Alþýðublaðið - 14.08.1939, Page 1
RITSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
XX. ÁRGANGUR MÁNUDAGINN 14. ÁG. 1939 184. TÖLUBLAÐ
....|.' ,._ .....!L_.l.* ' .■Sj"” .................
lðgr®slmnál£n s
Nokkrnm ISgregln-
p|énum hafa verlé
setílr ársilf
Upplýsgngar Jénafans Hallvarés^
snnar liSgregglusfjféra fil blaðslns.
Grein alþýðublaðs-
INS síðastl. laugardag
um óregluna innan lögregl-
unnar hefir eins og vænta
inátti vakið mikið umtal í
bænum, og mun það vera
flestra manna mál, að Al-
þýðublaðið hafi sízt tekið of
djápt í árinni í gagnrýni
sinni á framferði einstakra
lögregluþjóna.
Alþýðublaðið hefir nú snú-
ið sér til Jónatans Hallvarðs-
sonar lögreglustjóra og spurt
hann, hvort hann hefði nokkr
ar athugasemdir að gera við
frásögn blaðsins af þeim mis-
fellum, sem fyrir hefðu kom-
ið.
Lögreglustjórinn bar engar
brigður á það, að þau dæmi, sem
Alþýðublaðið nefndi, hefðu átt
sér stað og rétt væri frá þeim
hermt í aðalatriðum. En rétt
væri þó að geta þess, að hér væri
um viðburði að ræða, sem hefðu
átt sér stað fyrir nokkuð löngu
síðan, sumir fyrir ári.
Lögreglustjóri skýrir svo frá,
að þessar sakir hafi á sínum
tíma verið til lykta leiddar af
honum í fullu samráði við rík-
isstjórniná og mann úr bæjar-
stjórn Reykjavíkur, en lögreglu-
þjónarnir eru, eins og kunnugt
er, starfsmenn bæjarins og skip-
aðir af bæjarstjórn. Hafi þeim
mönnum innan lögreglunnar,
sem gerzt höfðu sekir um mis-
fellur í starfi sínu, verið refsað
á svipaðan hátt og títt sé í því-
líkum tilfellum í lögregluliði
erlendis með því að svipta þá
kaupi um ákveðinn tíma, láta
þá vinna bindindisheit og ganga
í bindindisfélög og setja þeim
þá úrslitakosti, að þeim yrði
vikið úr stöðum sínum, ef þeir
héldu ekki heit sín eða yrði nýj.
ar misfellur á utan starfs síns
eða innan.
Samtímis kvaðst lögreglu-
stjóri hafa gefið út fyrirmæli og
yfirlýsingu til lögreglunnar í
heild þess efnis, að eftirleiðis
yrði tekið harðara á hvers kyns
yfirsjónum, sem lögregluþjónar
kynnu að gerast sekir um, og
lagt fyrir alla yfirmenn innan
lögreglunnar, yfirlögregluþjóna
og varðstjóra að fylgjast sem
nákvæmast með starfi og hegð-
un lögregluþjónanna, og boðið
þeim að gefa sér, lögreglustjóra,
tafarlaust skýrslu um allar mis-
fellur, sem fyrir kæmu í starfi
þeirra. Telur lögreglustjóri, að
þessar ráðstafanir hafi þegar
borið þann árangur, að treysta
megi því, að slíkar misfellur og
þær, sem fyrir hafa komið, end-
urtaki sig ekki í framtíðinni,
Alþýðublaðið efast alls ekki
um hinn góða vilja Jónatans
Hallvarðssonar lögreglustjóra
til þess að lagfæra þær misfell-
ur, sem hafa átt sér stað í
starfi einstakra lögregluþjóna,
enda er því kunnugt um það úr
öðrum áttum, að hann hefir vilj-
að taka harðar á þeim og grípa
til áhrifameiri ráðstafana til
þess að hindra endurtekningu
þeirra heldur en gert hefir ver-
ið. Blaðinu er kunnugt um það,
að úr svo að segja öllum stjórn-
málaflokkum var unnið að því
að koma í veg fyrir það, að svo
hart yrði tekið á þeim misfellum
einstakra lögregluþjóna, sem
gerðar hafa verið að umtalsefni,
eins og lögreglustjóri sjálfur
vildi, og verður slíkt að teljast
vítavert og hættalegt fyrir ag-
ann innan lögreglunnar í fram-
tíðinni.
Það er vitanlegt, að það er
ekki hægt að kenna lögreglu-
stjóranum um það, þó að ein-
stakir lögregluþjónar brjóti af
sér í starfinu, enda eru störf
hans svo umfangsmikil, að ó-
hugsanlegt er fyrir hann að hafa
eftirlit með daglegri hegðun
hvers einasta lögregluþjóns.
