Alþýðublaðið - 20.09.1939, Page 1

Alþýðublaðið - 20.09.1939, Page 1
 ALÞTÐUBLAÐIÐ Mðlfundaflokkur AI- MðnflobfcsiBs! Æfing I kvðld í Al- RITSTJÓRI: F. R. VALÐEMARSSON ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN fcfðnfcfisinn 6. hœð. XX. ÁRGANGUR MIÐVIKUDAGUR 20. sept. 1939 216. TÖLUBLAÐ Pólland rís aldrei upp aftur i sömu mynd og fyrir stríðið, segir Hitlere 9 u Fyrlr pvi skulu Þýzkaland og Rússland s]á Ræða Hitlers í Danzigígær* Farnlr nauðsynlegar gegn vaxandi dýrtíð* Hitler, þegar hann hélt ræðu sína í þýzka ríkisþinginu þ. 1. september, og lýsti yfir innlimun Danzig í Þýzkaland og árás- inni á Pólland. KormMirgðir Reykjavik- or eidast i 1-41 mánnð. ----*--- Kaffi í eitt ár, en sykur í 40 daga. CAMKVÆMT upplýsing- ^ um frá skömmtunar- skrifstofu ríkisins voru 16. þ. m. birgðir af skömmtunar- vörum í Reykjavílt sem hér segir: Hjá heildsölum: 98,6 smál. kaffi, 15,2 smál. sykur, 234,8 smál. hveiti, 9,8 smál. rúgmjöl, 84,1 smál. haframjöl og bygg- grjón, 42 smál. aðrar kornvör- ur. Hjá smásölum: 16,9 smál. kaffi, 61,9 smál. sykur, 101 smál. hveiti, 24,9 smál. rúg- mjöl, 33,5 smál. haframjöl og bygggrjón, 30,1 smál aðrar kornvörur. Birgðir á heimilum: 1,9 smál. kaffi, 29 smál. sykur, 40,6 smál. hveiti, 9,6 smál. rúgmjöl, 13,8 smál. haframjöl og bygggrjón, 8,4 smál. aðrar kornvörur. Hjá iðnfyrirtækjum og bök- urum: 79,6 smál. sykur, 163 smál. hveiti, 57,5 smál. rúg- mjöl. Þegar frá eru teknar birgðir iðnfyrirtækja og bakara, þá eru birgðir í verzlunum og á heim- ilum samtals: 117,4 smál. kaffi, 101,6 smál. sykur, 376,4 smál. hveiti, 44,3 smál. rúgmjöl, 131,4 smál. hafuamjöl og bygggrjón, 80,5 smál. aðrar kornvörur. Ef miðað er við það, að þess- ar birgðir væru eingöngu af- hentar gegn matvælaseðlum til Reykvíkinga, myndu þær end- ast sem hér segir: Hveiti ca. 4 mánuði. Rúg'mjöl ca. 1 mánuð. Haframjöl og' bygggrjón ca. 3Vz mánuð. Aðr- ar kornvörur ca. AVi mánuð. Kaffi ca. 12 mánuði. Sykur ca. 40 daga. Við þetta er þó það að at- huga, að ekki var við.þessa út- hlutun klippt af matvælaseðl- um Reykvíkinga vegna birgða þeirra á heimilunum. Hins veg- ar er hér ekki tekið tillit til þess, sem aukalega er veitt mat- söluhúsum, gistihúsum, sjúkra- húsum og öðrum slíkum stofn- unum, né heldur rúgmjöls þess, sem heimilt er að nota til sláturgerðar. Með e.s. Brúar- fossi komu til landsins ca. 540 smál. af rúgmjöli, en ekki er vitað, hvernig það skiptist milli landshluta. Esia er væntan- leg á mofgun. í JIÐ NÝJA SKIP Skipaútgerð-, ar ríkisins „Esja“ er væntan- legt hingað síðdegis á morgun. Skipið er fullfermt af nauðsynja- vörum og öll farrými skipuð. Frá fréttaritara Alþýðublaðsins. Kaupmannahöfn í morgun. T_T ITLER kom til Danzig í gær klukkan hálf tvö (eftir ís- -I- lenzkum tíma), og er það í fyrsta skipti, sem hann hefir komið þangað. Kirkjuklukkum var hringt í borginni og mik- ill mannfjöldi hafði safnazt saman undir forystu Forster, leiðtoga nazistaflokksins í Danzig, til þess að fagna „for- ingjanum.