Alþýðublaðið - 10.08.1939, Side 1

Alþýðublaðið - 10.08.1939, Side 1
AIÞTÐDBIADQ) RITSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN XX. ARGANGUR FIMMTUDAGINN 10. ágúst 1939 181. TÖLUBLAÐ ;ex tonarar selja í 6 ferðim tll Hýzkilaids fyrir 356 Dns. krönur! ..— ■ ■■ ... Togarinn Venus seldi í einni ferð fyrir 86 þus. kr. ---- -»-- Rfkisstiórnln reynir að I á sðluleyfin aukin Enskt herskip að mæliBgnm utan við hðfnina í morgnn? ENSKT HERSKIP var í morgun lengi að sveima hérna fyrir utan eyjarnar, og héldu margir því fram, að það væri þar að mælingum, hvort sem það er rétt eða ekki. Brezka aðalræðismanns- skrifstofan skýrði Alþýðu- blaðinu svo frá í morgun, að þetta væri fiskieftirlits- skip, sem ætti að gæta að togurum og hefði það til- kynnt komu sína hingað. Ætlar það að dvelja hér í Reykjavíkurhöfn í . eina viku. Þetta er alveg nýtt skip, hljóp af stokkunum í janúarmánuði. Það er búið öllum nýtízku tækjum og er um 1200 tonn og er því frekar lítið, en mjög fal- legt. Það heitir „Pelican“ og kom það inn á höfnina um kl. 12 í dag. Brezka aðalræðismanns- skrifstofan bar á móti því, að skipið hefði verið að mælingum. Það hefði að- eins verið að bíða eftir því ]'• að komast inn í höfnina. ATTA togarar stunda nú veiðar fyrir ísfiskmarkaðinn í Þýzkalandi, og hafa þeir selt svo vel undanfarið, að það er algerlega einsdæmi í ágústmánuði. Hafa sex togarar selt í aðeins sex ferðum fyrir 154.108 ríkismörk, — eða 356.158 íslenzkar krónur. Max Pemberton 3. ág. 108 smál. fyrir 23,335 Rm. eða 54,003 ísl. kr. Karlsefni 4. ág. 108 smál. fyrir 23,137 Rm. eða 53,534 ísL kr. Bragi 5. ág. 113 smál. fyrir 27,150 Rm. eða 63,820 ísl. kr. llelgafell 7. ág. 107 smál. fyrir 24,352 Rm. eða 56,346 ísl. kr. Venus 8. ág. 138 smál. fyrir 37,300 Rm. eða 86,325 ísl. kr. Geir 8. ág. 93 smál. fyrir 18,834 Rm. eða 43,578 ísl. kr. skamma stund verið að fylla kvótann. Ríkisstjórnin hefir nokkrar áhyggjur út af þessu, og má því segja, að flest steðji nú að henni, þegar jafnvel góð- ur afli og toppsala skapar henni erfiðleika. Mun hún hafa í hyggju, að reyna að fá heildar- kvótann hækkaðan — og er vonandi, að henni takist það, þó að á því kunni hins vegar að vera nokkur vafi. ísfiskskvótinn til Þýzkalands er upp á 1 milljón ríkismarka og má selja ísfisk í Þýzkalandi fyrir þessa upphæð í ágústmán- uði, september, október og nóv- ember. Skiptist upphæðin þann- ig á mánuðina: Ágúst 225 þús. Rm., september 330 þús. Rm., október 330 þús. Rm. og nóv- ember 115 þús. Rm. Eins og menn sjá, eru aðeins um 70 þús. ríkismörk eftir af kvótanum fyrir þennan mánuð, en leyfi mun vera fyrir hendi til að selja nokkuð upp í kvót- ann fyrir septembermánuð í þessum mánuði. Alls hefir 8 togurum verið út. hlutað fisksöluleyfi í Þýzka- landi. Auk þeirra, sem að ofan getur, hefir Júpter og Reykjaborginni verið' úthlutað leyfum, og eru þeir nú við veiðar eða að fara á veiðar. Þessi sala er svo mikil, að sýnt er, að ef veiði helzt, verður Leiðtoqar nazista í Danzig á heimleið frá Berchtesgaden með fyrirskipaiir Hitlers. -.