Alþýðublaðið - 03.08.1939, Síða 1
I
ALÞYÐUBLA
RITSTJORI: F. R. VALDEMARSSON
UTGEFANDI: ALÞYÐUFLOKKURINN
XX. ÁRGANGUR
FIMTUDÁGINN 3. ágúst 1939.
176. TÖLUBLAÐ
Brezki flotinn framvegis ör-
uggur fyrir kafbátaárásum?
Frá setningu Lingiaden i Stokkhólmi: Myndin sýnir fimleikamenn með fána 37 þjóða, sem
þátt tóku í mótinu, ganga fylktu liði inn á leikvanginn í Stol-ihólmi,
Veðurblíðan i sumar;
Hestl sölskinsstandafiðld)
i Reykjavik i jextán ár.
Árið 1923 fyrst byrjað að telja
sólskinsstundir á veðurstofunni.
Veðurbreyting
i aðsigi?
\T EÐURBLÍÐAN hefir
■ verið óvenjumikil í
suraar, og nú síðastliðinn
mánuð voru sólskinsstund-
irnar 308 hér í Reykjavík, og
síðan 1923, en það ár var
fyrst farið að telja saman
sólskinsdaga hér, er þetta
mesti sólskinsstundafjöldi,
sem komið hefir. Júlí 1928
kemst næst. Þá voru sólskins
stundirnar 268, og í júní s.l.
voru sólskinsstundirnar 224
móti 209 í fyrra, og í maí s.l.
123 sólskinsstundir, en í
fyrra aftur á móti 197, og
flestar voru þær í þeim mán-
uði 1931, þá 298.
Hitinn hefir hins vegar ekki
verið mjög mikill, og í byrj-
un júlímánaðar til dæmis komst
hann niður í 4 st., og eina nótt-
ina var hann um frostmark nið-
ur við jörð, en mestur varð hit-
inn í mánuðinum 22 st. og með-
alhitinn 13 gráður. í júnímán-
uði síðast liðnum var meðalhit-
inn 10,5 st. Annars var hitinn
í maí, júní og júlí í ár mjög
svipaður því, sem hann var
sömu mánuði 1933.
Hefir veðurblíðan verið öllum
Reykvíkingum mjög kærkom-
in, og hafa þeir svo hundruðum
skiptir verið við sólböð í Skerja-
firði, Sundhöllinni og Sundlaug-
unum. og þeir, sem hafa átt
þess kost — hafa tekið sumar-
frí og ferðazt um landið og not-
ið sólardaganna. Þeir einu, sem
ef til vill voru orðnir fullsadd-
ir á sólskininu og þurrkunum,
voru bændurnir og garðeigend-
ur, því að um tíma horfði til
stór vandræða um, að gras-
spretta og garðávöxtur yrði
mjög lítill, vegna vatnsskorts.
Þó hefir nú í júlímánuði rignt
hér í Reykjavík 28 mm. á 10
dögum, en þar af á einum degi
12 mm., og það var 28. júlí, en
í fyrra í júlímánuði rigndi 23
mm. á 10 dögum. 1937 voru
miklir óþurrkar. Þá rigndi í
júlímánuði 51 mm. á 20 dögum.
í júní s.l. var úrkoman 36 mm.
á 15 dögum, og í fyrra í sama
mánuði 65 mm. á 12 dögum, og
í maí s.l. 42 mm. á 17 dögum —
móti 29 mm. á 12 dögum í sama
mánuði í fyrra.
Þegar Alþýðublaðið átti tal
við Veðurstofuna í morgun, og
spurði hana, hvort búast mætti
við veðurbreytingu hér sunn-
anlands, þá taldi hún, að veru-
leg breyting væri í aðsigi.
Frh. á 4. síöu.
Vinna við hita-
veiíunajr hafin.
Snn vinna aðelns fáir
menn við pessar fram-
kvæmdir.
17INNA við framkvæmdir
• hitaveitu Reykjavíkur er
nú að hefjast, Byrjuðu fyrstu
verkamennirnir að vinna á
laugardaginn, og var byrjað á
því að byggja undirstöður aðal-
leiðslunnar frá Réykjum, og
hófst vinnan í Öskjuhlíð.