Það fellur því eðlilega í hlut-
verk yfirlögregluþjónanna og
varðstjóranna að fylgjast með
daglegu starfi lögregluþjónanna
og tilkynna lögreglustjóranum,
ef einhverjar misfellur verða á
því. Þá fyrst kemur til kasta
lögreglustjórans, og það er hart
að þurfa að segja það, að það
skuli geta komið fyrir, að menn
úr öllum stjórnmálaflokkum
setjist beinlínis að honum, sem
ábyrgðina ber, til þess að koma
í veg fyrir þær ráðstafanir, sem
hann telur nauðsynlegar fyrir
agann í lögreglunni.
Fyrir tuttugu og fimm árum.
Alþýðublaðinu hefir síðan á
laugardaginn verið bent á það
Prk. A 4. sfSa.
Um mánaðamótin júlí—ágúst árið 1914, eða fyrir svo að segja nákvæmlega 25 árum, hófst
heimsstyrjöldin, blóðugasti ófriðurinn, sem háður hefir verið í allri veraldarsögunni. Mynd-
in er endurminning um stríðsbrjálæðið fyrstu daga ófriðarins. Hún sýnir múg og margmenni
í Berlín hylla fjölmenna riddaraliðssveit á leið til vígvallanna.
Handtékui* f Danzig út af á«
rásum á leiðtoga nazista par.
—.... ♦
Samningar milli Póllands og Danzig i aðsigi?
LONDON í morgun. FÚ.
morgun hermir, að allmargir
FREGN FRA PARIS
póstmenn hafi verið handteknir í Danzig, fyrir að bera út
bækling, þar sem ráðizt var á Forster, leiðtoga nazista, og
nazistiska stefnu yfirleitt.
Forster, leiðtogi nazista í Dan-
zig, er sem stendur í Bayern.
Flutti hann þar ræðu í gær-
kveldi, og hafa einkanlega vakið
athygli þau ummæli hans, að ef
ekki hefði verið vegna þess
stuðnings, sem Pólland fengi
frá Bretlandi og Frakklandi,
væri sameining Danzig og
Þýzkalands um garð gengin.
Líkur eru taldar á, að forseti
senatsins í Danzig og fulltrúi
Póllands í Danzigfríríkinu muni
'hefja viðræður innan skamms
um ágreiningsatriði Pólverja og
Danzig.
í þýzkum blöðum er hafinn á.
róður með nýrri aðferð gegn
Sðltunin komln yfir
60 þúsund tunnur.
----♦----
En broOslusfldaraflf er orðinn
minni en á sama tíma f fyrra.
np ÖLUVERÐ söltun var á
Siglufirði í gær, eða
8614 tunnur. Veður er hið
bezta fyrir Norðurlandi —
nærri því logn og bezta
veiðiveður. Eru menn nú
hinir vonbeztu um, að úr fari
að rætast.
Alls hafði verið saltað á öllu
landinu síðastliðinn laugardag
50 189 tunnur, en nú má óhætt
telja, að söltunin sé í dag komin
upp yfir 60 þúsund tunnur.
Töluvert var saltað í nótt og
morgun á Siglufirði og víðar.
í Ólafsfirði voru saltaðar í gær
87 tunnur, á Skagaströnd 134
tn. í nótt og 1500 tn. á Akureyri.
Lítið hefir komið í síðastlið-
inni viku. Bræðsla er minni nú,
en á sama tíma í fyrra, eða
814 469 hektólítrar, en á sama
tíma í fyrra var komið í
bræðslu 1 093 045 hektólítrar.
Bræðslusíldaraflinn skiptist
Prk. á 4. sllkt.
Póllandi. Er alið á því, að hætt
sé við, að pólskir bankaseðlar
verði brátt verðlausir. Afleiðing
þessa hefir orðið sú víða, að
menn hafa reynt að fá málm-
mynt í stað seðla, og hefir þetta
þegar bakað mikil vandræði.
Þjóðverjar með Digverj-
nm méti Rðmenin.
LONDON í morgun F.Ú.
Pólsk blö'ð skýra frá því, að
nokkurs ótta gæti í Rúmeníu um,
að Þýzkaland muni reyna að
knýja Rúmena til þess að verða
við kröfum Ungverja.
