Alþýðublaðið - 22.08.1939, Page 1

Alþýðublaðið - 22.08.1939, Page 1
r ALÞYÐUBLAÐIÐ RITSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN XX. ÁRGANGUR ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 1939 191. TÖLUBLAÐ Hltler-Þýzkaland og Sovét-Rdss land hafa nú komlð sér saman! ■■■ ■ ------- Hlutleysissamningur milli landanna verður undirritaður í Moskva á morgun. ....■»—■— Ribbentrop lagður af stað á fund Stalins. Frá fréttaritara Alþýðublaðsins. KHÖFN í morgun. 'F'| AÐ ótrúlega er skeð. Hitler-Þýzkaland og Sovét-Rúss- land hafa gert með sér hlutleysissamning samtímis því, að nazistastjórnin er að undirbúa innlimun Danzig, með stríði við Pólland, England og Frakkland, ef á þarf að halda. Ribbentrop, utanríkismálaráðherra Hitlers, kem- ur til Moskva á morgun til þess að leggja síðustu hönd á samninginn og undirrita hann ásamt sovétstjórninni. Þetta var tilkynnt af hinni opinberu þýzku fréttastofu í Berlín í gærkveldi og um svipað leyti af Tass, fréttastofu sovétstjórnarinnar í Moskva. Þessi samdráttur Þýzkalands og Rússlands vekur gíf- urlega athygli um allan heim og dylst engum, að hann rnuni hafa hinar alvarlegustu afleiðingar fyrir friðinn í Evrópu. Brezkir og franskir stjórnmálamenn hafa þó enn ekki látið neitt uppi um álit sitt á þessum óvæntu straumhvörf- um í stjórnmálum álfunnar. Kreml í Moskva, þar sem samningur Hitlers og Stalins verð- ur staðfestur á morgun. Hitler. Stalin. Fjðldi manna segir sig ár og Framsákn- arflðkknnm ð Ásfœðan er afsfaða flokkanna ffl síldarverksmlðjumálsins. PORYSTUMENN og ó-‘ breyttir liðsmenn 1 Sjálfstæðisflokknum og Framsóknarflokknum á Siglufirði segja sig nú í hrönnum úr flokkunum. Á- stæðan, sem þessir menn færa fram fyrir því, að þeir segja sig úr þeim flokkum, sem þeir hafa áður tilheyrt, er afstaða þessara flokka til verksmiðjumálsins á Siglu- firði. Meðal þeirra manna, sem sagt hafa sig úr flokkunum, eru margir kunnir menn, t. d. formaður Sjálfstæðis- flokksins á Siglufirði, Ólafur Ragnars, Þráinn Sigurðsson og fleiri. Úr Framsóknar- flokknum hafa einnig sagt sig ýmsir kunnir menn. Þá hafa nokkrir af fulltrúum Sjálfstæðisflokksins í bæjar- stjórn sagt af sér, eins og skýrt var frá í blaðinu í gær. Miklar æsingar eru á Siglu- firði út af þessum málum, og mæla fáir Siglfirðingar bót framkomu Framsóknarflokks- ins og Sjálfstæðisflokksins. Bæjarstjórn Siglufjarðar hef- ir ákveðið að boða til almenns borgarafundar um þessi mál, og verður öllum helztu aðilmn boð- ið á fundinn. Þá hefir bæjar- stjórnin ákveðið að birta öll skjöl og skilríki þessum málum viðkomandi. Gevsir fapaði blaðamanna- hopnnm. Framveois eiga íslendingar 10 sendiherra i Kanpmannahðfn! Fj1 ERÐALAG blaðamannanna til Norðurlandsins var allt fyrirfram skipulagt upp á klukkustund. Á hverjum stað, sem gist var eða snætt á, hafði allt verið pantað fyrir þremur vikum. Svo vel tókst að halda gerða áætlun, að sums staðar var komið á sömu mínútu og ákveðið hafði verið og annars staðar munaði aðeins 20 mínút- um mest, hvað komið var of seint eða of fljótt. Mun þetta vera einsdæmi um skipulagningu ferðalaga og sýnir, hve Blaðamannafélaginu hefir tekizt vel starf sitt. Þrátt fyrir mjög misjafnt veð- ur í gær, tókst dagurinn ágæt- lega, og komu blaðamennirnir heipa til Reykjavíkur kl. um 11 í gærkveldi. Þegar í gærmorgun kl. 9 var farið frá Þrastalundi og að Ljósafossi. Voru með í förinni Frk. á 4. sRha. FöpuOar i Berlfn. Frá Berlín berast þær fréttir, að ógurlegur fögnuður ríki þar yfir hinum nýja samningi Þýzkalands og Rússlands og það því heldur, sem samninga- umleitunum þeirra hafði verið haldið Ieyndum fram á síðustu stundu. í Moskva hafði ekki heldur verið látið neitt