Alls munu í dag vinna 35-—40
manns, en talið er að smátt og
smátt aukist næstu daga.
Verkfræðingur firmans Höj-
gaard & Schultz, sem á að
stjórna verkinu, er enn ekki
kominn hingað, en hann er
'væntanlegur hingað með Lyru
á mánuda^lnn. Ákveður hann
nánar um það, hvernig verkinu
verður hagað og hve mikið af
því verður unnið í sumar. Munu
þó götuleiðslur verða steyptar í
sumar og einnig verður sjálft
stöðvarhúsið reist. Er nú byrjað
að koma hingað efni til þessara
framkvæmda.
Chamberlain hótar Japöi-
m að hætta saningam.
Japanir halda ekki það samkomulag,
sem þeir voru búnir að gera við Breta
LONDON í gærkveldi. FÚ.
CHAMBEELAIN forsætis-
ráðherra lýsti yfir því í
dag í neðri málstofu brezka
þingsins, að brezki sendiherr-
ann í Tokio hefði fengið fyrir-
skipanir um að bera fram á ný
ströng mótmæli við hinni and-
brezku haráttu í Norður-Kína.
Chamberlain svara'öi fyrirspurn
um þessi mál, sem fram var bor-
in af Henderson úr AlþýÖufLokkn
um. Sagöi Chamberlain, að
brezka stjórnin heföi nána sam-
vinnu viö stjórnir Frakklands og
Bandarfkjanna um allt það, er
lyíi aö Austur-Asíumálunum.
Þá' sagöi hann, að Sir Robert
C/aigie l'.efði skýrt formanni
samninganefndar Japana frá því,
aö frekari samkomulagsumleitan-
ir um Tientsindeiluna myndu
reynast erfiöleikum bundnar, ef
'hinni andbrezku starfsemi yrði
haldiÖ áfram.
Með samkomulagi því, sem
íekizt hefir milli þeirra Sir Ro-
bert Craigie og Arita utanrílds-
málaráðherra um tilhögun sam-
komulagsumieiíananna og reglur,
sem fara skyldi eftir og brezka
Frh. á 4 síSu.#
Útbúnaður, sem gerir unnt að hafa uppi á kaf-
bátunum, strax og peir nálgast, og sökkva þeim!
Riddaralið ræðst
á bíl í ðshjuhlíð!
Kiddararnir stððvaðn
biiinn, stigu af baki
og réðust á bilstjórann
TVEIR ríðandi menn
riðu á móti bifreið
hjá Öskjuhlíð í gær — og
neyddu þeir bifreiðarstjór-
ann til þess að nema stað-
ar.
Því næst steig „riddara-
liðið“ af hestbaki, og hóf
nú ákafar deilur við bíl-
stjórann og annar riddar-
inn réðist á hann þar
sem hann sat inni í bíln-
um og stóð á hemlunum,
en þarna var hátt út af
veginum og því mjög mik-
ill hættustaður. Áttu þess-
ir riddarar ekkert sökótt
við bílstjórann, en voru
drukknir. Voru þeir sekt-
aðir um 300 krónur hvor.
Frá fréttaritara Aiþýðublaðsins. LONDON í morgun.
EARL STANHOPE flotamálaráðherra Breta tilkynnti í
gærkveldi, að brezki flotinn hefði nú fengið útbúnað,
sem gerði herskipunum unnt að finna hvern einasta fjand-
samlegan kafbát, sem náigaðist þau, og sökkva honum. Þess-
um útbúnaði væri haldið stranglega leyndum.
„Ég held ekki,“ sagði flötamálaráðherrann, ,,að nokk-
urt annað ríki hafi slíkan útbúnað á herskipaflota sínum,
eða nokkuð honum líkt.“
í tilkynningu sinni gat Earl
Stanhope þess, að enda þótt því
hefði verið haldið stranglega
leyndu, hvers konar útbúnaður
þetta væri, þá væri það vitað, að
uppfinningamenn hefðu að und-
irlagi flotamálastjórnarinnar
lengi verið að leita að ráðum til
þess að verjast kafbátaárásum
með útbúnaði, sem sýndi með
fullkominni vissu stað og hreyf-
ingar kafbátanna, og þessar til-
raunir hefðu nú nýlega borið
hinn furðulegasta árangur.
