Alþýðublaðið - 24.08.1939, Síða 1
r
RITSTJÓRI: F. R. VALÐEMARSSON ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
XX. ÁRGANGUR FIMMTUDAGUR 24. ágúst 1939. 193. TÖLUBLAÐ
• f
Hitler visar enska sendfherranum á bug I Berehtesgaden.
England og Frakkland
búa allt undir styrjðld.
------—<>-------
Frá fréttaritara Aiþýðublaðsins. KHÖFN í morgun.
CENDIHERRA BRETA í BERLÍN, Sir Neville Hender-
^ son, flaug til Berchtesgaden á fund Hitlers í gær til
þess að afhenda honum yfirlýsingu brezku stjórnarinnar
þess efnis, að hún myndi sfanda við öll loforð sín við Pól-
land þrátt fyrir hlutleysissamning Þýzkalands og Rúss-
lands.
Hitler vísaði enska sendiherranum á bug með þeim
ummælum, að Þýzkaland muni ekki láta það viðgangast,
að England verði því til fyrirstöðu með loforðum sínum
við Pólland, að Þýzkaland komi ekki fram þeim kröfum
sínum, sem því séu lífsnauðsyn.
Sendiherrann sneri eftir þessi málalok strax aftur til
Berlín í flugvél sinni.
Á Englandi er nú verið að gera síðustu ráðstafanir
til þess að búa landið undir stríð. Þingið hefir verið kallað
saman 1 London í dag til þess að veita stjórninni allar
nauðsynlegar heimildir, ef ófrið ber að höndum. Alþýðu-
flokkurinn hefir lýst yfir því, að hann muni veita stjórn
Chamberlains allan þann stuðning, sem honum er unnt
til þess að verja landið og stánda á móti ofbeldi Þýzka-
lands.
Á Frakklandi hafa einnig allar ráðstafanir verið gerð-
ar til þess að herútboð geti farið fram fyrirvaralaust. Stjórn-
3 r Englands og Frakklands hafa báðar birt ávarp til brezkra
ug franskra ríkisborgara á Þýzkalandi og skorað á þá að
iiverfa tafarlaust heim þaðan.
lili
■x-x ' V ::
Loftvarnaæfingarnar á Englandi: Flugmennirnir flýta sér til flugvélanna á flugvellinum við
Biggin Hill í Kent.
Moskva skrýdd hakakrossfán~
um þegar Mihhentrop kom i §jær
---♦---
Samnmgurinn var undirritaður i Moskva að
Stalin sjálfum viðstðddum klukkan 2 i nótt.
Síldarsöltim fyr-
ir Norðnrlðnd er
nú stöðvnð neia
eftir samniDgnm
RÍKISÚTVARPIÐ birti í
gærkveldi fregn úr
sænsku blaði þess efnis, að
verð á Íslandssíld hefði hækk-
að í Svíþjóð um 50%. Þessi
fregn var ekki ómerkileg fyrir
okkur íslendinga, Iiefði lmn
verið sönn og rétt, en því miður
er hún það ekki.
Alþýðublaðið hafði í morgun
tal af Finni Jónssyni, formanni
Síldarútvegsnefndar, og spurði
hann um verð á íslandssíld í
Svíþjóð nú.
„Meðan illa leit út um síld-
veiðarnar um daginn, mun verð-
ið hafa hækkað eitthvað, en
alls ekki um 50%,“ sagði Finn-
ur Jónsson. „Hins vegar breyt-
ir hin vaxandi veiði nú og und-
anfarna daga þessu algerlega.
Nú er búið að salta um 14 þús-
und tunnum meira fyrir Norð-
urlandamarkað en á sama tíma
í fyrra, og hefir Síldarútvegs-
nefnd nú tekið ákvörðun um að
banna meiri söltun fyrir Norð-
urlandamarkað, nema aðei*s
upp í fyrirframsamninga. Er
þetta auðvitað gert til þess að
koma í veg fyrir offramleiðslu
á þennan markað. Hins vegar
hefir Síldarútvegsnefnd aukið
matjessíldarsöltun.
Það væri mjög æskilegt, ef
ríkisútvarpið vildi í framtíðinni
afla sér frétta innanlands, þeg-
ar því berast skeyti eins og það,
sem það birti í gærkveldi, því
að fréttaburður eins og sá, sem
hér er getið, vekur tálvonir og
skapar síðan vonbrigði.“
Mngfnndurinn i London
i dag.
LONDON í morgun. FÚ.
í morgun var haldinn fund-
ur í einkaráði konungs í
London, og að honum loknum
ræddi Chamberlain forsætisráð-
hei ra við konung.
Á fundum enska þingsins í
dag er búizt við, að þetta gerist:
í neðri málstofunni skýrir
Chamberlain frá orsökum þess,
að þingið hefir verið kallað sam
an. Þar næst mun hann gera
grein fyrir erindi Sir Neville
ííendersons sendiherra Breta í
Berlín á fund Hitlers og svari
Hjtlers við orðsendingu Breta.
Þá mun hann skýra frá svari
Jtússa við fyrirspurn, Seeds,
sendiherra Breta í Moskva,
verði svarið komið, og gera grein
íyrir viðburðum síðustu daga
og horfum yfirleitt.
Fyrir þingið verður lagt frum-
varp til laga, sem heimilar stjórn
inni að gera hvers konar ráðstaf-
; nir á hvaða sviði sem er, vegna
óMðarhættunnar, og ef þetta
lagafrumvarp kemst gegnum
þingið í dag og fær fullnaðaraí-
greiðslu, er búizt við, að þing-
fundum verði frestað í kvöld.