— —-»-- Mýr stríðsæsingafundur gegn Pól ferjuin boðaður i borginni fi kvðld LONDON í morgun. FÚ. ORSTER, leiðtogi naz- ista í Danzig, og Saska, yfirmaður áróð- ursstarfsemi nazista þar, flugu frá Berchtesgaden í gær til Danzig, að afstöðnum fundi, sem þeir sátu þar hjá Hitler. Þeir komu við í Prag á heimleið og voru þar nokkurar klukkustundir, áður en þeir héldu áfram til Danzig. Forster flytur ræðu á fundi í Danzig í kvöld. Hefir verið boðað til þessa fundar til þess að mótmæla hótunum Pólverja um að skjóta af fallbyssum á Danzig, en þannig er þetta orð- að í fundarboðinu. Þessi orð stóðu í blaðinu „Czas“ í Varsjá: „Ef gerð verður tilraun til þess að breyta stjórnskipulagi Danzig með valdi og sameina það Þýzkalandi, mun verða hleypt af fallbyssum Póllands.“ Blaðið kemur út daglega og er málgagn íhaldsflokksins, en enda þótt það styðji stjómina, er ekki talið, að það fúlki alltaf skoðanir hennar. Þrátt fyrir það notar þýzka undirróðursstarfsemin þessi orð blaðsins sem texta, og í þýzkum blöðum er veitzt heiptar- lega að Pólverjum fyrir ágengn- istilhneigingar þeirra. Er alveg gengið fram hjá því, að Smigly- Ryds marskálkur, yfirhershöfð- Frh. á 4. síðu. 2800 tflnnar af grá- Inðn til Belgin og Hollands. Grálúðuveiðar eru að verða sæmilegur atvinnuvegur fyrir þá, sem þær stunda, en það eru aðallega smábátasjómenn í ver- stöðvunum við Eyjafjörð, aðal- lega í Ólafsfirði, Dalvík, Hrísey og Höfða á Höfðaströnd. Selfoss er að fara norður til að taka fyrstu grálúðusending- una á Belgíumarkað, um 900 tunnur, en alls hefir Fiskimála- nefnd samið um sölu á 2800 tunnum af grálúðu til Belgíu og Hollands, og eftir því, sem Al- þýðublaðið hefir frétt, er verðið fyrir grálúðuna mjög sæmilegt. Alþýðublaðið spurði skrif. stofustjóra Fiskimálanefndar í morgun um það, hvað mætti gera áætlun um mikla sölu á grálúðu í sumar. Taldi hann ekki of í lagt að áætla, að selja mætti fyrir yfir 200 þúsund krónur, en í fyrra var selt alls fyrir um 120 þúsund krónur. Undanfarin ár hefir aðeins verið selt fyrir örlítið, Er því hér að vaxa upp næstum nýr atvinnuvegur. Hermdarverk „írska lýðveldishersins“ á Englandi: Myndin er tekin á Kings Cross járnbraut- arstöðinni í London, eftir sprenginguna, sem varð fyrir hálfri ag narri viku. — Hún varð ein- um manni að bana, en 14 særðust meira og minna alvarlega. 150 manns eiga að vera komnir i vinnu við hitaveit^ una um næstu mánaðamót. En ætlað er, að 400—500 manns vinnl við framkvæmdlrnar, þegar flest verður. SÍÐARI hluta þessa mánaðar verður það mörgum verka- mönnum bætt við í hitaveituna, að um mánaðamót er gert ráð fyrir, að alls vinni um 150 manns. Fjölgun í vinn- unni er undir því komin, hvenær efni það til hitaveitunnar, sem koma á frá Kaupmannahöfn, kemur hingað, en á því er von innan skamms. K.R. og Valor I kvöld. í kvöld efna knattspymufélög- in K. R. og Valur til aukakapp- leiks milli meistaraflokkanna, og hefst hann kl. 8,30. Síðast þegar félögin kepptu á meistaramótinu, var jafntefli milli þeirra, 2 mörk gegn 2, og munu bæði félögin |afa í hyggju að sýna með þess- um leik svart á hvítu, hvort hafi