uppi um það, að slíkur samningur væri í að- sigi. Það eina, sem gefið gat í skyn, að eitthvað slíkt væri á döfinni, voru þau ummæli í að- alblaði rússneska kommúnista- flokksins, „Pravda“, í grein um viðskiptasamninginn, sem und- irritaður var fyrir nokkrum dögum, að hann væri líklegur til þess að greiða einnig fyrir bættri pólitískri sambúð milli Sovét-Rússlands og Þýzkalands. En af fréttunum frá Berlín er nú auðséð, að samningaumleit- anir í þessu skyni hafa lengi far- ið fram á bak við tjöldin í Moskva, og að meðal annars von Papen, sem á sínum tíma var sendiherrra Hitlers í Wien og undirbjó þar innlimun Austur- ríkis í Þýzkaland, hefir dvalið á íaun austur í Moskva til þess að semja við sovétstjórnina í um- boði Hitlers. Rússlaod foFðabúr fyrir Þýzkaland 1 striðl. í ljósi þessa nýja pólitíska samnings milli Hitler-Þýzka- lands og Sovét-Rússlands verð ur viðskiptasamningur land- anna, sem undirritaður var fyrir nokkrum dögum, ennþá alvar- legri en nokkurn grunaði. Þýzkaland lánar Sovét-Rúss- landi samkvæmt honum 200 milljónir marka, eða um 450 milljónir króna, til vörukaupa Frh. á 4. rfðu. Ribbentrop. Hervæðing á Þjzkalandi nndir yfirskini æfinga? ----*---- Brezkum þegnum þegar ráðið 111 að hafa slg heim frá PðlIandL LONDON í morgun. FÚ. ERLENDIR blaðamenn í Berlín hafa fengið fregnir, sem benda til, að reynsluhervæðingunni í Þýzkalandi sé hraðað. Mikið af flutningatækjum hefir verið tekið í notkun handa hernum, benzín er skammt- að, miklir herflutningar og flutningar á þungum her- gögnum eiga sér stað, hjúkr- unarkonur kallaðar til skyldustarfa í hernum og hermenn bólusettir. Þýzku blöðin halda áfram að birta hroðalegar frásagnir um illa meðferð á Þjóðverjum í Póllandi og segja, að Pólverjar hafi mikinn hernaðarlegan við- búnað á landamærunum. Varsjárfregn segir, að brezki aðalræðismaðurinn þar hafi ráð- lagt öllum brezkum þegnum í Póllandi, sem því geta við kom- ið, að fara frá Póllandi. Þessi fregn hefir enga staðfestingu fengið í London. Dúmsmílaráðherra Hitlers boðar inn- limnn Danzig. LONDON í morgun. FÖ. Dr. Frank, dómsmálaráðherra Þýzkalands, kom til Danzig í gærkveldi, þar sem hann ávarpar fund nazista í dag. I viðtali við blaðamenn sagði dr. Frank, að þýzka stjórnin væri sannfærð um, að Danzig mundi sameinast þýzka ríkinu, enda þótt enginn geti sagt, hve- nær þetta mundi gerast. Hann kvaðst einnig þein-ar skoðunar, að sameiningin mundi eiga sér Frh. á 4. aifru. I gær og 1 nðtt vorn aftur salt- aðar 20 pís. tnninr á Sigief! .-...♦ .. Skipin streyma inn i alla nótt og i morgun. . OTÖÐUGUR straumur síldveiðiskipa var til Siglufjarðar í alla nótt og allan morgun. Romu inn á 2. hundrað skip og sum þeirra tvisvar. Áætlað er, að í gær og nótt hafi verið saltaðar á Siglu- firði einum um 20 þúsund tunnur, og mun þá saltsíldarafl- inn á öllu landinu vera kominn yfir 160 þús. tunnur. Á Siglufirði eru öll söltunar- þláss troðfull, og er vakað dag og nótt við söltunina. Hellirign- |ng er í dag á Siglufirði, en þó er talið gott veiðiveður úti fyrir. Slldin *r enn á líkum slóðum jog í gær og fyrradag, á Haga- nesvík, við Gjögur, Flatey á Skjálfanda og Lundey á Skjálf- anda. Eins og áður er sagt komu á 2, hundrað skip til Siglufjarðar í nótt. Eftirfarandi skip voru hæst, en auk þeirra var fjöldi skipa með minna: . Björgvin með 183 tunnur, Gylfi með 238, Gulltoppur 181, Björn 225, Sverrir tvisvar, í fyrra skiptið með 393, í seinna skiptið með 411, Sjöstjarnan 273, Unnur 279, Rafn 316, Vakt 270, Venus 356, Már 418, Birk- ir 291, Fróði 421, Jarlinn 262, Garðar, Ve. 466, Vöggur 367, Sæunn 266, Þorfinnur 312, Maí Frh. á 4. aíðu.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.