Alþýðublaðið - 11.09.1939, Page 1

Alþýðublaðið - 11.09.1939, Page 1
AIÞÝÐUBLAÐIÐ RITSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON XX. ÁRGANGUR MÁNUDAGUR 11. SEPT. 1939. —pg1——1■■......— UTGEFANDI: ALÞYÐUFLOKKURINN 208. TÖLUBLAÐ. iln Dpverj Brezka stjérntn mlðar allar ráðstafanir sinar vlð, að striðið standi að minnsta kosti i þrjú ár. Samlomnlag sjó manna og útgerð armanna. EimsklpfélaosskipiD C* AMKOMULAG komst á milli sjómannafélaganna og utgerðarfélaganna um tryggingu sjómanna og á- hættupeninga þeirra kl. um 11 á laugardagskvöld. Höfðu aðilar þá setið á fundi ásamt ríkisstjórninni frá því kl. um 6 um daginn. Gulifoss beið hér ferðbúinn í eina klukkustund eftir því að samkomulag næðist, og voru allir farþegar komnir um borð. Kl. 11,30 sigldi skipið héðan úr höfn. Lagarfoss beið á Fáskrúðs- firðfi og sigldi einnig strax og skipshöfnin hafði fengið að vita um samkomulagið. Brúarfoss sigldi hins vegar frá Kaupmannahöfn á laugar- dag, enda höfðu sjómannafélög- in engar hömlur sett á það, að skipin, sem voru í erlendum höfnum, færu af stað heim. Selfoss er á leiðinni frá Eng- lándi, en Dettifoss bíður enn eftir að fá í sig vörur, og munu enn vera einhverjir erfiðleikar á því að fá þær. Samkomulag milli sjómanna Frh. á 4. síðu. Tveir pólskir hermenn á verði við eina af hinum stóru fallbyssum Pólverja við Varsjá, Frá fréttaritara Alþýðublaðsins. Kaupmannahöfn í morgun. SÓKN ÞJÓÐVERJA á Póllandi hefir nú stöðvazt rétt fyrir norðan og vestan Var- sjá. Stöðugar orustur hafa staðið yfir þar síðan á laugardag og hver loftárásin eftir aðra verið gerð á borgina, en árangurslaust. Borgin er öll á valdi pólska hersins. Hins vegar hafa Þjóðverjar síðan á laugardag tekið borgirnar Posen (Poznan) og Lodz, eina mestu iðnaðarborg landsins, sem báðar eru miklu vestar en Varsjá. Hinar nýju varnarstöðvar pólska hersins liggja meðfram Weichselfljóti, norðan frá Varsjá og suður undir Karpatafjöll. Pólska herstjórnin lýsti því yfir í gær, að hún væri að búa sig undir langa vörn höfuðborgarinnar. Stríðsráðuneytið í London hélt fund síðdegis á laugardaginn og samþykkti að miða allar ráð- stafanir sínar við þær líkur, að stríðið muni standa að minnsta kosti í þrjú ár. Þing Kanada hefir nú samþykkt að segja Þýzkalandi stríð á hendur, og er allt brezka heims- veldið þar með komið í stríð við Þýzkaland. Brezkt eftlrlit með sigl ingnm hlutlausra þjóða -----4---- íslenzk sklp verða að koma vlð i Kírkwall á Shet- laadseyjum eins og pau urðu að gera i siðasta stríði BREZKA stjórnin hefir sett á eftirlit með siglingum hlutlausra þjóða til þess að koma í veg fyrir, að þau flytji bannvörur til óvina Stóra-Bretlands. Hefir brezka stjórnin sent íslenzku ríkisstjórninni tilkynningu umþetta. Þetta hefir þau áhrif. að öll íslenzk skip verða að koma við að líkindum í Kirkwall á Shetlandseyjum (Hjaltlandi), eins og þau urðu að gera í síðasta ófriði. — Eru skipin alvarlega áminnt um að fara eftir þessu. Tilkynningin um þetta, sem ríkisstjórnin hefir gefið út, er svohljóðandi: „Samkvæmt tilkynningu frá danska sendiráðinu í London og