Alþýðublaðið - 26.08.1939, Qupperneq 4
LAUGARDAGUK 26. ágúst 1939
rBGAMLA BiÖOH
Rrentzer-
sónatan
Áhrifamikil mynd tekin
eftir skáldsögu
Leos Tolstoi.
Aðalhlutverkin leika:
Lil Dagover, PerPet-
ersen og Albrecht
Schoenhals,
Dansskemmtun
verður í Rauðhóium annað kvöld
kl. 8. VerÖur dansað á palli, og
verður tjaldað yfir hann, ef
purfa þykir; en í skálanum verða
'alls konar veitingar. Ferðir hefj-
ast kl. 7 e. h. frá Lækjartorgi.
rvr
oxgp:r:o
«.s. „Esja“
fer frá Danmörk kringum
15. september n.k. beint til
Vestmannaeyja og Reykja-
víkur.
Tekur farþega og flutning
eftir því sem rúm leyfir.
í Danmörk fást nánari
upplýsingar hjá: Samb. ísl.
samvinnufélaga, Khöfn, og
Johs. Utzon, Aalborg.
Steingrímnr Arason
sextngnr í dag.
SEXTUGUR er I dag Stein-
grímur Arason kennari við
kennaraskólann.
Steingrímur er einn af merk-
ustu mönnum íslenzkrar kennara-
stéttar og hefir unnið mikið og
þjóðnýtt starf. Hann hefir aflað
sér mikillar menntunar og kynnt
sér nýjungar í starfi sínu og
gerzt brautryðjandi peirra hér á
landi. Þessar nýjungar eru fólgn-
ar í margvíslegum bættum að-
ferðum í starfi barnaskólanna.
Og hlutverk Steingríms hefir náð
lengra en til barnaskólanna.
Hann hefir einnig sem formaður
barnavinafélagsins Sumargjafar
komið mjög miklu til leiðar til
bættra uppeldisskilyrða fyrir
yngstu börnin. Til viðurkenningar
fyrir petta mikla starf var hann
kjörinn heiðursfélagi Sambands
íslenzkra barnakennara á 50 ára
afmæli kennarasamtakanna á sið-
ast liðnu vori.
Steingrímur er hinn hugljúfasti
maður hverjum peim, er honum
kynnist, og munu hinir fjölmörgu
vinir hans senda honum í dag
líinar hlýjustu kveðjur.
JAPANIR OG BRETAR
Frh. af 1. síðu.
neska ekki-árásarsanQninginum.
Þá neitaði hann því einnig, að
Japönum hafi verið boðið að
taka þátt í hernaðarbandalagi
gegn Bretum.
Útbreiðið Alþýðublaðið!
fiflðlang Aronsdéttir
73 ára á ntorgnn.
EKKJAN Guðlaug Arons-
dóttir, Ránargötu 7, er 73
ára gömul á morgun. Hún flutt-
ist fyrir allmörgum árum hing-
að til bæjarins frá Eyrarbakka,
en þar hafði hún búið ásamt
manni sínum lengi og aflað sér
mikilla vinsælda.
Guðlaug Aronsdóttir er prýði-
lega gáfuð kona og fylgist af lif-
andi áhuga með öllu því, sem
gerist í opinberum málum. Frá
fyrstu tíð hefir Guðlaug haft
mikinn áhuga fyrir málefnum
verkalýðshreyfingarinnar og
Alþýðuflokksins og hefir aldrei
legið á liði sínu til að veita þeim
málum fullan stuðning.
Alþýðublaðið óskar Guðlaugu
til hamingju með afmælið.
Falsararnlr tala
um falsanir.
ÞJÖÐVILJINN heldur, að hann
geti borið eitthvað í bæti-
fláka fyrir svik Stalins og vin-
áttu hans við Hitler með pví að
sýna fram á, að ekki hafi verið
farið rétt með orðalag einnar
greinar samningsi.ns í Ríkisút-
varpinu og síðar Alpýðublaðinu
og Morgunblaðinu. Þjóðviljanum
skal svarað pví, að orðalag
samningsins er algert aukaatriði,
að pví er snertir viðkomandi
grein. Og pó að samningurinn
TMlmann láí-
innlans.
KALUNDB. í gærkv. FÚ.
IFREGN frá Þýzkalandi
segir, að Thálmann,
fyrrum aðalleiðtogi komm-
únista í Þýzkalandi, hafi
verið látinn laus, en hann
hefir setið í fangelsi síðan
nazistar komust til valda.
Aths. Alþbl.: Þessi ráð-
stöfun mun af Stalin og
Hitler vera hugsuð sern
sárabætur fyrir kommún-
ista úti um heim fyrir svik
Sovét-Rússlands við frið-
inn og lýðræðisríkin. En
ekki er ólíklegt, að Thál-
mann komi einkennilega
fyrir sjónir sá heimur, sem
opnast honum nú, eftir að
Hitler og Stalin hafa tekið
höndum saman, og verður
sennilega erfitt fyrir hann
að skilja, til hvers hann
hefir áður barizt og setið
sex ár í fangelsi.