I óopinberri tilkynningu í Ber-
lín segir, að þegar Czaky, utan-
ríkismálaráðherra Ungverjalands,
var í Berlín nýlega, hafi verið
lagt fyrir hann uppkast að samn-
ingi, sem var fjárhags- og við-
skiptalegs eðlis, og þess óskað,
að Ungverjaland gerðist aðili að
honum. Hefir verið gefið í skyn,
að Þjóðverjar áformi nánari sam-
vinnu við Ungverja og ætli að
styðja kröfur þeirra um, að Rúm-
enar skili þeim Transylvaniu.
Vinnr Ribbentrops fær
ekkl vegabréf til Parisar
LONDON í morgun F.Ú.
Þýzka sendiherranum í Paris
hefir verið tilkynnt, að franska
stjómin neiti að láta vini Ribb-
entorps, Abetz, sem var nýlega
vísað úr Frakklandi fyrir naz-
istiskan undirróður, í té nýja
v.gabrófsáritun.
hrædðnr við
að fara til Ungverja-
lands.
Dngverska stjérnin porir
ekki að ábyrgjasí éryggi
bans.
P
LONDON í gærkveldi. FÚ.
AÐ er nú kunnugt, að
Himmler, yfirmaður
þýzku leýnilögreglunnar, var
fyrir nokkru í Budapest, og
ræddi um öryggisráðstafanir
þær, sem gerðar yrði, er Hitler
kæmi til Ungverjalands.
Er sagt, að ungversk yfirvöld
hafi ekki viljað undirgangast að
ábyrgjast öryggi Hitlers, og hafi
Himmler þá stungið upp á, að
10 000 manna þýzk lögregla og
Rrh. á 4. stðu.
Dðnskn blaðnmenn-
Irnir konu í morpn
Létu vel ai sjéferéinni,
prátt íyrir slæmt veðar.
ÐÖNSKU hlaðamennirnir
komu hingað í morgun kl.
7 með „Alexandrínu drottn-
ingu“, Gengu íslenzku blaða-
mennirnir þá um borð og tóku
á móíi gestunum. Allir þeir, sem
getið var um í blaðinu á laugar-
daginn, Icomu, nema einn. Alex
Christiansen, frá fréttastofu Al-
þýSuflokksblaðanna dönsku,
sem forfallaðist á síðustu
síundu.
BlaSamennirnir létu alls ekki
illa af ferðinni hingað, þrátt fyr-
ir hið slæma veður, sem þeir
hrepptu alla leið frá Færeyjum.
Meðan þeir dvelja hér, búa þeir
að Hótel Borg. í dag sátu þeir
boð bæjarstjórnarinnar, í dag
kl. 4 eru þeir boðnir til forsæt-
isráðherra, og í kvöld koma þeir
saman með móttökunefndinni
úr Blaðamannafélaga íslands.
Snemma 1 fyrramálið .leggja
þeir svo af stað í norðurferðina,
en í henni verða þeir í viku.
Jarðskjálftakippir
gærkvðldi og
I
I
GÆRKVÖLDI klukkan 6,12
og í raorgun klukkan 7,42
fundust jarðskjálftakippir hér í
Reykjavík og nágrenni, sem virð-
ast hafa átt upptök sín nálægt
Þingvallavatni, eða um 45 km.
frá Reykjavík. Voru kippimirekki
sérlega sterkir, en þó vel mæl-
anlegir hér í Reykjavík, en þó
var kippurinn í morgun heldur
minnl en hinn.
Hafa verið smáhræringar fyrir
austan nú undanfarið og þá sér-
staklega 6. ágúst.
Bék frð Barða Gað-
oandsspi om land-
nám íslands i aðsigí.
KHÖFN í gærkveldi
J^ORSK BLÖÐ ráðast
F.Ú.
Barða
Guðmundsson þjóðskjala-
vörð fyrir skoðanir hans um land
Fi4i. á 4. sttft.
Dellan mllli Breta og
Japana harðnar áný
----------------
Fulltrúar japanska hersins í Tientsin
eru farnir af ráðstefnunni í Tokio.
LONDON í morgun. FÚ.
P ULLTRÚAR japanska
hersins í Tientsin, er
sendir voru á ráðstefnuna í
Tokio, héldu aftur til Tient-
sin í morgun. Domeifrétta-
stofan segir, að þeir hafi far-
ið, þar sem þeir hafi ekki
séð neinar líkur fyrir því,
að samkomulagsumleitanirn-
ar yrði teknar upp aftur í
bráð, þar sem lokafyrirskip-
anir til brezku fulltrúanna
hafa enn ekki borizt frá
London. Japönsku fulltrú-
arnir segja, að öll ágreinings-
atriði verði að leysa í einu.
Andbrezk félög héldu fund í
Tientsin í gær og tóku ákvörð-
Prh. á 4. fMn.