Alþýðublaðið - 16.10.1939, Side 3
MANUDAGUR 16. OKT. 1939.
ALÞYÐUBUUm
♦------------:-----------
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
RITSTJÓRI:
F. R. VALDEMARSSON.
í fjarveru hans:
STEFÁN PÉTURSSON.
AFQREIÐSLA:
ALÞÝÐUHÚSINU
(Inagangur frá Hverfisgötu).
SÍMAR:
4900: AfgreiSsla, auglýsingar.
4901: Ritstjórn (innl. fréttir).
4902: Ritstjóri.
4903: V. S. Vilhjálms (heima).
4905: Alþýðuprentsmiðjan.
|4906: Afgreiðsla.
! 5021 Stefán Pétursson (heima).
i ALÞÝÐUPRENTSMIÐJAN
Heflr Hitler reika-
að skakkt?
HITLER hefir nú bæði frá
Chamberlain og Daladier
fengið það svar við hinu svo-
nefnda „friðartiibö'ði11 sínu, sem
búizt var við alls staðar úti um
heim. England og Fraikkland
r.eita að fallast á ofbeldisverkið,
sem unnið hefir verið á Póllandi,
og lýsa því yfir, að þau séu yf-
irleitt búin að fá nóg af samn-
ingunr við Hitler. Striðið heldur
því fyrirsjáanlega áfrarn meðan
hann er við völd á Þýzkalandi.
En þött undarlegt rnegi virð-
ast, er eins og þetta svar Charn-
berlains og Daladiers hafi komið
eittlivað flatt upp á Hitier sjálf-
ain. Það er eins og hann sé í
fyrsta skipti ekki fullkomlega við
því búinn, að taka afleiðingunum
af sínum eigin verkum. Og það
er ekki nema skiijanlegt. Því það
er vissulega allt annað að ráða
niðurli&gum Maginotlínunnar og
enska flotans, ' heldur en hins
vamarlitla Póllands, sem með
hjálp Sovét-Rússlands va:r hægt
að umkringja á allar hliðar af
ofurefli hers. Nú er eins og Hitr
ler leiti á siðustu stundu að ein-
hverju hálmstrái til þess að
grípa í, áður en allt er um seinan.
Hann lætur, þrátt fyrir afsvar
Chamberlains og Daladiers, mál-
pípur sínar halda áfram að tala
um málamiðlun, — nú síðast með
milligöngu Roosevelts. Vissulega
má hann ekkert láta ógert, sem
gæti orðið til þess að afsaka
’hann í augum þýzku þjóðarinnar.
En létt hefir það ekki verið fyrir
hann að brjóta svo odd af oflæti
sínu eftir það ,sem á undan var
gengið. Því meðan hægt var að
miðla málum, áður en morðtólin
vom siett í gang og árásin hafin
á Pólland, kærði hann sig ekkert
urn milligönigu Bandaríkjaforsiet-
ans, eins og ölium mun enn í
fersku minni.
Mefir Hitier að _þessu sinni
reikna’ð skakkt? Bjóst hann við
því að geta undirokað Pólland á
sama hátt og Austurríki og
Tékkóslóvakíu, án þess að til ó-
friðar kæmi við England og
Frakkland? Það bendir í raun og
veru margt til þess. Það lítur
helzt út fyrir, að hann hafi treyst
því, að vináttusamningurinn við
Stalin myndi nægja til þess að
hræða Ehgland og Frakkland frá
því að halda gefin loforð við
Pólland. Og það má vei vera,
að hann hafí fram á seinustu
siundu btekkt sjálfan sig með
þeirri yfiriætisfullu imyndun, að
þau myndu, þegar á 'túerti, ekki
þora að grípa til vopna gegn of-
beldinu. Það er að minnsta kosti
íullyrt, að voo Ribbentriop hafi
allt af talið honum trú um það,
að England myndi sætta sig við
allt. Það væri þó heldur ekki i
iyrsta skipti, sem þýzkir stjórn-
málamenn hefðu gengið þannig
hlindandi út í ófæru styrjaldar
við England. Það er sagt, að
Þýzkaland myndi aldrei hafa far-
Ið út í heimsstyrjiöldina árið 1914,
ef forystumönnum þess þá hefði
verið það ljóst, að þeir fengju
England á móti sér. Sumir siegja
líka, að afstaða Englands hafi
þá fram á síðustu stundu gefið
ti'lefni til éfasemda í því efni. En
nú var Jþví að minnsta kosti ekki
ti:l að dreifa. Greinilegar gat Eng-
íand ekki lýst yfir þeim ásetningi
sínum að þola ekkert ofbeldi við
Pólland, en Chamberlain var bú-
inn að gera hvað eftir annað síð-
&n 1 vor.
