Alþýðublaðið - 09.08.1939, Page 1
XX. ÁRGANGUR
MIÐVIKUDAGINN 9. ágúst 1939
180. TÖLUBLAÐ
RITSTJORI: F. R. VALDEMARSSON
ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
Saltsildln komin
npp 138 pðsnnd
tnnnnr.
J DAG er ágætt
veiðiveður
fyrir Norðurlandi, en þó er
ofuriítil þoka. Söltunin á öllu
landinu er í dag orðin um 38
þús. tunnur.
t gær og í nótt vioru saltaðar á
Siglufirði 3—4 þúsund tunnur, en
352 á Djúpuvík.
Allmörg skip hafa komið inn
með slatta til söltunar, en ekkert
i bræðslu.
Aflahæsta skipið var um helg-
ira línuveiðarinn Jökull frá Hafn-
arfirði, sem hafði f>á fengið 7456
,mál í bræðslu og 140 tunnur í
salt. Togarinn Skallagrímur var
næstur með 7527 mál í bræðslu.
Þar næst var vélbáturinn Dagný
'með 7349 og fjórði togarinn
Skutull með 7233 mál.
Fimleikaflokkar Ármanns á
Lingiaden komu heim í nótt.
Hll blððin á Norðnrlðndnm luku miklu
iofsorðl á fimleikasýningar fslendinga.
Viðtal við Jens Guðbjörnsson:
F
JENS GUÐBJÖRNSSON
Baðstofa M12. öld fnnd-
in að Stðng í Þjórsárdal?
---------
Tóftirnar,sem voru tvo metra undir gras
sverði, eru lítið skemmdar, og rennurnar
meðfram foáðum veggjunum sjást ennþá.
Þorleifur jóhann-
ESSON verkamaður
frá Stykkishólmi, sem hefir
stundum fengizt við forn-
leifarannsóknir og verið með
þjóðminjaverði, hefir undan-
farið unnið við fornleifarann-
sóknirnar í Þjórsárdal. Hann
kom til bæjarins í gær, og
spurði Alþýðublaðið hann,
hvað rannsóknunum þar
eystra liði.
Þorleifur sagði þær fréttir, að
oð Stöng hefðu nú verið grafnar
út bæjarrústir, skáli eða stofa, og
auk þess rústir, sem sennilegt er
að sé baðstofa. Er þetta bakhús
og er mjög lítið skemmt, enda
hefir það fyllzt af vikri. Liggja
rennur meðfram báðum veggj-
um og út um gaflinn, sem snýr
frá skálanum. Er taliÖ, að botn
þéssara renna hafi verið lagður
lueð hellum. Gólfið í þessari tóft
hefir verið hellulagt.
Er þetta mjög merkilegur fund-
ur, og bendir byggingarlagið á,
að baðstofan sé frá 12. öld. Gólf
þessara rústa er fulla 2 metra
undir núverandi grassverði. Bað-
stofan er talin vera um 2 sinnum
3 nietrar að stærð. Eru veggir
beggja húsanna alveg óhrundir.
Er enn unnið að rannsókn þess-
ara rústa, en Þorleifur telur, að
hætta sé á, að rústirnar eyði-
leggist í vetur, ef ekki verður
byggt yfir þær, en á því telur
liann mikla nauðsyn.
Roussell verkfræðingur hefir
síjórnað rannsóknunum á Stöng.
Matthias Þórðarson heldur á-
fram iannsóknum''að Skeljastöð-
um, en þar virðist byggð hafa
verið lengst. 1 kirkjugarðinum
hafa komið í ljós um 60 beina-
grindur. Um húsaskipun á þess-
nm st»ð «r #nn lítið vitað; rann-
sóknirnar eru enn ekki komnar
svo langt.
I Skallakoti er rannsóknum að
mestu lokið.
Bæði sænski vísindamaðurinn
og sá finnski eru nú uppi í J3oig-
arfirði. Vinna þeir að forleifa-
rannsóknum, annar að Norðtungu
en hinn að Lundi.
Eldsvoði í lyfjaUð-
IfflBi á Seyðísfirði.
XJ* LDUR kom upp í lyfja-
búðinni á Seyðisfirði
um helgina. Varð eldsins
vart um tvöleytið, en það
tók slökkvilið bæjarins full-
ar tvær klukkustundir að
ráða niðurlögum hans.
Var slökkvistarfið ákaflega
erfitt vegna uppgufunar alls kon-
ar meðala, sem mjög eitraði
loftið.
