Alþýðublaðið - 20.10.1939, Page 3

Alþýðublaðið - 20.10.1939, Page 3
FÖSTUDAGUR 20. OKT. 1939. ALÞYÐUBLAÐIÐ o------------------------ ALÞÝÐUBLAÐIÐ RITSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON. I fjarveru han*: STEFÁN PÉTURSSON. AFGREIÐSLA: ALÞÝÐUHÚSIND (Inngangur frá Hverfisgötu). SÍMAR: 4900: Afgreiðsla, auglýsingar. 4901: Ritstjórn (innl. fréttir). 4902: Ritstjóri. 4903: V. S. Vilhjálms (heima). 4905: Alþýðuprentsmiðjan. 4906: Afgreiðsla. 5021 Stefán Pétursson (heima). ALÞÝÐUPRENTSMIÐJAN ♦ -----------------------* Sjálfstæðisstefi a ofl stádentar. EINHVER þeirra stúdenta, sem í háskólanum skreyta sig meö nafninu „lýðræðissinn- aðir stúdentar/1 lætur i ljós ó- ánægju sína í Morgunblaðinu í gær út af því, að Alþýðublaðið skuli 1 grein um nýafstaðnar stúdentaráðskosningar hafa leyft sér að telja þá til þeirra ítaka, sem íhaldið ætti í háskól- anum. Þessi stúdent vill ekki viður- kenna það, að „sjálfstæðisstefn- an“, sem hann segist fylgja, sé íhaldsstefna. „Sjálfstæðisstefn- an,“ svo farast honum orð, — „stefna einstaklingstrausts og einstaklingsframtaks, getur eft- ir eðli sínu aldrei verið annað en djörf framfarastefna.“ Og í hverju er þá þetta „eðli sjálf- stæðisstefnunnar“ fólgið? Jú, það á eftir því, sem hann seg- ir, að vera fólgið í því, „að ein- staklingurinn verði að treysta á eigin kraft og fá þá líka sína umbun, ef hann dugar.“ Slíkri stefnu finnst honum eðlilegt að stúdentar fylgi, því að „þeir vilja fá að beita sér .... og eiga von verðlaunanna, ef þeir sigra í kapphlaupinu.“ Lagið er þekkt og vísan líka. Það er lofsöngurinn um „einstaklingsframtakið,11 sem að vísu fyrir löngu síðan var sunginn af mönnum, sem með fullum rétti töldu sig fylgjandi „djarfri framfarastefnu,11 en á okkar dögum er ekkert annað en harmagrátur íhaldsmanna yfir horfnum tímum. Það voru á uppgangstímum auðvaldsins bæði hér og annars staðar til menn, sem í raun og veru „treystu á eigin kraft“ og fengu „sína umbun,“ af því að þeir höfðu ,,dugað.“ En á þeirri hnignunaröld þess, sem okkar kynslóð lifir á, er lítið orðið eft- ir af slíku framtaki, einnig hér á landi. Menn tala að vísu enn um „einstaklingsframtak“. En þeir ,,treysta“ ekki lengur ,,á eigin kraft,“ heldur á Lands- bankann, og gera kröfu til þess „að fá sína umbun,“ alveg eins, þótt þeir hafi ekki „dugað.“ Ef stúdentinn í Morgunblað- inu hefði fylgst með þessum staðreyndum lífsins, og reynt að skilja þær, í stað þess að lesa sig andlega blindan á gömlum skræðum og Morgun- blaðsgreinum, myndi hann á- reiðanlega ekki hafa farið eins fyrirlitlegum orðum, og hann gerir, um þá flokka, sem búnir eru að missa trúna á almætti „einstaklingsframtaksins" og berjast fyrir nýju skipulagi þjóðfélagsins til þess að yfir- stíga það öngþveiti, sem auð- valdið hefir leitt yfir heiminn. Og að öllum líkindum myndi Tundurdufl og tundurskeytl: hættulegustu vopn sjóstríðsins Um borS í enska tundurspillinum ,,Brilliant“. SjóliSsmenn- irnir eru að ýta tundurskeyti inn í hlaupið, sem því er skot- ið úr. Til hægri sjást á þilfarinu nokkrar djúpsprengjur, sem öllum kafbátum stendur mikill stuggur af. hann þá hvorki fylgja „sjálf- stæðisstefnunni," sem vill halda slíku ástandi við og þó öllu heldur snúa hjóli sögunnar aft- ur á bak, né kalla hana „djarfa framfarastefnu,“ eins og hann gerði í Morgunblaðsgrein sinni í gær. Og að