Það var einnig tilkynnt opin-
berlega af flotamálastjórninni í
gæi|, að ákveðið hefði verið að
smíða í mesta flýti 180 ný skip
fyrir hrezka flotann, sem áætl-
að væri að myndu kosta samtals
um 11 milljónir sterlingspunda.
Skipin eiga flest að véra lítil
¥innur Fram með slgri
¥als yfir KJK. í kvðld?
----+.---
Fraits vann í skemmtileguBn leik
við Vikiug í gærkvöldi.
AÐ var auðséð á aðsókn-
inni að íþróttavéllinum í
gærkveldi, að enn er vaxandi
áhugi meðal almennings fyrir
knattspyrnunni. Að minnsta
kosti 4 þúsundir manna horfðu
á leikinn milli Fram og Víkings
og fylgdust með hoilum af lif-
andi áhuga. Þessa leiks var líka
beðið með mikilli eftirvæntingu,
því að hann gat gert Víkinga að
Islandsmeisíurum eða gefið
Frarn mikla möguleika til að
vinna þann titil.
Víkingur vann ekki leikinn og
fapaðl því möguleikanum til að
vinna mótið, þar sem það félag
á engan leik eftir. Fram vann leik-
inn með 2 mörkum gegn 1 með
sómá.
Leikurinn varð aldrei hárður,
yíir. honum var sami léttleik-
inn og lipurðin allan tímann. Vík-
ingum tókst að setja fyrsta mark-
ið, í fyrri hálfleik. Þann hluta
leiksins hafði Víkingur heldur yf-
irhöhdina og fékk alimörg góö
lækifæri, sem flest mistókust þó.
Fram gerði rnörg mjög skæð upp
hlaup og sýndi framlínan þá oft,
að hún vár betri en Víkings.
Mark Fram var oftar í hættu,
ef Víkingum tókst að nálgast
það heldur en mark Víkinga, þó
að Fram kæmist nálægt því.
Framarar voru líka smeykir um
mark ' sitt, enda var markmaður
þeirra of óviss, sérstaklega var
Frh. á 4. síðu.
og verða aðallega notuð til þess
að berjast á móti kafbátum og
veiða upp tundurdufl.
bingi (restað til 3. októ-
ber i hanst.
Chamberlain forsætisráð
herra bar fram tillögu þess efnis
í neðri málstofu þingsins seinni-
partinn í gær, að þingfundum
yrði frestað til 3. október í
haust, þó með þeim fyrirvara,
að forseta neðri málstofunnar
væri heimilað að kalla þingið
fyrr saman, ef hann teldi það
nauðsynlegt. Gat Chamberlain
þess um leið, að málstofan gæti
verið þess fullviss, að landið
væri nú búið við hverju, sem að
höndum bæri.
Greenwood, sem talaði fyrir
hönd Alþýðuflokksins, mót-
mælti þ^í, að þinginu yrði frest-
að svo lengi, og flutti þá breyt-
ingartillögu, að það yrði aftur
kallað saman 21. ágúst. Lagði
hann sérstaklega áherzlu á, að
samningarnir í Moskva yrðu til
lykta leiddir, áður en þingfund-
um yrði frestað, og taldi yfir-
leitt óhyggilegt, að þingmenn-
irnir væru fjarverandi svo
lengi, sem stjórnin gerði ráð
Frh. á 4. síðu.
Það gengur erfiðlega að ná upp kafbátunum, sem sokkið hafa á
þessu sumri: „Squalus“ við austurströnd Ameríku, „Thetis“ við
vesturströnd Englands, og ,,Phenix“ við austurströnd Indo-Kína.
Það hefir að vísu tekizt að ná bæði ,,Squalus“ og „Thetis“ upp á
yfirborðið, en báðir sukku aftur, án þess að hægt væri að draga
þá á land. Myndin yar tekin, þegar búið var að.ná stefninu á
,,Squalus“ upp úr vatnsbprðinu, en það skipti engum togum, að
kaíbáturinn sökk á ný.