Alþýðublaðið - 21.08.1939, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 21.08.1939, Blaðsíða 1
AIÞÝDUBLASIÐ RITSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON XX. ÁR6ANGUR MÁNUDAGUR 21. ÁG. 1939 UTGEFANDI: ALÞYÐUFLOKKURINN 190. TOLUBLAÐ Landburður af sild ð Slgluflrðl og DJúpuTik síðan i fyrrakvöid. 20 000 tunniir saltaðar á Siglufirði, 7 200 á Djúpuvík. Skemmtistaður templara var víöðnr í gær. 'S*s| RÁTT fyrir slæmt veður í gær fór vígsluathöfn sum- arskemmtistaðar templara við Elliðavatn fram, og voru um 200 manns viðstaddir hátíðina. Var hátíðin sett klukkan 2 af Sigurði Guðmundssyni ljós- myndara, og á eftir söng hinn á- gæti I.O.G.T.-kór nokkur lög, en að því loknu voru nokkrar ræð- ur fluttar. Sigurður Þorsteinsson skírði þenna skemmtistað templara ,,Jaðar“, og á eftir voru vígslu- ljóð eftir Kristmund Þorleifsson sungin. Einnig töluðu m. a. Helgi Sveinsson og Sigfús Sig- urhjartarson. Fór skemmtunin öll hið prýði- legasta fram eins og vænta mátti. Það eina, sem skyggði á ánægjuna þarna, var rigningin. * T ANDBURÐUR af síld er nú á síldarverkunarstöðvun- um á Norðurlandi og byrjaði á laugardagskvöld. Unnið hefir verið dag og nótt á öllum söltunarstöðvum á Siglufirði síðan á laugardagskvöld, og eru þær allar full- ar af síld. Um 20 000 tunnur hafa verið saltaðar á Siglufirði einum yfir helgina, en 7200 á Djúpuvík. Mikil síld hefir einnig horizt á land á öðrum söltunarstöðvum. Engin hræðslusíld hefir borizt á land undanfarna viku fyrir norðan, og ekki heldur núna um helgina. Öll síldin hefir verið söltuð. Fyrsta flugsýninpi á Norðurlanði. ■ ^ YRSTA flugsýning á Norð- -■• urlandi fór fram í gær á Melgerðismelum fyrir sunnan Frh. á 4. síÖu. Ágætis veiðiveður er nú fyrir öllu Norðurlandi, og virðist síldarsvæðið ná óslit- ið frá Haganesvík og austur að Rauðunúpum. Mest er þó veiðin á Haganesvík, og veð- ur síldin þar. Einnig er síld úti fyrir Siglufirði, í mynni' Eyjafjarðar, kringum Flat- ey á Skjálfanda og austur undir Rauðunúpum. Eins og áður er sagt, voru saltaðar á Siglufirði frá því á laugardagskvöld og þar til í morgun um 20 þúsund tunnur alls, en á öllu landinu má gera ráð fyrir, að saltað hafi vérið frá því á laugardagskvöld, þeg- ar síldarhrotan hyrjaði, milli 30 og 40 þúsund tunnur, og ætti þá saltsíldaraflinn á öllu land- inu að vera kominn upp í um 140 þúsund tjunnur. Á öðrum stöðum en Siglufirði og Djúpuvík, sem frétzt hafði um- í morgun, hafði verið saltað sem hér segir í gær: Ingólfsf jörður 1012 tunnur Húsavík 121 — Skagaströnd 1076 — árás á Sveii Benediktsson á Siglnfirði í fyrrakvðld. -----♦---- Lögreglan varð að forða honum und- an reiði óánægðra fiokksbræðra hans. Ólafsfjörður 384 — Hofsós 18 — Sauðárkrókur 511 — Hrísey 131 — Frá því á laugardag og þangað til í morgun hefir fjöldi skipa komið inn til Siglufjarðar hvað eftir annað. I morgun voru eftir- farandi skip einna hæst: Kári með 380 tunnur, Gullfoss 511, Skagfirðingur 299, Bjarki 230, Dóra 188, Vestri ísf. 192, Gulltoppur 156, Þór 415, Reynir og Víðir 165, Eldborg 299, Björg- vin 158, Huginn II. 179, Henry Frímann 225, Valbjörn 100, Garð- ar Ve. 138, Arthur & Fanney 177. DjApavik. AFGREIÐSLA sú, sem síld- arverksmiðjumál Siglfirð- inga fékk, hefir nú haft einkenni leg eftirköst. Síðastliðið laugardagskvöld var haldinn dansleikur á Siglu- firði. Voru þar m. a. margir ungir sjálfstæðismenn og helztu forkólfar íhaldsins á staðnum. Fór dansleikurinn að öllu leyti vel fram, þangað til Sveinn Benedui.tsson kom þangað. Þegar Sveinn kom inn, kom upp kurr 1 salnum, og Jón Gísla- son, sem ásamt Aage Schiöth, hafði sagt af sér fulltrúastörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn í bæj- arstjórn Siglufjarðar fyrr um daginn, í mótmælaskyni við gerðir flokksbræðra sinna í síld- arverksmiðjumálinu, hrópaði upp: ,,Út með Svein Benedikts- son. Það er ekki hægt að skemmta sér, þar sem Sveinn Benediktsson er við- staddur, það getur að minnsta kosti enginn Siglfirðingur. Hann eitrar loftið í kringum okkur. Hann er og verður ætíð öllum til ills og bölvunar, hvar sem hann sýnir sig. Við viljum ekki vera undir sama þaki og hann“. Er Jón hafði þetta mælt, heyrðist hrópað úr ýmsum átt- um úr salnum: „Burt með Svein Benediktsson og Þormóð Eyjólfs- son úr bænum!“ Gerðist þá einhver svo djarf- ur að kákla utan í Svein, og var því næst gerð tilraun til að kasta Sveini út. En þá kom lögreglan Sveini til hjálpar og urðu all- miklar ryskingar, en að lokum sá lögreglan sér ekki annað fært, en að fara með Svein á hótel, og loka hann þar inni, þangað til mesti móðui'inn var runninn af flokksbræðrum hans. Frá því á laugardag hafa verið saltaðar á Djúpuvík 7200 tunn- ur. Er þá alls búiö að salta þar 9456 tunnur. Eftirfarandi skip komu þangað ínn í nótt: Hafsteinn með 178 tunnur, Huginn I. 353, Baldur 83, Rán 120, Jón Ólafsson 351, Fæneying- ur 143, Garðar 98, Hafsteinn 166, Tryggvi gamli 127, Færeyingur 78, Surprise 160, Sindri 124. Veður er ágætt á Djúpuvík í dag, suðvestan andvari. Skipin, sem áður hafa öll verið á Húna- flóa, hafa nú fært sig austar, þangað sem veiðin er. flkureyri. Fyrsta síldin kom til Akur- eyrar í nótt. Komu 406 tunnur til Verkalýðsfélags Akureyrar af togaranum Júní frá Hafnar- firði. Til Jötunheima komu 800 tunnur af einu skipi og 300 tunnur af öðru. Maður fellnr I hver i Hveragerði og skaðbrennist. T GÆR varð allalvarlegt slys í Hveragerði, Maður nokk- ur, sem þar var á ferð, Þorsteinn Gíslason, féll ofan í einn hver- inn. Var hann þegar í stað fluttur hingað á Landspítalann, og kom þar í ljós, að hann var brenndur upp að mitti. Liggur hann þar mjög þungt haldinn. Bíl stolið I fyrrinótt. DÍAtunnn IAr i bílnnm austur að Steinslæk i Doltnm. IFYRRINÓTT var stolið bílnum 1092, þar sem hann stóð úti fyrir húsinu Öldugata 10, í gærmorgun frétti svo sýslu- maður Árnessýslu af bílnum austur hjá Steinslæk í Holtum Frh. á 4. siðu. Utifundur nazista hjá Danzig. Hitler væntanlegur til Danzig innan skamms segir Forster! ----4--- Fáheyrðar árásir á Pólverja í þýzkum blððum. LONDON í morgun. FÚ. * T EIÐTOGI NAZISTA í D.anzig, Forster, sagði í gær í ■^ ræðu, sem hann flutti á útifundi þar í borginni: „Við bíðum ósmeykir þess, sem gerast mun, en verið vissir um það, að leiðtoginn (þ. e. Ilitler) mun koma til Dan- zig innan skamms.