“ Síðar í gær hélt Hitler hálfs annars klukkutíma ræðu fyrir mannf jöldanum. Lýsti hann því yfir, að Pólland myndi aldrei rísa upp aftur í þeirri mynd, sem það var fyrir styrj- öldina. Fyrir því myndi ekki aðeins Þýzkaland sjá, heldur einnig Rússland. í ræðu sinni sagði Hitler enn • fremur, að hann hefði engar fyrirætlanir, sem færu í bága við hagsmuni Englands og Frakklands. En afskipti Breta af meginlandi álfunnar hefðu nú verið brotin á bak aftur. Það hefði verið þeim að kenna, að friðsamlegt samkomulag hefði ekki náðst við Pólland og Þýzkaland hefði verið neytt til þess að heyja styrjöld. En nú hefðu Þýzkaland og Rússland komið sér saman um að skapa frið á meginlandi álfunnar. Um /Ukraine sagði lxann í ræðunni, að Þjóðverjar hefðu engar fyrirætlanir um að leggja haua undir sig. Forvextir hækka 1 Danmðrkn. Frá fréttaritara Alþý&ublaðsins. KAUPM.HÖFN í morgun. JÓÐBANKINN í Danmörku hækkar forvexti í dag um l»/o eða upp í 41/2%- Samtímis veröa útlánsvextir hækka'ðir um 10/0 eða upp í 5 og 51/20/0.. Pólverjar verjast enn á premnr vigstððvnm. LONDON í rnorgun. FO. Enda þótt pólska stjómin sé nú í Rúmeníu, veita pólskar her- sveitir fjandmönnunum viðnám uð minnsta kosti á þmmur víg- Btöðvum, nefnilega viÖ BugfljótiÖ norðaustur af Varsjá, við Lem- berg og á suðurvígstöðvunum. Þjóiðverjar segja, að hersveitir Pólverja fyr.ir vestan Varsjá hafi neyðzt til þess að hörfa undan, en Pólverjar segja hins vegar, að þama hafi þeim tekizt að reka heyg inn í viglínu Þjóðverja. Hótun sína um að hlífa Varejá ekki á mokkurn hátt, hafa Þjóð- verjar enn sem komið er fram- kvæmt áðallega með stórskota- hríð, að undantekinni loftárás í fyrrinótt. Ýmsar fregnir bárust um það í gær, að Smigly-Ryds marskálkur væri kominn til London. Sendi- herra Póllands í Loindon neitar, að þessi fregn sé rétt. Hann full- yrðir, að hann sé enn í Póllandi og yfirherstjórnin sé í hans hlönd- um. Ávarpi frá brezku þjóðinni var útvarpað til pólsku þjóðarinnar í gærkveldi. Var svo að orði komizt, að enn einu sinni væm Pólverjar merkisberar frelsisins í álfunni, og að brezka þjóðin, bandamenn þeirra, myndi halda baráttunni áfram, þar til Pólverj- ar fengju frelsi sitt og land aftur. Rússneska flotanum í Eystra- salti flefir veiið skipað að taka upp eftirlit þar. Var þessx á- FÝh. á 4. síðu. fiefir Gðbbels verið förnað? Ekbert heyrzt af honnm sfðan striðið byrjaði. PARÍS í gærkvöldi. FÚ. P RÁ AMSTERDAM er símað, að ferðamenn, sem koma frá Þýzkalandi, skýri frá því, að þar sé um fátt meira talað en dr. Göbbels. Þykir mjög svo einkennilegt, að aldrei skuli til hans heyrast, og geta menn sér til, að honum hafi verið fórnað vegna þýzk-rússn- esku vináttunnar — eins og Lit- vinov, Sumir halda jafnvel, að búið sé að drepa hann, í útvarpið þýzka átti hann að tala 13. og 14. þessa mánaðar, en ekkert hefir til hans heyrzt. Ólga í Tékkóslóvakíu. LONDON í gærkveldi. FÚ. I Kaupmannahafnarfnegnum er sagt frá uppþotum í Tékkóslóva- kíu. Uppreisnartilraun var gerð í Skodaverksmiðjunum, og þýzka leynilögreglan hefir handtekið margt manna. Ætla menn og, að allmargir uppreisnarsinnar hafi verið teknir af lífi. ¥iðtækar ráðstafanir fgegn at* vinnaleysinu óhjákvæmilegar. ------------- Fnndarsamhykktir Aipýðuflokksfélagsins i gærkveldi ♦----- F 609 stfilfcnr gera verkfall gegnást- leitnnm verkstjóra. UNDUR Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur í gærkveldi