Þýzku jafnaðarmennirn-
ir hafa ekki verið látnir
lausir úr fangabúðum Hit-
lers.
nefni sig „ekki árásar samning",
pá er hann raunverulega ekkert
annað en samningur um pað, að
Þýzkaland skuli hafa samþykki
og hlutleysi Rússlands til þess
að ráðast á Pólland og hefja
nýja Evrópustyrjöld, enda skuld-
bindur Rússland sig í einni grein
samningsins til pess aö taka ekki
ipátt í neinni ríkjasamsteypu, sem
beint sé gegn Þýzkalandi. Greini-
legar er ekki hægt að orða svik
Sovét-Rússlands við málstað frið-
arins.
Þjóðviljinn, sem laug pví upp
á miðvikudaginn, að samningur-
inn hefði inni að halda grein pess
efnis, að hann félli úr gildi, ef
Þýzkaland gerði árás á eitthvert
priðja ríki, ætti að fara hægt í
pað að bera öðrum falsanir á
brýn.
Meistaramótið.
Keppendur í meistaramótinu,
starfsmenn og stjórnir ípróttafé-
laganna eru beðin að mæta hjá
K, R.-húsinu á morgun kl. 1,30
síðdegis.
I
Háliö fyröttamanna hefst á morgnn
Kl. 1,30 safnast íþróttamenn, öldungar og stjórnir íþróttafélaganna
saman við K.R.-húsið.
Kl. 1,45 leikur Lúðrasveit Reykjavikur á Austurvelii.
Kl. 1,55 ganga íþróttamenn fyiktu liði til Alþingishússins.
Kl. 2 ílytur Jakob Möller fjármálaráðherra ávarp.
Kl. 2,15 verður gengið suður á íþróttavöll með Lúðrasveit Reykja-
víkur í fararbroddi.
Kl. 2,30 setur forseti Í.S.Í, mótið og síðan hefjast íþróttir.
Fyrst lceppa stjórnir 6 iþróttafélaga í Rvík og Mnarfirði í boðhlaupi 5x80 metra.
Nœst keppa ðidtmgar úr K. R., !. R. og Ármanai í boðhlaupi 5x80 metra.
Þá hefst Meistaraanét f.Sí.f. i fr|álsipréttnm og verður keppt í
100 m. hiaapi — kiiiuvai’pi — stangarstöklsi og 1500 m. Maupi
Kl. S um kvöldið heldur svo Meistaramótið áfram og verður þá keppt í
1000 m. boðhlaupi — sleggjukasti — og 10000 m. lilaupi.
Aldroi Iiefir skemmtilegri íþróttakeppni verið hér á boðstólum
Allir út á vðli á morgun.
bosmijnda
I DAG
Næturlæknir er Halldór
Stefánsson, Ránargötu 12, sími
2234.
Næturvörður er í Reykjavík-
ur- og Iðunnar-apóteki.
ÚTVARPIÐ:
19,30 Hljómplötur: Létt lög.
19,45 Fréttir. 20,10 Veðurfregn-
ir. 20,20 Hljómplötur: Norskir
kórar. 20,30 Upplestur. Ferða-
söguþættir af Vestfjörðum (ung-
frú Ágústa Björnsdóttir). 20,55
Útvarpstríóið leikur. 21,15
Hljómplötur: a) Ravicz og Lan-
dauer leika á píanó. b) 21,30
Gamlir dansar. 21,50 Fréttaá-
grip. 21,55 Danslög. 24 Dag-
skrárlok.
Á MORGUN:
Næturlæknir er Karl S. Jón-
asson, Sóleyjargötu 13, sími
3925.
Næturvörður er í Laugavegs-
og Ingólfs-apóteki.
ÚTVARPIÐ:
11,40 Veðurfregnir. 11,50 Há-
degisútvarp. 18,40 Útvarp til
útlanda (24,52 m.). 19,30 Hljóm-
plötur: Létt lög. 19,45 Fréttir.
20,10 Veðurfregnir. 20,20
Hljómplötur: Lög eftir Hándel.
20,35 Gamanþáttur. 20,55 Út-
varpshljómsveitin leikur. (Ein-
söngur). 21,30 Kvæði kvölds-
ins. 21,35 Danslög. 21,50 Frétta-
ágrip. 24 Dagskrárlok,
MESSUR Á MORGUN:
í fríkirkjunni kl. 5 séra Árni
Sigurðsson.
Engin messa verður í Laug-
arnesskóla á morgun.
IÞRÓTTAKEPPNIN
Frh. af 1. síðu.
