Alþýðublaðið - 05.08.1939, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 05.08.1939, Blaðsíða 1
ALÞtÐDBUSIÐ RITSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON ÚTGEFANDI: ALÞYÐUFLOKKURINN XX. ÁRGANGUR LAUGARDAGINN 5. ÁG. 1939 178. TÖLUBLAÐ Dálitil síld barst á laai á Hjalteyri og Djápuvik í nétt Saltsíldaraflinn er nú aðeins Ið þús. tnnnur en 80 þús. á sama tíma í fyrra. "jJÖG gott veiðiveður er í dag fyrir öllu Norð- urlandi, en síldin er enn treg. Til Djúpuvíkur komu þó nokkur skip í nótt og í morg- un og allmargir togarar til Hjalteyrar og flestir þeirra með 400—800 mál. Hins veg- ar hefir mjög lítil síld borizt til Siglufjarðar síðan í gær. í morgun komu þangað tvö snurpinótaskip, Rafn með 200 tunnur og Rifsnes með 250 tunnur. Ríkisverksmiðjurnar höfðu í dag tekið á móti 234 þús- und málum alls í bræðslu. Söltunin gengur mjög treg- lega. Síðastliðinn sólarhring voru saltaðar á Siglufirði 1674 tunnur, í Hrísey 39 tunnur og á Ingólfsfirði 535 tunnur. Alls hefir þann- ig verið saltað á landinu það sem af er vertíðinni í 10 200 týri, Hans blaufi, hefst á þriðjndag. IDAG er loki'ð í bla’oinu ævin- týrinu Svínahirðirinn eftir H. C. Andersen. Næst kemur eitthvert skemmti- legasta ævintýri Andersens, Hans klaufi, og hefst þaö í blaðinu næstkomandi þriðjudag- tunnur, en á sama tíma í fyrra 80 265 tunnur. Hjalteyrarverksmiðjan hafði um hádegi í dag fengið um 100 þúsund mál. í nótt og í morgun komu all- margir togarar að austan með slatta, meðal þeirra var Skalla- grímur með 700 mál, Skutull með 800 mál og Þórólfur með um 1200 mál. Togararnir fara jafnharðan út og þeir hafa losað sig. Ágætt veður er við Eyjafjörð, sunnangola og sólskin. Djúpuvíkurverksmiðjan hafði alls tekið á móti í bræðslu í morgun 48 þúsund málum. í nótt var saltað í 1240 tunn- ur af eftirtöldum skipum: Rán 142 tunnur, Tryggvi gamli 289, Huginn, Rvík 66, Garðar (tog.) 71, Pilot 29, Málmey 130 og Kári 508. Eftirtalin skip höfðu lagt upp síld til bræðslu frá því um há- degi í gær: Garðar (tog.) 1238 mál, Eldborg 850, Rán 320, Tryggvi gamli 495 og Kári var að landa kl. 10 í morgun 500 mál. í dag er ágætt veður á Húna- flóa og síldarlegt. SfldarsðltiniDn og Morgnnblaðið. Ty| ORGUNBLAÐIÐ í morg- un rekur upp óp mikið að síldarútvegsnefnd, vegna þess að hún áréttaði með tilkynningu í gær, að síldarsöltun væri ekki leyfð nema á löggiltum síldar- stöðvum. Varaði nefndin jafn- framt menn við því að flytja tunnur eða hefja undirbúning undir söltun, nema þeir hefðu Frh. á 4. síðu. Verða nýjo verbamannabðstað- irnir reistir i Rauðarártúni? ------» ... Bæjarráð sampykkti i yærkveldi að geta Bygg- ingarfélagi verkamanna kost & léðum par. FYRIR bæjarráðsfundi, sem haldinn var í gærkveldi, lá fyrir beiðni frá Byggingarfélagi verkamanna um lóðir undir byggingu verkamannabústaða, en eins og kunnugt er, var erindinu á síðasta bæjarráðsfundi vísað til bæjarverk- fræðings til umsagnar. Félagið hafði, eins og kunnugt er, sótt um melana við íþróttavöllmn dg til vara um Sunnuhlíðartúnið. Bæjarráð samþykkti hins vegar að gefa félaginu kost á nægum byggingarlóðum í Rauðarártúni, þó með því skilyrði, að skipulagsnefnd bæjarins vildi samþykkja staðinn. Stjórn Byggingarfélags verkamanna á eftir að taka af- stöðu til þessa tilboðs bæjarráðs. Þýzkar Gyðingastúlkur, nú landflótta á Englandi, eru að læra þar landbúnaðarstörf til að búa sig undir óvissa framtíð. 