Alþýðublaðið - 04.09.1939, Qupperneq 1

Alþýðublaðið - 04.09.1939, Qupperneq 1
Bretar og Frakkar sögðu Þjóðverjum stríð á hendur í gær Frá fréttaritara Alþýðublaðsins. Kaupmannahöfn í morgun. ENGLAND sagði Þýzkalandi stríð á hendur klukkan 10,15 fyrir hádegi í gær, eftir að Hitler hafði neitað að verða við úrslitakostum brezku stjómarinnar um að stöðva árásina á Pólland og kalla þýzka herinn til baka yfir landamærin. Frakkland gaf Þýzkalandi frezt tii að svara hinum sömu úrslitakostum pess til kl. 5 síðd. í gær, en fékk ekkert svar. Franska stjórnin lýsti pá einnig yfir, að Frakkland væri frá þeirri stundu í stríði við Þýzkaland. syfirlýsing Chamberlains ■ +------ „Sorfflegasti dagur, sem ég hefi lifað. Ég á aðeins eitt eftirs vonina um að sjá Hitler velta ár sessi, eyðilagðan, og frelsi Evrépuríkjanna endurreistu. -------»—.... Þegar fresturinn var útrunninn, sem brezka stjórnin hafði sett þýzku stjórninni til þess að svara úrslitakostum hennar, var enska þingið kallað á fund klukkan 10 fyrir hádegi í gær. Fimmtán mínútum síðar tók Chamberlain til máls og sagði: „Það hefir ekkert svar komið frá Adolf Hitler. Við höfum gert allt, sem í okkar váldi hefir staðið, mánuðum saman, til þess að bjarga friðinum, eri viðleitni okkar hefir éngu áorkað gegn ofsóknum, rógi og bakferli þeirra, sem vilja styrjöldina. Og nú hefir Bretland tekið sína afstöðu. Frá þessari stundu er Bretland í styrjold við Þýzkaland. Það hefði verið hægt að komast hjá styrjöldinni, en Adolf Hitler vildi það ekki. Hann ætlaði að ráðast á Pólland, hvernig sem að væri farið. Og nú er ekki til svo ábyrgðarmikið starf eða lítilmótlegt, sem ykkur kann að verða trúað fyrir, að það geti ekki átt sinn þátt í sigri og giftu Bretlands. Það ríður ægilega mikið á því, að hver ntaður geri nú sitt bezta. Frá og með deginum í dag eru Frakkland og England með öllu afli sínu að uppfylla skuldbindingar sínar og loforð við Pólland. Og svo blessi guð ykkur 011.“ Kl. 12 endurtók Chamberlain þessa sömu yfirlýsingu sína í ræðu í lávarðadeildinni, og við það tækifæri sagði hann einnig: „Þetta er sorglegasti dagur, sem ég hefi lifað, og ef til vill sorglegri fyrir mig held- ur en flesta aðra menn, því að allt það, sem ég hefi trúað á, unnið fyrir og lifað fyrir, er nú hrunið í rústir. Ég á aðeins eitt eftir, vonina um að sjá Hitler velta úr sessi, eyðilagðan, og frelsi Evrópuþjóðanna aftur endurreist.“ Msráöuneyti í Lonðon: ChnrcUll flotamálaráðherra ♦ HIÐ nýja stríðsráðuneyti á Englandi er nú fullskipað og stutt af öllum aðalflokkum enska þingsins. Alþýðuflokkurinn og frjálslyndi flokkurinn skoruðust þó undan því að taka sæti í sjálfu ráðuneytinu að svo stöddu. í stjórninni eiga sæti: Chamberlain forsætisráðherra, Churchill flotamálaráðherra, Lord Halifax utanríkismálaráð- herra, Lord Chatfield landvarnamálaráðherra, Hore Belisha her- málaráðherra, Sir Kingsley Wood flugmálaráðherra, Sir John Simon fjármálaráðherra, Sir Samuel Hoare innanríkismálaráð- herra, Anlhony Eden samveldismálaráðherra og Lord Hankey, sem er ráðhrra án sérslakrar