Alþýðublaðið - 07.09.1939, Síða 1

Alþýðublaðið - 07.09.1939, Síða 1
RITSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN XX. ÁRGANGUR FIMMTUDAGUR 7. SEPT. 1939. 205. TÖLUBLAÐ Pélska st|órmn fluttl sig f gær frá Varsjá suðiar og austur I land. VTgstöðvarnar í Póllandi: Efst pólsku göngin og Danzig. Hvíti krossinn sýnir hvar Kraká er. iSildarverðið hæbk- lar í kr. 8.20 mðlið. STJÓRN Síldarverk- smiðja ríkisins á- kvað í gær, að framvegis skyldi málið af síld til bræðslu keypt á kr. 8.20. Er þessi hækkun ákveð- in vegna þess, að stjórn Síldarverksmiðjanna hafa borizt tilboð um kaup á síldarmjöli og síldarolíu og hvort tveggja fer allmikið hækkandi. Frá fréttaritara Alþýðublaðsins. KAUPMANNAHÖFN í morgun. OÓKN ÞJÓÐVERJA á Póllandi fer stöðugt harðnandi, og hafa herir þeirra, sem sækja ^ fram í pólska hliðinu bæði að austan, frá Austur-Prússlandi, og að vestan, nú náð saman sunnarlega í hliðinu og skilið norðurhluta þess með hafnarborginni Gdynia frá Póllandi. Pólverjar verjast enn í Gdynia og á Westerplatte hjá Danzig. A suðurvígstöðvunum í Póllandi er sókn Þjóðverja nú einnig í algleymingi, og hafa þeir náð þar á sitt vald öllu pólska námuhéraðinu í Efri-Slésíu með borginni Katto- witz, sem barizt hefir verið um frá fyrsta degi árásarinnar. Litiu sunnar og austar sækja þeir einnig fram í héraðinu umhverfis Kraká, hina fornu höfuðborg Póllands, og stað- hæfa sjálfir, að þeir hafi þegar tekið þá horg, en Pólverjar bera það til baka. Pólska stjórnin flutti sig frá höfuðborginni Varsjá í gær til Lublin, sem er um 200 km. sunnar og austar í landinu. Líkur eru taldar til, að þessi ráðstöfun standi í sambandi við ráðagerðir um að halda pólska hernum hægt og hægt undan austur yfir Weichsel- fljót, en á austurbökkum þess eru aðalvarnarstöðvar hans. Frakkar komnir inn í SaarhéraðiA. --------<,------- Franski herinn, sem brauzt yfir landamæri Þýzkalands í gær, sækir nú fram með fótgönguliði, flugvélum og skriðdrekum í iðnaðarhéraðinu við Saar og er þegar á næstu grösum við stærstu borg þess, Saarbriicken. Fallbyssudrunurnar heyrast þaðan alla leið til Luxemhurg. Sjötía þýzkar flugvélar gerðu árás á Varsjá í fyrrinótt og vörpuðu niðrn- bæði sprengikúl- um og íkveikjukúlum. Stórkostlegt tjón er talið hafa orðið af loftárásinni, einkum í fátækrahverfum borgarinnar. Umhverfis Kraká voru harð- ar loftorustur háðar í gær, og voru í þeim fimmtán þýzkar flugvélar skotnar niður og sex pólskar. Fjöldamargar járnbrautar- stöðvar á Póllandi hafa orðið fyrir loftárásúm, og hafa marg- ar járnbrautir verið eyðilagðar, fietia við fengiA vörur úr skipum sem fljria hingað? ------«---- Þau eru með vefnaðarvörur, sykur, kaffi og ýmsar aðrar nauðsynjar. Ills eru komin hingað 5 skip, hið sfðasta kom snemma í morgun. 17 JÖGUR þýzk vöruflutn- ingaskip og eitt norskt hafa nú leitað hér hafnar. Fyrstu tvö skipin, sem hingað ltomu, liggja inni á Eiðsvík, en hin tvö liggja enn, ásamt norska skipinu á ytri höfn- inni. Síðasta skipið, þýzkt, 6000 tonn að stærð, eign Hamborgar- Ameríkulínunnar kom hingað snemma í morgun, Skipið heitir „Lúbeck“ og var á leið frá Haiti ei ófriðurinn skall á og flúði skipið hingað. Skipstjórinn á skipinu segir það vera kolalaust og þess vegna hafi það komið hingað. Engin líkindi eru til þess, að skipið fái nokkur kol hér, enda er mjög ólíklegt, að það þori að fara héðan meðan svona stendur. Skipið er með allmikið af vörum, t. d. sykri, ó- unnu tóbaki, kaffi, rommi og brúnspón, Norska skipið, sem skýrt var frá