En það er eins og Hitler hafi
einnig frá því að England og-
Frakkland aöigðu Þýzkalandi stríð
á hendur og fram á þennan dag
gert sér tálvonir um það, að þau
myndu leggja niður vopnin, þeg-
ar Pólland væri að velli lagt.
Öðruvísi er varla hægt að leggja
út þá hótun, sem hann og Stalin
gáfu íd í Moskva eftir siðari för
von Ribbentirops þangað, um að
þeir myndu taka til sinna ráða,
eí England og Frakkland neituðu
að semja frið strax að stríðinu á
Póllandi loknu. En þessi síðari
reikningsskekkja heíir reynzt
engu minni en sú fyrri. Og Hit-
ter verður nú að súpa seyðið af
sínu eigin ráðabruggi.
Hingað til hefir verið háður
ójafn leikur austur á Póllandi
og aðeins minni háttar skærur
farið frarn á landamærum Þýzka-
lands og Frakklands. En nú er
þessi þáttur stríðsins á enda.
Hlitler veit, að Þýzkaland þolir
ekki langvarandi stríð, innilokab
eáns og það er af enska flotanum.
Hann vierður að leita úrslitanna
hið allra fyrsta. Tíðindalaust
vierður i öllu falli ekki lengi á
vesturvígstöðvunum eftir þetta.
Kvenfélao Alþýðu-
flokksins.
Kvenfélag alþýðu-
FLOKKSINS hefur vetr-
arstarfsemi sína með fundi
annað kvöld í Alþýðuhúsinu
við Hverfisgötu.
Á þessum fundi verður rætt
um félagsstarfið fyrir vetur-
inn og er mjög áríðandi, að
félagskonur sæki fundinn. Auk
þess gera þar ýmsar nefndir
innan félagsins grein fyrir
störfum sínum.
Stjórn félagsins hefir þegar
komið sér saman um, að félag-
ið haldi námskeið í hjúkrun,
eins og félagið hélt uppi í fyrra
og reyndist ákaflega vinsælt.
Er meiningin að slíkt námskeið
hefjist svo snemma vetrar, að
því verði lokið áður en jóla-
annir byrja hjá húsmæðrum.
Konur, sem vilja taka þátt í því
námskeiði, verða að gefa sig
fram á þessum fyrsta fundi.
Stjórn félagsins hefir mikinn
áhuga á að gera félagsstarfið
sem fjölbreytilegast og treystir
á allar félagskonur til góðrar
samvinnu 1 vetur komandi.
Sítrónur,
Saltfiskur,
Harðfiskur,
Riklingur,
Smjör,
Ostar,
Egg.
BREKKA
Símar 1678 og 2148.
Ijarnarbúðin. — Sími 3570.
Fylgi Alpýðuflokkslns ðrt
vaxandi á meðal stAdenta.
Sjálfstætt félag stúdenta, sem fylgja
Alþýðufiokknum, verður uú stofnað.
StAdentar snúa baki við kommðnistnin.
-------♦—-----
OSNINGAR fóru fram
á laugardaginn í stúd-
entaráð og voru þær rekn-
af af allmiklum ákafa af
stúdentum eins og að vanda
lætur. Þannig höfðu allir 3
listarnir sínar eigin kosninga
skrifstofur.
Listarnir þrír voru bornir
fram af félagi róttækra stúd-
enta B-listi, Félagi frjálslyndra
stúdenta A-listi, og Félagi lýð
ræðissinnaðra stúdenta C-listi.
Bak við listana stóðu: — Lista
róttækra: Alþýðuflokksmenn
og nokkrir kommúnistar —
frjálslyndra stúdenta: Fram-
sóknarmenn og nokkrir aðrir
utan flokka, þar á m’eðal nokkr-
ir Alþýðuflokksmenn, lýðræðis-
sinnaðra stúdenta, íhaldsmenn,
nazistar og nokkrir, sem telja
sig utan flokka.
