Alþýðublaðið - 28.09.1939, Qupperneq 1

Alþýðublaðið - 28.09.1939, Qupperneq 1
AIÞÝBDBIASIÐ RITSTJÓRI: F. R. VALDIMARSSON ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN XX. ÁRGANGUR FIMMTUDAGUR 28. SEPT. 1939 223. TÖLUBLAÐ. ýp ennpá vtðtækari Moskva* samningur en sá fyrri i aðsigi? HIm itýja f ir Mbben* trops til Moskva vek iir alheimsathygli. Frá morgun. fréttaritara Alþýðublaðsins. Kaupmannahöfn HIN nýja för von Ribbentrops, utanríkismálaráðherra Hitlers, til Moskva, er nú aðalumræðuefni stjórn- málamanna um allan heim. Um erindi hans hefir ekkert verið látið uppi, en menn eru við því húnir, að stórtíðindi séu í undirbúningi. Ribbentrop og föruneyti hans kom í flugvélum til Moskva í gær og var flugvöllurinn eins og í fyrri förinni allur skreyttur hakakrossfánum. í fylgd með utanríkisráðherranum voru Schwartzschev, sendiherra sovétstjórnarinnar í Berlín, og Belja- kov hershöfðingi í rauða hernum, sem einnig hefir dvalið þar undanfarið, Dr. Gauss, ráðunautur í þýzka utanríkisráðuneyt- inu, Forster, leiðtogi nazista í Danzig, og auk þeirra 38 skrif- stofumenn og .sérfræðingar þýzka utanríkismálaráðuneytisins. Strax og von Ribbentrop var kominn til Moskva fór hann á fund sovétstjórnarinnar í Kreml. Snemma í morg- un var nýr fundur haldinn, og sátu hann von Ribbentrop, Stalin, Molotov og von der Schulenburg, sendiherra Hitlers í Moskva. Fréttaritari „Daily Tele- graph“ í Moskva skýrir svo frá, að þessi heimsókn sé almennt talin þýða stórvægilegar fyrir- ætlanir, Menn þykjast þess fullvissir, að von Ribbentrop hafi verið boðið að koma í gær til þess að hann gæti hitt utan- ríkismálaráðherra Tyrklands, sem nú dvelur í Moskva. Al- mennt er talið, að Rússar séu að gera tilraun til að fá Tyrki til þess að loka Dardanella- sundinu fyrir herskipum Breta og Frakka. Molotov átti í gær viðtal við utanríkismálaráðherra Tyrk lands. Síðan fór hann á fund Stalins. Er fullyrt, að ekki verði gert út um neina samn- inga fyrr en búið er að ræða við von Ribbentrop. Enn sem komið er vita menn ekki neitt um tilganginn með von Ribbentrop. Frh. á 4. síðu. Stklatno nýrra skömmtun- arseðla hefst á morgnn. -----»---- G©íiiIii seðlarnfir gfilda aðefins par tll næsta laugardagslcvdld. IJTHLUTUN nýrra skömmtunarseðla hefst í skömmtunarskrifstofu hæj- arins í Tryggvagötu — S.R.- húsinu — í fyrramálið kl. 9, og stendur úthlutunin í noltkra daga. Fólk á að lcoma þangað og sækja jskömmturiarseðla sína sem nú eiga að gilda fyrir allan októbermánuð. Um leið á það að skilá stofnum núgildandi skömmtunarseðla útfylltum með nöfnum allra heimilis- manna og heimilisfangi, eins og það á að verða frá 1. október. Skammturinn handa hverjum manni verður sá sami fyrir hvörja viku og hann var við síðustu xxthlutun, Samkvæmt reglugerðinni átti að draga birgðir manna frá við síðustu úthlutun. Þetta var Frh. á 4. síM. Stórfiiófnaðir i Reykjavík. Þrfr menn hata ver- 10 handtekair. LÖGREGLAN neitar enn að gefa blöðun- um upplýsingar um stórt þjófnaðarmál, sem nú er á döfinni hér í Reykjavík. En vitað er, að félags- skapur nokkurra manna hér í bænum hefir undan- farið framið innbrot í ýms fyrirtæki og stolið í all- stórum stíl. Hafa þrír menn þegar verið teknir fastir, og sitja þeir í gæzluvarðhaldi. — En fleiri eru taldir hafa verið í vitorði með þeim. Eitt af innbrotum þessa félagsskapar var í skó- verzlun Þórðar Pétursson- ar & Co. Nokkuð af þýfinu mun hafa fundizt. t Brezk hernaðarflugvél af sömu gerð og flugvélin, sem nauðlenti á Raufarhöfn. Brezka hernaðarflngvélin strank f rá Ranfarhof n í morgiin klukkan 6 ——.