yfirhöndina. Alþýðublaðið átti í dag stutt viðtal við verkfræðingana frá Höjgaard & Schultz, þá Langvad og Lundgaard, þar sem þeir sátu í skrifstofu sinni í Tjarnargötu 10 og voru önnum kafnir við að skoða uppdrætti af Reykjavík. Vinnan við hitaveituna byrjaði, eins o,g kunnugt er, fyrir rúmri viku, og vinna nú um 40 manns vlð upphleðslur á undirstöðum fyrir hitaleiðslurnar i Öskjuhlíð. Þegar þetta verk er komið vel á Veg og efni komið til áfram- haldandi framkvæmda, sem aðal- lega er fólgið í því að steypa ofan á undirstöðurnar hylkin, sem hitaleiðslurnar eiga að liggja í, þá verður fjölgað í vinnunni, og töldu verkfræðingarnir hag- kvæmast, að hleðslan og steypa hylkjanna héldust nokkurn veg- inn í hendur. Hver einasta gata verð- nr grafin upp. — Er leiðslan frá Reykjum að Öskjuhlíð aðalverkið? „Nei,“ svarar Langvad verk- fræðingur. „Aðalverkið liggur auðvitað í innanbæjarleiðslunum, en þær verða um 45 km. langar. Verður að grafa upp hverja ein- ustu götu, og verða skurðirnir frá 20 cm. og upp í einn metra djúpir. Eins og gefur að skilja, verða mjög miklar tafir við þennan skurðgröft, því að fara verður fram hjá öllum þeim leiðslum, sem nú eru i götunlum. Einnig verður í sambandi við leiðslurnar að koma fyrir milli 400—-500 skiptistöðvum í götun- um, en á þessu verki verður ekki byrjað fyrr en á næsta sumri.“ — Hvað búizt þið við, að margir verkamenn vinni, þegar fullur kraftur er kominn á fram- kvæmcllrnar? „Það er ákaflega erfitt að segja urn það,“ segja báðir verk- fræðingarnir. „Ef vinnuskilyrði verða slæm í vetur, þurfum við að nota sumarið þeim mun bet- ur, því að við verðum að hraöa verkinu sem allra mest og halda áætlunina, en verkinu á að vera lokið eins og kunnugt er um áramótin 1940—1941. En við ger- um ráð fyrir, að undir eðlilegum kringumstæðum vinni við hita- ve'ituframkvæmdirnar milli 400 til 500 nranns, þegar flest verð- ur.“ Aðeins táir útlendinpar verða við vinnuna. — Koma margir danskir sér- fræðingar og verkstjórar hingað til að vinna við framkvæmdirn- ar? „Nei, eins fáir og írekast er únt, og munum við leggja mikla áherzlu á, að allir þeir verkstjór- ar, sem við þurfum að nota, séu íslenzkir, og eins verður með iðn- lærða menn og aðra sérfræðinga, Frh. k 4. síðu. Verzlunarjðfnuðnr- inn ðhagstæður nm 11 milljónir króna. VERZLUNARJÖFNUÐ- URINN var um síð- ustu mánaðamót óhagstæð- ur um 11 milljónir króna. Alls hafði verið innflutt fyrstu 7 mánuði ársins fyr- ir 36,4 milljónir króna, en útflutt fyrir 25 milljónir króna. Verzlunarjöfnuðurinn var óhagstæður um rúmar 8 milljónir króna á sama tíma í fyrra. Þá var inn- flutt fyrstu 7 mánuðina fyrir 30,9 milljónir króna og útflutt fyrir 22,7 millj. króna. Verzlunarjöfnuðurinn er því um 3 milljónum króna óhagstæðari nú en um mánaðamótin júlí—ágúst í fyrra. Ofsaakstor í gær hafði Hffistnm valdið stórslysi. OFSAAKSTUR á Hafnarfjarö- arveginum í gær haföi næst- um valdið stórslysi. Vörubifreið var að koma eftir veginum með sandfarm og ók 6- gætilega hart. Allt í einu valt Frh. á 4. síhu.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.