150 þúsund manns flýðu frá Þýzkalandi á siðastliðnu ári. <*■ . Þar af dvelja nil 40 jnisund á Bretlandi. LONDON í morgun. FÚ. WINTERTON lávarður, forseti alþjóðaflótta- mannanefndarinnar, gaf í gær yfirlýsingu um flótta- mannamálin. Winterton sagði yfir 150 þús. flóttamenn hefðu far- ið frá Þýzkalandi síðastliðið ár, og af þeim væru 40 000 í Bretlandi. Væri þetta nóg- samlega skýrt svar við þeim ásökunum, að Bretar gerðu lítið úr þessum málum eða ekki neitt. Hann sagði, að líkur væru til, að með þátttöku mætra manna myndi verða unnt að koma á fót einkastofnun innan Þýzkalands, er tæki að sér mál- efni flóttamanna og hefði sam- vinnu við yfirvöld þar og al- þjóðaflóttamannanefndina. — Stofnun þessi myndi hafa yfir miklu fé að ráða, sagði Winter- ton, og yrðu margir víðkunnir menn í stjórn hennar, þar á meðal bæði ameríkskir og brezk- ir borgarar. Winterton kvað á því myndu verða byrjað næsta haust, að senda flóttamenn til Guyana í Suður-Ameríku, en unnið væri að undirbúningi þess, að flótta- menn yrðu sendir til Rhodes- ia í Suður-Afríku og Filipps- eyja í Austur-Asíu, og væru skilyrði hagstæð á þessum stöðum. Fasistar fá ðll vðld á LONDON í gærkveldi. FÚ. "O RANCO gaf í dag út tilskip- ■*• un, sem gefur falangista- eða fasistaflokknum spánska víðtækt vald. Með tilskipun þessari er fa- langistum fengið í hendur vald til að ákveða stefnuna í utan- ríkismálum, menntamálúm, samgöngumálum, dómsmálum og lögreglumálum. Starfsemi útvarps og blaða eiga þeir einnig að stjórna. Ms á brezkt verzlunarfyr- irtæki í lientsin i gær. -----»---- Starfsfólkið varð að flýja, og skrifstofu- gögnin voru mölbrotin af árásarmönnum SignrðurfrðAm- arholti látinn. SIGURÐUR SIGURÐSSON skáld frá Arnarholti lézt að heimili sínu hér í bænum í gær. Bar dauða hans brátt að, því að hann hafði verið við góða heilsu imdanfarið. Hann var lengi lyfsali í Vest- mannaeyjum, en kunnastur er hann af skáldskap sínum. Á unga aldri gaf hann út ljóð eftir sig og var þegar tekinn í beztu skálda tölu íslenzkra. Þá er hann og kunnur af starfi sínu í þágu björgunar- mála við Vestmannaeyjar. Sig- urður var hár maður og höfð- inglegur, og var eftir honum tekið, hvar sem hann fór. LONDON í morgun. FÚ. ITIENTSIN gerðist sá atburð- ur í gær, að 200 Kínverjar gerðu árás á skrifstofuhús brezks verzlunarfyrirtækis. — Starfsfólkið leitaði hælis í ann- arri byggingu í hverfi, þar sem áður var forréttindasvæði Belgíumanna. Þegar það kom aftur á vinnustað sinn, höfðu öll skrifstofugögn verið mölbrotin, og ýms önnur spjöll höfðu þar verið gerð. Áður en fundum neðri mál- stofu brezka þingsins var frest- að í dag, var enn rætt um utan- ríkismálin. Við umræður þessar gaf Chamberlain forsætisráð. herra mikilvæga yfirlýsingu varðandi Austur-Asíumálin. Höfuðatriðin í ræðu Cham- berlains voru þessi: Eins og sakir standa hafa Bretar ekki í Asíu herskipaflota, sem sé öflugri en japanski flot- inn, en Bretar hafa slíkan flota í Evrópu, og undir vissum kringumstæðum kynni brezka stjórnin að telja nauðsynlegt að senda hann til Austur-Asíu. Þetta er ekki sagt til þess að ógna Japönum, sagði Chamber- lain, heldur í aðvörunarskyni. Bretland vildi helzt geta leyst ágreiningsmálin með samkomu- lagi, en þó ekki, ef slíkt sam- komulag kostaði það, að hverfa yrði frá mikilvægustu grund- vallarreglum. Kappleiknum, sem fram átti að fara í gær milli 1. flokka Fram og Víkings, var frestað. Logreglan setnr upp hraðamerki. LÖGREGLAN er um þessar mundir að setja upp hraða- merki á tveimur stöðum í bœn- Um. Annað þeirra er rétt fyrir inn- an Tungu og hitt á mótum Hafn- arfjarðarvegar og Laufásvegar. Eru þessi merki áminning til bifreiðastjóra. Stendur á merk- inu, sem snýr að bænum 45 km., en því sem snýr frá bænum 25 km. Það þýðir að er bifreiða- stjórinn ekur fram hjá merkinu til bæjarins má hann aka á 25 km. hraða, en þegar hann ekur fram hjá merkinu úr bænum þá má hann aka á 45 km. hraða. Togarinn, sem ÓAinn iób um daginn, DÓMUR í máli þýzka togar- ans, sem Óðinn tók um daginn fyrir Suðurlandi, féll í gær í Vestmannaeyjum á þá leið, að togarinn var sýknaður. Togarinn var sýknaður vegna þess, að fullnægjandi sannanir um sekt hans vantaði, enda sór skipstjórinn ásarnt skipshöfn- inni, að þeir hefðu ekki verið að veiðum í landhelgi. ? \ Japönsk herskip á verði úti fyrir Tientsin /

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.