hér 1 blaðinu í gær, að beðið hafi um leiðsögn frá Reykja- nesi, kom hingað seint í gær- kveldi. Fór einn af hafnsögu- Frh. á 4. sföu. þannig að samgöngur hafa víða truflazt verulega. Þýzku herirnir, sem sækja fram í pólsku göngunum, tóku borgirnar Graudenz við Weich- sei og Bromberg, sem er miðja vegu sunnarlega í hliðinu, í gær. Þjóðverjar segjast hafa tekið þúsundir fanga í bardögunum á þessum stöðvum. Von Brauchitsch, yfirhers- höfðingi Þjóðverja, hefir birt tilkynningu þess efnis, að pólsku göngin aðskilji ekki leng- ur Þýzkaland og Austur-Prúss- land. Austur-Prússland hefir verið sameinað föðurlandinu, segir í tilkynningunni. Manntjónslistar ekhi birt ir á býzkalanái! OSLO .í gærkveldi. FB. Þýzka stjiómin hefir ákveðið, að manntjónslistar verði ekki birtir. Aðstandendur fallinna her- manna em hvattir' til þess að bera ekki sorgarklæðnaði eða sorgarbönd á fatnaði sínum. Snðnr-Afríha segir Dýzkalandi stríð á hendur. LONDON í morgun. FÚ. , í gærkveldi var lýst yfir því, að Suður-Afríkuríkjasambandið hefði lýst yfir styrjöld á hendur Þýzkalandi. Enn fremur, að ráð- stafanir hefði verið gerðar til heimflutnings stjórnmálafull- trúa í báðum löndunum. Suður-Afríka hefir þannig, eins og Ástralía og Nýja Sjá- land, gengið í lið með Bretlandi gegn Þýzkalandi, með öllum þeim fjár- og mannafla, sem ríkjasambandið hefir yfir að ráða. Á kanadiska þjóðþinginu, sem nú er að koma saman, Frh. á 4. síðu. FRANí<FUft.T, Kort af Saarhéraðinu (svartlitað) við landamæri Frakklands og Þýzkalands, þar sem Frakkar sækja fram. Þýzkur hermaður í pólsku göngunum yfirheyrir tvo pólska verkamenn, Aksttir einkabifreiða bann- aður með deglnnm í dag. Aðeins ein bifreiðastöð opin að nóttn undir eftirliti póst- og símamálastjóra. ------4------ 17 RÁ og með deginum í dag er akstur einkabif- reiða bannaður, einnig hefir verið bannaður akstur bif- hjóla. Undanþeginn þessu banni er akstur í þágu lækna og ljósmæðra. Akstur bif- reiða á bifreiðastöðvum er og undanþeginn. Ríkisstjórnin hefir og sett bann við öllum akstri að nóttu til frá kl. 12—6, nema lang- frðabifreiðum, strætisvögn- um og flutningabifreiðum. Verð- ur ein bifreiðastöð þó opin að nóttu til bráðnauðsynlegs akst- urs og ákveður póst- og síma- málastjóri, hvernig bifreiða- stöðvar bæjarins skuli skiptast á og hve margar bifreiðar skuli verða í gangi að nóttu. Þá verða innan skamms sett ákvæði um takmörkun á sér- leyfisleiðum. Síðar mun verða ákveðið, hvort grípa þurfi til benzínskömmtunar. í 1. gr. reglugerðarinnar seg- ir: „Heildsalar mega ekki láta úti benzín til bifreiðaaksturs nema til smásala, sem annast benzín- sölu á bifreiðar annaðhvort fyr- ir eigin reikning eða í umboði heildsalans (olíufélagsins). Eigendum og umráðamönnum benzínbirgða, sem ætlaðar eru til afhendingar í smásölu, er ó- heimilt að láta úti nokkuð af þeim til bifreiðaaksturs fram yf- ir það, sem nægir til að fylla benzíngeymi bifreiðar þeirrar, sem benzínið tekur, og má ekki tæma benzíngeymi bifreiðarinn- ar á annan hátt en með eðlilegrí eyðslu gangvélar bifreiðarinnar, nema þess þurfi vegna bilunar á bifreiðinni eða hún sé tekin úr notkun. Benzín má ekki, án sérstakr- ar heimildar atvinnu- og sam- göngumálaráðuneytisins, láta úti til annarra mannflutnings- bifreiða en þeirra, sem sam- kvæmt reglugexð þessari hafa heimild til aksturs, og ekki til annarra leigubifreiða til mann- flutninga en þeir,ra, sem við setningu reglugerðar þessarar Frh. á 4. síðu.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.