Þar setur Ben. G. Waage meist-
aramótið með ræðu. Að henni
lokinni fara fram tvö boðhlaup,
sem áreiðanlega verða afar
skemmtileg. Er annað milli öld-
unga, allra yfir 40 ára að aldri,
en hitt milli stjórna íþróttafé-
laganna. Eftir það hefst svo
meistar amótið.
ÁSKORUN ROOSEVELTS
Frh. af 1. síðu.
mannslífa verði bjargað og mik-
illi eymd og hörmungum afstýrt,
ef ekki verði beitt valdi.
Það er nú staðfest, að Þjóð-
verjar hafa um 20 herfylki við
landamæri Pðllands. Einnig hefir
lið verið sent til landamæra
Belgíu og Luxemburg. Þýzkir
hermenn vinna að því af miklu
kappi, að koma upp nýjum vig-
girðingum í Rínarbyggðum.
Þýzka beitiskipið „Sleswig-
Holstein" kom til Danzig í gær-
morgun. Stjórn Danzigborgar
hefir fyrirskipað að taka í notk-
un handa heimavamarliöinu allar
bifreiðar og flutningatæki, og
vagnaumferð er nú engin í Dan-
zig, nema á vegum hersins.
FRANSKIR OG ENSKIR
VERKAMENN
Ffh. af 1. síðu.
það, að milli brezks og fransks
verkalýðs sé alger eining ríkj-
andi.
Kommúnistablöð í Frakklandi
hafa verið gerð upptæk. Komm-
únistar í Frakklandi verja samn-
ingsgerð Rússa við ÞjóÖverja, en
kommúnistaflokkurinn franski
hefir heitið stjórninni stuðningi,
ef til styrjaldar kemur.
Knattspyrnufélagið Fram.
Meístaraflokkur og fyrsti flokk-
Ur. Æfing í dag kl. 5 á Iprótta-
vallinum.
BMATORSCILB
{EMEDÍAKFl
Fyrsti dansleikur
„Laugardagsklúbbsins“ verður
Í kvöld í Iðnó. Hljómsveit Hótel
íslands spilar undir dansinum.
Bílþjófurinn,
Hjörtur Ágústsson, sem dmkk-
inn hafði tekið bíl hér í bænum
um síðustu helgi og ekið honum
austur að Þjórsá, hefir verið
sektaður um 100 krónur fyrir að
aka próflaus og dmkkinn og 67
króna skaðabætur handa bíieig-
andanum.
NYIA BIÖ H8
Frjálslynd
æska
Hrífandi fögur og skemmti
leg amerísk kvikmynd frá
Columbia Film um glaða
og frjálslynda æsku. Aðal-
hlutverkin leika:
Gary Grant,
Katharine Hepburn,
Doris Noian,
Lew Ayres.
Isfisksala.
Reykjaborgin seldi í Cuxhaven
I gær 128 smál. og 440 kg. fyrir
20509 ríkismörk.
Rauðhólar.
Dansskemmti
verður í Rauðhólum annað kvöld — sunnudaginn 27. ágúst
— hefst kl. 8. Dansað verður úti á yfirtjölduðum palli ef
þurfa þykir, ellegar í skálanum. Ferðir frá Lækjartorgi
með strætisvögnum eftir kl. 7 síðdegis.
ÁGÆT HARMONÍKU - MÚSÍK.
L APGABPACSKLðBBPRlNN t
Fyrsti dansleiknr
klúbbsins er í Iðnó í kvöid.
Hljómsveit Hótel íslands.
Aðgöngumiðar í Iðnó frá klukkan 5 í dag. — Sími 3191.
PansklúbburlHn Cinderella:
Dansleikur
DanskMbburinn Cinderella beldnr
dansleik í OddfelIow-héslMss í kvðld
kl. 10 e. h.
flljómsveit BJarna BSðvarssooar
leikui* fyrir dansinnm.
AðgSngnmiðar seldir frá kl. O e. h. fi Odd~
fellow~húsinu.
SOLO
HÚSGAGNAGLJÁI,
hreinsar 311 éiirein~
indi ilr trénu, ver pni
sprun|gum og gljáir
dvððja?nanieg% fallega
Eimskip.
Gullfoss er í ólafsvík, Goða-
foss er á leið til Hull frá Ham-
borg, Brúarfoss er á leið til
Grimsby, Dettifoss er hér, Lagar-
foss var á leið til Hólmavíkur
kl. 10 í moigun, Selfoss er í
Antwörpan.
Trúlofun
sína opinberuðu í gær ungfrú
Sveiney Þormóðsdóttir, Lauga-
vegi 27 B, og Hilniar Ludvigs-
son bakari, Grundarstíg 2A.
gflfti*
v«r á Hús«vík stbdegts í dag.