Urslitin í kosningunum voru
kunn seint á laugar’dagskvöld
og voru þannig: C-listi 101 at-
kvæði og 5 kosna, B-listi 50 at-
kvæði og tvo kosna og A-listi
55 atkvæði og 2 kosna,
Við kosningarnar í fyrra fékk
listi lýðræðissinnaðra stúdenta
(íhaldsmanna og nazista) 99 at-
kvæði, eða 2 færri én nú, en
listi róttækra stúdenta, en þann
lista studdu þá flestir sem fylgja
Framsóknarflokkrtum fékk 77
atkvæði. Andstæðingar haldsins
í háskólanum hafa því aukið at-
kvæðatölu sína mjög mikið.
Viðtal við Bjarna VII-
hjálmsson stnd. mao.
Alþýðublaðið hafði í morgun
tal af Bjarna Vilhjálmssyni
stud. mag. og spurði hann um
þessar kosningar. Hann sagði
meðal annars:
„Nokkru áður en kosningarn-
ar fóru fram, ræddum við Al-
þýðuflokksstúdentar um að rétt
ast væri að við hæfum alveg
sjálfstæða starfsemi í háskól-
anum og kæmum ekki fram
undir neinu öðru nafni en okkar
flokksnafni. Vildum við gera
þetta því fremur, sem fylgi Al-
þýðuflokksins fer nú hraðvax-
andi í háskólanum. Úr þessu
varð þó ekki að þessu sinni.
Alþ.flokkurinn hefir ekki haft
mikið fylgi undanfarin ár með-
al stúdenta, en þetta er nú að
gjörbreytast og munum við Al-
þýðuflokksstúdentar stofna
félag og halda uppi sér-
stakri starfsemi meðal stúd-
enta. Eins og flestum mun kunn
ugt, hafa kommúnistar ráðið
miklu í félagi róttækra stúdenta
á undanförnum árum, en fylgi
þeirra er alveg að hverfa, enda
er það mjög óheppilegt, og bein-
línis rangt gagnvart Alþýðu-
flokknum að hafa nokkuð sam-
an að sælda við kommúnista, og
það því fremur, sem þeir eru nú
orðnir bandamenn nazismans
úti í heimi. — Ég vil þó
taka það fram, að það eru að
eins örfáir stúdentar, sem geta
sætt sig við þá kúvendingu, sem
orðið hefir í pólitk kommún-
ista.
Menn verða þó að muna það,
að starfsemi stúdenta í háskól-
anum hefir verið með nokkuð
öðrum hætti en stjórnmála-
flokkanna, þó að stúdentar hafi
að ýmsu leyti verið mjög póli-
tískir.
Með því að við Alþýðuflokks-
menn stofnum nýtt félag,
ætti okkur að takast að safna
saman til þeirrar starfsemi
öllum Alþýðuflokksstúdentum
og yfirleitt öllum stúdentum,
sem hafa samúð með stefnu al-
þýðusamtakanna og baráttu
þeirra fyrir alþýðuna og
menningu hennar.“
Það er dálítið einkennilegt,
hve íhaldið er sterkt meðal
stúdenta, því yfirleitt eru stúd-
entar vanir að vera frjálslyndir
og róttækir í skoðunum, en
skýringin mun vera sú, að náms
menn koma yfirleitt meira frá
hinum efnaðri heimilum í land-
inu — einkum úr Reykjavík.
Stúdentar, sem fylgja Alþýðu
flokknum að málum, gengu
ekki sameinaðir til kosning-
anna að þessu sinni eins og áð-
ur er sagt. Þeir fylktu sér ým-
ist um lista félags róttækra
stúdenta eða lista frjálslyndra.
Þetta er þó ekki vegna þess, að
þá greini á í skoðunum, heldur
miklu fremur vegna þess, að
Alþýðuflokksstúdentar eiga
ekkert félag sín á milli, enn sem
komið er, en, það verður að
telja eðlilegast, að það sé stofn-
að og getur það síðan athugað
möguleika fyrir því að hafa ein-
hverskonar samvinnu við félag
frjálslyndra stúdenta, bæði um
einstök mál og' eins um kosn-
ingar, en með kommúnistum er
óheppilegt að starfa í þessu sem
öðru — og það verður að hætta
að áliti Alþýðuflokksstúdenta.