endingu þetta: Stúd- entar hafa lagt íslenzku þjóð- inni til margan framfaramann og eiga vonandi eftir að gera það enn. En þeir menn hafa sjaldnast unnið sitt starf í þeirri von ,,að fá sína umbun,“ ef þeir „dygðu“, og ennþá sjaldn- ar fengið nokkra. Það hafa ver- ið hugsjónamenn, sem börð- ust fyrir nýjum stefnum og fórnuðu starfskröftum sínum fyrir þjóðina, án 'þess að ætlast til annarra launa en ánægjunn- ar af því, að taka þátt 1 fram- förum hennar. Það er slíkur hugsunarháttur, sem einkennir alla brautryðjendur og djarfa framfaramenn, en ekki vonin um „umbun“ eða „verðlaun“, eftir að hafa „dugað“ eða „sigrað í kapphlaupinu“ við’ náungann. Póstferhir 21. okt. 1939. Frá Reykjavik: Mosfellssveltar-, Kjalarness-, Reykjaness-, Ölfuss- og Flóapóstar, Þingvellir Hafnar- fjörður, Laugarvatn, Grímsness- og Biskupstungnapóstar, Akra- ness-, Borgarness- og Álftaness- póstar. Til Rvk.: Mosfellssveitar-, Kjalarness-, Reykjaness-, Ölfuss- og Flóapóstar, Þimgvellir Hafnar- fjörður, Fljótshlíbarpóstur, Aust- anpóstur, Akraness-, Borgarness- og Álftanesspóstar, Snæfellsness- póstur. Rúgmjöl Sítrónur, Saltfiskur, Harðfiskur, Riklingur, Smjör, Ostar, Egg. BREKKA Síraar 1678 og 2148. Fjarnarbúðin. — Sími 3570. [" T M þessar mundir lesum við á hverjum degi um skip, sem hafa orðið fyrir tundurskeyti eða rekizt á tundurdufl. Tundur- dufl og tundurskeyti eru einhver fullkomntustu hernaðartækin á vorum dögum, og eru geysimiikið notuð í hernaði á þessari öld, sem kennd hefir verið við menn- inguna. Það eru nú reyndar 311 ár síð- an tundurdufl voru fyrst notuð. Það var nefnilega árið 1628, að Englendingar notuðu svokölluð straumdufl gegn frönsku skipun- tum í omstunni við La Rochelle. Straumduflin voru flothylki með pjáturkössum, fullum af púðri og kveikjara innan í. Bylgjurnar áttu að bera hylkin að skipshliðunum og þá átti að kvikna í. Én þetta heþþnaðist illa, og lengi framan af datt engum í hug, að þessi morðvoþn ættu nokkra framtíð fyrir sér. Og ekki gekk mikið betur næst, þegar átti að nota tundurdufl. Það var í frelsisstríði Ameríku- manna, og það kom ennþá í ljós, að árangurinn svaraði ekki ó- maíiinu. En þá fann höfundur gufuskipanna, Robert Fulton — hver skyldi nú ætla, að hann hefði verið svo herskár? — upp nýja tegund tundurdufla. Það var árið 1800, og hinn ágæti Robert vænti sér mikils af þessari upp- finningu sinni. Hann gerði þessa Úppgötvun í Frakklandi, en Na- poleon, sem líka hafði hafnað hugmyndinni um gufuskip, leizt ekki á uppfinninguna. Þá bauð Fulton Englendingum uppfinn- inguna, en þeir vildu hana ekki og kölluöu hana „óriddaralegL voþn“. Með breytingum varð þetta tundurdufl Fultons seinna rnjög hættulegt vopn. Og nú á dögum eru tundurduflin ekki lengur meinlaus barnaleikföng, heldur nijög hættulegt vopn, enda þótt það sé ekki mjög stórt. Hin svokölluðu horndufl eru mjög margbrotin og hættuleg. Á þeim eru 5—7 blýhorn og í þeim eru glasrör með sýru. Þeg- ar hornin brotna við skipssúð- ina, rennur sýran eftir gangi niður í duflið og við það verður ógurleg sþrenging. Rafkveikju- dufl voru fyrst notuð í fyrsía Slésvíkurstríðinu 1848—50, þegar Þjóðverjar notuðu þau til þess að girða fyrir höfnina í Kiel. j Krimstríðinu 1854 notuðu Rússar tundurdufl, og Danir notuðu tundurdufl með kaliumkveikju í Alssundi 1864. Þau komu þó ekki að neinum notum. Það var ekki fyrr en