stjórnardeildar, en hann var aðal- ritari stríðsráðuneytisins í heimsstyjöldinni. Flotamálastjórnin tilkynnti í gærkvöldi, að framvegis yrð'(i tekið upp hið svokallaða „con- voy“ kerfi, sem notað var í stríð- inu, þ. e. að öll herskip Breta og herflutningaskip skuli fara um höfin í flokkum og njóta fylgdar herskipa. Tilkynnt var í gærkvöldi, að yfirmaður brezka hersins á víg- stöðvunum yrði Gort lávarður, yfirmaður herforingjaráðsins — Sir Edmund Ironside og heima- hersins Sir Walter Kirk. Forsætisráðherra Ástralíu til- kynnti í útvarpi í gær, að Ástralía stæði við ihlið Bret- \ ' t lands, og væri nú styrjöld milli Ástralíu og Þýzkalands. Tilkynning frá Nýja-Sjálandi Frh. á 4. sfto. . fi 'S8ER6 PRE SEN RSZAWA ÞÖSEN Pólska hliðið og Danzig (svarta svæðið), sem Hitler heimtaði og ætlar nú að taka í blóðugri styrjöld við Pólland, England og Frakkland. Iltler segist sjáliir fara til austnrvigstöðvanna. Rússnesknm herforlnnjum fagnat I Berlfn með Horst Wesselsöngnum og Internationale! —----—♦-------- UTVARPIÐ í BERLÍN birti í gær ávarp frá Hitler til þýzku þjóðarinnar, sem lauk með þessurn orðum: „Ég fer sjálfur til vígstöðvanna.“ í þýzka útvarpinu var í gær einnig birt svar þýzku stjórnar- innar, og segir þar, að Þjóðverjar taki ekki við neinum fyrir- skipunum frá Bretum, og liverri árás, sem Þýzkaland kunni að verða fyrir, skuli svarað með árás. í tilkynningunni er því haldið fram, að Þýzkaland hafi ekki farið fram á neitt annað en „lag- færingu" á austurlandamærum sínum, og England ásakað um það að eiga sök á stríðinu og hafa hafnað friðartillögum Musso- linis. Hinn nýi sendiherra Sovét- Rússlands í Berlín, Alexander Schartschev, kom til Berlín síðastliðið laugardagskvöld frá Moskva, í flugvél, sem þýzka stjórnin hafði. látið hon- um í té, í fylgd með honum voru sex herforingjar úr rauða hernum. Var þeim fagnað við Frh. á 4. siðu. Stórt brezkt far-1 þegaskip skotið I I kaf af kfzkam í nótt. LONDON í morgun. FÚ. FYRSTI stórviðburður- inn í styrjöldinni eft- ir að stríði hafði verið lýst á hendur Þýzkalandi af hálfu Bretlands og Frakk- lands, gerðist í nótt. Um klukkan 4 barst flotamálaráðuneytinu brezka tilkynning um, að hafskipið „Athinia“ hefði orðið fyrir tundurskeyti kafbáts vestan við Hebri- deseyjar (Suðureyjar) hjá Skotlandi. Skipið var á leið vestur um haf með 1400 farþega og 1000 smálestir af vör- um. Farþegarnir voru flestir fólk, sem var á heimleið vegna styrjaldar- innar, þar á meðal 246 ferðamenn frá Kanada og Bandaríkjunum. Björgun- \ arbáta hafði skipið fyrir J 1830 manns, ? „Athinia“ fór frá Liver- % pool síðastliðinn föstudag. | Síðusto fréttir: Síðustu fréttir herma, að tekizt hafi að bjarga öllum þeim, sem á enska farþega- skipinu „Athinia“ voru, öðr- um en þeim, sem urðu fyrir tundurskeytum hins þýzka kafbáts. Enskar flugvélar flugu inn yfir Þýzkaland í dag, en vörpuðu ekki niður neinum sprengikúlum, heldur á- varpi til þýzku þjóðarinnar með áskorun um að steypa Hitler til að bjarga heims- friðinum.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.