var vel sóttur, þrátt fyrir rigninguna. í byrjun fund- arins voru teknir inn 10 nýir félagar. Meðal þeirra voru nokkrir, sem fóru úr Alþýðuflokknum, þegar sundrungin var. Formaður félagsins skýrði frá fyrirkomulagi starfseminn- ar í vetur — og er ákveðið, að einn fundur skuli haldinn á mánuði, en aukafundir þegar þurfa þykir. Hefir stjórn fé- lagsins þegar skipulagt fjöl- þætt vetrarstarf. Stefán Jóh. Stefánsson hóf umræður um ráðstafanir vegna ófriðarins — hér og erlendis, og Finnur Jónsson flutti erindi um samstarf einræðisherranna í Berlín og Moskva. Var gerður góður rómur að báðum erindunum og sérstak- lega urðu miklar umræður um ófriðai’ráðstafanirnar hér heima. Að þeim loknum voru sam- þykktar eftirfarandi ályktanir: Varnir gegn dýrtíðinni. „Alþýðuflokksfélag Reykja- víkur skorar á ríkisstjóm að hlutast til um, að ákvæðum laga um eftirlit með verðlagi verði beitt til hins ítrasta til þess að koma í veg fyrir, að vörur hækki í verði umfram það, sem óhjákvæmilegt er. í þessu sambandi hendir félagið á, að með hækkandi vöruverði virðist eðlilegt að lækka álagn- ingarprosentu verzlana.“ Atvinnuleysið. „Alþýðuflokksfélag Reykja- víkur skorar á ríkisstjórn og LONDON í morgun. FÚ. SEX HUNDRUÐ kon- ur gerðu verkfall í eldspýtnaverksmiðju einni í Manila á Filippseyjum, og var ein aðal ástæðan sú, að einn af verkstjórun- um hafði gerzt ástleitinn við nærri því hverja ein- ustu af þeim ungu stúlk- um, er þarna unnu. Eitt af aðalskilyrðunum fyrir því, að vinna yrði tekin upp aftur, var sú, að að þessum ástleitna for- manni yrði sagt upp. Mussolini ætlar efcki að fara i strið fyrst ■■ sinn. ------«1---- Hermennirnir hafa fengið heimfarar- leyfi til vínuppskeru og haustsáningar RÓM í morgun. FÚ. TTALSKA stjórnin hefir gef- ið út tilskipun þess efnis, að bændur, sem nú eru í her- þjónustu, skuli fá heimfarar- leyfi um vinnuuppskerutímann og til þess að ganga frá haust- sáningu. Álitið er, að Mussolini hefði ekki gefið mönnum þessum heimfararleyfi, ef hann hefði í hyggju að fara í stríð. Ítalía fylgist nú enn nánar en áður með öllu, sem gerist, einkum eftir að líkur fóru að benda til þess, að deilan færi að ná til Dónárdalsins líka. bæjarstjórn að gera þegar allar þær ráðstafanir, sem mögulegar eru, til þess að draga úr at- vinnuleysi því, sem nú er og líkur eru til að fari vaxandi samfara aukinni dýrtíð, og hefja þegar undirbúning að framkvæmdum, sem miði að hvoru tveggja í senn, að auka at vinnuna og draga úr innflutn- ingsþörfinni.“ Gegn birgðasöfnun. „Alþýðuflokksfélag Reykja- víkur skorar á ríkisstjórnina að gæta þess vandlega, að settiun reglum um skömmtun nauð- synja verði stranglega fram- fylgt og að gera ráðstafanir til þess að rannsaka, hve mikil brögð eru að því, að einstakir menn hafi safnað birgðum aí skönnntmiarvörum eða kolum og að gera allar slíkar óeðlileg- ar birgðir tafarlaust upptækar, Jafnframt skorar félagið á rík- isstjórn að taka þegar upp skömmtun á kolum.“ Ekki rafmagnshækkun. „Alþýðuflokksfélag Reykja- víkur skorar á rafmagnsstjórn og bæjarstjórn að hækka eigi verð á rafmagni, þar sem gera má ráð fyrir aukinni sölu raf- Frh. á 4. síðu. ;

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.