Alþýðublaðið - 26.09.1939, Qupperneq 1
RITSTJÓRI: F. R. VALÐEMARSSON ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
XX. ÁRGANGUR ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPT. 1939 221. TÖLUBLAÐ.
Era Pélverjar hrlnda ðllam árásum
eldhaf.
Þjóðverja.
jóorustaíNorð
nrsjónum í gær.
MlbyssHdninuraar
heyrlust tll Moregs.
OSLO í morgun. FÚ.
MIKIL sjóorusta virð-
ist hafa orðið í
Norðursjó í steínu milli
Bergen og Shetlandseyja.
Varð vart við ákafa skot-
hríð, en þó langt uían
norskrar landhelgi.
Af Noregsströnd sást til
margra herskipa, en þjóð-
erni þeirra varð ekki
greint vegna mikillar
rigningar, og varðstöðvar
á ströndinni segjast hafa
séð herskip í orustu.
Mikið af matvðr-
um með 3 skipnm
Gullfoss og Selfoss komu í
moroun, Drottningin í dag.
GULLFOSS kom hingað í
gærkveldi frá Kaupmanna-
höfn. Var skipið með margt far-
þega og allmikið af vörum, svo
að segja eingöngu matvörur.
Selfoss kom í morgun kl. 9
með 250 tonn af kolum og 611
tonn af matvörum, þar á með-
al sykur.
Selfoss fór frá Leith 20. þessa
mánaðar og Gullfoss frá Kaup-
mannahöfn sama dag.
Ferðin gekk vel. Gullfoss var
einu sinni stöðvaður af brezku
herskipi, sem athugaði hann.
Þegar Gullfoss var fyrir sunn-
an Færeyjar sendi þýzkt flutn-
ingaskip frá sér neyðarmerki,
og var Gullfoss þá um 90 sjó-
mílur frá skipinu. Það var
brezkur tundurspillir, sem
hafði skotið skipið í kaf. Rætt
var um, að Gullfoss snéri til
skipsins til að bjarga skips-
höfninni, en það var hætt við
það í þeirri von, að Selfoss, sem
var á eftir, myndi bjarga henni.
Til þess kom þó ekki, því að
tundurspillirinn tók skipshÖfn-
ina.
Alexandrína drottning kom
til Vestmannaeyja í nótt um kl.
5 og fór þaðan kl. 8 í morgun.
Er hún væntanleg hingað um
kl. 7 í kvöld. Skipið er með
margt farþega. Það er með mik-
ið af vörum, aðallega rúgmjöl,
en þó nokkuð af járnstöngum.
*
Málhmdaflokkur
Alþý'ðuflokksfélagsins heldur
æfingu í Alþýðuhúsinu, 6. hæð
kl. 8V2 anna'ð kvöld. Mætið stund
víslega.
Þýzkur herflutningavagn, sem hefir strandað í skurði við Varsjá.
Frá fréttaritara Alþýðublaðsins. KHÖFN í morgun.
T7 REGNIR frá útvarpsstöðinni í Varsjá, sem stöðugt
heldur áfram sendingum sínum, segja, að miðbik
borgarinnar standi nú allt í björtu báli eftir hina ægilegu
stórskotahríð Þjóðverja, sem enn heldur áfram.
Eftir lýsingum útvarpsstöðvarinnar er ástandið í borg-
inni hroðalegt. Það er skortur á vatni og því ómögulegt
að slökkva eldinn. Hvert húsið hrynur eftir annað með
ógurlegu braki, og fjöldi fólks hefir farizt undir rústunum.
Utvarpsstöðin stendur þó enn, og lýsir hún því stöðugt yf-
ir, að borgarbúar séu ráðnir í því að verjast þar til yfir
lýkur.
Þjóðverjar hafa gert hvert áhlaupið af öðru á varn-
arstöðvar pólska hersins umhverfis borgina, það síðasta
í nótt. Það var barizt með brugðnum byssustingjum, en
viðureigninni lauk með því, að Þjóðverjar urðu að hörfa
undan.
Pólverjar hafa komið sér mjög vel fyrir umhverfis
borgina og grafið djúpa skurði í kringum hana, þannig að
Þjóðverjar eiga mjög erfitt með að nota skriðdreka sína
í áhlaupunum.