í amerísku borgarastyrj- öldinni, að þaÖ kom glöggt í Jjós, hvílíkt gagn er hægt að hafa af tundurduflum. Og nú vitum við það allt of vel. Fyrsta tegund tundurskeyta er aðeins 75 ára gömul. Það var austurríski liðsforinginn Zuppis, sem ávann sér þá vafasömu frægð árið 1864 að finna upp þetta skaðræÖisvoþn. I fyrstu var tundurskeytið eins konar bátur úr tré, sem var knúinn áfram af púðurkerlingum. Seinna var það fundið upþ að knýja tundurskeyti áfram með sigurverki. En það var ekki fyrr en Whitehead í Fi- ume fann upp tundurskeyti, sem voru knúin áfram með skrúfu, að tundurskeyti komust í al- menna notkun í hernaði. Þessi tundurskeyti voru 150 kg. að þyngd. Árin 1870—1880 keyptu svo áð segja allar þjóðir tundur- skeyti. Þau voru í fyrsta skipti notuð í stríðinu milli Peru og Chile árið 1877. Seinna voru þau notuð í japansk-kínverska stríð- hu 1895 og í stríðinu milli Rússa og Japana 1904—5 og heims- styrjöldinni og svo náttúrlega núna. Nútíma tundurskeyti, módel 1939, er sannarlega hræðilegt vopn. Á örfáuni sekundum getur það sprengt stór skip í loft upp og drepið og Limlest fjölda fólks. Með öllum stýrisúibúnabi sínum er það hættulegasta vopnið, sem til er. Þó standa menn ekki leng ur algerlega varnarlausir gagn- vart þessu vopni, en vopnlaus verzlunarskip geta enga rönd við þeim reist. Um hið nýja stn- dentaféian. Athnoasemd frá nokkr- um stúdentnm. TT2GNA viðtals Alþýðublaðs- ins við Bjarna Vilhjálms- son stud. mag. þ. 16. þ. m. og ummæla blaðsins um viðtalið og enn fremur vegna ýmsra kvitta, er upp hafa gosið með stúdentum út af ritsmíð þeirri, er málgagn „Sósíalistaflokks- ins“ birti um þetta mál, þ. 17. þ. m„ viljum við undirritaðir taka fram eftirfarandi: 1) Klofningurinn í félagi rót- tækra stúdenta varð kunnur þegar fyrir stúdentaráðskosn- ingarnar síðustu. Varð það þó að samkomulagi að félagið gengi sameinað til kosninga, en hins vegar aldrei farið dult með það, að eftir kosningar mundi þessu samstarfi að öllum líkind- um verða slitið, enda var fram- bjóðendum raðað á listann með tilliti til þessa væntanlega að- skilnaðar. Það getur því eng- um félagsmanni komið á óvart, að félag róttækra stúdenta mun nú klofna og ýmsir meðlimir þess slíta sambandi við þá fé- lagsmenn, er skilyrðislaust lúta vissum erlendum stefnum. 2) Okkur er ekki kunnugt um, að stofnað verði innan Há- skólans Alþýðuflokksfélag á hinum pólitíska grundvelli Al- þýðuflokksins, þótt við hins vegar fullyrðum, að ef nýtt fé- lag verður stofnað, þá verði stefnuskrá þess á þann veg, að Alþýðuflokksstúdentar muni telja sjálfsagt að taka þátt í stofnun félagsins. Reykjavík, 18. okt. ’39. Jón Jónsson frá Ljárskógum. Bergur Vigfússon. Jón Eiríksson. Friðfinnur Ólafsson. Arelíus Níelsson. Ragnar Jóhannesson. Karl isfeld; Indriði Þorkelsson frá FJalli: Bangatorot ----4---- O UÐUR-ÞIN GEYJARSÝSLA ^ hefir fóstrað allmarga sér- kennilega gáfumenn og skáld, sem hafa gnæft töluvert upp úr múg alþýðuhagyrðinganna. Al- þjóð manna kannast við nöfn eins og Skarða-Gísli, Siigurbjörn frá Fótaskinni, Jón Hinriksson frá Helluvaði, Þorgils Gjallandi, Jón Þorsteimsson frá Arnarvatni, Sigurður Jónsson frá Arnarvatni, Sigurjón Friðjónsson á Litlulauig- urn, Guðmundur Friðjónsson á Sandi, að ógleymdum konunum. Unni Benediktsdóttur Bjarklind jHuldu) og Þurú í Garði. Einn þessara „kynlegu kvista“ verður gerður hér