Alþýðublaðið - 04.11.1939, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 04.11.1939, Blaðsíða 1
Munið dansleik FRAM og K. R. að HÓTEL BORG í kvöld kl. 10 ALÞTÐUBLA RITSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON UTGEFANDI: ALÞYÐUFLOKKURINN XX. ÁRGANGUR LAUGARDAGUR 4. NÖV. 1939. 258. TÖLUBLAÐ Hvsð skeður á dansleiknunuað HOTEL BORG í kvöld. ?????? © © © 9 © © wmm segja bú að Flnaa !ovét»Rússlaadi raeð styrjðld! ------ Fáránlegar ásakanir í garð Finna og Svía í aðalblaði rússneska kommúnistaflokksins Pravda í Moskva í gær. Verkamenn á Eyrarbahka visnön klðfnlngssanbandi kommúnista á bng i gær. ----4---- HkoruHiiá verkamenn annarsatað nr á landinu að gera pað sama. ¥ FYRRAKVÖLD var hald- ■“■inn fundur í Verkamanna- féiaginu „Báran“ á Eyrarbakka og var þar til umræðu og at- kvæoagreiðslu erindi frá hinu svokallaða „Bandalagi stéttar- £élaganna“ um það, að félagið segði sig úr Alþýðusambandi ís- lands og gengi í hið óháða!! samband þeirra bandamanna, kommúnista og íhalds. Til þessa fundar var vel smalíið af þeim kommúnistum, en séra Gunnar Benediktsson er þeirra aðalforingi þar eystra, enda hafði hann aðallega fyrir þeim orð þar. Urðu um þetta mál allharðar umiæður, en að þeim loknum var samþykkt svohljóðandi til- laga frá stjórn félagsins: „Fjölmennur fimdur í Vkmf. „Báran“ á Eyrarbakka, haldinn 2, nóv. 1939, lýsir megnri and- úð sinni á tilraunum þeim, er gerðar hafa verið af kommún- istum til sundrungar innan verknlýðssamtakanna. Lítur Vaiaadi gjaldeyris- skortur í Dannðrbu. KHÖFN' í gærkveldi. FO. GJALDEYRISÁSTÆÐUR danska pjóðbankans eru nú þannig, að allar gjaldeyrisbirgðir eru i * ú uppnotaðar, og bankinn er kominn í 22 millj. króna gjald- eyrisshuld við útlönd. Til þess að forða hruni í gjald- eyrismáJum landsins, er helzt í ráði, fið draga enn til muna úr hinuin frjálsa innfiutningi. Vfsikonsill Dana á ÐANSKA forsætisráðuneyt- ið hefir þ. 20. okt. s.l. skip- að IiUdvig Storr, stórkaupmann í Reykjavík, til þess að vera vísikonsúll við sendiráð Dan- merkur í Reykjavík. Vísikonsúll Storr er til við- ræðis um ræðismannsmálefni í skrifstoiu sinni Laugavegi 15, helzt milli 10—12 f.h. fundurinn svo á, að bréf stjórn- ar hins svokallaða Bandalags stéttarfélaganna sé frekleg móðgun við félagið, þar sem farið er fram á, að það segi sig úr Alþýðusambandinu og ger- ist stofnandi að hinu fyrirhug- aða landssambandi. Telur fundurinn, að stofnun slíks sambands, sem getið er í nefndu bréfi, mundi einungis leiða til sundrungar innan verka lýðssamtakanna, þar sem víst er að meginið af þeim félögum, sem eru í Alþýðusambandinu. verða þar áfram, og samþykkir því fundurinn að félagið standi áfram sem hingað til innan Al- þýðusambandsins og skorar á önnur verkalýðsfélög að gera hið sama. Jafnframt skorar fundurinn á félög þau, sem nú þegar hafa ákveðið að gerast stofnendur að ráðgerðu samhandi, að taka þá ákvörðun sína til baka, svo framarlega, sem þeirn er eins annt um einingu innan vterka- lýðssamtakanna og þau vilja vera láta.“ Tillaga þessi var samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta at- kvæða, þrátt fyrir samfylkingu í- halds og komnrn á fundinum, en hún var pað náin, að Jóhann ól- afsson, — en hann er formaður Sjálfstæðisflokksfélagsins á staðn- um, — sótti um inngöngu í fé- lagið á fundinum, sýnilega í þeim eina tilgangi, að gneiða at- kvæði með þeim kommúnistum. í það minnsta hvarf hann fljótt af fundi, þegar atkvæðagreiðslu var lokið um þetta mál, þótt eftir væri að ræða ýms fleiri hagsmunamál verkamanna. 