Reykjavík, hefir brezka ríkis- stjórnin tilkynnt þá ætlun sína að reyna að tálma sem minnst hlutlausa verzlun í ófriði þeim, sem Stóra-Bretland á nú í, eftir því sem slíkt er samrýmanlegt þeirri ákvörðun hennar að koma í veg fyrir, að ófriðarbann vörur (contraband) komist í hendur óvinum Stóra-Bretlands. Brezka ríkisstjórnin telur sig verða að beita að fullu réttind- um sínum sem ófriðaraðili, en jafnframt tjáir hún sig reiðu- búna til þess að taka til vinsam- legrar athugunar tillögur frá ríkisstjórnum hlutlausra landa, sem miða að því að auðvelda verzlun þeirra, sem gerð er í góðri trú (bona fide). Til þess að ná þessu takmarki sínu hefir brezka ríkisstjórnin Frh. á 4. sfðu. í hernaðartilkynningu frönsku stjórnarinnar í gærkveldi er sagt frá því, að Frakkar hafi enn sótt fram á vesturvígstöðv- unum í Saar. Gagnsóknir Þjóð- verja hafi aðallega verið um 45 jkm. tíá Saarbrúcken, nálægt landamærum Luxemburg, en hafi ekki borið árangur. Talið er, að Frakkar séu nú komnir yfir landssvæði það, sem aðskilur Maginotlínuna frönsku og Siegfriedlínuna þýzku, hafi tekið sér stöðu and- spænis framvirkjum Siegfried- línunnar og séu nú að rannsaka, hvar hún muni vera veikust fyr- ir áhlaupi. Franski flugherinn, sem vinn- ur í sambandi við her Frakka á vesturvígstöðvunum, hefir tek- ið nákvæmar ljósmyndir úr lofti af Siegfriedlínunni, og tel- ur franska herstjórnin sig nú hafa í höndum ítarlegt yfirlit yfir gerð Siegfriedlínunnar. og sendar fast upp að pólsku landamærunum austanverðum. Tala þessara varaliðsmanna er ekki kunn. í Moskva er verið að taka hesta og bifreiðar í þjónustu hersins, og sala á benzíni hefir verið takmörkuð. í Tyrklandi hafa varaliðs- menn einnig verið kallaðir til þjónustu, og er svo ákveðið á, að það skuli fyrst um sinn aðeins vera til 6 vikna. Tvær lepilegar útvarps- stððvar fnndnar Mr á landi Önnur í Reykjavik, hin á Akureyri. Lelkföng eða njésnastððvar? 'T' VÆR LEYNILEGAR útvarpsstöðvar hafa fundizt hér á landi og verið gerðar upptækar síðustu daga. Önnur þeirra fannst hér 1 Reykjavík, á Nönnugötu 1, og var eigandi hennar Sigurð ur Breiðfjörð Finnbogason rafvirki. Hin fannst á Akur- eyri, og var eigandi hennar Þórhallur Pálsson, sonur Páls Skúlasonar kaupmanns. Grunur leikur á um, að fleiri leynilegar stöðvar séu til hér á landi. Stöðvarnar fundust með út- varpsmiðunum. Stöðvarnar, sem þegar hafa fundizt, hafa verið gerðar upptækar og eigendur þeirra teknir til yfirheyrslu. Þeir gefa þá skýringu, að þeir séu meðlimir í alþjóðlegu ,,ama- töra“-félagi og að stöðvar þeirra hafi aðeins verið leikfang. Hafa meðlimir þessa félags gert til- raunir til þess að ná sambandi hver við annan víðs vegar um heim, og hefir það tekizt, því að enda þótt stöðvar þeirra séu mjög litlar, eru þær þó lang- drægar og ná nærri því um alla jörðina. Sigurður Finnbogason hefir undanfarið, nærri því mánaðar- lega, fengið kort um pósthúsið frá meðlimum þessa félagsskap- ar víðs vegar um heim, þar sem þeir segja frá því, að þeir haíi heyrt til hans, og er hann á þessum kortum nefndur í sam- bandi við stöð hans. Hann hefir