“ Árásirnar á Pólverja í þýzk- um blöðum voru svæsnari á laugardaginn en nokkru sinni. Blöðin voru full af frásögnum um hryðjuverk Pólverja, og það er jafnvel gengið svo langt í á- sökununum, að blöðin segja, að þýzkir menn í pólskum fangels- um sæti daglega hroðalegum pyntingum, jafnvel að það hafi verið stungin úr þeim augun. í London og París eru menn í vafa um, hvort þessi bardagaaðferð er notuð til þess að hræða Pól- verja eða hvort hún er forspil að öðrum meiri og alvarlegri tíðindum. Árásirnar hafa ekki haft þau áhrif í Póllandi, að menn hafi látið sér bilt við verða, en pólska fréttastofan birti í gær tilkynningu, þar sem fréttirnar um hroðalega meðferð á Þjóð- verjum í Póllandi eru lýstar ó- sannar. Ný brú yfir Weichsel var opn- uð til umferðar í fyrradag og flutti varaforseti senatsins í Danzig ræðu við það tækifæri. Á brúnni var bogi með áletrun þess efnis, að Danzigborg skyldi sameinuð verða Þýzkalandi. í fréttum frá Þýzkalandi er opnun brúarinnar talinn hinn mesti viðburður. Er á það bent, að til þessa hafi þeir, sem fóru milli Danzig og Marienburg í Austur-Prússlandi, orðið að fara þrívegis yfir landamærin, fram og aftur, en nú geti menn farið beina leið yfir brúna og hina nýju bílabraut, sem hafi hina mestu þýðingu fyrir viðskipti og umferð. Brúarsmíðinni var að mestu lokið á sex vikum. Hinar dularfullu stjórnmálaað- gerðir möndulveldanna, Þýzka- Jands og ítalíu, halda áfram, og sem stendur er miðstöð þeirra í Rómaborg, að því er bezt verður séð. Italski utanríkismálaráðherrann Ciano greifi, kom frá Albaníu til Rómaborgar í gær, fyrr en búizt var við, en einnig er kominn til Rómaborgar, flestum á óvart, ítalski sendiherrann í Berlin. Hann var fyrir skömmu í Róma- borg — fór þaðan til Berlin s. 1. þriðjudag, og var búizt við, að hann mundi halda kyrru fyrir í Berlín um stund.Það er sagt, að hann hafi talað við von Ribben- Urop í Salzburg, en því er neitab, að hann hafi talað við Hitler. Þýzki fjármálaráðherrann ereinn- ig væntanlegur til Rómaborgar. Viðskiptasamningur Rnssa og Djóðverja pegar nndirritaður. ÞiAðverjar veita RAssum 432 millj. krAna lántii vðrukanpa. T T IÐSKIPTASAMNINGUR * milli Rússa og Þjóð- verja var undirritaður á laugar- dag. Samkvæmt honum er gert ráð fyrir, að Þjóðverjar láni Rúss- um fé til vörukaupa, sem nemur 16 milljónum sterlingspunda (432 milljónum króna), og er lánið íil 7 ára og vextir 5%. Vörur fyrir þessa upphæð kaupa Rússar í Þýzkalandi næstu tvö ár. Samningurinn gerir einig ráð fyrir sölu á rúss- neskum vörum í Þýzkalandi á sama tíma, og er verðmæti hins rússneska varnings 15 millj, stpd. (FÚ.) Biaðaraemirnir fðru Ralda- dal í siagveðnrs rigningn. -----*—--- í dag skoða þeir Sogssíöðina, fara að Gullfossi og Geysi og koma í kvöld. T SLAGVEÐURSRIGNINGU fóru blaðamennirnir um Kaldadal í gær á leið sinni frá Reykholti í Borgarfirði, en þar gistu þeir í fyrrinótt, Jöklasýn var lítil á Kaldal, en við og við glitti þó í hvíta jöklana til beggja handa. í fyrradag fóru blaðamenn- irnir með varðskipinu Ægi frá Siglufirði til Sauðárkróks. Sól- Frh. á 4. síðu.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.