Tjónið af brunanum var ekki
mjög mikið, og það eina, sem
eyðilagðist, var nokkuð af vöru-
birgðum í kjallara lyf jabúðarinnar.
IMLEIKAFLOKKAR
Ármanns á Lingiaden-
mótinu í Stokkhólmi komu í
nótt kl. 3 með Brúarfossi. —
Jafnvel þó að um miðja nótt
væri, var hópur manna
mættur á hafnarbakkanum
til að fagna utanförunum.
Hefði þeim þó áreiðanlega
verið fagnað miklu betur,
ef skipið hefði komið á skap-
legum tíma.
Tíðindamaður Alþýðu-
blaðsins hafði tal af Jens
Guðbjörnssyni formanni Ár-
manns og fararstjóra um
borð í skipinu á leiðinni frá
Vestmannaeyjum í gær.
„Ferðin hefir gengið alveg
prýðilega,“ sagði Jens Guð-
björnsson, „við lögðum af stað
með Lyru 13. júlí og sýndum
fyrsta sinn í Þórshöfn, en skipið
stóð þar aðeins við 2Vá tíma,
svo að við urðum að fara beint
í land til að sýna, og svo strax
um borð aftur. „Hafnar fimleika
félag“ tók á móti okkur — og
hafði undirbúið sýninguna, hún
tókst vel, og voru færeysku
blöðin sammála um það, að
heimsókn okkar hefði verið
merkur viðburður. Frá Þórs-
höfn sigldum við áfram til
Bergen og komum þangað á
mánudagsmorgun kl. 10. Undir
eins og við vorum búin að þvo
af okkur sjávarseltuna, höfðum
við æfingu, enda var fimleika-
sýning fyrirhuguð kl. 8 um
kvöldið við „Bergenshus." —
„Bergens Turnkrets“ tók á móti
okkur og bauð okkur í hringferð
um bæinn og í smásamsæti.
Sýning okkar við Bergenshus
tókst einnig vel, eins og líka
blaðaummæli sýna:
„Bergens Aftenblad“ sagði:
„Stúlkurnar vöktu mikla hrifn-
ingu. Æfingar þeirra, án undir-
leiks, eru eitt af því bezta, sem
undirritaður hefir séð.“
„Bergens Tidende“: „Karla-
flokkurinn vakti mikla hrifn-
ingu, sérstaklega fyrir dýnu-
stökkin, sem voru sýnd með
4 stíl, öryggi og hraða.“
Stokkhólmsfarar Ármanns.
Þannig skrifuðu og öll önn-
ur blöð. Frá Bergen héldum við
svo beint til Oslo og komum
þangað á þriðjudagskvöld, þar
höfðum við ekki sýningar, en
fórum þaðan áleiðis til Stokk-
hólms morguninn eftir. Frá
Oslo fór með okkur Vilhjálmur
Finsen, viðskiptafulltrúi íslands
í Noregi, en hann var fulltrúi
ríkisstjórnarinnar á Lingiaden.
Til Stokkhólms komum við um
kvöldið, og tók hópur vina og
kunningja á móti okkur, en Jan
Ottoson rektor, heilsaði okkur
með ræðu og bauð okkur vel-
komin. Daginn eftir, f-immtu-
daginn 20. júlí kl. 7, hófst
Lingiaden. Mótið hófst með
skrúðgöngu 7500 fimleika-
manna og kvenna frá milli 30
og 40 þjóðum. íþróttamennirnir
gengu frá fjórum stöðum í borg-
inni, en mættust allir á „Stadi-
on.“ Þar var mótið svo hátíð-
lega sett í viðurvist Gustav
konungs. Athöfnin hófst með
því, að fánar allra þjóðanna
voru bornir inn, en að því
loknu gen,gu flokkaxnir fyrir
konung og heilsuðu honum. —
Sýningunum var hagað þannig,
að hver flokkur hafði eina ár-
degissýningu. Við sýndum á Al-
vikshallen, sem var einn af
stærstu og beztu sýningarstöð-
um mótsins. Sýndum við bæði
á laugardag og sunnudag, og við
gátum sannarlega verið ánægð
með undirtektirnar. Blöðin
luku öll lofsorði á frammistöðu
flokkanna. „Nya dagligt Alle-
handa“ sagði t. d., að hraði
karlaflokksins og mýkt hans
væru sérstaklega einkennandi
fyrir hann — og sýndi hann, að
hann væri vel æfður af kennar-
anum. Var og mikið lof borið á
Jón Þorsteinsson, kennara
flokkanna, og sagði eitt blaðið,
að hann hefði sýnt svo stílhreina
— viðkunnanlega og vel æfða
flokka, báða í anda Lings, og
þó með persónulegum sérkenn-
um, sem aðeins er hægt að skapa
með ríku hugmyndaflugi og
mikilli prýði. Sýningarnar voru,
eins og áður er getið, á laugar-
dagsmorgun og sunnudags-
kvöld 1 Alvikshallen, og var
hún fullskipuð. En á laugardags
kvöld hafði kvennasflokkurinn
aukasýningu á „Skansen“, og
þar með var sýningum okkar í
Stokkhólmi lokið.