Verðskrá
Félag hárgreiðslukvenna í Iteykjavík samþykkti á fundi fé-
lagsins þann 5. október 1939 eftirfarandi verðskrá, sem öðlast
gildi nú þegar:
„Permanent“-hárliðun.
Við íslenzkan búning kr. 12.00
Við drengjakoll og í kring - 17.00
Við Page-hár - 20.00
Liðun neðan í hár - 13.00
Liðun, einstök spóla - 1.00
Permanent fyrir herra - 5.00 til 10.00
Hárgréiðsla og þvottur.
Vatnsliðun, fullkomin kr. 2.50
Vatnsliðun, drengjakollur —- 2.00
Vatnsliðun, án þurrkunar — 1.50
Þvottur 'einstakur — 1.00
Hárliðun með járnum — 2.00
Hárliðun með járnum, langt hár án uppsetningar — 1.50
Hárliðun méð járnum, lagnt hár m. uppsetningu —- 2.00
Pappírskrullur — 5.00
Hár við íslenzkan búning —- 1.50
Uppkrulling neðan í hár — 1.00
Uppkrulling allt í kring — 2.00
Jafnframt skal það ttekið fram, að hárliðun með járnum
fyrir kr. 1.00, verður ekki afgreidd eftirleiðis.
önnur vinna.
Andlitsböð, algeng kr. 3.00 til 5.00
Handsnyrting — 3.00
Augnabrúna- og augnaháralitun — 3.00
Augnabrúnir litaðar — 2.00
Augnahár lituð — 2.00
Kvöldsnyrting — 2.00
Fyrir vinnu í heimahúsum 50% álagning.
Vegna vaxandi erfiðleika við innhéimtu sjáum við okkur ekki
fært að lána vörur eða vinnu öðrum en föstum viðskiptavinum,
enda séu skuldir að fullu greiddar fyrir 7. næsta mánaðar eftir
úttekt.
FÉLAG HÁRGREIÐSLUKVENNA í REYKJAVÍK.
STJÓRNIN.
13
Barði Guðmundsson:
Skagflrzk fræðl: isbirnlig-
ar eftir Magiús Jónsson.
----$----
AÐ má með sanni segja, að
Sögufélag Skagfirðinga hef-
ir giftusamtega af stað farið með
fyrsta riti sínu í hiniu fyrirhugaða
safni: „Skagfirzk fræði“. Bókin
heitir Ásbirningar og er samin af
Magnúsi prófessor Jónssyni.
Þessi prýðilega pennafæri og á
söigu’.eg efni atbuguli rna’ður hefir
hér rakið sögu nefndrar ættar
frá landnámsöld til dau’ða Kol-
beins kaldaljóss 1246. F'jallar rit-
ið að vonum mest um bræðurna
Kolbein og Arnór Tumasyni og
son hins síðarnefnda, Kolbein
unga. Að sjálfsögðu kemur hinn
merkilegi Hólabiskup, Guðmund-
ur góði, ein'nig mikiö við sögu,
enda átti hann sem kunnugt er
í hinum hörðustu deiium við Ás-
biminigana mestan hluta biskups-
tíðar sinnar.
Óhætt er að fullyrða það, að
emginn hefir skrifað skýrar og
af rpeiri skilningi uni þennan
merkilega þátt íslenzkrar sögu en
Ma,gnús prófessor. Fer hér saman
skarpviturleg heimildagagnrýni
og glöggskygni á hið innra sam-
Ihengi í :rás vi'ðburðanna. Það fer
því fjarri, að ritið sé aðeins end-
ursögn á fornum fróðleik af því
tæi, sem við erum svo vanir við
í ístenzkri sagnritun. Söiguefnið
fær í höndum Magnúsar próf.
