Alþýðublaðið - 20.10.1939, Page 4

Alþýðublaðið - 20.10.1939, Page 4
FöSTUBAGUR 20. OKT. 1939. QAIV8LA H!dl@ ðiympfnleikarnir 19% Síðari hlutinn: „Hátíð fegurðarinnar“ sýndur í kvöld. Þar sést m. a. úrslitakeppni í: tugþraut, knattspyrnu, kappsiglingu- og róðri, hnefaleik, sundi og dýfingum. SMÁAI ▼ 11 i»ví JGLÝ5INDAR niiDi Anrikiv ALPY1 jUnLAtJAlrl^ Brynjólfur Þorláksson gerir við og stillir píanó og orgel. Sími 4633. Káputau og fóður, tölur, spennur. Ullarkjólatau nýkom- ið. Saumastofa Ólínu & Bjarg- ar, Ingólfsstræti 5. INDRIÐI ÞORKELSSON Frh. af 3. síðu. Sína lofar hann upp í ermi öllum jafnt- Ekkert gott sér Oddur temur, eítt er samt: Engan svíkur hann öðrum fremur, alla jafnt. Indriði Þorkelsson ber alvöru- svip hins eljusama bóndamanns. En ef vel er að gáð, leynist und- ir alvörusvipnum ofurlítið, smá- kímið giott. Karl ísfeld. Auglýsið í Alþýðublaðinu! KLOFNINGURINN i KOMMÚN- ISTAFLOKKNUM Frh. af 1. síðu. fyrst og fremst er því stefnt gegn þeim mönnum, sem hafa sent Þjóðviljanum greinar og sem eru í andstöðu við Moskva- stefnuna. Þjóðviljinn sýnir það líka í dag, að hann ætlar ekki að breyta til. Hann flytur hvorki meira né minna en þrjár lofgreinar um Moskvakommún- ismann og tvær kommúnista- myndir. Blaðið er og heíir ver- ið málgagn Moskvalínunnar, eins og flokkurinn er og hefir verið kommúnistiskt útibú frá Moskva. Héðinn Valdimarsson hafði nokkurn meirihluta um þessi mál í framkvæmdastjórn flokksins og hann mun nú hafa í hyggju að halda baráttunni áfram í miðstjórn flokksins, sem á að koma saman í næsta mánuði. Baráttan heldur því á- fram, en endalok hennar eru fyrirsjáanleg. Moskóvítarnir rnunu hafa yfirhöndina, en íólkið yfirgefa flokkinn. Það fyrirlítur þá stefnu, sem flokk- urinn hefir tekið upp og blað hans túlkað, að dásama sama ofbeldið gagnvart smáþjóðun- um af hálfu Sovét-Rússlands, sem það hingað til hefir for- dæmt af hálfu Hitler-Þýzka- lands. Slík stefna á engan hljómgrunn og hefir aldrei átt á íslandi,- Mikla hlutaveitu heldur knattspymufélagið Fram á+ sunnudaginn í íshúsinu við sl'ökkvistö’ðina. Á hlutaveltunni er fjöldi ágætra muná, þar á meðal í einum drætti 500 kr. í peningum, matarforði til vetrar- ins, heil kjöttunsna, 500 kg. af toolum og fjölda margt fleira. Setnliði Rússa fálega teklð á Eistlaodi. LONDON I gærkveldi. FÚ. ÚSSNESKT HERLIÐ kom til Eistlands í dag, en eins og áður hefir verið getið, hafa Rúss- ar femgið réttindi til þess að hafa setulið i Eistlandi, samkvæmt sáttmála þeim, sem nýlega var gerður milli Sovét-Rússlands og Eistlands. Tass-fréttastofan rússneska se,g- ir, að hersveitum Rússa hafi ver- íð ágætlega tekíð í Eistlandi. En hvað sem þeirri tilkynningu Iíður, er það víst, að ríkisstjórnin í Eistlandi fyrirskipaði hinar víð- tækustu varúðarráðstafanir, og var öflugUr hervörður á öllum vegum, sem rússnesku hersveit- irnar fóru um. Hvorki blöðjin 1 Eistlandi né út- varpsstöðin þar í landi hafa get- ið um komu hinna rússnesku her- sveita. Matyæladtttninar frá Danmirki tií Englanis eru ní aftur byrjaðir. LONDON í gærkvcldi. FÚ. Það var tilkynnt I London í dag, að flutning'ur á fleski frá Banmörku til Englands, sem leg- ið hefir niðri í hálfan mánuð, hafi byrjað á nýjan leik. Alþýðuílokksfélag Hafnarfjarðar. Fundur verður í kvöld í biæj- arþingssalnum o!g hefst kl. 81/2. Fundarefni: 1. Félagsmál. 