1 fundarlok var samþykkt á- skorun á alþingi það, sem nú situr, að breyta lögum um geng- isskráningu á þann hátt, að allt kaupgjald hækki hlutfallslega jafn mikið og dýrtíðaraukningu nemur. Fundurinn var mjög vel sótt- ur og sýndi greinilega, að fylgi kommúnista hefir mjög hrakað, þar sem þeir fengu flest 14 atkv. um tillögur þær, sem atkvæða- greiðsla fór fram um, en þeir hafa oft áður fengið um 25—30 atkvæði á fundum í félaginu. Frá fréttaritara Alþýðublaðsins. KHÖFN í morgun. "C* 1 RAMKOMA RÚSSA í samningunum við Finna verð- ■*■ ur nú með degi hverjum einkennilegri. í gær var bæði í kommúnistablaðinu „Pravda“ í Mosk- va og í rússneska útvarpinu ráðizt með hlægilegum ásök- unum á Finna, þess efnis, að Finnar sýndu Sovét-Rússlandi fjandskap og að Erkko, utanríkismálaráðherra þeirra, væri beinlínis að egna upp til stríðs gegn Rússum. Sagði „Prav- da“, að Erkko leyfði sér að tala á sama hátt við Sovét-Rúss- land eins og Beck utanríkismálaráðherra Pólverja hefði talað við Þýzkaland, áður en stríðið hófst í Póllandi! Þá réðst „Pravda“ einnig með svæsnum orðum á Svía og sakaði þá um, að æsa Finna upp til andstöðu við kröf- ur Rússa. Telur blaðið Svía vera með því að reka erindi stórveldanna í Vestur-Evrópu, Englands og Frakklands, en segir að Rússar muni fara sínu fram. Taflið við samninga- borðið sé á enda, og nú verði gengið hreint til verks. Þessar hótanir hafa sem vonlegt er vakið mikinn kvíða í Helsingfors og eru menn nú þar búnir við því versta. Erkko sagði í ræðu í Helsingfors í gærkveldi, að í svari Finna væru kröfur Rússa uppfylltar að þremur fjórðu hlut- um, og ef stjórnin hefði látið meira undan, gæti Finnland ekki lengur talizt sjálfstætt ríki. . STALIN MOLOTOV Norðmenn náðn Gity of Flint ðr hðndnm kjððverja í gær. —, . .. ■ .— Skipið kom til Haugasunds og Þjóðverj- arnirvoru kyrrsettir, en skipið látið laust SÖR3H afiferðirnar og við PóUand. Hinar fjarstæðu árásir rúss- neska kommúnistablaðsins og rússneska útvarpsins á Finna og Svía vekja hina mestu furðu og fyrirlitningu úti um allan heim. Sérstaklega blöskrar mönn- um sú tilraun, sem gerð er til þess að kenna Pólverjum og þá helzt utanríkismálaráðherra þeirra Beck um árás Þýzka- lands á Pólland. En það þykir sýnilegt, að Sovét-Rússland ætli sér að hafa sömu aðíterð- irnar við Finnland og Hitler- Þýzkaland hafði við Pólland. og reyna á sama hátt að réttlæta ofbeldisverkið og Hitler gerði, áður en hann sendi her' sinn inn í Pólland. Þá vekja ummælin um af- stöðu Svía ekki minni furðu, því þar er Sovét-Rússland bein- línis afsakað með skírskotun til keisarastjórnarinnar á Rúss- landi áður fyrr. Gerir „Pravda“ sérstaklega að umtalsefni þau ummæli sænskra blaða, að rúss nesk flotastöð á Finnlandi væri ógnun við sjálfstæði Norður- landa. í því sambandi her nú rúss- n'eska kommúnistablaðið hina gömlu keisarastjórn á Rúss- landi fyrir sig og segir, að hún hafi átt allt Finnland án þess að Norðurlöndum hafi stafað nokkur hætta af. Fylgir þessum ummælum blaðsins sú hótun, að Svíþjóð hafi í þessu máli sett á rangan reit. Samningarnír halda áfram ondir hótnnum Rússlands. • 4 -- Stalin var fjarverandi I gærdacf. Þrátt fyrir hinar gegnsæju tilraunir Rússa til þess að koma sökinni á Finna, ef samning- arnir stranda, og skapa sér á- tyllu til árásar á Finnland, voru samningaumleitanirnar teknar upp í Moskva á ný, seinnipart- inn 1 gær. í það sinn mættu fyrir Rússa hönd Molotov og Potem- kin