Halifax lávarður flytur í kvöld
ávarp í brezka útvarpið, og verð-
ur ávarpinu útvarpað um ger-
vallt Bretland.
'Flugmálará'ðuneytið hefir gert
allar nauðsynlegar ráðstafanir til
þess að hafa flugherinn til taks
og allar loftvarna- og athugana-
stöðvar. Þá hefir verið kallað til
þjónustu nauðsynlegt varalið í
flugher, loftvarnaliði og flota.
Húseigendur og verksmiðjueig-
endur hafa verið aðvaraðir um
aö hafa til taks nauðsynlegan út-
búnað til þess að byrgja öll ljós,
því að ef til styrjaldar komi,
Frh. á 4. síðu.
----------».-..-..—...
Frá fréttaritara Alþýðublaðsins, KHÖFN í morgun.
ÞEGAR RIBBENTROP og fylgdarlið hans, samtals
þrjátíu og tveir háttseítir nazistar, lönduðu á flug-
vellinum í Moskva í gær, var flugvöllurinn allur skrýddur
hakakrossfánum.
Fundir hófust með Ribbentrop og Molotov strax síð-
degis í gær, og samningurinn var undirritaður í viðurvist
Stalins kl. 2 í nótt. Skuldbinda báðir aðilar, Þýzkaland og
Rússland, sig til þess að gera enga árás hvort á annað, og
hjálpa ekki heldur neinu þriðja ríki, sem annað hvort skyldi
ráðast á. Samningurinn gildir til tíu ára.
Bretar «o Frakkar senda
Hnssolini siðnstn aðvörnn.
Öll flifitnragafæM peps* tefidn í
fiijónustu fiterslns á Þýzficafiandi.
■ »---------
London í morgun. FÚ.
ENDIHERRAR Breta og
Frakka í Róm hafa rætt
við Ciano greifa og skýrt
fyrir honum erindi Sir Ne-
ville Hendersons til Hitlers
og afstöðu Breta og Frakka,
til þess að ítalir þurfi ekki
að vera í vafa um, að Bretar
og Frakkar muni standa með
Póllandi og að fyrirhuguð
sáttmálagerð Sovét-Rúss-
lands og Þýzkalands breyti
þar engu um.
í Póllandi er allt með kyrr-
um kjörum. Húsmæðrum hefir
verið ráðlagt að birgja sig upp
að matvælum, en menn ganga
rólegir til vinnu sinnar. Fátt
hermanna er á götunum. Þeir
eru langflestir komnir til varð-
Frk. á 4. «!»h.
Enska stjórnin gerði fyrir-
spurn í Moskva í gær um það,
hver stefna sovétstjórnarinnar
væri yfirleitt í utanríkismálum
og hvernig skilja bæri fréttirnar
um fyrirhugaðan hlutleysissátt-
mála Þýzkalands og Rússlands,
en svar við þessari fyrirspurn
var ókomið í morgun,
Þrír meðlimir ensku og
frönsku hernaðarsérfræðinga-
nefndarinnar flugu heim frá
Moskva í gær.
Hlntleysissamningur
Hitlers og Stalins.
KALUNDBORG um hádegi. FÚ
Klukkan 2 í nótt undir-
rituðu von Ribbentrop og
Molotov hlutleysissamninginn
milii Rússlands og Þýzkalands
í viðurvist Staiins. Samningur-
inn er í aðaldráttum þannig:
1) Samningsaðilarnir skuld-
binda sig til þess að gera ekki
árás hvor á annan.
2) Ef um árás á þriðja riki
verður að ræða, skuldbinda
samningsaðilar sig til þess að
hjálpa ekki þriðja aðila.
3) Samningsaðilar skulu stöð-
ugt ráðfæra sig hvor við annan.
4) Samningsaðilar skuldbinda
sig til þess að taka ekki þátt í
Frh. á 4. sí&u.
Lítil sðltnn ð Siglu-
firði J_nótt.
SILDIN virðist vera á austur-
leið, því að aðalveiðisvæðii
er fyrir austan Gjögur. Heldur
hún sig aðallega á Grímseyjar-
sundi og við Mánáreyjar.
Inóttvoru saltaðar 5666tunnur
á Siglufirði af 50—60 skipum.
Á Húsavík voru saltaðar í nótt.
Frh. i 4. siðu.
ÞJéðverJar sigruðu ís-
lendinga í Essen fi gær.
----»_...
En frammistaða íslendinga vakti að~
dáun, þó að þeir töpuðu með 2 gegn 4.
YRSTI KAPPLEIKUR ís-
lenzku knattspyrnumarin-
anna í Þýzkalandi fór fram í
gær I Essen að viðstöddum 10
þúsund áhorfendum og lauk með
sigri Þjóðverjanna, 4 gegn 2.
Kapplið íslendinga var þannig
skipað: Edwald (Víkingi), Sigurð-
ur ólafsson (Val), Grímar (Val),
Frímann (Val), Hrólfur (Val),
Brandur (Víkingi), Ellert (Val),
Haukur (Víkingi), Björgvin (Vik-
ingi), Björgúlfur (Val) og Gísli
Kjærnested (Val),en lið Þjóðverja
var taiið mjög sterkt, og voru
m. a. þrír landsliðsmenn, þ. á. m.
hinn frægi þýzki markmaður
Jiiressen.
Fyrri hálfleik lauk með 2
mörkum gegn 1 Þjóðverjum í
hajg, og þó var sagt, að styrkur
liðanna væri mjög svipaður og ó-
mögulegt að spá neinu um úr-
slitin.
Fyrst í seinni hálfleik setur
Frfa. á 4. fMúi