Einn daginn bauð félagið
„Sverige-Island“ okkur til Salt-
sjöbaden, rétt fyrir utan Stokk-
hólm, og tóku 16 Ármenningar
við það tækifæri sundmerki
Svía. Annan daginn bauð fim-
leikaflokkur K.F.U.M. í Stokk-
hólmi, sem var hér í fyrra, okk-
ur til íþróttaskólans í Lillsved,
en Jan Ottoson er rektor þess
Frh. á 4. síðu.
Yfirmaður enska loftflotans, Sir Cyril Newall loftmarskálkur
(til hægri), heilsar upp á flugmálaráðherra Frakka, Guy La
Chambre, á flugvellinum í Croydon, þegar ráðherrann heim-
sótti England fyrir nokkrum dögum.
509 sprengjiflngvélar lékn
árás á brezkar borgir I gær.
En loftvarnir reyndustalls staðar ilagi.
------4,----
Flotaæfingarnar hefjast í dag.
LONDON í morgun. FÚ.
ESTU loftvarnaæfing-
ar, sem nokkuru sinni
hafa verið haldnar á Bret-
landi, byrjuðu í gærkveldi,
og standa yfir til næstkom-
andi föstudagskvölds.
Eitt höfuðmarkmið loft-
varnanna er að komast að
raun um, hversu traustar séu
Ioftvarnir gegn árásum á
brezkar borgir að næturlagi.
Fimm hundruð af hraðfleyg-
ustu sprengjuflugvélum flug-
flotans tóku að sér hlutverk
fjandmannanna í loftvarnaæf-
ingunum í gærkveldi og flugu
inn yfir brezkar borgir og lands-
svæði. Þrátt fyrir slæmt
skyggni, tókst að sjá til ferða
hverrar einustu af þessum flug-
vélum úr loftvarnastöðvum
borga og sveita og blustunar-
stöðvum.
Flotaæfingarnar byrjuðu í
dag, og eru 130 herskip saman
komin í Weymouth Bay á suð-
urströnd Englands, og bíður
flotinn reiðubúinn komu kon-
ungs, sem er á leið til Wey-
mouth frá Balmoral-kastala í
Skotlandi, til þess að skoða
flotann, áður en flotaæfingarnar
í Norðursjó byrja.
Almenningur á að taka mik-
inn þátt í loftvarnaæfingum
þeim, sem nú fara fram. í 28
héruðum í Suður-Englandi og
Midlands verða öll ljós slökkt
hvarvetna frá miðnætti næsta
til klukkan 4 í fyrramálið.
250 pús. Þjóðverjar seldir
fyrir batiarréttlidi í Triest
----&----
Svæsin yfirlýsing gegn Hitler foreidd
út um Suður-Þýzkaland fyrir samninga
hans við Mussolini um Suður-Tyrol.
------#------
LONDON í morgun. FÚ.
FREGN FRÁ PARÍS segir,
að félagsskapur lýðræðis-
sinnaðra Þjóðverja, sem berst
gegn Hitler og nazistum, hafi
breitt út uni allt Suður-Þýzka-
land yfirlýsingu, þar sem ráðizt
er hvasslega á Hitler og stjórn
nazista, aðallega fyrir að leyfa
Itölum að reka þýzka menn
hópum saman úr Suður-Tyrol.
í yfirlýsingunni, sem er sögð
rituð af Heinrich Mann, er Hit
ler sakaður um að hafa „selt
250 000 Þjóðverja fyrir hafnar-
réttindi í Triest“,
Heræfingar h]á Dresden
LONDON í morgun. FO.
Heræfingar byrjuðu í Þýzka-
landi nálægt Dresden. Taka þátt
í þeim hersveitir, sem hafa vél-
knúin farartæki og hafa með
höndum vélknúin hergögn. Her-
æfingarnar hófust með þvi, að
lagðar voru í skyndi flotbrýr yf-
ir Elbe.
Almenningur í Þýzkalandi hef-
ir ekki fengið nánar fregnir af
þessum heræfingum. Mikið af
Brk. á 4. tft«