lítillega að um- talsefni, en það er Indriði Þor- kelsson, skáld og ættfræðingur frá Ytra-Fjalli í AÖaldal. Um langan aldur hefir hann ort kvæði við orfið eða rekuna, því að tómstundir gefast fáar ein- yrkja með stóran barnahóp. Fyrir INDRIÐI ÞORKELSSON fáeinum dögum gaf hann út sýnishom af ljóðum sínum, all- stóra bók þó, sem heitir Bauga- brot- Sumum kann að finnast, að hann hefði fyrr mátt gefa út ljóðabók eftir sig, því að höf- undurinn er sjötugur í dag, þekt- ur um land allt fyrir nokkrum tugum ára, af kveðskap sínum. Það eru mikil viðbrigði fyrir sigggróna hönd, sem vön er að halda um orfhæl eða rekuskaft, að grípa um pennastöng. Slíkum malnni færi sennilega líkt og ísak í Gróður jarðar; hoinum finndist það „eins og að halda á engu“. Það mun því hafa farið svo um Indriða, að hann hefir ekki rit- að á blað nærri allan kveðskap sinn. Verða því síður en svo kollheimtur, þegar afrétturiinn er smalaður, en margt af því, sem ekki kernur til skila í bók hans, hefir þó geymst og geymist enn í huga þeirra, sem hafa heyrt kvæði hans og lært þau. Kveðskapur Indriða er að mestu bundinn heimahögum hans, umhverfi lians og ferðafé- lögum á lífsleiðinni. AÖ vísu má ef til vill kalla það þröngt svið, en það er þá aftur á möti vel ræktað. Hann hefir allan sinn aldur búið nálægt jaðri hrauns- ins, sem skáldbróðir hans úr sömu sveit orti eitt sinn um: „Og náttsólin á klettana kufli rauðum steypti, og kjarrskóginum strjála í þúsund loga hleypti.“ Slíka sýn hefir Indriði haft fyrir augum á hverju vori ævi sinnar, en undir- (tónninn í hinni miklu hljómkviðu vorsins hefir verið niður Laxár, sem Indriði minnist á þennan hátt: En kveðandi nam ég af árinnar óð og alls, er fór syngjandi í víðinn. Indriða verður tíðrætt um Laxá í ljóbum sínurn. Honium finnst hljómur hennar nátengdur sér, og Á víxl mun hún kynslóðir kveða ; í blund og kalla til starfa, unz lokast öll sund. Og að lokum finnst honum hún aldrei hafa veriÖ „jafn dýrmæt ög blessuð sem nú“. Þetta kvæði er að vísu ort árið 1902, en það á ekki síður við nú, þegar krafti hins hljómandi strengs hennar hefir verið breytt í ljós og hita, sem vermir og lýsir heilar sveitir Og kauptún. Eins og áður er sagt, eru sum kvæði Indriða um samferðamenn hans á lífsleiðinni, og þá jafnan kveðja til þeirra, er þeir hafa tjialdað til hinnar löngu nætur. E.r síður en svo að þau beri á sér hinn venjulega erfiljóðakeim. Þau eru eins og hlýtt handtak þess manns, sem gjamt er að láta hug fylgja máli. Sem dæmi má nefna upphafið á kveðjuljóði hans til séra Benedikts Kristjáns- sonar á Grenjaðarstað, er hann flutti burtu úr sveitinni: Við búum svo dreifðir við heið- ar og hraun, við hafið og sandana og árnar, við fámennisunað og einstæðis- raun með óljósu, flögrandi þrámar. Og mörg er í órækt vor menn- ingargrein og margur er afskekkti kiminn, en rótgróin hjartnanna er ætt- jörð þó eín og einn er vor bláfagri himinn. Indriði mun fyrst hafa orðið þekktur af lausavísum sínum um menn og málefni, en hann hefir ort sand af þeim. Og ekki má ljúka þessum línum, án þess að minnast á glettnisvísur hans, en maðurinn getur verið meinfynd- inn. Fæstar slíkar vísur hans eru í bókinni, vegna viðkomandi manna. Þó em þar tvær vísur um einhvern Odd: Ekkert gott um Odd ég hermi, eitt er samt: Frh. á 4. síðu. ,

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.