkingaskip hefir fundizt í jörðu á austur- strönd Englands. Eru í skipinu vopn og margir skartgripir úr gulli, sem að líkindum hafa ver- ið í eign einhvers konungs eða stórhöfðingja. Er talið, að gripir þessir séu rúmlega 25 milljón króna virði. Skipið og gripirrfir eru sennilaga danskir að upp- runa. F.O. Arthur Greiser forseti nazistasenatsins í Danzig. liðinn sólarhrino SÖLTUNIN gengur ennþá mjög treglega. Þó er talin töluverð síld úti fyrir, en hún er mjög dreifð. Síðastliðinn sólarhring voru saltaðar á Siglufirði 600 tunn- ur (fg 34 tunnur á Djúpuvík. Nokkur skip komu inn í gær og nótt með slatta, sem þau fengu í herpinót. Jón Þorláks- son kom með 41 mál, Muggur með 148, Bangsi 25, Þórir 5 og Geir með 55 mál. Flugvélin kom í gærkveldi úr leitarflugi. Sá hún litla síld, en áta var heldur að glæðast. Gldsvoði í gærkveldi i prjénastofnnni Iðunni. Albert Forster foringi nazistaflokksins i Danzig. GÆRKVELDI kl. 8,25 kom upp eldur á Laugavegi 7, timburhúsi, eign Benedikts S. Þórarinssonar. Var húsið mann- laust, þegar eldurinn kom upp. Efri hæð hússins hefir á leigu prjónastofan Iðunn, en eigandi hennar er frú Viktoría Bjarna- dóttir, Miðstræti 8 B. Á sömu hæð er einnig gólfdreglagerð. Eldurinn kom upp í herberg- inu norðan megin við vestur- gafl, en þar var vörugeymsla prjónastofunnar og enn fremur var herbergið notað sem strau- stofa. í herberginu var geymt mikið af útlendu garni allavega litu. Hafði þar verið skilið eftir straujárn á borði og gleymzt að taka af því strauminn. Brenndi það gat á borðið og kviknaði því næst í herberginu. Brann herbergið innan og eyðilögðust vörurnar að mestu, en þær voru lágt vátryggðar. í hinum herbergjunum urðu skemmdir af völdum reyks og vatns, en vélar og áhöld munu vera óskemmd að mestu. RAssar taka á máti her- foringjnm Breta og Frakka með lýjnm blaðadylgjnm. Saka ónefndar auðvaidsþjóðir um að vilja velta allri áhættu á Rússland! LONDON i gærkveldi. RÚSSNESKA blaðið „Prav- da“ birti í gær grein, þar sem á það er bent, að „möndul- veldin“, það er Þýzkaland og Ítalía, kyndi undir eldum nýrr- ar heimsstyrjaldar. Bætir blað- ið því við, að þær þjóðir, sem koma vilji í veg fyrir þessa styrjöld, verði að vera ákveðnar og sterkar fyrir og hvergi láta und.an síga. I greininni eru ónefndar auð- valdsþjóðir sakaðar um, að þær reyni að hliðra sér hjá að taka þátt í slíkri tilraun og leitist við \ að velta allri Sovétríkin. byrðinni yfir á Brezhn berforingjarnir farnir frá London. LONDON 1 gærkv- F.Ú. Fulltrúar Bretlands við herfor- ingjatimræðurnar í Moskva leggja af stað til Parísar á morgun til þess að ráðgast við fulltrúa Frakklands, sem til Moskva fara. Daginn eftir fara þeir allir af stað áleiðis til Moskva. Frh. á 4, síðu.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.