Stórskotabrið á vestnrvíg-
stðövunnm eins og gegar
verst var i heimsstyrjöldinni
---;---.....— ■
Frakkar hófu gnmmilega sókn í gær.
LONDON í morgun. FÚ.
Franski herinn á vesturvíg-
stöðvunum hóf í gær skyndilegt
áhlaup á aðalvíggirðingar
Siegfriedlínunnar á 65 kxló-
metra löngu svæði suður af
Saarbriicken, eða suður fyrir
Wissemburg, þar sem skemmst
er á milli Maginotlínxmnar og
Siegfriedlínunnar. Þjóðverjar
hafa misst fjölda af byssum, og
stórskotahríðin er sögð vera
eins og hún var áköfust í heims-
styrjöldinni,
Stórorustur eru líka sagðar
vera við Saarbrucken og Zwei-
brucken. Á einum stað er sagt,
að þýzki herinn hafi sótt fram
spottakorn, en var innan
skamms knúinn til að hörfa. Sú
skyndilega sókn Þjóðverja er
talin standa í sambandi Við
komu Hitlers og von Brau-
chitsch yf irhershöf ðtngj a
Þjóðverja til vesturvígstöðv-
anna, en þangað eru þeir nú
komnir. Franskar flugsveitir,
sem gætt er af hraðskreiðum
eltiflugvélum, hafa nú nánar
gætur á öllum hreyfingum
Þjóðverja. Segir í fréttum frá
Frakklandi, að hverri tilraun
Þjóðverja til þess að vinna aft-
ur hið tapaða landsvæði muni
verða svarað með áhlaupi.
í franskri frétt segir enn
fremur, að þýzki herinn sé
hvorki eins mannmargur né
heldur séu hermennirnir eins
duglegir til hernaðarstarfa
eins og þeir voru í heimsstyrj-
öldinni, aftur á móti sé 4véla-
útbúnaður hersins allur miklu
betri.
Loks segir í fréttum frá Par-
ís, að verið sé að draga saman
mikið þýzkt lið við landamæri
Sviss.
Loftðrás á Zeppe-
línstððvarnar í
FriedrichshafeB.
LONDON í morgun. FÚ.
"O RÁ Ziirich í Sviss er sím-
að á þessa leið;
Svissneska herforingjaráðið
tilkynnir, að fjöldi flugvéla
hafi varpað sprengjum á Zep-
peíinstöðvarnar í Friedrichs-
hafen á sunnudagsnótt. Urðu
rnargir Svisslendingar varir
við sprengingar og skothríð frá
loftvarnabyssum og heyrðu
einnig greinilega til flugvél-
anna.
Fólk á landamærasvæðinu seg-
ir, að tvisvar hafi verið gefib
merki um það í Konstanz, að
■loftárás væri í aðsigi. Áköf skot>
hríð heyrðist frá loftvarnabyssum
og leitarljós sveifluðust urn him-
inhvolfið.
Fréttaritari „Daily Telegraph“
segir frá þvi, að íbúar í þorp-
inu Árbon, sem er beint á rnóti
Friedrichshafen, hafi orðið var-
ir við fjórar sprengingar og séð
mikinn reyk í nánd við Zeppe-
linstöðvarnar.
„ÞjóðverlariTabið eltlr!“
Brezkar flugvélasveitir flugu í
dag inn yfir Vestur- og Norð-
vestur-Þýzkaland og köstuðunið-
ur flugritum.
1 flugriti þvi, sem brezkar flug-
vélar vörpuðu niður yfir norðan-
Frh. á 4. síðu.
SíldarlÝslð hækkar um
140% síldarmjðlið um
50 °|0 og sfld allverulega
...... 1 • ---
Óvíst hvort hægt verður að fylgji
gjorðum fyrirfpaBBBsamniiBguiiie
--------------»----
A LLMIKIL hækkun hefir
orðið á ýmsum útflutn-
ingsvörum okkar. Verð á
síldarlýsi hefir hækkað um
140%. Síldarmjöl hefir
hækkað um 50% og síld
hefir hækkað nokkuð mikið,
en þó ekki eins mikið og
síldarlýsi og síldarmjöl.
Allmikið af þessum fram-
leiðsluvörum okkar er þegar
selt, en þess ber að gæta, að
verulegur hluti hefir verið seld-
ur með fyrirframsamningum,
sem óvíst er, hvort hægt er að
uppfylla vegna striðsástands-
ins — og ef ekki verður hægt
að framfylgja þeim, fáum við
miklu minna fyrir þessar út-
flutningsvörur en áður var vit-
að.