—-♦---- Framkoma flugforingjans er brot á hlutleysi landsins, sem verður mótmælt í London i dag. BREZKA HERNAÐARFLUGVÉLIN, sem nauðlenti á Raufarhöfn í fyrra dag og var kyrrsett þar ásamt áhöfn hennar, strauk í morgun klukkan 6. Þar með hraut flugforinginn drengskaparloforð sitt og hlutleysi íslands. en þar gæti flugvélin komizt í örugga höfn. Ríkisstjórnin hefir ákveð- að að mótmæla þessu hlut- leysisbroti þegar í dag, og hefir mótmælaskeyti verið sent til utanríkismálaráðu- neytisins danska, sem síðan mótmælir í London. Ríkisstjórnin tók þá ákvörð- un í gær, að senda Agnar Ko- foed-Hansen norður til Raufar- hafnar til að fylgja flugvélinni hingað til Reykjavíkur, því að flugvélin var í mikilli hættu, þar sem hún lá á Raufarhöfn, og var talið að hún myndi eyði- leggjast, ef veður versnaði. Agnar Kofoed-Hansen flaug í gær um kl. 3, og fór hann í landflugvélinni. Hann lenti á Kópaskeri kl. um 4 vegna þess, að hann gat ekki lent á Rauf- arhöfn; lagði hann þegar af stað frá Kópaskeri og fór ríðandi. Um kl. 4 í nótt kom hann til Raufarhafnar og sneri hann sér þegar til flugforingjans á hinni brezku flugvél. Agnar Kofoed-Hansen hafði ekkert umboð til neinna að- gerða á flugvélinni, en skýrði hins vegar flugforingjanum frá því, að hann vildi aðstoða hann við að fljúga til Reykjavíkur, Alþýðublaðið hafði í dag' tal af Agnari Kofoed-Hansen á Raufarhöfn. Sagði hann, að flugforinginn hefði tekið sér mjög vel og gef- ið drengskaparloforð um að þeir flygju flugvélinni til Reykjavíkur. Agnar kvaðst hafa sagt við flugforingjann, að hann myndi koma um borð í flugvélina um kl. 7 og væri þá hægt að leggja af stað til Reykjavíkur. Bað flugforing- inn Agnar um að koma ekki um borð fyr en kl. um 8. Fór Agn- ar við það í land og lagði sig. Einar Jónsson hreppstjóri á Raufarhöfn var á vakt yfir flugvélinni — og kl. 6 sá hann að hún komst á hreyfingu, hóf hún sig því næst til flugs, og var horíin í vesturátt að 2 mín- útum liðnum. Hér hefir tvímælalaust verið brotið gegn hlutleysisákvæð- um íslands, og er erfitt að þola það. Virðist það liggja í aug- um uppi, að það þurfi að gera slíkar flugvélar ófærar til flugs samstundis og þær koma hing- að. Að sjálfsögðu verður þessu athæfi hins brezka flugforingja harðlega mótmælt, Ákvæðin sem flng- vélin hefir brotið. í hlutleysislögum okkar seg- ir meðal annars um flugvélar: Prh. á 4. síöu. Djfzkir tundurspiliar menn af sænsku skipf i Kattegat! Frá fréttaritara Alþýðublaðsins. KHÖFN í moiigun. nPVEIR þýzkir tundurspijlai stö'ðvuðu í gærmorgun sænska skipið „Kronprdnsessan Marganeta“ í Kattegat og kröfð- ust þess, að framseldir væri skipsmienn af brezka sltipinu „Galden“, en því hafÖi verið sökkt fyrir fáum dögum af þýzk- um kafbát, og „Kronprinsessan Margareta“ síðan bjargað áhöfn- inni. Skipstjórinn á sænska skipinu þorði ekki annað en að láta af hendi hina brezku sjómenn, 11 talsins, þar sem liann var utan sænsku landhelgislínunnar. Héldu hinir þýzku tundurspillar afstað tneð þá eitthvað norður á bóg- inn. ¥ars|á gafst npp i gær eftir að varnarliðið par varorðið skotfæralaust ... ♦ ■■■ Þjóðverjar fara inn í borgina á morgun. —....—•»-..... Frá fréttaritara Alþýðublaðsins. KHÖFN í morgun. \T ARSJÁ gafst upp í gær eftir 21 dags frækilega vöm ^ gegn ofureflinu. Borgin er öll í rústum eftir hina ægi- legu stórskothríð síðustu dagana, sem hafði kostað 3009 horgarbúa lífið) og varnarliðið var orðið skotfæralaust. Und- ir slíkum kringumstæðum var öll vörn orðin óhugsanleg. Þýzka herstjórnin skýrir frá því, að foringi varnarliðsins haí'i ikömmu fyrir hádegi í gær beðið um vopnahlé, og fór Blaskowitz hershöfðingi, sem er einn af yfirmönnum þýzka hersins við Var- sjá, inn í borgina til þess að semja um uppgjöf hennar, Er búizt við að borgin verði formlega afhent Þjóðverjum á morgun. Kl. 6 í gærkveldi barst fregn . komulag hefði náðst um vopna- frá Varsjá þess efnis, að sam- Frh. á 4. síðu.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.