nýjan svip. Handbragð vísinda-
mannsins leynir sér ekki á efnis-
meðferðinni, og þó er frásögnin
svo leikandi og létt, að öllum má
lesturinn til ánægjiu verða. Vér
sjiáum nú stórhöfðingjann og
góðsíkáldiö Kolbein Tumason í
öðru og sterkara ljtósi en áður,
og vér iglöggvum oss nú einnig
betur á viðhorfi Guðmundar
bislkups- Hjá Maignúsi próf. vottar
ékki fyrir hinum gamla, grunn-
færnislega sleggjudómavaðli um
Guðmund biskup, sem jafnvei
(hneig í þá átt, aö hann ætti aðal-
sökina á því að landið misti
sjálfsforræöi sitt. Magnús próf.
skrifar um þenna ótrauða merkis-
bera mannúðarinnar af meiri
sanngirni en tíðkast hefir, enda
eru dómar Magnúsar próf. um
menn og niálefni í ritinu hvar-
vetna gerðir af varfærni og vand-
virkni.
Einna athyglisverðustu þætt-
irnir i 'hókinni um Ásbirninga
eru samt orustulýsingarnar. Sér-
staklega er margt sagt til nýs
skilningsauka um viðureignina á
Örlygsstöðum. Hefir höfundur
sýnilega þaulrannsakað þetta við-
fangsefni, og lætur hann fylgja
bardagalýsingunni fjóra upp-
drætti af staðháttum og fylkiinga-
skipun herflokkanna, er þar bár-
ust á banaspjót. Er sjaldgæft að
sjá svo mikla kostgæfni viðhafða
um efnismeðferð í alþýðlegu riti,
ög má hún verða þeim til fyrir-
ínyndar, sem skrifa um sagnfræði
almenningi til fróðleiksauka.
í svo yfirgripsmikht riti, sem
bókin um Ásbirningana er, má
það heita sjálfgefið, að vart verði
við ónákvæmni í einstökiun at-
ríðum, en mörg slík dæmi rnunu
varla finnast þar og þá helzt á
útkjálkasviðum, sem höfuindur
hefir ekki beint huga sínum sér-
staklega að. Þannig horfir málið
sýnilega við, er höf. segir um
Magnús prest GuÖimuidsson, að
hann hafi andast áður en hann
hfaut bískupsvígslu. Að vísu má
þetta til sanns vegar færa að því
leyti, að Magnús prestur var val-
inn sem biskupsefni og varð
aldrei biskup, en orsökin til þess
var sú, að hoirum var synjað
um vígslu. Á nokkrum stöðum
koma fyrir boUaleggingar, sem
virðast næsta óþarfar. Svo er um
það atriði, hvort Sigurður Orms-
son frá Svínafelli hafi gengið í
klaustiur. Þar sem hvort tveggja
fer saman, að hann hverfur út
af sjónarsvi'ðinu 20 árum fyrir
andlátið og er í góðri heimild
kallaður Sigurður nmnkur. ætti
ekki að þurfa orðalengingar um
samhengi þess *máls.
Eina veilan í riti Magnúsar
próf., sem talsverðu máli skiftir,
að því er ég fæ séð, er umsögn
hans um goðorðaeign Koibeins
Tumasonar. Hefir hann skilið orð
Sturtungu svo, að Kolbeinn hafi
um aldamótin 1200 átt „öll goð-
orð fyrir vestan Öxnadalsheiði
til móts við Eyvellingagioðorð
(Æveriingagoðorð). Bn í beimild-
inni stendur a'ðeins, að Kolbeinn
hafi haft þessi goðorð. Af öði-
um heimildiun má ráða, að
frændi hans, Kolbeinn kaldaljós,
hafi jafnvel átt meirihluta þess-
ara go'ðorða, þótt Kolbeinn Tuma
son „færi me’ð“ þau öll saman.
Og þegar Magnús próf. segir, að
vel megi það vera, að Kolbeiinn
hafi eignast hið svo kallaða
Fljótamannagoðorð, þá stríði það
á mótí öllu því, sem vitað ver&ur
um feril þess. Laust eftir 1180
áttu þeir bræður, Jón prestur
Ketilsson í Holti og Ásgrímur
skáld go&orð þetta og gáfu það
Guðmundi dýra frænda sínum á
Bakka í öxnadal Goðorð Guð-
mundar gengu síðan til Þorvald-
Fri». á 4. síðu,