því ekki farið neitt dult með þetta, og heldur því fram, að þessi starfsemi sé leyfileg alls staðar nema hér. Hann ,fir starfrækt þessa stöð sína und- anfarin 2 ár. Hafði hann feng- ið áminningu, en ekki skeytt henni. Slíkar stöðvar sem þessar munu alls staðar vera bannað- ar, a. m. k. á ófriðartímum, og hér er starfræksla þeirra brot á einkaleyfislögum útvarpsins. Það hefir ekki sannazt neitt um það, að hér hafi verið um óleyfilega njósnastarfsemi að ræða, en miklar sögur hafa gengið hér í bænum síðustu daga um það, að önnur stöðin hafi starfað fyrir nazista og hin fyrir kommúnista. En þessar sögur munu vera gripnar úr lausu lofti. Þlóðverjar éta of miklO af kjðti, segir Gðring. 4---- Ef þeir borða mio.ua af því, verða þeir bara fallegri á vöxt og þurfa minna i föt! G LONDON í gærkveldi. FÚ. ÖRING marskálkur, flug- málaráðherra Þýzkalands, flutti ræðu í dag í stærstu vopnaverksmiðjunni í Berlín, og var ræðunni endurvarpað um allt Þýzkaland. Réðist hann að- allega á Bretland. Hann sagði meðal annars: „Sigur okkar í PóIIandi er miklu stærri en sig- urinn við Tannenberg, og á minna en 4 vikum myndu Þjóð- verjar algerlega geta hreinsað til í Póllandi, og það þýðir það,“ Rússar drapa sarnan lið að baki Pðlverjam. LONDON í gærkveldi. FÚ. Rússneskar varaliðssveitir hafa verið kallaðar til þjónuitu Danír undirbúa brottflutn- ing fólks úr Kaupmanna- hðfn af ótta við loftárásir ------4----- Skðmmtno ð ðiiam belztn nauðsynjnm i aðsigi. I KHÖFN í gærkveldi. FÚ. DANMÖRKU er verið að ganga frá áætluninni um að flytja 250 000 manns burtu úr Kaupmannahöfn vegna ótta við Ioftárásir og koma þeim fyrir til bráðabirgða, þar sem árása- hættan er minni. í Danmörku er einnig verið að ganga frá á- ætlunum um skömmtun á brauði, korni, kaffi, sykri, eldi- viði, og hámarksverð verður sett á fjölda vörutegunda. Enska stjórnin hefir úr gildi hömlur þær, sem hingað til hafa gilt um fiskútflutning Dana til Englands, sagði Göring, „að við getum snúið okkur af alvöru til vest- urs og sent þangað til viðbótar ekki minna en 70 herfylki.“ Hann sagði, að Þýzkaland hefði öll nauðsynleg skilyrði til þess að heyja styrjöldina með sigri. Nóg er af úrvalsfólki og hráefn- Um, en hins vegar myndu Þjóð- verjar verða að neita sér um marga hluti. Hann kvaðst játa áð gervivörur væru ekki eins góðar eins og hinar raunverulegu vörur, en ef nauðsynlegt væri, þá myndu Þjóðverjar ganga í baðfötum, ef ekki væru til önn- ur klæði, heldur en tapa stríðinu. „Brauð“, sagði hann, „er nauð- synlegasta fæðan, og af því er nóg til. Hitt er alkunnugt mál, að Þjóðverjar éti mikið af kjöti, og ef þeir borða minna af þvi, þá hefir það ekki aðrar afleiðing- ar en þær, að þeir verða grennri og faliegri á vöxt og þurfa mrnna |efni í föt, og er það aðeins til góðs fyrir þjóðina“. Göring hélt því fram, að brezkt hafnbann gæti ekki orðið Þýzkalandi eins erf- itt nú, eins og það var í síðustu styrjöld vegna þess að svo marg- numið l ir af nágrönnum Þýzkalands væru hlutlausir. Þá sagði hann, að ástæðan til Frh. á 4. nflhi.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.