2. Ste- fán Jóh. Stefánsson félagsmála- ráðherra flytur erindi. I DAO Næturlæknir er Gísli Pálsson, Laugavegi 15, sími 2474. Næturvörður er í Reykjavíkur- og Iðunnarapóteki. Næturvarzla bifreiða: Bifreiða- stöð Reykjavíkur. ÚTVARPIÐ: 19,45 Fréttir. 20,10 Veðurfregmir. 20,20 Upplestur: Úr kvæðum Indriða Þorkelssonar á Fjalli (Sig. Nordal próf.). 20,40 Erindi Fiskifélagsins: Ég horfi út á hafið (Kristján Bergsson, forseti félagsins). 21,05 Píanókvartett útvarpsins: Úr píanókvartett í g-moll, eftir Mozart. 21,25 Hljómplötur: Harmónikiu- lög. ALÞÝÐUFLOKKSFÉLAGIÐ Frh. af 1. síðu. frá Finnlandi, sem er bæði fróðleg og skemmtileg. Menn hér vita allt of lítið um Finn- land, en ég vona, að þessi kvik- mynd ráði bót á því. Þá talar Ásgeir Ásgeirsson um Kletta- fjallaskáldið Stephan G. Step- hansson. Ragnar Jóhannesson stud. mag. les upp, en hann er — eins og kunnugt er, orðinn vinsæll mjög af útvarpshlust- endum og mörgum fleirum fyr- ir leikþætti sína og kvæði. Loks verða ýmsar aðrar skemmtanir og þá fyrst og fremst fjöldasöngur, sem allir verða að taka þátt í. Aðgöngumiðar að skemmti- og fræðslukvöldinu verða seld- ir á morgun í skrifstofu félags- ins og í afgreiðslu Alþýðublaðs- ins. Nýkomið. Hvífkál Gulrætur Símar 3828 og 4764. Hjónaefni. Á iaxjgardaginn opinberuöu trúlofun sína ungfrú Magnea Magnúsdóttir frá Laufási á Eyr- arbakka og Ólafur Guðmundsson veggfóðrari, Bergþórugötu 57. m NÝJA BIO Charlle Chan á 01- ympisfen leibjunum. Spennandi og skemmti- leg amerísk lögreglukvik- mynd, er gerizt á Honolu- lu, New York og á Olym- píuleikjunum í Berlín ár- ið 1936. Aðalhlutverkið Charlie B Chan leikur: Warner Oland. Aukamynd: Brezki flotinn. Börn fá ekki aðgang. H Auglýsið í Alþýðublaðiau! ALÞÝÐUFLOKKSFÉLAG REYKJAVÍKUR. .] I. Fræðslu- 09 skemmtikvðld verður annað kvöld í samkvæmissölum Alþýðuhússins við Hverf- isgötu og hefst kl. 8V2. SKEMMTIATRIÐI: 1. Kvikmyndasýning (frá Finnlandi). 2. Samdrykkja. 3. Ræða: Ásgeir Ásgeirsson. (Um Stephan G. Stephansson). 4. Fjöldasöngur. Fjölritaðir textar. 5. Upplestur: Ragnar Jóhannesson stud. mag. 6. Frjálsar skemmtanir. (Danz frá kl. IIV2). Músik: Tage Möller og Kristján Elíasson. Aðgöngumiðar í skrifstofu félagsins og í afgreiðslu Al- þýðublaðsins eftir kl. 1 á morgun. — Fjölmennið á fyrsta skemmtikvöldið. Skemmtinefnd Alþýðuflokksfélagsins. Kvennadeiíd Slysavarnafélagsins. Nerkjasala — Dans GuÓspekifélagar! Septima heldur fund í kvöld kl. 9. Greíar Fells flytur erindi: Alheimskirkjan. Söngfélagið Harpa. Samæfinig í kvöld í Þjóðleik- húsinu kl. 8i/2. Mætið vel ög stundvíslega. Lárus Pálsson. Frumsýning var í fyrrakvöld á nýju leikritii í leikhúsinu Ridder- salen í Kaupmannahöfn, og lék Lárus Pálsson eitt aðalhlutverkið. 1 gær fékk hann frábærlega góða dóma fyrir leik sinn í öllum blöðum Kaupmannahafnar. Svend Borberg skrifar í „Berlingske Tidende“, að svo vel hafi Lárusi tekizt, að hann ætti skilið að íá nýjan lárviðarkrans frá Olymps- fjalli fyrir leikinn. FÚ. Haustslátmn er nýlokið hjá Kaupféiagi Ey- firðinga á Akureyri. Hófst hún 19. sept. og var lokið 5. þ. m. Slátrað var alls 16250 íkindum. Þyngsti dilkskrokkur var frá Engidal í Bárðardal og vóg 25 kg. Meðalþyngd 15618 dilka, sem slátrað var, var 14,9 kg, en það er 750 gr meira en síðast liðið ár. Dilkarnir flokkuðust betur en verið hefir undanfarið. FÚ. STA BÍNDI BÍNDI ERU SÖGURNAR: - HEIÐAHBÝLIÐ I (BARNIÐ OG GRENJASKYTTAN) FÆST HJÁ BÓKSÖLUM Á Þórshöfn hófst sauðfjárslátrun þanm 20. sept. og var lokið 11. þ. m. Hjá Kaupfélagi Langnesinga á Þórs- höfn var alls slátrað um 1000 kinda á Bakkafirði. Um 100 smá- liestir af kjötinu var fryst, en hitt saltað og selt nýtt á staðnum. Meðalþungi dilka hjá Kaupfélag- inu á Þórshöfn var 15,48 kg. Þyngsta meðalvigt, 18 kg, höfðu dilkar Björns Aðalsteinssonjar að Hvammi í Þistilfirði. Voru þeir 48 og margt tvíiembingar. — Þyngstí lambsskrokkur vóg 26 kg. Eigandi var Jónas Helgason að Árseli á Langanesi. Kvennadeild Slysavarnafélagsins hefir merkjasölu á morg- un, þ. 21. þ. m. Um kvöldið verður haldinn DÁNSLEIKUR í Oddfellowhúsinu er hefst kl. 10. Aðgöngumiðar seldir í Oddfellowhúsinu eftir kl. 4. UPPLÝSINGAR UM SKIP Frh. af 1. síðu. á hverjum tíma, um ákvörðunar- stað þess og komiu, í ■ höfn í ferð eða að Iokinni ferð, svo og til áílra upplýsinga um fann skips og farþega. 2. gr. Ríkisstjórmnni er heimilt að gera allar þær ráðstafanir, sem henni þykir þurfa til þess að bannfyrirmæli þau, sem um ræðír í 1. gr. komi að haldi, þar á meðal að láta stöðva sím- skeyti um ferðir skipa, ef þurfa þykir. 3. gr. Brot gegn lögum þessum varðar sektum allt að 10 000 kr. eða fangelsi allt ;að einu ári, nema þyngri hegning liggi við samkvæmt öðrum löigum. 4. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi. STOKKHÓLMSFUNDURINN Frh. af 1. síðu. varðveita hlutleysi sitt og sjálf- stæði, og vænta þess að önnur ríki virði þenna rétt NorÖurlanda- ríkjanna og knýi þær ekki til neinna þeirra ráðstafana, sem hlytu að spilla því, að þau gætu (ifað í friði við aðrar þjóðir. Akveðið var að halda áfram viðræðum og samvinnu milli Norðurlandaríkjanna innbyrðis á sama grundvelli eins og þeim, sem lagður var með fundinum í Málmey 1914. En þá var því lýst yfir, að hversu iangt sem stríð- ið yrði, og hvernig sem það færi, þá mundu þessar þjóðir standa fast saman og fylgja sömu stefnu. Einnig var rætt um örðugleika þó, sem vofandi væru yfir verzl- un Norðurlandanna. Var ákveðið að halda áfram venjulegum verzl- unai’viðskiptum innbyrðis, og enn fremur, að ef til vörusfcorts kæmi á elnhverri teguud í einu landinu, þð skyldu hfn bæta úr því eftir því sem föng væru á. Loks lýsti íundurinn yfir því, að Norður- Iandaþjóðirnar taki fagnandi hverri friðarviðleítnir, sem byggð sé á grundvelli sanngirni og rétt- lætís, og muni styðja hana eftir megni. TYRKIR Frh. af 1. síðu. skoðun, að Tyrkir séu nú búnir að sætta sig við að fylgja stefnu Breta og láta þeirra áhrifa gæta mest, en jafnframt er sagt í Þýzkalandi, að Tyrkir séu að hugsa um sína eigin hagsmuni við Miðjarðarhaf, og hafi þeir nú horfið frá stefnu strangs hlutleysis. Þá er þess getið til, að sátt- máli þessi milli þríveldanna muni verða óvinsæll í Balkan- löndunum yfirleitt. En eftir öllum fregnum að dæma, sem bárust til London og París í gærkveldi frá Balk- anskagalöndum, eru menn þar hinir ánægðustu yfir sáttmál- anum og hvert blaðið á fætur öðru lýsir sig honum fylgjandi. Marsvín á Mjóafirði. Síðast liðinn iaugardag óðu marsvín svo hundmðum sikifti inn Mjóafjörð. Mjófirðingar eltu þau á 14 bátum inn í fjrirðarbotn, en náðu þó engu, og hurfu mar- svinin skjótt til haís. Mun þessi atburður vera dæmalaus á Aust- fjörðum. FÚ.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.