En þess ber að gæta, að flutn-
ingsgjöld hafa stigið mikið. í
norska Arbejderbladet um
miðjan þennan mánuð er gert
að umtalsefni, hve miklu hækk-
unin nemur á ýmsum útflutn-
ingsvörum Norðmanna. Þar
segir meðal annars:
„Hvallýsi hefir hækkað frá
16 og upp í 36 sterlingspund
fyrir tonn, tunnan af gufu-
bræddu lýsi úr 55 norskum
krónum í 120. Eftirspurn er nú
ákaflega mikil eftir þessum
vörum.
Einnig má búast við, að verð
hækkun verði á fiskinum. í
Noregi eru nú miklar fisk-
birgðir, sem fram til þessa hef-
ir verið erfitt að selja. Útlit er
einnig fyrir, að ekki verði eins
hörð samkeppni við þýzka og
enska fiskiflota eins og verið
hefir.
í síðustu heimsstyrjöid
reyndist Norðmönnum mjög
auðvelt að selja saltfisk til ó-
friðarþjóðamia, og Norðmenn
vona, að ims verði nú.
Aðalfiskútflutningur Noregs
er til Ameríku, sem kaupir á-
kaflega mikið nú um þessar
mundir, að öllum líkindum í
gróðabrallsskyni. Til ófriðar-
þjóðanna er útflutningurinn
minni, aðallega vegna þess, hve
gjaldeyrir þeirra er óstöðugur
og vegna þeirra stríðsráðstaf-
ana, sem þær hafa gert til varn-
ar verðhækkun á aðfluttum
vörum.“
Verksmiðjufólk
segir m samn-
inpm.
|ÐJA, félag verksmiðjufólks héit
■*■ fund í gærkvöldi og ræddi
um dýrtíðina og kaupgjaldið.
Var samþykkt að segja upp
kaupgjaldssamningum við at-
vinnurekendur og 5 manna nefnd
kosin til að hafa þau mál með
höndum. Þá var enn frenrur sam-
þykkt svohljóðandi tillaga:
„Iðja, félag verksmiðjufólks i
Reykjavík skorar á ríkisstjómina
að afnema nú þegar, með bráða-
birgðalögum, ákvæði þau í lög-
um frá 4. apríl 1939 um gengis-
skráningu og ráðstafanir í þvi
sambandí, er banna launahækk-
anir“.
Oðru sænsku skipi sðkkt
í gær af pýzkum kafbáti.
Svíar hóta að stöðva málminnflutning
til Þýzkalands, ef árásirnar endurtaki sig
Frá fréttaritara Alþýðublaðsins j
KHÖFN í morgun.
UTGERÐARFÉLAGIÐ
SYLVIA í Gautaborg
fékk í gærkveldi símskeyti
frá skipstjóranum af sænska
flutningaskipinu „Silesia“,
þess efnis, að skipið hefði
verið skotið í kaf af kafbáti
úti fyrir Stavanger í Noregi.
Allri skipshöfninni, nítj-
án manns, var bjargað af
öðru sænsku skipi, og fór það
með hana inn til Egersund.
„Silesia“ var með timbur-
farm og stykkjavörur á leið til
Englands.
Mikill uggur er í mönn-
um í Finnlandi og Svíþjóð
vegna þess, að tveim
finnskum og einu sænsku gufu-
skipi hefir verið sökkt af þýzk-
um kafbátum. Skipin voru öll á
leið til Englands með trjákvoðn.
í Stokkhólmi segir í blöðum
almennt, og er haft frá hæstu
stöðum, að ef Þýzkaland lialc'i
áfram að sökkva skipum hluí-
lausra þjóða, sem elcki séu að
flytja hernaðarhannvöru, þá
muni Svíþjóð stöðva útflutning
á járnmálmi til Þýzkalands. —»
Gæti þetta orðið mjög alvarlegt
áfall fyrir Þýzkaland, því að
það kaupir 6 millj. smálesta af
járnmálmi árlega frá Svíþjóð.
í sömu fregn segir, að ef
Þýzkaland kynni að finna upp
á því að segja, að trjákvoða
væri hernaðarbannvara, gæti
það alveg eins vel fundið upp á
að segja, að smjör væri það.