aðstoðarutanríkismálaráð- herra. Stalin lét ekki sjá sig. Fyrir Finna mættu Paasikivi og Tanner. Molotov er talinn þekktur að því, að vera laus við alla lip- urð í samningum, enda þykir nú sýnilegt, að eftir þetta verði ekki um neinar raunverulegar samningaumleitanir að ræða, heldur aðeins tilraunir til þess að hræða Finna með hótunum til þess að ganga að öllum kröf- um Rússa. Samningafundurinn stóð í eina klukkustund, en þá fóru þeir Paasikivi og Tanner heim til finnska sendiherrabústaðar- ins til þess að athuga það, sem fram hafði komið á fundinum og ráða ráðum sínum. Það er nú talið, að finnska stjórnin sé hætt við að birta svar sitt fyrr en sýnt þyki, að samningarnir séu strandaðir fyrir fullt og allt. AMERÍSKA skipið „City of Flint“ hefir verið látið laust, segir í fregn frá Noregi, og hin þýzka skips- höfn verið kyrrsett þar. Hef- ir norska flotamálaráðuneyt- ið birt tilkynningu um þetta. Skipið kom til Hauga- sunds í gær og varpaði akk- erum án leyfis, svo að norsk yfirvöld fóru út í það, kyrr- settu hina þýzku áhöfn, og létu síðan skipið laust. Samkvæmt skeyti frá Ðergen fór „City of Flint“ fram hjá flotastöðinni við Bergen snemma í gærmorgun. Þrjú morsk herskip fylgdu því eftir þangað til það fór inn til Haugasunds. Fyrsta kvðldvaka Biaðamaonaf éla gs- FYRSTA kvöldvaka Blaða- mannafélags íslands á Hótel Borg í gærkveldi tókst ágætlega. Var svo mikil aðsóknin, að margir urðu frá að hverfa. Luku allir upp einum munni um það, að betri og fjölbreyttari skemmtun hefði ekki verið hér í bæ um lengri tíma. Var og vandað til allra skemmtiliða, eins og, föng voru á. Hjónaband. I dag verða gefin saman í hjónaband af séra Bjama Jóns- syni Guðfinna Bjamadóttir, bankastjóra frá Akureyri, og Björn Ólafs cand. jur. frá Mýrar- húsurn. Dansleik heldur skemmtifélagið „Gömlu dansarnir" í Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu í kvöld. Dánarfregn. Þann 3. þ. m. andaðist eftir stutta legu frú Halla Jóhannes- dóttir að Laugavegi 49, næstum 84 ára aÖ aldri. f DAG Næturlæknir er Axel Blöndal, Eiriksgötu 31, sími 3951. Næturvörður er í Reykjavíkur- og Iðunnar-apóteki. OTVARPIÐ: 20,15 Thor Thors minnist 60 ára afmæiis Vilhjálnrs Stefánssonar. 20,25 Leikrit: „Víkingamir á Há- logalandi", eftir Ibsen (Haraldur Björnsson, Anna Guðmundsdóttir, Gestúr Pálsson, Soffía Guðlaugs- dóttir, Síefán Haraldsson, Valdi- mar Helgason, Þorsteinn ö. Ste- phensen). 22,15 Fréttir. 22,25 Danslög. 24,00 Dagskrárlok. Á MORGUN: Helgidagslæknir er Halldór Stefánsson, RánargÖtu 12, sími 2234. Næturlæknir er Þór. Sveins- son, Ásvallagötu 5, sínri 2714. OTVARPIÐ: 9,45 Morguntónleikar (plötur): a) Beethoven: Sónata í f-moll (appassionata). b) Brahms: Són- ata fyrir lágfiðlu, f-moll, Op. 120, Ljóskastarakvöld verður í SundhÖllinni í kvöld kl. 5—7 fyrir börn og kl. 8—10 fyrir fullorðna, Félag slökkviliðsmanna í Rvk heldur fyrsta fund sinn á vetrinum á morgun kl. 2 e. h. að Hótel Borg. Skrifstofa Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur er í Alþýðuhúsinu við Hverfis- götu, 6 .hæð, sími 5020. Skrif- stofan er opin daglega kl. 5,15 til 7,15. Þar er tekið á móti árstillögum; enn fremur geta nýir félagar snúið sér þangað með inntökubeiðnir sínar. Hverfisstjór- aii Komið á skrifstofuna og gefið skýrslu um störf ykkar. M. A.-kvaríetíinn syngur á morgun k!l- 3 í fGamla Bíó. Vinsældir þessa ágæta kvart- etts em alltaf að aukast, og verður vafalaust húsfyllir á morgun, ef að vanda lætur.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.